Morgunblaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019
Það er ef til vill lýsandi fyrirandvaraleysi flokkanna sem
stýra Reykjavíkurborg um þessar
mundir að þegar stjórn Sorpu
ræddi í liðinni viku vanda vegna
allt að 1.641 milljónar króna fram-
úrkeyrslu við framkvæmdir fé-
lagsins var eini stjórnarmaður
borgarinnar aðeins í síma-
sambandi við aðra fundarmenn.
Reykjavíkurborg á 62% í Sorpu og
ber því eðli máls samkvæmt
meginábyrgð á því að rekstur
fyrirtækisins og fjárhagur sé í við-
unandi horfi, enda lenda mistök
með mestum þunga á borginni.
Risavaxin framúrkeyrsla erauðvitað orðin vel þekkt
fyrirbæri hjá Reykjavíkurborg en
það er aukið áhyggjuefni ef
borgaryfirvöld eru orðin svo sljó
gagnvart slíkum atburðum að þau
grípa ekki einu sinni inn í af festu
eftir á. Á bókun meirihlutans í
borgarráði er ekki að sjá að þessi
yfirgengilega framúrkeyrsla sé lit-
in þeim alvarlegu augum sem eðli-
legt væri. Þar er því „haldið til
haga að málið er á borði stjórnar
Sorpu enda hefur hún tekið málið
föstum tökum“.
Með þessu reynir meirihlutinní Reykjavík enn að vísa frá
sér ábyrgð vegna fjármálaóreiðu
en ekki með sannfærandi hætti.
Þegar svona kemur upp á getur
Reykjavíkurborg ekki vísað
ábyrgðinni annað.
Eðlilegra er, eins og fulltrúarSjálfstæðisflokksins lögðu til,
að láta innri endurskoðanda borg-
arinnar gera úttekt áður en tekin
er ákvörðun um að „borgin gang-
ist í ábyrgð fyrir nýjum skuldum
Sorpu“.
Ruslflokkur fær
nýja merkingu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bjarni Kristjánsson,
fyrrverandi rektor
Tækniskólans, lést
föstudaginn 6. septem-
ber á hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni, níræður að
aldri.
Bjarni fæddist 18. maí
1929 á Norður-Hvoli í
Mýrdal. Foreldrar hans
voru Kristján Bjarnason
og Kristín Friðriks-
dóttir. Bjarni var elstur
átta systkina.
Bjarni lauk prófi sem
vélaverkfræðingur frá
Technische Hochschule í
München árið 1956. Hann hóf störf á
teiknistofu SÍS í Reykjavík sama ár
og var þar í þrjú ár. Hann var verk-
fræðingur hjá Olíufélaginu Skeljungi
hf. frá 1959 til 1961 og hjá flugher
Bandaríkjanna á Keflavíkurflugvelli
frá 1961 til ársins 1964 þegar Tækni-
skóli Íslands var stofnaður.
Bjarni var kennari þar frá stofnun
skólans og varð rektor hans árið 1966.
Gegndi hann þeirri stöðu næstu 24 ár-
in, fram til ársins 1990. Þó að Bjarni
léti af störfum sem rekt-
or sinnti hann áfram
stundakennslu í tækni-
greinum í nokkur ár eft-
ir rektorstímabilið.
Bjarni átti ýmis
áhugamál, svo sem bók-
lestur, kveðskap, stjórn-
mál, fjallgöngur og bad-
minton. Hann var mikill
áhugamaður um veiði,
bæði skotveiðar og á
stöng. Bjarni var einn af
stofnfélögum Ármanna,
félags um stangveiði á
flugu, árið 1973 og var
formaður þess árin
1974-1976 og aftur frá 1978-1979.
Bjarni var einnig formaður Skotvís,
félags skotveiðimanna, árin 1992-1993.
Árið 2012 gaf hann út bókina Glettni
veiðigyðjunnar ásamt þeim Árna
Birni Jónassyni og syni sínum Krist-
jáni Bjarnasyni, en í henni eru raktar
sögur Bjarna af veiðum.
Hann kvæntist Snjólaugu Bruun 3.
janúar 1953. Þau áttu saman sex börn
og eru afkomendur þeirra orðnir 34 að
tölu.
Andlát
Bjarni Kristjánsson
rektor
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, hyggst
leggja fram lagafrumvarp á haust-
þingi 2019 þess efnis að fæðing-
arorlof foreldra verði lengt úr níu
mánuðum í 12.
Frumvarpið kveður á um lengingu
á samanlögðum rétti foreldra til
fæðingarorlofs sem framkvæmd
verður í tveimur áföngum á árunum
2020 til 2021. Þá mun samanlagður
réttur foreldra barna sem fæðast,
eru ættleidd eða tekin í varanlegt
fóstur 1. janúar 2020 eða síðar lengj-
ast um einn mánuð, úr níu mánuðum
í tíu. Hinn 1. janúar 2021 lengist or-
lofið um tvo mánuði til viðbótar, úr
tíu mánuðum í tólf.
Heildarkostnaður við lenginguna
er áætlaður um fjórir milljarðar á
ársgrundvelli þegar áhrif hennar
eru að fullu komin fram, af því er
fram kemur á vef
félagsmálaráðu-
neytisins. Þar
segir enn fremur
að miðað við boð-
aða lengingu og
hækkun megi
gera ráð fyrir að
heildarútgjöld til
fæðingarorlofs
verði 20 millj-
arðar árið 2022
samanborið við 10 milljarða árið
2017. Mánaðarlegar hámarks-
greiðslur úr fæðingarorlofssjóði
hafa farið hækkandi af því er fram
kemur á vef ráðuneytisins og þar
segir einnig að heildarkostnaður
vegna hærri hámarksgreiðslna síð-
ustu tveggja ára nemi um sex millj-
örðum á ársgrundvelli „þegar áhrif-
in verða að fullu komin fram“. Þá
hefur foreldrum sem þiggja
greiðslur úr fæðingarorlofssjóði
fjölgað samhliða hækkununum. 95%
foreldra sem áttu rétt til fæðing-
arorlofs árið 2018 nýttu rétt sinn en
hlutfallið var 91% árið 2015.
Frumvarp verður lagt fram í haust
Ásmundur Einar
Daðason
Vill lengja fæðingarorlof í 12 mánuði