Morgunblaðið - 09.09.2019, Side 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Misty
WARMWARE
Síðerma bolur
S-XL
Verð 6.990,-
Rúllukragabolur
Stærðir S-XL
Verð 6.990,-
Leggingsbuxum
Stærðir S-X.
Verð 7.990,-
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þessi heimur hefur alltaf ver-ið ljótur, en eftir að netiðog samfélagsmiðlar komutil sögunnar þá hefur hann
breyst rosalega hratt og harðnað.
Það eru ekki lengur eingöngu jað-
arhópar sem eru partur af vímu-
efnaheiminum, innan hans eru líka
vel funkerandi einstaklingar sem
standa sig vel í skóla, ósköp venju-
legir krakkar. Okkur langar að sýna
fólki hvernig ástandið er í raun og
veru í undirheimum Reykjavíkur.
Hversu hræðilegt það getur verið að
vera ungur einstaklingur með fíkn í
dag, það er rosalega hættulegt
ástand. Fólk er í bráðri lífshættu,“
segir Kristján Ernir Björgvinsson,
sem ásamt Eyþóri Gunnlaugssyni og
Sólrúnu Freyju Sen gerði forvarnar-
þættina Óminni sem fóru í loftið á
Stöð 2 í síðustu viku.
„Við tókum meðal annars viðtöl
við 36 nafnlausa einstaklinga úr ólík-
um áttum sem eru eða voru í neyslu
og 19 þeirra höfðu misst einhvern úr
vímuefnaneyslu nálægt sér, úr fjöl-
skyldu eða vinahópi,“ segir Sólrún
og bætir við að í næsta þætti sé við-
tal við Einar Hermannsson sem á
son sem var í neyslu.
„Hann kemur inn á hvað þetta
gerist hratt ef krakkar eru að fikta
við læknadóp, eins og gerðist með
son hans, neyslan varð svakalega
hörð á örskömmum tíma.“
Eyþór bætir við að Einar Darri
vinur þeirra sem lést fyrir ári sé enn
eitt dæmi um þetta, en hann var ný-
byrjaður að nota bensódíasepínlyf
og ópíóða þegar það varð hans bani.
Kristján segir að það hafi ekki
hvarflað að honum að Einar Darri
gæti dáið vegna þessa.
„Hann var ekki í harðri neyslu
heldur eitthvað að fikta og prófa. Ég
taldi mig vita hverjir væru öruggir
og hverjir ekki en það er ekkert
slíkt. Það er í raun happa og glappa
hver deyr og hver sleppur. Sem er
hryllingurinn í þessu. Margir halda
að þeir sem látast af völdum neyslu
á þessum sterku lyfjum séu einvörð-
ungu harðir sprautufíklar en það er
alls ekki þannig. Allir neytendur
sem fikta við þessa tískubylgju eru í
jafn mikilli hættu og því miður hefur
neysla á þeim aukist mjög mikið
meðal íslenskra ungmenna.“
Ég var fljótur á botninn
Kristján og Eyþór þekkja báðir
þennan heim af eigin reynslu, eru
óvirkir fíklar. Eyþór segir að þegar
hann fór í neyslu á sínum tíma hafi
þróunin verið mjög hröð.
„Allt fór mjög hratt á versta
veg og ég var fljótur á botninn. Eftir
að ég var kominn út úr þessu hafði
ég mikla þörf fyrir að koma því á
framfæri hvernig heimur vímuefna-
neyslu á Íslandi er orðinn. Það er
nauðsynlegt að upplýsa foreldra og
eldri kynslóðina,“ segir Eyþór sem
datt í lyfjaneyslu árið 2017. Þá fór
allt úr böndunum.
„Ég tel mig mjög heppinn að
hafa komist út úr þessu, en það var
fyrst og fremst með hjálp foreldra
minna. Fjölskylduástin kom mér út
úr vímuefnaneyslunni. Ég sagði for-
eldrum mínum frá í hvaða vanda ég
væri kominn, en auðvitað vissu þau
að það var eitthvað í gangi, ég var
uppdópaður í hvert sinn sem ég kom
heim og var alltaf að ljúga að þeim.
Maður sér eftir á hvað það brýtur
fjölskylduna þegar unglingur er í
neyslu, þau voru logandi hrædd um
mig og það voru rifrildi á heimilinu
öllum stundum.“
Kristján segir að sér finnist
magnað að ömurlegt tímabili í lífi
þeirra geti orðið til góðs og öðrum
víti til varnaðar.
„Því vissulega er það kostur við
svona þáttagerð að við Eyþór höfum
báðir verið í neyslu og höfum því að-
gang að fólki í heimi vímuefnaneyslu
til að tala við í þáttunum. Við viljum
setja forvarnarfræðsluna í nútíma-
legt umhverfi og krakkarnir taka
mark á þeim sem hafa verið fíklar og
þekkja þetta af eigin raun.“
Pissuprufur veita aðhald
Sólrún segir að það sé erfitt fyr-
ir foreldra að átta sig á hvort börn
þeirra eða ungmenni séu byrjuð í
fíkniefnaneyslu því þau geti verið al-
veg einkennalaus.
„Til dæmis ef unglingur er allt-
af pirraður, vill ekki tala við foreldra
sína og er mikið úti á kvöldin getur
það verið merki um neyslu, en það
getur líka verið ósköp eðlilegt ein-
kenni þess að vera unglingur, án
þess að hann sé í neyslu. Ég mundi
ráðleggja foreldrum að tala opin-
skátt um þetta við börnin sín, það er
mikilvægt að fræðslan komi frá
þeim. Að leggja áherslu á að foreldr-
arnir verði ekki reiðir ef börnin eru í
neyslu eða séu að prófa. Að þau
megi og eigi að tala um það við for-
eldrana. Traustið og trúnaðurinn
skiptir öllu máli.“
Kristján segir að þróun fíknar
fylgi engri formúlu, einkennin geti
verið mjög mismunandi eftir ein-
staklingum, það sé engin ein birting-
armynd eða verksummerki.
„En um leið og foreldrar skapa
umhverfi þar sem þau geta talað um
þetta við börnin sín, þá geta þau
gripið fyrr inn í ef það er ástæða til.
Foreldrar eiga hiklaust að láta börn-
in í pissuprufu ef þá grunar hið
minnsta, það skiptir engu þótt
krakkinn verði pirraður í korter,
hann verður líka pirraður ef hann er
beðinn að vaska upp. Það líður hjá.
Helst vera reglulega með pissu-
prufutékk, því það verður til þess að
þau sleppa kannski einhverjum
skiptum þar sem þeim er boðið að
prófa fíkniefni. Í því felst mikið að-
hald.“
Þau vilja að pissuprufur verði
niðurgreiddar af ríkinu, því fíkn sé
sjúkdómur sem unglingar eru í
meiri áhættu en aðrir að þróa með
sér. „Það ætti að skima fyrir honum
eins og öðrum sjúkdómum.“
Fleiri reykja krakk en áður
Eitt af því sem er nýr veruleiki í
fíkniefnaneyslu á Íslandi eru krakk-
reykingar. Krakk er gert úr kókaíni
og íblöndunarefnum, því blandað
saman og hitað svo úr verða krist-
allar og þeir síðan reyktir.
„Kókaínneysla hefur aukist
rosalega hér, hún hefur aldrei verið
meiri á tuttugustu og fyrstu öldinni
á Íslandi og framboðið er mikið.
Krakkreykingum fylgir rosalega
sterk fíkn. Stelpa sem við töluðum
við sem er krakkfíkill sagði að marg-
ir sprautufíklar væru hættir að
sprauta sig en reyktu krakk í stað-
inn, tækju krakkið sem sagt fram yf-
ir. Áhrifin af krakki koma strax en
víman varir ekki nema í nokkrar
mínútur. Fólk vill strax fá meira,
fíknin er svo hörð,“ segir Sólrún.
„Þegar ég var í neyslu fékk
fíkniefnasali mig til að prófa að
reykja krakk en sem betur fer gerði
ég það ekki rétt svo ég fann ekki
áhrifin. Eftir á áttaði ég mig á að
hann var að reyna að gera mig háð-
an þessu því þá mundi ég kaupa
meira kókaín af honum,“ segir Ey-
þór.
Þau segja flesta viðmælendur
sína, sem ýmist eru virkir eða óvirk-
ir fíklar, hafa byrjað að fikta í vímu-
efnaneyslu á aldrinum 12 til 13 ára.
„Algengast er að krakkar prófi þetta
þegar þau hafa lokið tíunda bekk eða
byrja í framhaldsskóla, en hjá þeim
sem byrja fyrr er oftast eitthvað í lífi
þeirra sem þau höndla ekki, það er
ákall á hjálp,“ segir Eyþór.
Mjög hart ofbeldi og áföll
Það er ekki að ástæðulausu að
þættirnnir heita Óminni, því xanax-
pillur sem krakkar eru að prófa eru
oft heimapressaðar með íblöndunar-
efninu rohypnol, nauðgunarlyfinu
sem veldur algjöru minnisleysi.
„Ég var meira og minna í
blakkáti frá því ég prófaði xanax
fyrst og þar til ég fór í meðferð,“
segir Kristján. „Þetta eru sjúklega
ávanabindandi efni og þetta eru
kæruleysislyf sem valda því að mað-
ur man ekkert. En aðalástæðan fyrir
því að við völdum þetta nafn er sú að
nánast allir fíklar sem við tókum við-
töl við höfðu prófað xanax og nánast
allir höfðu upplifað blakkát. Það fer
ekki vel með sálarlífið að vita ekki
hvað maður hefur gert eða hvað gert
var við mann. Maður þarf að halda
uppi lygavef þegar maður er í
neyslu, maður er alltaf að spila þetta
leikrit af því að í blakkáti man mað-
ur ekki hverju maður laug eða að
hverjum,“ segir Kristján. Eyþór
bætir við að einn viðmælandi þeirra
hafi sagt að flestir dómar sem hann
hafi fengið á sig hafi verið vegna ein-
hvers sem hann framkvæmdi í blak-
káti.
„Þeir sem eru í neyslu lenda
líka í mörgum áföllum því þessi
heimur er mjög harður og þá er
freistandi að leita í óminnisástand til
að gleyma áföllunum. Þetta verður
algjör vítahringur,“ segir Eyþór og
bætir við að flestir viðmælendur
þeirra í þáttunum hafi ofskammtað,
orðið fyrir hverskonar andlegu og
líkamlegu ofbeldi sem og kynferðis-
ofbeldi. „Með þáttunum okkar von-
umst við til að opna augu foreldra og
koma í veg fyrir að ungt fólk lendi í
þessum hryllingi.“
Sjúklega ávanabindandi efni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kraftmikið þríeyki Kristján, Sólrún og Eyþór láta sig málin varða. Þau gerðu þættina Óminni í forvarnarskyni.
Þau sem standa að gerð heimildarþáttanna Óminnis segja mikilvæga forvörn felast í því að foreldrar unglinga fái innsýn í heim vímu-
efnaneyslu. Í þáttunum eru nafnlaus viðtöl við einstaklinga sem eru eða voru í ólöglegri vímuefnaneyslu, en einnig talað við aðstand-
endur og fræðinga. Sólrún, Kristján og Eyþór vilja leggja sitt af mörkum, en strákarnir þekkja heljartak vímuefnafíknar af eigin reynslu.
Næsti þáttur Óminnis verður
sýndur á morgun þriðjudag í op-
inni dagskrá á Stöð 2, en fyrri þátt
er hægt er að nálgast á visir.is
undir flokknum sjónvarp.