Morgunblaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  211. tölublað  107. árgangur  UPPSKERAN Á KORNI Í ÁR ER MJÖG GÓÐ INNSÝN Í HEIM FÍKNAR TÍU TÓNLEIKA RÖÐ Í SALNUM Í KÓPAVOGI HEIMILDARÞÆTTIR 11 KLASSÍSK TÓNLIST 29ÓLAFUR Á ÞORVALDSEYRI 6 Hrossaútflutningur » 1.351 hross selt til útlanda á síðasta ári. » Flest seld til Þýskalands og næstflest til Svíþjóðar. » Verðmæti hross ræðst oft af huglægu mati. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Útflutningsverðmæti íslenskra hrossa nemur tugum milljarða á undanförnum árum. Á síðustu tíu ár- um voru hross seld til útlanda fyrir um 10 milljarða króna og fyrir sam- tals tæpa 11 milljarða króna á ár- unum 2007 til 2019. Langstærstur hluti þeirrar fjárhæðar er útflutn- ingur á hreinræktuðum hestum til undaneldis, en þeir telja um 73% af útflutningsverðmætinu á tímabilinu. Í ársskýrslu Matvælastofnunar fyrir 2018 kemur fram að útflutning- ur hesta það ár var heldur minni í fjölda talið en árið áður. Flutt var út 1.351 hross í samanburði 1.485. Alls voru seld hross til 20 landa, en ein- ungis til 17 landa 2017. Hrossin fara oftast í flugi til Liege í Belgíu og eru flutt þaðan til ýmissa Evrópulanda. Flest hrossin fóru í Þýskalands, 535, og næstflest til Svíþjóðar, 191. Að undanskilinni fækkun í fyrra hefur útflutningur hrossa aukist jafnt og þétt frá árinu 2010. Hrossaútflytjandi segir verðmæti hvers hross sem selt er að mörgu leyti huglægt. Tíu milljarðar á áratug  Mikil verðmæti fólgin í útflutningi íslenskra hrossa  1.351 hross flutt út í fyrra  Flest seld til Þýskalands  Verðmat hvers hross að miklu leyti huglægt MTugmilljarða verðmæti »14 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hross Þessir fallegu hestar voru á beit í Hafnarfirði í góða veðrinu í gær. Hvort einhverjir þeirra eiga utanlandsferð fyrir höndum skal ósagt látið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Flug Stefnt er að flugi undir nafni WOW air þegar í október. Ekki er vitað hvaða eignir fyrirtæki Michele Roosevelt Edwards (áður Ballarin), USAerospace Associates LLC, hefur keypt úr þrotabúi WOW air. Fram hefur komið í fréttatilkynn- ingu að þær tengist vörumerki hins fallna flugfélags. Jafnframt var í til- kynningu fyrir helgi sagt frá því að flug myndi hefjast í næsta mánuði. Einnig hefur Ballarin lýst því í samtali við Stöð 2 að opnað verði fyrir miðasölu í vikunni, en að því er Morg- unblaðið kemst næst hefur ekkert þeirra félaga sem nefnd hafa verið í tengslum við endurreisn WOW air flugrekstrarleyfi. Hvorki hér á landi né í Bandaríkjunum. Talið er sérkennilegt að hið nýja fé- lag hyggist hefja flug á þeim árstíma sem farþegum til Íslands fari almennt fækkandi og að óbreyttu stefni í að fé- lagið tapi peningum fram að næsta sumri, frekar en að hefja flug vorið 2020. Einnig eru uppi efasemdir um það hvernig áform sem lýst var á blaðamannafundi síðastliðinn föstu- dag samræmast rekstri lággjalda- flugfélags. Ritstjóri vefsins turisti.is segist ekki sannfærður um áformin. » 4 Efasemdir um flugáform  Yfirlýsingar vegna WOW sagðar „ekki nógu sannfærandi“  Talsmenn talí- bana sögðu að Bandaríkin myndu hljóta „meiri skaða en allir aðrir“ vegna ákvörð- unar Donalds Trumps Banda- ríkjaforseta um að hætta á síð- ustu stundu við leynifund með forystumönnum þeirra og Ashraf Ghani, forseta Afganistans. Fundurinn átti að fara fram í gær í Camp David, sveita- setri forsetaembættisins, og var Trump gagnrýndur úr ýmsum átt- um fyrir að hafa boðið talíbönum þangað svo skömmu fyrir 11. sept- ember. »13 Hætti við friðarfund í Camp David Donald Trump Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ákvað í gærkvöld að leggja til að Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, taki við emb- ættum Áslaugar Örnu Sigurbjörns- dóttur sem formaður utanríkis- málanefndar og formaður Íslandsdeildar alþjóðaþingmanna- sambandsins. Þetta staðfesti Birg- ir Ármannsson, formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, en fyrr um kvöldið hafði þingflokkurinn komið saman, fyrst og fremst í þeim tilgangi að velja í þau störf sem losnuðu þegar Áslaug Arna tók við embætti dómsmálaráð- herra í síðustu viku. Vilhjálmur Árnason, þing- maður Suður- kjördæmis, mun koma í stað Ás- laugar sem varaformaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins og tók sú breyting gildi strax í gær. Sigríður formaður utanríkismálanefndar Sigríður Á. Andersen  Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri telur að tímabært sé að hugað verði að framtíðarskipan lög- reglu og að skynsamlegt væri að fyr- irhuguð stjórnsýsluúttekt ríkis- endurskoðanda beindist að heildarendurskoðun lögreglumála í landinu. Hann segir baráttu emb- ætta um peninga og völd birtast í óeiningu. Þá telur hann að fé til málaflokksins myndi nýtast betur með einum lögreglustjóra yfir land- ið allt. Í því sambandi vísar hann til þróunar annars staðar á Norður- löndum og til embætta tollstjóra og ríkisskattstjóra hér á landi. Enn- fremur furðar hann sig á yfirlýsingu Landssambands lögreglumanna. »2 Morgunblaðið/Júlíus Lögregla Haraldur Johannessen undrast afstöðu Landssambands lögreglumanna. Vill einn lögreglu- stjóra á landinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.