Fréttablaðið - 29.07.2017, Page 12
ÍÞRÓTTIR Mesta fjörið í íþróttalífi
hérlendis um helgina verður án
vafa í Kaplakrikanum á milli eitt
og fjögur í dag þegar FH-ingar hýsa
tvær bikarkeppnir í tveimur íþrótta-
greinum.
Í báðum tilfellum eru heima-
menn í FH sigurstranglegri en þurfa
að berjast við kappsfulla Breiðhylt-
inga á báðum vígstöðum.
Hafa unnið alla titla frá 1994
Í 51. bikarkeppni FRÍ má búast við
að baráttan standi sem fyrr á milli
risanna FH og ÍR en félögin hafa
unnið langflesta bikara frá upphafi
sem og alla bikarmeistaratitla frá og
með árinu 1994.
Í undanúrslitaleik Borgunarbik-
ars karla taka Íslandsmeistarar FH
á móti Inkasso-liði Leiknis úr Breið-
holti. Sigurvegari leiksins mætir ÍBV
í bikarúrslitaleiknum á Laugardals-
velli 12. ágúst næstkomandi.
Leiknismenn höfðu aldrei komist
lengra en í sextán liða úrslit fyrir
þetta sumar og eru því að spila sinn
fyrsta undanúrslitaleik.
FH-liðið hefur unnið alls átta
Íslandsmeistaratitla frá árinu 2004
en aðeins komist tvisvar í bikarúr-
slitaleikinn á sama tíma. Nú hafa
FH-ingar frábært tækifæri til að
bæta úr því enda á heimavelli á móti
liði sem er í hópi neðstu liðanna í
b-deildinni.
B i k a r k e p p n i
F r j á l s í þ r ó t t a -
s a m b a n d s i n s
hefst klukkan
13.00 en annað
árið í röð fer hún fram á sama degi
og klárast á aðeins tveimur klukku-
tímum. Það verður því allt á fullu á
vellinum þessa tvo tíma sem gerir
keppnina mjög væna til áhorfs.
FH-ingar eiga titil að verja en þeir
unnu þrefalt í fyrra og stöðvuðu þá
sex ára sigurgöngu ÍR.
Tuttugasti titilinn
Vinni FH-ingar í dag þá verða
þeir bikarmeistarar í tuttugasta
sinn en ÍR-ingar hafa unnið flesta
bikartitla eða 23. Það ætla þó
fleiri félög að blanda sér í bar-
áttunni en Breiðablik, Fjölelding,
HSK og Ármann taka líka þátt.
FH-ingar urðu bikarmeistarar þegar
þeir héldu bikarkeppnina síðast
fyrir þrettán árum en
misstu þá karlatitilinn
til UMSS. FH vann hins
vegar þrefalt næstu
fjögur ár á eftir.
Mikið að gera
Það er mikið að
gera hjá karlaliði FH
í fótbolta. Liðið er
nýkomin heim frá
Slóveníu þar sem
liðið mætti Mari-
bor í forkeppni
M e i st a ra d e i l d a r-
innar. Leikurinn í
kvöld verður níundi
leikur Hafnarfjarðar-
liðsins á síðustu 34
dögum sem þýðir leik á 3,8
daga fresti auk ferðalaga til
Færeyja og Slóveníu.
Bikarleikur FH og Leiknis
átti að fara fram í gærkvöldi en
var færður fram um einn dag vegna
ferðalags FH-liðsins til Slóveníu
í vikunni. Fyrir vikið fær íþrótta-
áhugafólk óvenjulegan bikartví-
höfða í Kaplakrikanum eftir hádegi
í dag. ooj@frettabladid.is
Bikardagur í Kaplakrika í dag
Tvölfalt bikareinvígi verður á milli FH og Breiðholtsins í Krikanum í dag þegar undanúrslit Borgunar-
bikarsins í knattspyrnu karla og 51. bikarkeppni FRÍ fara fram á sama stað og á sama tíma.
Kristján Flóki Finnbogason og Arna
Stefanía Guðmundsdóttir verða í
sviðsljósinu í Krikanum í dag.
Taktu þátt á frettabladid.is/sumarleikur
Til hamingju Bryndís og Þorvarður!
Þau hlutu í verðlaun grill frá Húsasmiðjunni.
Þetta var þeirra stund með Fréttablaðinu.
Fjöldi skemmtilegra mynda hafa verið sendar inn
og við minnum á að leikurinn er enn í fullum gangi.
Drögum út glæsilega vinninga í hverri viku.
Hver fær Fiat Tipo?
Stund Þorvarðar og Bryndísar með Fréttablaðinu
Um helgina
L 08.55 F1: Æng Sport
L 11.30 Chelsea - Inter Sport
L 11.50 F1: Tímataka Sport 2
L 13.45 FH - Leiknir R. Sport
L 14.00 Opna skoska Golfstöðin
L 15.50 H. Berlin - Liverpool Sport
L 17.00 Opna kanadíska Golfst.
L 22.00 Man City - Spurs Sport
L 00.00 R. Madrid - Barca Sport
L 02.00 UFC 214 Sport 2
S 11.30 F1: Kappakstur Sport
S 14.00 Opna skoska Golfstöðin
S 16.50 ÍBV - Stjarnan Sport
S 17.00 Opna kanadíska Golfst.
S 20.00 Roma - Juventus Sport
Inkasso-deildin
ÍR - Haukar 1-2
1-0 Sergine M. Fall (18.), 1-1 Aron Jóhanns-
son (30.), 1-2 Alexander Helgason (84.).
Nýjast
Í 6. SÆTI Á OPNA SKOSKA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 6.
sæti eftir fyrstu tvo keppnisdagana
á Opna skoska meistaramótinu
í golfi sem fer fram á Dundonald
í Skotlandi. Ólafía lék einkar vel
í gær, á tveimur höggum undir
pari og lyfti sér upp í 6. sætið. Hún
er jafnframt efsti Evrópubúinn á
mótinu. Ólafía fékk fjóra fugla á
hringnum í gær, einn örn, fjóra
skolla og níu pör. Keppni heldur
áfram á morgun og hefst bein
útsending frá mótinu klukkan
14.00 á Golfstöðinni.
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT