Morgunblaðið - 09.09.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
HM karla í Kína
Milliriðill I:
Venesúela – Rússland .......................... 60:69
Pólland – Argentína ............................. 65:91
Lokastaðan: Argentína 10, Pólland 9,
Rússland 8, Venesúela 7.
Milliriðill J:
Púertóríkó – Ítalía................................ 89:94
Spánn – Serbía...................................... 81:69
Lokastaðan: Spánn 10, Serbía 9, Ítalía 8,
Púertóríkó 7.
Milliriðill K:
Brasilía – Tékkland .............................. 71:93
Bandaríkin – Grikkland ....................... 69:53
Bandaríkin 8, Brasilía 7, Tékkland 7,
Grikkland 6.Milliriðill L:
Ástralía – Dóminíska lýðveldið ........... 82:76
Frakkland – Litháen............................ 78:75
Frakkland 8, Ástralía 8, Litháen 6, Dóm-
iníska lýðveldið 6.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM U21 karla:
Víkingsvöllur: Ísland – Armenía.............. 17
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Origo-höllin: Valur – Fram.................. 19.30
Dalhús: Fjölnir – ÍR............................. 19.30
Í KVÖLD!
Bandaríkin
Utah Royals – Portland Thorns............. 1:0
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kom inn á á
73. mínútu í liði Utah Royals.
Dagný Brynjarsdóttir lék allan tímann
fyrir Portland.
Svíþjóð
Rosengård – Djurgården ....................... 3:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan tím-
ann með Rosengård.
Guðrún Arnardóttir lék allan tímann
með Djurgården en Ingibjörg Sigurðar-
dóttir kom ekki við sögu. Guðbjörg
Gunnarsdóttir er í barneignarfríi.
Örebro – Kristianstad............................. 0:1
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan
tímann fyrir Kristianstad en Sif Atladóttir
spilaði ekki. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar
liðið.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Berghofen – Wolfsburg .......................... 0:2
Sara Björk Gunnarsdóttir lék fyrstu 75
mínúturnar fyrir Wolfsburg.
Mönchengladbach – Leverkusen........... 1:2
Sandra María Jessen lék allan tímann
með Leverkusen og skoraði fyrra markið.
Í KAPLAKRIKA
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
FH-ingar tryggðu sér sæti í 2. um-
ferð EHF-bikarkeppni karla í hand-
bolta með sannfærandi 29:21-sigri á
Vise frá Belgíu í síðari leik liðanna í
Kaplakrika í gær. Fyrri leiknum
lauk með 27:27-jafntefli og fer FH
því áfram með samanlögðum 56:48-
sigri.
FH komst fljótlega í 6:2 og voru
pirraðir belgískir gestir ekki nálægt
því að jafna eftir það. Varnarleikur
FH var til mikillar fyrirmyndar og
tapaði Vise hverjum boltanum á fæt-
ur öðrum framan af leik og FH svar-
aði með auðveldum mörkum hinum
megin. Þýski markmaðurinn Phil
Döhler lék síðan glæsilega og varði
21 skot. FH er með betra hand-
boltalið en Vise og það sást. Leik-
urinn var mjög vel upp settur hjá
FH-ingum. Þeir lágu vel til baka í
vörninni og leyfðu gestunum að
koma á sig. Varnarmenn FH eru
stórir og sterkir og unnu þeir flest
návígi og gáfu fá færi á sér.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson var
markahæstur með sjö mörk og
Einar Rafn Eiðsson skoraði fimm,
en Ásbjörn Friðriksson var alls ekki
síðri. Hann skoraði þrjú mörk sjálf-
ur og stýrði skipinu af mikilli fag-
mennsku í sókninni. Ásbjörn var
með í kringum tíu stoðsendingar og
mætti halda að hann væri með tíu
augu. Hann sér hluti á handbolta-
vellinum sem enginn annar sér.
FH lítur mjög vel út í upphafi leik-
tíðar og er alveg ljóst að liðið hefur
alla burði til þess berjast um þá titla
sem í boði eru hér á landi. Næstu
andstæðingar FH í keppninni eru
Arendal frá Noregi, sem ætti að
vera sterkari andstæðingur en Vise.
Haukar féllu úr leik í Tékklandi
Haukar eru úr leik eftir 45:51-
samanlagt tap gegn Talent Plzen frá
Tékklandi. Tékkneska liðið vann
fyrri leikinn á Ásvöllum, 25:20 og var
ljóst að verkefnið yrði ærið fyrir
Hauka á útivelli. Haukar komust
fimm mörkum yfir og náðu þannig
að jafna einvígið þegar seinni hálf-
leikur var hálfnaður. Tékkarnir voru
hins vegar mikið betri á lokakafl-
anum og tryggðu sér sigurinn í
leiknum og einvíginu. Halldór Ingi
Jónasson var markahæstur hjá
Haukum með sjö mörk.
FH keyrði yfir Belgana
FH áfram í EHF-bikarnum eftir sigur á heimavelli Varnarleikur og mark-
varsla til fyrirmyndar Ásbjörn dældi út stoðsendingum Haukar úr leik
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Markahæstur Bjarni Ófeigur Valdimarsson er hér að skora eitt af sjö
mörkum sínum fyrir FH í Evrópuleiknum gegn Vise í Kaplakrika í gær.
Kaplakriki, EHF-keppni karla, síðari
leikur, sunnudaginn 8. september
2019.
Gangur leiksins: 2:2, 6:3, 8:4, 10:4,
11:7, 14:8, 17:10, 20:13, 23:15, 25:17,
26:18, 29:21.
Mörk FH: Bjarni Ófeigur Valdimars-
son 7, Einar Rafn Eiðsson 5, Leon-
harð Þorgeir Harðarson 4, Arnar
Freyr Ársælsson 4, Ásbjörn Frið-
riksson 3/1, Ágúst Birgisson 3, Birgir
Már Birgisson 2, Einar Örn Sindra-
son 1.
Varin skot: Phil Döhler 21/1.
FH – Vise 29:21
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Vise: Sergio Rola 4/1, Yves
Vancosen 3, Matej Flajs 3, Adrien
Cusumano 2, Sebastien Gava 2,
Nuno Carvalhais 2, Banjamin Danesi
2/1, Vincent Bello 1, Thomas Mor-
mont 1, Pierre Brixhe 1.
Varin skot: Kevin Siraut 8, Rudi
Schenk 7.
Utan vallar: 4 mínútur.
Áhorfendur: 720.
Dómarar: Vadims Jaskins og Edu-
ards Zabko frá Lettlandi.
FH vann samanlagt 56:48.
Valskonur eru úr leik í EHF-
bikarnum í handknattleik eftir sjö
marka tap gegn sænsku deildar-
meisturunum í Skuru í síðari leik
liðanna í 1. umferð keppninnar í
Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær.
Leiknum lauk með 31:24-sigri
Skuru en fyrri leik liðanna á föstu-
daginn síðasta lauk með eins marks
sigri Vals, 23:22, og Skuru vann því
einvígið samanlagt 53:47.
Valskonur byrjuðu leikinn vel en
síðan ekki söguna meir. Leikmenn
liðsins gerðu sig seka um slæm
mistök í sókninni og þá lak vörnin
hjá Íslandsmeisturunum eins og
gatasigti á löngum köflum í leikn-
um. Valsliðið nýtti hornin illa og
allt of fá mörk komu af línunni. Að
sama skapi fengu ungir og óreynd-
ir leikmenn tækifæri í leiknum og
þar fór Ásdís Þór Ágústsdóttir mik-
inn.
Ríkjandi Íslands-, deildar- og bik-
armeistarar eiga langt í land og
liðið saknar sárlega reynslubolt-
anna frá síðustu leiktíð. Það er því
erfitt að sjá Hlíðarendaliðið leika
sama leik á komandi keppnis-
tímabili. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Markahæst Díana Dögg Magnúsdóttir að skora eitt af átta mörkum sínum.
Áttu ekkert í sænsku
deildarmeistarana
Origo-höllin, EHF-keppni kvenna,
síðari leikur, sunnudaginn 8. sept-
ember 2019.
Gangur leiksins: 2:3, 5:4, 6:5, 8:7,
10:12, 11:16, 12:20, 14:21, 16:26,
18:27, 22:29, 24:31.
Mörk Vals: Díana Dögg Magn-
úsdóttir 8, Ásdís Þóra Ágústsdóttir
6, Sandra Erlingsdóttir 2/2, Lilja
Ágústsdóttir 2, Auður Ester Gests-
dóttir 2, Hildur Björnsdóttir 1,
Ragnhildur Edda Þórðardóttir 1,
Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 1, Elín
Rósa Magnúsdóttir 1.
VALUR – SKURU 24:31
Varin skot: Íris Björk Sím-
onardóttir 16/1, Andrea Gunn-
laugsdóttir 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Skuru: Ulrika Olsson 6/1,
Vilma Matthijs Holmberg 6, Alex-
andra Bjärrenholt 5, Cornelia Da-
hlström 4, Elin Hansson 3, Mat-
hilda Lundström 3, Daniela De
Jong 2, Ronja Vesterlund 2.
Varin skot: Rebecca Nilsson 7.
Utan vallar: 6 mínútur.
Áhorfendur: 258.
Skuru vann einvígið 53:47.