Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. S E P T E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 215. tölublað 107. árgangur
EINS OG Í
ATTENBOR-
OUGH-ÞÆTTI
FRUM-
KVÖÐULL Í
FRÖNSKUM
STYRMIR ER Á YFIR-
NÁTTÚRULEGU
TÍMAFLAKKI
ÆVAR ELDAR Í FIRÐINUM 12 ÞRETTÁNDI MÁNUÐURINN 29FERÐALÖG 24 SÍÐUR
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
300 sérfræðingar frá 16 löndum taka
nú þátt í Northern Challenge, al-
þjóðlegri sprengjuleitaræfingu sem
fram fer hér á landi á vegum Atl-
antshafsbandalagsins, NATO. Æf-
ingin hófst á sunnudaginn, henni
lýkur í næstu viku og þetta er í átj-
ánda sinn sem hún er haldin. Mark-
mið hennar er að æfa viðbrögð við
hryðjuverkum við fjölbreyttar að-
stæður; á flugvelli, í höfnum, í skipi
og við bryggju. Æfingin fer að
stærstum hluta fram á starfssvæði
Landhelgisgæslunnar á Keflavíkur-
flugvelli en einnig á hafnarsvæðum
víða á Suðurnesjum.
Aðstæður eru hafðar eins raun-
verulegar og kostur gefst á og í því
skyni er tilbúnum sprengjum, sem
svipar til þeirra sem fundist hafa
víða um heim, komið fyrir. Virkjuð
er sérhæfð stjórnstöð þar sem öll
uppsetning og vinnubrögð eru sam-
kvæmt alþjóðlegum ferlum NATO.
Keith Mabbott, undirforingi í kon-
unglega breska sjóhernun, segir að
landslagið hér á landi henti afar vel
til sprengjuleitaræfinga. Það sé
krefjandi bæði hvað varði veðurfar
og umhverfi. „Ef þú getur fram-
kvæmt sprengjuleit á Íslandi getur
þú gert það hvar sem er,“ segir
Mabbott.
Jónas Þorvaldsson, sprengjusér-
fræðingur hjá Landhelgisgæslunni,
segir mikilvægt að geta skapað slík-
ar aðstæður fyrir stórþjóðir. „Þetta
er stórt framlag fyrir litla þjóð,“
segir Jónas.
Morgunblaðið/Eggert
Stórt framlag fyrir litla þjóð
Sprengjusérfræðingar frá 300 löndum eru við æfingar á Suðurnesjum
„Ef þú getur framkvæmt sprengjuleit á Íslandi getur þú gert það hvar sem er“
MUmfangsmikil … »6
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Með fyrirhuguðum breytingum á
lögum um tekjuskatt gætu skatt-
greiðslur hjóna mögulega hækkað.
Guðrún Björg Bragadóttir, sér-
fræðingur hjá þekkingarfyrirtækinu
KPMG, komst að þessari niðurstöðu
með því að stilla fram dæmum.
Nánar tiltekið varðar málið rétt
hjóna til að samnýta skattþrep. Sam-
nýting persónuafsláttar verður
óbreytt en hún er þessu ótengd.
Með samnýtingu skattþrepa geta
hjón lækkað skattgreiðslur ef annar
aðilinn greiðir hátekjuskatt. Hluti
tekna færist þá á lægra skattþrep.
Hækkar um 74 þúsund
Til einföldunar stillti Guðrún
Björg upp dæmum um áhrifin að
beiðni Morgunblaðsins.
Í fyrsta dæminu greiða hjón þar
sem annar aðilinn hefur 17 milljónir í
árstekjur en hinn engar tekjur um
74 þúsund kr. meira í skatt. Upp-
hæðin hækkar jafn mikið ef tekjur
annars aðilans eru 20 milljónir.
Fyrri upphæðin, 17 milljónir, er hér
um það bil tvöfaldar meðaltekjur.
Fjármálaráðuneytið reiknaði að
beiðni Morgunblaðsins út áhrif
breytinganna á tekjur ríkissjóðs.
Lækka um 1,2 milljarða
Páll Ásgeir Guðmundsson, að-
stoðarmaður fjármálaráðherra, seg-
ir breytingarnar þýða lægri skatta.
„Heildaráhrif skattkerfisbreyt-
inganna, þegar þær eru að fullu inn-
leiddar, verða 1,2 milljarðar króna í
lægri álögur á hópinn sem samnýtir
skattþrep í núverandi tekjuskatts-
kerfi. Er hér horft til hlutmengis
skattgreiðenda sem eru í sambúð og
nýttu heimild til samsköttunar
2018,“ sagði Páll Ásgeir. »4
Skattar hjóna gætu aukist
Sérfræðingur hjá KPMG metur áhrif breytinga á samnýtingu persónuafsláttar
Niðurstaða fjármálaráðuneytisins er að breytingarnar leiði til skattalækkana
Skattkerfið að flækjast
» Áformað er að fjölga skatt-
þrepum tekjuskatts úr tveimur
í þrjú um næstu áramót.
» Sú fjölgun kallar ein og sér á
ýmsar aðrar breytingar.
» Sérfræðingur sem Morgun-
blaðið ræddi við sagði skatt-
kerfið að verða svo flókið að
það væri vart á færi leikmanna
að reikna dæmin til enda.
Fjársterkir aðilar hafa gengið frá
kaupum á 11. hæðinni í Bríetartúni
9. Með því eru seldar tvær af dýr-
ustu íbúðum í sögum höfuðborgar-
innar, sé tekið mið af verðskrá.
Annars vegar er um að ræða íbúð
sem kostar 195 milljónir og 211
milljónir með bílskúr. Samtals eru
íbúðin og bílskúrin 277 fermetrar,
eða á við rúmgott einbýlishús.
Hins vegar seldist íbúð á 187
milljónir sem kostaði 203 milljónir
með bílskúr, alls 270 fermetrar.
Tólfta hæðin, sú efsta, í Bríetar-
túni 9 er óseld en miðað við lista-
verð íbúðanna á 11. hæð myndi hún
kosta um 400 milljónir króna.
Kaupendur íbúðanna á 11. hæð
afþökkuðu hefðbundnar innrétt-
ingar sem fylgja íbúðunum. »10
Tvö hús 11. hæðin er í hábyggingunni.
Keyptu tvær íbúðir
á um 400 milljónir
Tíkin Bella fær ekki að fara frá
Noregi til eiganda síns sem búsett-
ur er hér á landi. Ástæðan er inn-
flutningsbann á hundum frá Noregi
hingað til lands vegna hundaveiki
sem hefur lagt 26 norska hunda að
velli. Bella hefði farið í fjögurra
vikna einangrun þegar hún kæmi
hingað til lands, sem kostar 300.000
krónur, og læknisskoðun sem hún
fór í fyrir brottför kostaði 100.000
krónur.
Ásdís Sjafnar Sigurðardóttir,
móðir eiganda Bellu, hefur verið í
samskiptum við MAST vegna máls-
ins og beðið um að undantekning
verði gerð fyrir Bellu. Ekki var fall-
ist á það og panta þarf nýtt pláss
fyrir hundinn í einangrun með til-
heyrandi kostnaði, ásamt flugi. » 2
Kemst ekki heim
vegna banns
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is