Morgunblaðið - 09.09.2019, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Stjórnendur hjá
Amazon hafa beð-
ist afsökunar á því
að hafa fyrir mis-
tök sent hundr-
uðum kaupenda
nýjustu skáldsögu
Margaretar
Atwood, The
Testaments sem
er framhald á The
Handmaid’s Tale frá 1985, viku of
snemma. Formlegur útgáfudagur
skáldsögunnar er á morgun, 10. sept-
ember, en í síðustu viku fóru að birt-
ast færslur á samfélagsmiðlum frá
lesendum sem pantað höfðu bókina
hjá Amazon sem glöddust yfir því að
fá bókina viku fyrir formlegan út-
gáfudag. Samkvæmt frétt The
Guardian er áætlað að um 800 manns
hafi fengið skáldsöguna of snemma.
Félag bókaútgefanda í Bandaríkj-
unum brást ókvæða við og fordæmdi
vinnubrögðin hjá Amazon. Almenn-
um bóksölum væri gert að undirrita
trúnaðarsamninga vegna bókarinnar
og heita því að geyma bækurnar í
læstum hirslum fram að formlegum
útgáfudegi og því væri brot Amazon
óásættanlegt. „Við biðjumst afsök-
unar á þessum mistökum. Við metum
mikils samband okkar við höfunda,
umboðsmenn og útgefendur. Við
hörmum þau vandræði sem við höf-
um valdið félögum okkar í bóksölu-
bransanum,“ segir í yfirlýsingu
Amazon.
Margaret Atwood
800 lesendur fengu bókina of snemma
Ellefu konur hafa
stigið fram og
sakað óperu-
söngvarann Plá-
cido Domingo um
kynferðislega
áreitni og ósæmi-
lega framkomu á
síðustu þrjátíu ár-
um. Þær bætust í
hóp þeirra átta
kvenna sem stigu fram í umfjöllun
AP sem birtist um miðjan síðasta
mánuð. Angela Turner Wilson er ein
nýju kvennannna. Hún söng á móti
Domingo í óperunni Le Cid árið
1999 þegar hún var 28 ára. Í umfjöll-
un AP segist hún hafa verið sér með-
vituð um að hlutverkið gæti skipt
sköpum fyrir feril hennar. Hún lýsir
því að kvöld eitt stuttu fyrir sýningu
hafi Domingo stillt sér upp fyrir aft-
an hana og stungið hendi inn undir
kjól hennar og brjóstahaldara og
klipið hana í brjóstið. „Þetta var
vont, því hann kleip fast,“ segir Wil-
son við AP og lýsir því hversu slegin
og niðurlægð hún hafi verið á eftir.
Domingo er einn þekktasti óperu-
söngvari samtímans. Hann hefur
sungið yfir 4.000 sýningar og leikið
150 ólík hlutverk. Hann er listrænn
stjórnandi Óperunnar í Los Angeles.
Þegar fyrstu ásakanir birtust í ágúst
ákvað stjórn óperunnar að hefja
rannsókn á þeim. Samtímis aflýsti
fjöldi sinfóníuhljómsveita tónleikum
sínum með Domingo.
Placido Domingo
Fleiri konur ásaka Domingo um áreitni
Nakedness nefnist sýning sem Júl-
íanna Ósk Hafberg opnaði fyrir
helgi á Coocoo’s Nest. „Júlíanna út-
skrifaðist nýlega úr skapandi leið-
toga- og verkefnastjórnunarskól-
anum Kaospilot í Árósum þar sem
aðaláhersla hennar var á tilfinn-
ingagreind, sjálfskoðun og að búa
til örugg rými til tjáningar á því.
Fyrir það útskrifaðist Júlíanna með
BA-gráðu í fatahönnun frá LHÍ,“
segir í tilkynningu. Á Nakedness
má sjá teikningar hennar af nökt-
um módelum unnar á síðustu þrem-
ur árum. Allar eru teikningarnar
unnar á í mesta lagi fimm mínútum.
Sýningin stendur út september.
Rými Júlíanna Ósk sýnir teikningar.
Nakedness á
Coocoo’s Nest
Friðrik Rafnsson
hlaut um helgina
Ísnálina 2019
fyrir þýðingu
sína á Þrír dagar
og eitt líf eftir
Pierre Lemaitre.
Í rökstuðningi
dómnefndar seg-
ir: „Sagan sjálf
er frumleg
glæpasaga sem
segir söguna frá sjónarhorni barns
og morðingja og fellur þannig í þá
hefð glæpasagna sem kannski hófst
með Glæpi og refsingu Dostoj-
evskís. […] Þýðandanum tekst af-
bragðs vel að halda utan um þessa
fremur viðkvæmu frásagnaraðferð,
sem flækist enn frekar af því að
sögumaðurinn talar að einhverju
leyti í gegnum bernskuminningar
sínar.“ Þýðingin sé því vel heppnuð
að öllu leyti og Friðrik vel að
verðlaununum komin í harðri sam-
keppni við aðra þýðendur.“
Friðrik Rafnsson
hlýtur Ísnálina
Friðrik
Rafnsson
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Nýverið gaf dömukórinn Graduale
Nobili út fimm tónlistarmyndbönd
sem voru tekin upp í lok mars í
gömlu síldarverksmiðjunni á Hjalt-
eyri við Eyjafjörð. Á meðal verk-
anna sem tekin voru upp eru
„Draumalandið“ eftir Sigfús Ein-
arsson og Guðmund Magnússon,
„Ave Verum Corpus“ eftir Francis
Poulenc og eistneska tónverkið
„Lauliku Lapse-
põli“ eftir Veljo
Tormis. Var eist-
neska verkið tek-
ið upp á meðan
kórinn stóð og
söng á tíu sentí-
metra íshellu.
Í samtali við
Morgunblaðið
segir Þorvaldur
Örn Davíðsson,
kórstjóri Gradu-
ale Nobili, að ástæðan fyrir því að
síldarverksmiðjan á Hjalteyri varð
fyrir valinu sem upptökustaður sé
fyrst og fremst sá framúrskarandi
hljómburður sem þar er að finna.
Hörkufrost kom á réttum tíma
„Okkur langaði til þess að gera
þessa tónlist sem við erum að
syngja aðgengilegri. Ekki síður
langaði okkur að hljóðrita tónlistina
í þessu flotta rými sem Verk-
smiðjan á Hjalteyri er,“ segir Þor-
valdur spurður um ástæðu þess að
kórinn fór í þessa viðamiklu mynd-
bandaframleiðslu og segir: „Og þar
með auka kannski í leiðinni áhuga á
Hjalteyri og Eyjafirði.“
Verkin fimm voru tekin upp
hvert í sínu rýminu í Verksmiðj-
unni, þ.e. verksmiðjunni sjálfri og
lýsistankinum. Eistneska verkið
„Lauliku Lapsepõli“ var sem sagt
tekið upp í gömlum lýsistanki í átta
stiga frosti og stóð kórinn ofan á tíu
sentímetra íshellu meðan á upp-
tökum stóð. Þó að ekki megi heyra
það á röddum söngkvennanna má í
myndbandinu taka eftir rauðum
eyrum og nefjum, enda var hóp-
urinn í um tvo tíma við upptökur í
tankinum. „Þegar við, ég og tækni-
mennirnir, komum þarna norður
degi á undan stelpunum sagði um-
sjónarmaður Verksmiðjunnar mér
að það væri svo mikið vatn í tank-
inum sem mig langaði að taka upp í
að það yrði örugglega ekki mögu-
legt. Hitinn var í kringum frost-
mark og það var íshella yfir, en hún
dúaði ansi mikið þegar ég setti
þungann minn á hana.
Nema hvað. Nóttina eftir, áður
en stelpurnar komu, gerði mikið
hörkufrost og vatnið fraus rúma tíu
sentímetra, og það var akkúrat nóg
til þess að við gætum staðið þarna.
Annars hefði vatnið náð okkur upp
á brjóstkassa. Svo þetta var svolítið
áhættuatriði, en það var okkur til
lukku að þarna var um ungar og
frískar söngkonur að ræða.“ Ekki
verður sagan minna spennandi þeg-
ar Þorvaldur útskýrir að þegar upp-
tökum í tankinum var lokið hafi
myndast nokkur röð á leiðinni út úr
honum, enda hafi eini inn- og út-
gangurinn verið lítið op. „Þá kom
svolítið myndarleg sprunga í ísinn,
þegar við stóðum öll í hnapp. Þá
stóð okkur ekki alveg á sama.“
Eins og áður segir hafði hópurinn
verið í um tvo tíma í tankinum áður
en hann fór aftur út, og hafði fyrir
verið í um 6 tíma í verksmiðjunni.
„Við hefðum örugglega ekki getað
verið mikið lengur, bara upp á þol-
ið.“
Spurður hvernig hugmyndin um
hljóðritun á Hjalteyri hafi vaknað
segir Þorvaldur: „Ég bjó á Akur-
eyri í sex ár og var alltaf rosalega
hrifinn af þessum lýsistanki. Ég er
líka tengdur í Árneshrepp, en í
Djúpuvík er sambærileg verk-
smiðja, með eins lýsistanki.“
Í minningu stofnandans
Eins og áður segir er eitt verk-
anna „Draumalandið“, í nýrri út-
setningu Þorvaldar, sem var unnin
var í minningu Jóns Stefánssonar,
stofnanda kórsins. Spurður hvers
vegna verkið, og hin fjögur, voru
valin svarar Þorvaldur: „Þau voru
valin með hljómburðinn til hlið-
sjónar. Við þurftum eitthvað sem
myndi þola góðan hljómburð, en
einnig verk sem okkur finnst
skemmtilegt að syngja.“
Graduale Nobili hefur verið í
fremstu röð klassískra kóra um ára-
bil. Var kórinn stofnaður um alda-
mótin og hafa skilyrði fyrir inntöku
verið að viðkomandi sé í tónlistar-
námi til að geta tekið þátt í kórnum.
„Þetta eru stelpur á aldrinum 18 til
26 ára, sem allar eru í tónlistarnámi
eða hafa lokið sínu söngnámi. Við
köllum þetta „dömukór“, þar sem
þetta er svona mitt á milli þess að
vera stúlknakór og kvennakór.“
Hefur kórinn aðsetur í Lang-
holtskirkju, en fyrrverandi stjórn-
andi og stofnandi kórsins, áður-
nefndur Jón Stefánsson, Jónsi, var
organisti í Langholtskirkju.
„Þetta var svolítið áhættuatriði“
Dulúð Graduale Nobili í upptökum í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri við Eyjafjörð þar sem kuldinn var mikill.
Graduale Nobili hefur sent frá sér fimm tónlistarmyndbönd frá Hjalteyri
Þorvaldur Örn
Davíðsson