Morgunblaðið - 09.09.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 09.09.2019, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019 Veiðar Það er alltaf jafn gaman að fara niður á bryggju og ná sér í fisk. Þessir reyndu fyrir sér í höfninni Hafnarfirði í fallegu veðri í gærdag. Kristinn Magnússon Fjármálaráðherra hefir nú kunngjört hvernig haga eigi ríkisrekstrinum næsta ár. Að venju lýsir hann því hvernig eigi að auka við tekjur þeirra sem minnst hafa. Ég beið spennt- ur útkomunnar, sem kom mér ekki á óvart. Það virðist vera að ráðuneytismenn hafi frjálsar hend- ur um hvernig skuli koma fram við eldra fólk og ráðherrann trúir því sem nýju neti sem lagt er fyrir hann. Við kynninguna segir hann svo ósatt meðvitað eða ómeðvitað og skal ég færa rök fyrir því. Eldri borgari sem er með 300 þúsund kr. tekjur í dag fær út- borgað kr. 246.627 krónur þ.e. 36,94% skatturinn er 110.820 krón- ur og persónuafslátturinn 56.447 krónur. Á næsta ári lítur dæmið svona út: Skatturinn af 300 þúsundunum er 35,04% eða 105.120 krónur og persónuafslátturinn 51.265 krónur. Eftir standa 246.145 krónur, eða 482 krónum minna en á þessu ári. Telur ráðherrann boðlegt að bjóða okkur eldri borgurum upp á þessar falsfréttir og skilur hann nú af hverju fylgið hrynur af Sjálfstæðis- flokknum? Það má líka benda á það að alþingi ákveður ekki alla skatta sem lagðir eru á borgarana. Til er skattur sem heitir fasteignagjöld sem er auðvitað bara auka- útsvar sem bæjar- félögin leggja á íbúana. Það veit eng- inn fyrir hvað er verið að borga. Þetta kem- ur auðvitað til af því að hlutur bæjarsjóðanna af skatta- kökunni er of lítill. Þessi gjöld hækka ár frá ári mun meira en hefðbundnar verðvísitölur. Ég vona að þetta verði eitthvað lagað í meðförum þingsins og hvar eru hinir herskáu forystumenn verkalýðsforystunnar? Ætla þeir enn einu sinni að láta sína fyrrver- andi félaga sitja í súpunni? Eftir Arnór Ragnarsson »Ég vona að þetta verði eitthvað lagað í meðförum þingsins og hvar eru hinir herskáu forystumenn verkalýðs- forystunnar? Arnór Ragnarsson Höfundur er talnaglöggur eldri borgari með jákvæða lífssýn og fv. blaðamaður. Telur fjármálaráð- herra að eldri borgarar kunni ekki að reikna? Umönnun maka eða náins ættingja með langt genginn heilabil- unarsjúkdóm er álag sem enginn getur gert sér grein fyrir hversu mikið er fyrr en hann reynir það sjálfur. Viðkomandi stendur vaktir 24/7 allan árs- ins hring ef undan er skildir þeir fáu tímar dagsins sem þeir heppnu fá á með- an ástvinurinn er í dagþjálfun eða ef viðkomandi fær hvíldarinnlögn. Fæstir telja það eftir sér að ann- ast ástvin sinn og vilja ekki að það spyrjist út hversu mjög það tekur á. En við sem störfum hjá Alzheim- ersamtökunum sjáum svo glöggt hversu ómanneskjulegan toll þetta getur tekið af viðkomandi. Auðvitað vilja allir gera sitt besta fyrir þann veika og það verður til þess að umönnunaraðili setur sjálfan sig í aftursætið, oft með mjög alvar- legum afleiðingum. Umönnun er bæði líkamlega og andlega streituvaldandi og getur því fljótt leitt til þess að menn finna til þunglyndis. Við heyrum fólk lýsa líðan eins og leiða, tóm- leika, vonleysi og reiði og að það fái jafnvel grátköst og missi áhuga á því sem það áður hafði áhuga á svo sem tómstundum, útivist eða samlífi. Þessir einstaklingar verða oft veikir án „eðlilegra“ skýringa og er ónæmiskerfinu þá oft kennt um. Heilabilunarsjúkdómurinn veldur því þannig að ekki aðeins einn veikist heldur tveir með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið. Þegar svo kemur að þeirri neyðarstund að láta t.d. maka frá sér inn á hjúkrunarheimili hellist yfir aðstandandann sektarkennd og sam- viskubit. Annað sem kemur oft illa við umönnunar- aðila, sérstaklega maka, er að tekjur heimilisins rýrna veru- lega. Sjúklingur sem greindur er á aldr- inum 50 til 60 ára á eftir mörg góð ár á vinnumarkaði, en hon- um er fljótlega eftir að veikindin uppgötvast kippt út úr atvinnulífinu. Allur kostnaður sem fellur til vegna veik- indanna leggst því á einn launþega sem svo síðar neyðist oft sjálfur til að hætta að vinna til að geta ann- ast þann veika, kauplaust allan sól- arhringinn. En bíðum við. Það er hægt að sækja um umönnunarbætur til Sjúkratrygginga og eru þær heilar 85 þúsund krónur. Ef umönnunar- aðilinn hefur neyðst til að hætta að vinna, er orðinn 67 ára og þarf að þiggja lífeyri frá Tryggingastofnun er litið svo á að um bætur sé að ræða og falla þá umönnunarbætur viðkomandi niður. Þarna nýtur hið opinbera svo góðs af því að þarna er um mjög veikan þrýstihóp að ræða sem hefur einfaldlega ekki orku til að mótmæla. Þessu þarf að breyta. Nógu erfitt er að þurfa að hætta í góðri vinnu og missa samskipti við góða vinnu- félaga, sem skiptir verulegu máli þegar ástandið heima er orðið svona snúið, þó að ekki bætist ofan á greiðsluerfiðleikar. Hið opinbera hefur því ekki, enn sem komið er, létt lífið fyrir aðstandendur og sannast því það sem sagt hefur verið að umönnunaraðilar eru einu opinberu starfsmennirnir sem vinna allan sólarhringinn, en kaup- laust. Margt væri hægt að gera að- standendum til stuðnings. Sálfræði- tímar eru t.d. jafn nauðsynlegir þessu fólki og að draga andann, en þeir eru því miður það dýrir að margir sjá sér ekki fært að sækja þá aðstoð. Þarna á það opinbera að koma að málum. Nú eru í vinnslu drög stjórn- valda að stefnu í málefnum fólks með heilabilunarsjúkdóma. Miklar vonir eru bundnar við að í kjölfar samþykktar verði til tímasett og fjármögnuð áætlun um aðgerðir til handa þessum hópi. Samtök sem kallast „Call for action on carers rights“ birti ný- lega áskorun um að sem flestir taki undir þessa yfirlýsingu: Réttindi umönnunaraðila verða að vera lögfest til að tryggja í fyrsta lagi að allir umönnunaraðilar hafi frelsi til að velja hvort og hversu mikla umönnun þeir skuli veita. Í öðru lagi að umönnunaraðilar fái nægan stuðning og aðstoð til að tryggja sjálfum sér góða heilsu, fullnægjandi fjárhag og félagslega aðlögun, óháð aldri og kyni umönn- unarþega, tekjum, menntun og hvers kyns sérstökum þörfum eða aðstæðum. Ekki má mismuna fólki eftir bú- setu. Alzheimersamtökin leggja til að þessi texti verði hluti af stefnu í málefnum fólks með heilabilunar- sjúkdóma. Eftir Vilborgu Gunnarsdóttur »Umönnunaraðili set- ur sjálfan sig í aftur- sætið, oft með mjög al- varlegum afleiðingum. Vilborg Gunnarsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna á Íslandi. Er þetta í lagi?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.