Morgunblaðið - 09.09.2019, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019
Tilkynningar
AMUNDI RESPONSIBLE INVESTING
OPEN-ENDED INVESTMENT COMPANY WITH VARIABLE CAPITAL- SICAV
Registered office: 90, Boulevard Pasteur - 75015 PARIS
PARIS Trade and Companies Register 834 854 838
CONVENING NOTICE
Dear Sir/Madam, The shareholders of AMUNDI RESPONSIBLE INVESTING are
convened to the Ordinary General Shareholders’ Meeting, which shall take place on
26th September 2019 at 8:00 am, at the premises of the management company,
91-93 boulevard Pasteur, 75015 Paris. The agenda shall be as follows:
- Reading of the Board of Directors' report on the financial year ended 31 May 2019;
- Reading of the Statutory Auditor's report and the special report on the agreements
subject to Article L. 225-38 of the Commercial Code;
- Adoption of the financial accounts for the financial year ended;
- Profit allocation for the financial year;
- Adoption of the special report drafted by the Statutory Auditor;
- Appointment of a Director;
- Authorisations for formalities.
The annual accounts, the notes and the composition of assets were filed with the Registry
of the Paris Commercial Court.
All documents that must be provided to each of the General Meetings are available to
shareholders at the Registered Office of the Company.
In accordance with the law, the right to participate in this meeting is subject to registration
of the shares in an account in the shareholder's name – or the registered intermediary if the
shareholder is resident abroad – on the second business day preceding the Meeting at
midnight, Paris time, in the registered share accounts or in the accounts of bearer shares
held by the authorised intermediary.
This registration must be recorded by a participation certificate issued by the authorised
intermediary and attached either to the postal voting form or proxy voting form, or to the
request for an admittance card issued in the name of the shareholder.
All shareholders shall be admitted to the Meeting regardless of the number of shares and
may be represented by their spouse or by a representative who is also a shareholder.
A postal voting form or proxy voting form is available to any shareholders who request it,
in writing, no later than six days before the meeting from the registered office
of the Company or its representative, CACEIS Corporate Trust, 14 rue Rouget de Lisle,
92862 Issy-Les-Moulineaux.
To be taken into consideration, this duly completed form must be returned to the Company
or to its representative cited above, no later than three days before the Meeting.
The Board of Directors
Félagsstarf eldri borgara
Boðinn Gönguhópur kl. 10:30, hittist í andyri Boðans. Bingó kl. 13:00.
Myndlist kl. 13:00. Vatnsleikfimi kl. 14:30.
Bólstaðarhlíð 43 Smíðaverkstæðið opið kl. 08:30-14:00. Morgun-
leikfimi með Rás 1 kl. 09:45. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgun-
kaffi kl. 10-10:30. Samprjón kl. 13:30-14:30. Ganga um hverfið kl.
13:00. Opið kaffihús kl. 14:30-15.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Byrjendanámskeið í
Línudansi kl. 10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlist með
Margréti kl. 12:30. Foreldrastund kl. 13. Handavinnuhorn kl. 13.
Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Kóræfing kl. 19:30. Allir vel-
komnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi
kl. 13:00. Vatnsleikf. Sjál kl.7:10/7:50/15:15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9:30.
Kvennaleikf Ásg. kl.11:00. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16:15
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Qigong 10:00-11:00 Leikfimi Helgu Ben 11:00-
11:30. Kóræfing kl. 13:00-15:00. Allir velkomnir.
Gullsmári Postulínshópur kl.9.00. Jóga kl.9.30 og kl.17.00. Handa-
vinna kl.13.00. Bridge kl.13.00. Félagsvist kl.20.00.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11:30. Jóga kl. 10:00-11:00.
Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl. 12:30-14:00. Prjónaklúbbur kl.
14:00-16:00. Námskeið í Olíumálun kl. 14-18 (skráning fer fram í síma
411-2730 eða á skrifstofu).
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 8:30,
útvarpsleikfimi kl. 9.45 og samverustund kl. 10:30. Jóga með Ragn-
heiði kl. 11:10, hádegismatur kl. 11.30, og jóga með Ragnheiði kl.
12:05. Tálgun kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum og
slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju og Borgum. Prjónað til
góðs og gefið til líknarmála hefst kl. 13:00 í dag í Borgum allir vel-
komnir. Félagsvist 13:00 í dag í Borgum og allir fastir liðir á sínum
stað. Heimsókn í Heilsuborg á morgun 10sept. lagt af stað kl. 8:45 frá
Borgum þar sem þátttökuskráning liggur frammi. Fræðsla, kynning á
leikfimi fyrir 60+ allir velkomnir og farið verður á einkabílum.
Samfélagshúsið Aflagranda 40 - Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 -
Útskurður kl.13:00 - Kynning á félagsstarfinu kl.14:00, léttar veitingar í
boði - Kaffi kl.14:30-15:20 -
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir
Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum á
Skólabraut kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Vinsamlega verið í sambandi í dag vegna greiðslu á miðum á
Brúðkaup Fígarós.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Zumba Gold byrjendur kl. 9.20 - Zumbla Gold fram-
hald kl. 10.30 - Sterk og liðug leikfimi fyrir dömur og herra kl. 11.30,
umsjón Tanya.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Smá- og raðauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Ásgeir Guðna-son fæddist í
Reykjavík 6. júní
1940. Hann lést að
heimili sínu, Sléttu-
vegi 23 í Reykjavík,
21. ágúst 2019.
Hann var sonur
Sigríðar A. Péturs-
dóttur, f. 1915, d.
1999, og Guðna Þ.
Ásgeirssonar, f.
1914, d. 1966.
Fósturfaðir Ásgeirs var Hjálmar
B. Kristjánsson, f. 1917, d. 1999.
Hálfsystir, dóttir Guðna, er Erla
Tobin, f. 1944 í Bandaríkjunum og
á fjölskyldu þar.
Fyrri eiginkona Ásgeirs er Hlé-
dís Guðmundsdóttir, f. 1941. Börn
þeirra eru: 1) Sigríður Líba, f.
stein, barn þeirra er Hallur Húmi,
sonur hans er Aron Steinn.
Seinni eiginkona Ásgeirs er
Sveinfríður Ragnarsdóttir, f.
1949. Dætur hennar eru: 1) Krist-
ín Guðjónsdóttir, f. 1965. Maki
hennar er Gísli Stefán Sveinsson
og á hann þrjú börn. 2) Hildur
Guðjónsdóttir, fædd 1982. Maki
hennar er Arnar Snæberg Jóns-
son. Börn þeirra eru Tómas
Andri, Brynjar Freyr, Egill og
Brynhildur Una.
Ásgeir var rafeindavirkjameist-
ari frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Hann stofnaði verkstæðið og
verslunina Tíðni hf. 1967 sem
hann rak í rúma tvo áratugi. Eftir
að hann seldi fyrirtækið vann
hann m.a. sem húsvörður í
Kvennaskólanum.
Ásgeir var virkur meðlimur í
AA samtökunum frá 1993.
Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey.
1963. Maki hennar
er Björn Valdimars-
son. Börn þeirra eru
Bryndís og Valdi-
mar. Guðmundur
Hallur, f. 1967. Fyrr-
verandi sambýlis-
kona hans er Þórdís
Árnadóttir, börn
þeirra eru Hlédís
Maren og Magnús
Jökull. Fyrrverandi
eiginkona hans er
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir,
barn þeirra er Karólína Sigríður.
3) Embla Dís, f. 1969. Fyrrverandi
sambýlismaður hennar er Holger
Gísli Gíslason. Barn þeirra er Gísli
Ásgeir, sonur hans er Gunnar Hol-
ger. Fyrrverandi sambýlismaður
Emblu er Sigfús Tryggvi Blumen-
Veturinn 1954-55 vissum við
Ásgeir fyrst hvor af öðrum,
skólabræður í Núpsskóla. Hann
var í annarri deild, og heimavist
með hinum frá Flateyri. Það var
þéttur vinahópur, Geiri, Snæi,
Halli, Nonni, Svanur og Svenni.
Ég var í náðum heimilisins úti í
Prestshúsi.
Kynnin tókust í vegavinnu
síðar. Við vorum að rogast með
tjöld og súlur niður af lofti
Áhaldahússins á Þingeyri. Við
mættumst í einni ferðinni, hann
náfölur og orðlaus. Hann var
skyggn og sá sýnir sem hann ótt-
aðist á þessum yngri árum og
vildi ekki ræða þótt eitthvað
togaðist upp úr honum löngu
seinna.
Við héldum samt út í vorið og
tjölduðum í Breiðadal, Holtseng-
inu, á Lækjarósi og Valseyri og í
Brekkudal. Fjöllin og lognkyrrir
firðir runnu inn í vitund okkar,
æskustöðvarnar. Um Hvilftar-
strönd lá leiðin og bæjahlöð,
Kirkjuból þrjú og Selakirkjuból
hið fjórða. Hvergi heimasætu að
sjá en álar í sundum Holtsengis
stórir og enn hálli, hrognkelsi í
Vöðunum áttu sér einskis ills von
af klofstígvéluðum krókstjakast-
rákum. Þeir hugrökku hlupu upp
um syllur margra klettabelta
meðan einn beið á því neðsta en
allir fórum við og ræddum við
nautin í Nesdal sem tóku illa á
móti gestum.
Ásgeirs beið skóli lífsbaráttu og
framfærslu sem hann þurfti að
mestu að mæta sjálfur, ólíkt undir-
rituðum. Borga sín skólagjöld,
finna sitt ævistarf sem ekki þoldi
langskólabið. Hann þekkti bei-
tuskúra og frystihús og kunni
bæði á „bíl og svanna tökin“. Flug-
gáfaður hefði hann farið í gegnum
hvaða framhaldsskólanám sem
var og fór létt með útvarpsvirkj-
anámið hjá Georg og fyrstu sjón-
varpstækin. Þau voru ekki í hás-
kerpu.
Og við urðum samferða suður
með Esju eða Heklu og heim oft.
Spiluðum Lander ferðina frá upp-
hafi til enda. Þá voru til fimm-
krónu seðlar. Höfðum aldrei koju
og gættum þess að vera úti á dekki
þegar stýrimaður rukkaði lausa-
gönguliðið. Það var ódýrast.
Minnisstæða nótt áttum við
frammi í stafni þar sem akkeris-
keðjur voru og stórgripakláfur
sem við reyndum að sofa í við
klapp öldunnar við kinnunga fyrir
Svörtuloft og Látrabjarg.
Margar stundir eltum við sam-
an einhverja afþreyingu í léttúð.
Það voru bíó, billiard, rúnturinn og
Hressó. Það fór að styttast í stút-
inn og við komum syngjandi
Day-O út úr Glaumbæ í bjarta vor-
nóttina svo að ég held að María
gamla í Kvennaskólanum hljóti að
hafa vaknað. Ásgeir var raddmað-
ur, músíkalskur og lagviss. Oft fór
síðasti tíkallinn í billiardinn á
Klapparstíg og jafnoft stóð ör-
væntingarfull leit að krónu fyrir
tveimur sígarettum í lausu. Eitt
sinn flaug sú síðasta til hafs frá
innsiglingarvita Reykjavíkur-
hafnar undir útfararsöng vega-
vinnumanna. Ekki tókst að halda
bindindisheitið sem fylgdi.
Þegar lífið hafði farið sínum
mismjúku höndum um okkur vin-
ina áttum við undir lokin sama
vinnustað í Kvennaskólanum. Það
starf rækti Ásgeir af stakri prýði,
lítillæti og lipurð.
Er þá enn, sem síst skyldi, óget-
ið ánægjustunda á heimili Ásgeirs
fyrr og síðar. Þar ornuðu okkur
minningar léttleika tilverunnar í
heiðríkju æsku og æskustöðva.
Aðalsteinn Eiríksson.
Ásgeir Guðnason
✝ Elís var fæddur íSkopun, Fær-
eyjum, 22. júní 1952.
Hann lést 22. júlí
2019.
Eftirlifandi eig-
inkona hans er Jonna
Krog, búsett á Sandi,
Færeyjum.
Elís og Jonna
eignuðust tvö börn:
1) Anna María „Mía“
Krog Sörensen, gift
Steen Hjartan Sörensen, eiga þau
synina Hjartan og Elías. 2) Ólav
Enni Elísson, ókvæntur og barn-
laus.
Foreldrar Elís voru hjónin Frið-
rikka María Poulsen húsfreyja, f. 7.
október 1913, d. 22.
júní 1978, og Jóhann
Hendrik Poulsen vél-
stjóri, f. 13. janúar
1908, d. 6. október
1999. Alsystkini El-
ísar: 1) Sigurður Jó-
hann, f. 1946, d. 2005.
2) Jakob Juul, f.
10.10. 1946. 3) Martín
Jóhann, f. 23.2. 1949,
d. 1957. 4) Sunneva
Marentza, f. 10.11.
1950.
Hálfbróðir samfeðra var Kaj, f.
12. júlí 1937, d. 2010. Hálfsystir
sammæðra er Sylvía, f. 21.10. 1943.
Útför hans fór fram 27. júlí
2019.
Elís flutti til Íslands með for-
eldrum sínum og systkinum 1964.
Elís lauk landsprófi frá Lindar-
götuskóla, síðan lá leið hans í Garð-
yrkjuskóla ríkisins og lauk hann
þaðan námi með skrúðgarðarækt-
un sem aðalfag.
Elís hafði næmt auga fyrir öllu
því fagra, ekki síst blómum og
trjám, enda var garðurinn á Þjórs-
árgötu 4 mikið listaverk er ég kom
inn í fjölskylduna árið 1966.
Oft var glatt á hjalla þegar Elís
var annars vegar, hann var
skemmtilegur, uppátækjasamur,
söngelskur og músíkalskur, enda
átti hann eftir að vinna við að
skemmta og fræða stóran hóp
hlustenda um áraraðir.
Ég mun ekki rifja upp þann þátt
í lífi hans, enda hafa fjölmiðlar
minnst hans sem eins fremsta fjöl-
miðlamanns í færeyska útvarpinu
og í sjónvarpinu.
Eins og fram hefur komið hafði
Elís næmt auga fyrir öllu sem því
sem fagurt var og kom það meðal
annars fram í klæðnaði hans. Elís
valdi föt sem hann keypti af
smekkvísi sem bar þess vitni að
þar fór maður sem hafði næmt
auga fyrir því sem hann klæddist
og einnig þegar hann valdi föt fyrir
aðra en það gerði hann þegar
þannig stóð á.
Elís minn, þú hafðir næmt auga
fyrir fötum, en einnig hafðir þú
mikla ánægju af þegar eitthvað
stærra stóð til hjá fjölskyldu þinni
á Þjórsárgötunni, og tókst virkan
þátt í því sem var að gerast.
Minnist ég þess með bros á vör,
hvað þú varst fullur af áhuga er
nálgaðist brúðkaup mitt og Sjúra,
bróður þíns.
Þú jafnvel tókst þátt í að velja
brúðarkjólinn minn og í þeim kjól
gifti ég mig.
Má því segja að ég hafi gifti mig
í kjól sem þú valdir, Elís minn,
skemmtileg minning og bara ein af
mörgum.
Það var alltaf mikið líf og fjör á
Þjórsárgötunni enda voru þið
systkinin gefin fyrir söng og hljóð-
færaleik.
En Færeyjar toguðu, þangað
fluttir þú sá eini af systkinunum.
Þú settist að á Sandey, þar
kynntist þú ungri stúlku sem
seinna varð eiginkona þín.
Mikið var gaman að koma og
vera í brúðkaupi þínu og Jonnu er
þið genguð í hjónaband 1981,
ógleymanleg minning og brúð-
kaupsveislan stóð í nokkra daga.
Þið Jonna voruð samrýmd hjón
og þið stóðuð þétt saman í blíðu og
stríðu, eins og kom berlega í ljós er
Mía veiktist, hún þurfti þá að
dvelja á sjúkrahúsi í Kaupmanna-
höfn um lengri eða styttri tíma og
var oft tvísýnt um líf hennar en þið
hjónin stóðu saman í styrk ykkar
og mætti bænarinnar.
Jonna er sterk kona og stóð þétt
við hlið þína í veikindum þínum.
Eftir að þú fluttir til Færeyja
varð samgangur milli okkar minni,
ekki voru ferðir milli landanna eins
þéttar og þær er í dag.
Svo liðu árin og þú fórst að
koma oftar til landsins, upptekinn
við vinnuna enda voru þetta oftast
vinnuferðir.
Þú hafðir því lítinn tíma til að
hitta fjölskyldu okkar.
Ég er þakklát fyrir að við Óli
gátum heimsótt þig og Jonnu í maí
síðastliðnum.
Þú sast í stólnum þínum við tölv-
una og brostir svo fallega þegar við
komum að það var auðséð að heim-
sókn okkar gladdi þig.
Þarna sá ég þig í síðast sinn á
lífi, Elís minn.
Kæri Elís, þú hefur leitað á
huga minn síðan ég var við jarð-
arför þína hinn 27. júlí síðastliðinn,
mér finnst kominn tími til að setja
örfá orð á blað til að minnast þín,
kæri vinur og mágur.
Að lokum set ég hér eitt erindi
úr sálmi eftir mig:
Hvar er upphaf hvar er endir
hvernig fæ ég svar við því?
Eilífðin þó oss á bendir
að við hittumst öll á ný.
Þín mágkona
Hjördís Björg Kristinsdóttir.
Meira: mbl.is/minnigar
Elís Poulsen
Elsku Jóhanna.
Elsku amma Óna.
Við elskum þig
svo heitt og þökk-
um allar stundir sem við höfum
verið svo lánsöm að eiga með
þér.
Heimurinn var ríkari með þig
Jóhanna María
Gunnarsdóttir
✝ Jóhanna MaríaGunnarsdóttir
fæddist 5. febrúar
1955. Hún lést 9.
ágúst 2019.
Útför hennar fór
fram 30. ágúst
2019.
í honum. Húmor
þinn, þolinmæði,
hæfileikar og kær-
leikur er ekki eitt-
hvað sem sjálfsagt
er að finna í einni
og sömu manneskj-
unni, en samt barst
þú alla þessa kosti
– og fleiri til.
Í Snægilinu situr
eftir sorgmædd
fjölskylda. Foreldr-
ar sem syrgja og skilja ekki
ósanngirni lífsins, þriggja ára
ömmustelpa sem heimtar að
bjóða ömmu Ónu í afmælisveislu
og spyr hvar hún er og svo ein
eins árs sem fannst amma algjör
snillingur sem nennti alltaf að
frussa og leika.
Ég sendi þér samúð mína
því sálin sem núna dó
svo lofsverð mun lengi sýna
ljósið sem þarna bjó.
Er lofum við ljósið bjarta
á leið sem er stundum myrk
þá þökkum við þessu hjarta
sem þráði að veita styrk.
Nú hjartað er hætt að tifa
en hlý eru okkar tár
því minningar munu lifa
í meira en þúsund ár.
(Kristján Hreinsson)
Bless elsku besta.
Þín,
Agnar, Katrín, Eva
Rakel og Arney Vala.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota innsendi-
kerfi blaðsins. Smellt á Morgun-
blaðslógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn minn-
ingargrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en á
hádegi tveimur virkum dögum fyrr
(á föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar