Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 Það er alveg ljóst að vasa- og höfuðljósin frá Fenix standast ströngustu kröfur útivistarfólks um gæði, endingu og styrkleika. Þau gera þér kleift að sjá lengra og létta þér leit við krefjandi aðstæður. Ljósstyrkur: 3200 lumens Drægni: 408 m Lengd: 266,2 mm Þvermál: 28,6 mm Þyngd: 365 g (fyrir utan rafhlöður) Vatnshelt: IP68 Fenix UC35 V2 Létt og sterklegt vasaljós með 1000 lúmena hámarksljósstyrkleika og allt að 266 m drægni. Sannkallað ofurvasaljós hannað með öryggis- og löggæslu í huga. 3200 lúmena ljósgeisli, yfir 400 metra drægni og góð rafhlöðuending. Vasaljósið er einnig útbúið fjölnota afturljósi með fjórum stillingum, m.a. rauðu ljósi til merkjasendinga. FENIX HL60R Lipurt og létt höfuðljós með góða rafhlöðu- endingu. Ljósgeislinn getur náð allt að 950 lúmenum og allt að 116 m drægni. SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Fenix TK47UE Hægt að hlaða um USB snúru. Hægt að hlaða um USB snúru. 40 ára Steinunn er frá Kollslæk í Reykholtsdal í Borgarfirði en býr í Garðabæ. Hún er íþróttafræðingur, lög- reglumaður og at- vinnukafari að mennt. Steinunn er kennari hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Maki: Leifur Halldórsson, f. 1967, rann- sóknarlögreglumaður. Börn: Einar Már, f. 2003, og Hafdís Ósk, f. 2010. Foreldrar: Einar Valgarð Björnsson, f. 1952, umsjónarmaður í Svignaskarði, og Hafdís Þórðardóttir, f. 1953, þroskaþjálfi. Þau eru búsett á Hvanneyri. Steinunn Einarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Í heiminum eru tvenns konar vandamál, þín og annarra. Sýndu öðrum skilning. Einbeittu þér algerlega að því sem þú þráir. 20. apríl - 20. maí  Naut Að hluta til viltu reyna að þóknast öðrum því það er erfitt að vera ekki sam- þykkt/ur. Gerðu það sem í þínu valdi stendur til að láta hlutina ganga upp. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er gaman að sigla fyrir full- um seglum en vertu viðbúin/n því að vindurinn geti blásið úr annarri átt. Kann- aðu alla málavexti áður en þú dæmir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gömul vandamál, sem tengjast börnum, munu hugsanlega koma upp. Mundu að ofmetnast ekki, því dramb er falli næst. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ekki hætta! Þú ert alveg að ná tak- markinu þótt þú sjáir það ekki. Vinir gefa góð ráð. Kynntu þér möguleikana sem þér standa til boða og þú finnur efalaust eitt- hvað við hæfi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú kemur ekki miklu í verk þar sem dagdraumar sækja á þig. Ekki bíða eftir fellibyl til að hrista upp í hlutunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Lífið er gott um þessar mundir. Leit- aðu ráða hjá sérfræðingum og athugaðu hvernig aðrir gera það sem þú vilt gera. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Samstarfsmaður, sem þú hefur svo sem ekki veitt neina athygli, leit- ar til þín með vandasamt mál. Farðu fyrr að sofa. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Því meira sem þú veist, því minna langar þig að vita um einkalíf ann- arra. Tíma þínum er vel varið í sjálfboða- liðastörf. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er eitt og annað í þínum eigin garði sem þarfnast athugunar og úr- bóta. Láttu af allri þrætugirni og lærðu af mistökunum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú kemst ekki hjá því að leggja hart að þér á næstunni. Leggðu allt kapp á að finna farsæla lausn svo þú getir sofið róleg/ur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Töfrar fara á stjá þegar þú lætur af því að reyna að vera fullkomin/n. Ef þú býst við að ná árangri ertu á réttri leið. til að hvíla hugann frá ritstörf- unum og tilvalið til að eiga gæða- stundir með vinum. Svo er ég að sjálfsögðu í bókaklúbbi með góð- um vinkonum frá háskólaárunum sem er skemmtileg leið til að lesa bækur af ólíku tagi og skiptast á skoðunum. Ég er félagi í Soropt- imistum sem eru samtök sem vinna að góðum málefnum og þá sérstaklega bættum hag kvenna. Að sjálfsögðu fer ég oft í leik- hús og á tónleika en ætla að verða duglegri við að sækja myndlistar- sýningar. Ég hef líka mikinn áhuga á því sem er að gerast í sjónvarps- og kvikmyndagerð. Fjölskyldan er þó mitt aðaláhuga- mál, ef hægt er að orða það sem svo, við búum við mikið barna-, tengdabarna- og barnabarnalán og ég er ansi heppin með stórfjöl- skylduna, sem og afbragðs vini og kunningja. Dótturdætur okkar tvær, Sólveig Kristjana 7 ára og Inga Lára 4 ára, eru hamingju- sprengjur og við erum svo lánsöm að þær búa rétt hjá okkur og auðga lífið svo um munar. stunda leikfimi og fer oft í sund. Svo er ég loksins farin að hafa áhuga á golfi, þökk sé þrautseigju eiginmannsins sem árum saman hefur strögglað við að glæða áhuga minn á þessu sporti. Golfið er gott S ólveig Pálsdóttir fæddist í Reykjavík 13. septem- ber 1959 en bjó fyrstu æviárin í Danmörku og Svíþjóð. Síðan lá leiðin í Melaskóla, Hagaskóla, Lindargötu- skóla og Fjölbrautaskólann við Ár- múla. Frá sex til tólf ára aldurs dvaldi Sólveig hvert sumar í Austur- Skaftafellssýslu hjá úrvalsfólki á bænum Hraunkoti í Lóni og á ung- lingsárunum vann hún í fiski, við afgreiðslu- og skrifstofustörf en meðfram skóla á vetrum sótti hún Leiklistarskóla Helga Skúlasonar flestar helgar. Sólveig lauk fjög- urra ára námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982 og starfaði við leiklist næstu árin. Hún hefur leik- ið á fjölum leikhúsa, í útvarpi, sjónvarpi og í auglýsingum. Hún hefur unnið við dagskrárgerð hjá RÚV Rás 1 og kennt á fjölda nám- skeiða m.a. hjá Iðntæknistofnun Íslands/Nýsköpunarmiðstöð auk þess að taka að sér margvísleg verkefni á sviði menningar og kennslu. Sólveig lauk BA-gráðu í al- mennri bókmenntafræði frá Há- skóla Íslands 1996 og kennslurétt- indanámi frá Kennaraháskólanum 2003. Hún var íslensku-, tjáningar- og leiklistarkennari hjá Hringsjá, náms- og starfsendurhæfingu 1996-2013. Sólveig hefur tekið að sér setu í ýmsum nefndum og ráð- um og var m.a. formaður menning- arnefndar Seltjarnarness í átta ár. Fyrsta bók hennar, Leikarinn, kom út 2012 og ári síðar Hinir réttlátu, Flekklaus 2015 og Refur- inn 2017. Fimmta bók hennar, Fjötrar, er á leið í prentun og kemur út í október. Sólveig var valin bæjarlistamaður Seltjarnar- ness 2019, fyrst rithöfunda. Áhugamálin eru mörg: „Ég er félagslynd og þykir alltaf gaman að kynnast nýju fólki. Hef yndi af að ferðast og við hjónin gerum mikið að því, bæði innanlands og utan. Ferðalögum mínum hefur fjölgað eftir að ég byrjaði að skrifa því ég ferðast þó nokkuð vegna bókanna minna. Ég geng mikið, Þetta ár, 2019, hefur verið ákaf- lega ánægjulegt. Í upphafi árs hlotnaðist mér sá heiður að vera útnefnd bæjarlistamaður Sel- tjarnarness, sem mér þykir ákaf- lega vænt um og 17. júní var ég fjallkona í þriðja skiptið á ævinni. Ætli það sé ekki met? Árið 1985 var ég fjallkona í Reykjavík, þá ung leikkona, í annað skiptið 1996 á Seltjarnarnesi en sama dag út- skrifaðist ég úr bókmenntafræð- inni og svo aftur í ár þegar ég stend á sextugu. Í hvert skipti klæddist ég hinum undurfallega skautbúningi ömmu minnar, Dóru Þórhallsdóttur forsetafrúar, en móðir mín, Björg, notaði hann einnig við sérstök tækifæri. Svo kemur fimmta bókin mín út núna í haust, tæpum tíu árum eftir að ég byrjaði að skrifa og átta árum eftir útgáfu þeirrar fyrstu. Síðasti áratugur hefur verið ótrúlega fjöl- breyttur og skemmtilegur og nú hlakka ég mikið til þess næsta enda er allt sextugum fært. Ein- hvern veginn er ég þannig gerð að finnast hvert aldursskeið spennandi og lífið fullt af tæki- færum.“ Sólveig verður stödd í Kaup- mannahöfn með sínum nánustu á afmælisdaginn en fagnar afmæl- inu enn frekar þegar Fjötrar koma út eftir mánuð eða svo. Fjölskylda Eiginmaður Sólveigar er Torfi Þorsteinn Þorsteinsson, f. 2. febr- úar 1955, forstöðumaður sam- félagstengsla hjá Brimi. For- eldrar: Áslaug Guðrún Torfadóttir f. 28. janúar 1931, d. 5. febrúar 1978, húsmóðir og Þorsteinn Svanur Jónsson, f. 8. september 1935, smiður. Þau skildu. Börn Sólveigar og Torfa eru 1) Áslaug Torfadóttir, f. 28. nóvem- ber 1982, handritshöfundur og jógakennari í Reykjavík, 2) Björg Torfadóttir, f. 10. mars 1987, stjórnmálafræðingur, starfar hjá utanríkisráðuneytinu, maki henn- ar er Pétur Hrafn Hafstein, f. 14. september 1987, saksóknarfulltrúi hjá héraðssaksóknara, dætur Sólveig Pálsdóttir rithöfundur – 60 ára Fjölskyldan Sólveig og Torfi ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Fimmta bókin á leið í prentun Bæjarlistamaður Sólveig Pálsdóttir. 30 ára Vera er Reyk- víkingur, ólst upp í miðbænum og býr þar. Hún er með BA- gráðu í arabískum fræðum frá Stokk- hólmsháskóla. Vera er dagskrárgerðarmaður á RÚV og sér um þættina Í ljósi sögunnar og er einnig á Morgunvaktinni á Rás 1. Systkini: Gísli Galdur Þorgeirsson, f. 1982, tónlistarmaður, og Ísleifur Eldur Ill- ugason, f. 1999, tónlistarmaður. Foreldrar: Illugi Jökulsson, f. 1960, rit- höfundur, og Guðrún S. Gísladóttir, f. 1954, leikkona. Þau eru búsett í Reykja- vík. Vera Sóley Illugadóttir Til hamingju með daginn Blönduós Benedikt Bjarni Blöndal Lárusson fæddist 3. september 2018 kl. 7.46 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hann vó 2.906 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Páley Sonja Wium Ragnarsdóttir og Lárus Blöndal Benediktsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.