Fréttablaðið - 28.11.2015, Page 26
Sigga Kling SpáKona
„Ég er að fara í þakkargjörðarmáltíð
hjá Begga og Pacasi á sunnu-
daginn. Helgar hjá mér snúast
um vinnu sem mér finnst
dásamlega skemmtileg. Ég
elska líka að vera heima
með börnunum þótt þau
séu eldri en ég. Nú er ný-
búið að vera fullt tungl
í tvíbura. Tunglið er
magnari! Við eigum
að búa til snjóhús
og leika okkur en
alls ekki að klára úr
flöskunni.
guðmundur
JörundSSon
fatahönnuður
„Við erum að kynna sam-
starf okkar við 66 gráður
norður um helgina og ég
verð að vinna í kringum
það. Ég er líka að hugsa
um að kíkja með son
minn á jólamarkað í
Elliðaárdal.”
leStu
Nýjustu bók Jonas Jonasson í
þýðingu Páls Valssonar, Víga-Anders
og vinir hans.
Bókin fær fullt hús stjarna
hjá Politiken og sögð
jafn ærslafull og fyrri
metsölubækur höf-
undar.
farðu
Í jólaþorpið í Hafnar-
firði. Fjölmargir taka
þátt í jólaþorpinu
í ár og góðrar
skemmtunar
að vænta
fyrir fjöl-
skylduna.
hluStaðu
Á Pál Óskar og Moniku á jólatónleikum í Há-
teigskirkju. Þau halda tónleika næstu helgar
í Háteigskirkju.
horfðu
Á skemmtiþáttinn
Spilakvöld með Pétri
Jóhanni Sigfússyni í
kvöld.
Þessi skemmtiþáttur
er byggður á fyrir-
myndinni Hollywood
Game Night sem hefur
slegið í gegn undan-
farin ár í
Banda-
ríkjun-
um.
Um helgina, af hverju ekki að ...
BJörK eiðSdóttir
ritStJóri
„Í dag ætla ég að baka með
vinkonu minni og börnum
hennar og hitta bróður
minn sem hefur verið
lengi erlendis.“
Sigríður Kling spá-
kona segir tilvalið að
leika sér um helgina.
Björk Eiðsdóttir
Pétur Jóhann
Jólasveinarnir ætla að syngja inn jólin og koma fólki í jólastuð,“ segir Ragnar Torfason sem fer fyrir flokki nokkurra jólasveina sem ætla að halda jólasveinadansleik á sunnudaginn og um
leið fagna útgáfu nýrrar plötu
með jólasveinalögum.
Ragnar segir jólasveinana þekkta
fyrir að vera afar fjöruga og að þeir
hafi einkar gaman af því að fá fólk til
að dansa og syngja sig í jólaskap. Þeir
bregði líka á leik á ýmsan hátt og fái
gesti með sér í glensið. „Þetta verður
jólasveinaskemmtun þar sem allir taka
þátt. Krakkarnir klappa með og leika
ýmislegt. Jólasveinarnir voru búnir að
þjálfa kindurnar sínar upp í að syngja
með en þær vildu ekki koma með í
bæinn þar sem það væri ekkert gras að
bíta í húsinu, þannig að kannski þurfa
þeir aðstoð við að leika kindur líka,“
segir Ragnar.
Á jólasveinaplötunni er að finna sex
frumsamin jólasveinalög auk tveggja
annarra laga en áralöng vinna liggur að
baki lagsmíðunum. Þau verða öll flutt á
sunnudaginn en þar koma sveinarnir
fram ásamt hljómsveit. „Skyrgámur og
Ketkrókur eru aðalsöngvararnir en svo
syngja Askasleikir og Stúfur líka eitt lag.
Bjúgnakrækir kemur örugglega líka og
kannski fleiri,“ segir Ragnar.
Jólasveinaskemmtunin er haldin í
Gullhömrum í Grafarvogi og það er
frítt inn fyrir alla. „Við vonumst til þess
að sjá sem flesta krakka, foreldra þeirra
og líka ömmur og afa. Það verður mikið
stuð, það er hægt að lofa því.“
Jólasveinar bregða á leik á jólasveinaskemmtun í
Gullhömrum á sunnudag. Þar ætla Ketkrókur og
Skyrgámur meðal annars að syngja nokkur lög.
Jólasveinarnir ætla að sjá til þess að allir sem mæta á skemmtunina komist í jólaskap. FréttaBlaðið/VilhElm
JólaSveinarnir voru
Búnir að þJálfa Kind-
urnar Sínar upp í að
SyngJa með en þær
vildu eKKi Koma með í
Bæinn þar Sem það væri
eKKert graS að Bíta í
húSinu.
í jólastuð
Ætla að
öllumkoma
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Guðmundur
Jörundsson
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r26 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin