Morgunblaðið - 13.09.2019, Side 18

Morgunblaðið - 13.09.2019, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 ✝ Einar EylertGíslason fædd- ist 5. apríl 1933 á Akranesi. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 5. september 2019. Foreldrar hans voru Gísli Eylert Eðvaldsson, f. 22.11. 1905, d. 7.8. 1963, hárskera- meistari, og Hulda Einarsdóttir, f. 18.6. 1914, d. 25.8. 1982, kaupkona. Systkini Einars eru Birgir, f. 20.7. 1936, d. 18.6. 2013, mjólkurfræðingur í Borgarnesi, og Rósa Guðbjörg, f. 18.5. 1941, d. 1.9. 2017, hús- móðir og kaupkona. Hálfsystir Einars, sammæðra, er Bryndís Benediktsdóttir, f. 9.8. 1951, heimilislæknir og prófessor við HÍ. Hinn 6. mars 1971 kvæntist Einar Ásdísi Sigrúnu Sigurjóns- Viktorsdóttir, viðurkenndur bókari, húsmóðir og bóndi, og dætur þeirra eru Ásdís Ósk, Viktoría Eik og Sigríður Elva. 3) Eyþór, f. 27.7. 1976, M.Sc. í búvísindum, ábyrgðarmaður sauðfjárræktar hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar- ins og bóndi í Sólheimagerði í Skagafirði, maki Þórdís Sigurð- ardóttir bóndi. Börn þeirra Sig- rún Sóllilja og Einar Berg. 4) Sigurjón Pálmi, f. 19.2. 1980, dýralæknir í Svíþjóð, maki Lin- néa Einarsson lyfjafræðingur og börn þeirra eru Aðalbjörg Linnéa og Arnar Ingi. Fyrri eiginkona Einars var Hallfríður Alda Einarsdóttir, f. 22.4. 1933, húsmóðir. Kjördóttir Einars frá fyrra hjónabandi er Eygló Breiðfjörð Einarsdóttir, f. 5.5. 1957, húsmóðir, en maður hennar er Borgar J. Jónsson, f. 5.2. 1954, smiður. Sonur Eygló- ar er Hartmann Rúnarsson, f. 1977, maki Margrét Rut Søren- sen, f. 1981. Börn þeirra eru Kristinn Rúnar, Jóhannes Breið- fjörð og Eygló Guðmunda. Útförin fer fram frá Glaum- bæjarkirkju í Skagafirði í dag, 13. september 2019, klukkan 14. dóttur, f. 27.12. 1949, húsmóður og kennara. Foreldar hennar: Sigurjón M. Jónasson, f. 27.8. 1915, d. 6.9. 1993, bóndi á Syðra- Skörðugili, og Sig- rún Júlíusdóttir, f. 5.6. 1907, d. 24.6. 2006, húsmóðir. Börn og barna- börn Einars og Ás- dísar eru: 1) Einar Eðvald, f. 2.1. 1971, M.Sc. í búvísindum frá Kaupmannahöfn, minkabóndi á Syðra-Skörðugili, maki Sólborg Una Pálsdóttir, sagnfræðingur, fornleifafræðingur og for- stöðumaður Héraðsskjalasafns Skagfirðinga, en dóttir þeirra er Edda Björg. 2) Elvar Eylert, f. 14.11. 1972, reiðkennari, hrossa-, sauðfjár- og ferðaþjón- ustubóndi á Syðra-Skörðugili, maki hans er Sigríður Fjóla Þá er komið að kveðjustund. Þó sárt sé að skiljast þá er okkur efst í huga þakklæti. Þakklæti fyrir að þú skyldir hafa þó verið til staðar allan þennan tíma. Þú hafðir betur í hverjum slagnum á fætur öðrum við illvíga sjúkdóma og sigraðir þannig dauðann margoft. Fyrsta glíman var tekin við krabbamein fyrir 28 árum. Þá stóðst þú enn í brúnni, stýrðir búi og áttir unga og óharðnaða drengi sem áttu erfitt að sjá fyrir sér framvindu lífsins án þín. Lífið hélt samt áfram og með einhverj- um hætti tókst okkur í samein- ingu að viðhalda þeim verkefnum sem í gangi voru, en þar var stærst rekstur búsins. Ekki má gleyma þætti móður okkar í því verkefni, en hennar dugnaður og festa skiptu oft sköpum. En þrátt fyrir kynslóðaskipti á búinu, stækkandi fjölskyldur og ný verkefni hefur þú ásamt móður okkar alltaf verið boðinn og búinn að taka þátt í verkefnum líðandi stundar og ekki talið eftir þér sporin við að létta undir með okk- ur hinum. Sem faðir var þitt stef að standa við bakið á þínu fólki, passa að allir hefðu nóg að bíta og brenna og hvetja þitt fólk til dáða. Fyrir það verðum við alltaf þakk- látir. Mótblástur dró heldur aldrei úr þér kjarkinn og hinn einarði vilji og dugnaður hefur komið þér í mark hvert sem för hefur verið heitið. Víst gast þú verið sem ólg- andi eldfjall, fullur af orku og óþreyju að koma hlutum áfram og seint verður þú sakaður um að hafa verið skoðanalaus. Minn- ingabrotin eru óteljandi, um allt það mögulega og ómögulega sem þér datt í hug að hrinda í fram- kvæmd eða fannst upplagt að aðr- ir tækju sér fyrir hendur. Reglu- festa og ríkur skipulagshæfileiki voru meðal þinna höfuðkosta og sá einstaki eiginleiki að gefast aldrei upp. Lést verkin tala og hugsaðir í lausnum. Alla tíð snerist þitt líf í grunn- inn um landbúnað og að efla það samfélag og bæta framleiðsluna. Hvort sem það var gert með skipulagðri ræktun á eigin búfé eða að vinna að félagsmálum til framfara fyrir heildina, en þar lagðir þú þig einnig alltaf allan fram. En þú gast líka stundum stuðað fólk og þá oftast með því að tala af hreinskilni og segja þína skoðun á málefnum eða verkefn- um líðandi stundar. Breytti þar engu hvort málin voru stór eða lít- il né heldur við hvern þú varst að tala. Æðstu ráðamenn þjóðarinn- ar og unglingar í kaupamennsku fengu allir sömu hispurslausu framkomuna. Það er því margs að minnast þegar horft er til baka enda ævin orðin löng og kaflarnir margir sem búið er að fara í gegnum. Hvað svo framtíðin mun bera í skauti sér verður tíminn að leiða í ljós en það má ljóst vera að jafn sterkur persónuleiki og þú varst hverfur ekki úr lífi okkar á einni nóttu þó breytingar verði á þessu jarðneska lífi. Eldmóðurinn og áhuginn að taka þátt í öllu sem stóð huga þínum næst slokknaði ekki fyrr en þú sofnaðir svefnin- um langa. „Við ellina er illt að kljást“ kvað þitt uppáhaldsskáld, Páll Ólafsson. Þessi orð hefur þú reynt á eigin skinni. Nú hefur þú slíðrað vopnin, leyft ellinni að sigra. Þú skilaðir þínu og haf þökk fyrir. Elskulegur faðir, hvíl í friði. Einar, Elvar, Eyþór og Sigurjón Einarssynir. „Bóndi er bústólpi, bú er land- stólpi, því skal hann virður vel.“ Með mikilli virðingu og þökk er Einar E. Gíslason kvaddur. Ég kynntist ungur Einari þeg- ar hann var við búfræðinám á Hvanneyri og heillaðist af kennslu föður míns og hrifningu hans á hornfirska stofninum og Nökkva, sem Einar eignaðist um tíma og ræktaði hross út af alla ævi. Nökkvi var einn af „Matta- dorum“ íslenskra hrossa, en þetta orð notaði faðir minn um örfáa stóðhesta, sem báru af vegna eig- in gæða og kynfestu. Sem bú- stjóri og tilraunastjóri á Hesti fylgdi hann sýn Halldórs Pálsson- ar, búnaðarmálstjóra, um sögu landsins, sem væri samofin sögu sauðfjárræktar og því að Íslend- ingar gátu lifað af öll harðindi með afurðum kindarinnar. Er Einar hóf búskap að Syðra- Skörðugili í Skagafirði tók við ævintýri lífs hans með eiginkonu sinni, Ásdísi Sigurjónsdóttur, sér við hlið. Það var ekki auðvelt með annasömum bústörfum að verða að auki ráðunautur Skagfirðinga hvað varðaði hrossaræktina, en sauðfjárræktin hjálpaði til. Einar naut þar aðstoðar Ásdísar, eins og ætíð síðar og tengdaforeldra, sem bjuggu fyrstu árin með þeim. Einar varð bústólpi sveitar sinnar með uppbyggingu búsins í hrossarækt, sauðfjárrækt og loð- dýrarækt, þeirra búgreina sem áttu í vök að verjast upp úr 1970. Um það leyti hóf hann félagsbar- áttu þessara þriggja búgreina með stofnun búgreinafélaga, sem hann varð síðan í forystu fyrir um langt árabil. Í þessari baráttu varð hann í orðsins fyllstu merk- ingu landstólpi nýrra hugmynda og hugsjóna. Saga búgreinafélaga á Íslandi er óskrifuð. Það hlýtur að verða mikilvægur þáttur hennar að segja baráttusögu Einars í mörg- um trúnaðarstörfum, með sínum hugsjónum og óbilandi trú á gæði landsins, moldarinnar og gróð- ursins og allra búgreina sem hver um sig legðu undirstöðu að því að lifa á Íslandi sem sjálfstæð þjóð. Við Einar vorum vinir og sam- starfsaðilar í F.hrb. Gátum deilt, því báðir rökfastir og létum ógjarnan okkar hlut. En alltaf var ágreiningurinn jafnaður með málamiðlun og smitandi gleði Einars. Því miður var síðasta rimman ójöfnuð, tengd pólitísk- um afskiptum mínum sem hann sagði að ég ætti ekki að koma ná- lægt. Umhyggja hans til mín og minna var heil. Lúpínuseyði og heilsuvörur úr minkafitu gefin okkur Margréti, bættu, en ekki síður hugurinn sem fylgdi frá Einari og Ásdísi til lækninga, sem sjálf unnu mjöðinn og kremin. Einar var „Mattador“ síns tíma í búskap, ráðunautaþjónustu og félagsmálum bænda, og einnig í kynfestu með konu sinni í fjór- um sonum. Hver um sig hafði hæfileika þeirra beggja til forystu í búgreinunum, auk þess sem yngsti sonurinn er dýralæknir ytra. Síðasta ferð Einars var ein- mitt farin til brúðkaups hans. Þá var allt fullkomnað og hægt að kveðja. Synirnir giftir og fram- haldið tryggt með farsælum af- komendum. „Vor ævi stuttrar stundar er stefnd til Drottins fundar að heyra lífs og liðins dóm.“ Einar er kvaddur við þessi skil, sem við skiljum ekki en vitum að sálin fer til Drottins fundar. Halldór Gunnarsson. Sæll granni, var viðkvæðið hjá Einari þegar við hittumst og við heilsuðumst síðan með virktum. Við Einar áttum mjög gott ná- grenni í hartnær þrjátíu ár, þar bar aldrei skugga á. Leiðir okkar lágu fyrst saman í félagsmálum hrossabænda, bæði í héraði og á landsvísu, en þar lét Einar til sín taka sem annars staðar, þar sem hann kom að verki. Einar var fyr- irferðarmikill bæði til orðs og æð- is, sagði sína skoðun umbúðalaust og fylgdi málum eftir af fullri ein- urð; gerði miklar kröfur til sjálfs sín sem og annarra sem nálægt honum stóðu og lá ekki alltaf lágt rómur. Eldmóður einkenndi Einar alla tíð, þessi leiftrandi áhugi fyrir málefnum lands og lýðs, áhuga- sviðið var vítt og hann setti sig inn í hlutina, það var alltaf gaman að setjast á móti honum við eldhús- borðið hjá þeim Ásdísi og spjalla, upplifa þennan eldmóð sem fylgdi honum fram í andlátið, þó svo að mjög væri gengið á líkamlegt þrek. Einar háði marga hildina í líf- inu en kröppust held ég að sú hafi verið sem hann háði fyrir heilsu sinni og lífi og stóð í tæp þrjátíu ár. Hann hélt sjálfur sjúkraskrá yfir þetta tímabil, sem ég fékk í hendur eftir andlátið, og það er með merkilegri heimildum sem ég hef lesið og hverjum öðrum en Einari á Skörðugili hefði dottið í hug að halda slíka skrá. Ég minnist þess að einhverju sinni rak ég stóð í fjöllin með þeim á Syðra-Skörðugili, sennilega ár- ið 1993. Það vor hafði verið fjar- lægð meinsemd úr lifrinni á Ein- ari en það kom ekki í veg fyrir að hann tæki þátt í upprekstrinum og var Ásdís einnig með. Þegar komið var vestur úr Reykjaskarði spurði einhver af sonunum mömmu sína hvað þau ætluðu langt; hún svaraði að bragði: „ég veit nú ekki hvað þessi lifrarbútur endist í honum pabba þínum“, og var þá ekki frekar spurt. Síðsumars fór Einar til Sví- þjóðar í brúðkaup sonar síns og tengdadóttur, Sigurjóns Pálma og Linnéu, og þótt öll heilsufars- leg rök mæltu gegn slíku ferða- lagi lét hann sér ekki segjast, enda ekki vanur að láta aðra stjórna ferðinni í sínu lífi. Þessu takmarki náði Einar, var við brúðkaupið og sat veisluna og dró ekki af sér frekar en vanalega. Einar var aldrei hálfur í neinu sem hann tók sér fyrir hendur. Við Kolbrún og Ingimar á Ytra-Skörðugili vottum Ásdísi og afkomendum okkar dýpstu sam- úð. Ingimar Ingimarsson. Einar E. Gíslason á Syðra- Skörðugili var ótrúlegur atorku- maður. Hann var ekki einasta gríðarlega öflugur bóndi heldur líka framtakssamur félagsmála- maður á fjölmörgum sviðum land- búnaðarins. Þegar saman fer brennandi áhugi, dugnaður og óbilandi trú á verkefnunum er það líkast því sem menn séu ekki einhamir. Þannig var Einar á Skörðugili. Nafna mínum kynntist ég fyrst þegar þau Ásdís Sigurjónsdóttir settu saman bú sitt á Syðra- Skörðugili, fyrst í félagi við þau Sigurjón M. Jónasson, Dúdda, og Sigrúnu Júlíusdóttur, foreldra Ásdísar, sem þar höfðu búið um langa hríð. Sjálfur var ég sá lukk- unnar pamfíll að vera sumar- drengur í sveit hjá þeim Dúdda frænda mínum og Sigrúnu all- mörg sumur. Þar leið mér vel og vistin á Skörðugili mótaði mig. Ég varð fljótt sem einn úr fjölskyldunni og bast þar óbilandi vinar- og tryggðaböndum við Skörðugils- fólkið allt. Þar hef ég alltaf átt góðu að mæta. Þegar Einar Gíslason settist að á Skörðugili var sumarárunum mínum þar lokið fyrir margt löngu. En smám saman kynntist ég honum og við áttum margt saman að sælda. Búskapurinn á Syðra-Skörðugili efldist og jókst ár frá ári. Synir þeirra Einars og Ásdísar fóru snemma að leggja búskapnum lið og þar vantaði ekki dugnaðinn frekar en hjá for- eldrunum. Það er myndarlegt að horfa heim að Syðra-Skörðugili þar sem nú er þríbýli og stund- aður fjölþættur, öflugur og vel hýstur búskapur. Heimsóknir mínar til Ásdísar og Einars voru ekki einhverjar kurteisisvitjanir með þægilegu innispjalli. Einar kom sér alltaf beint að efninu. Vék máli sínu að því sem honum var efst í huga hverju sinni, setti fram einarðar skoðanir sínar, kallaði eftir við- horfum mínum og vildi kryfja málin. En það leyndi sér heldur ekki að hann talaði fyrir sjónarmiðum sínum af ákveðni og sýtti það síst ef hann gat fengið mann á sitt band. Fyrir honum var samtalið leið að niðurstöðu – og þótti ekki lakara ef hún var honum að skapi. En ákafamaðurinn var líka ráðhollur og tilbúinn til að koma manni til varnar ef honum þótti tilefni til. Margoft hringdi hann í mig – ekki síst á landbúnaðarráð- herraárum mínum – til þess að koma með ábendingar um það sem honum þótti til framfara horfa, eða til að stappa í mig stál- inu ef hann vissi að ég stóð í ein- hverju stríði. Þar naut ég ábyggi- lega frændsemi og óbilandi vináttu Skörðugilsfólksins. Allt frá því að ég fyrst kom í Skörðugil hefur heimilið verið er- ilsamt og jafnan gestkvæmt. Ás- dís var sannkallaður klettur sem aldrei haggaðist sama á hverju gekk. Meðfram kennslu í Varma- hlíðarskóla og fjölþættu fé- lagsstarfi sinnti hún umfangs- miklum heimilisstörfunum og öllu því öðru sem búið þarfnaðist. Í langvarandi veikindum Einars var hún stoð hans og stytta og alltaf jafn æðrulaus, sama á hverju gekk. Nú er mikill kappi að velli lagð- ur. Við Sigrún sendum Ásdísi, sonum þeirra, tengdadætrum, barnabörnum og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Ein- ars E. Gíslasonar. Einar Kristinn Guðfinnsson. Hann Einar Gíslason lifði lífinu sannarlega lifandi, kjarkaður og óbilandi maður framfara hvar sem hann lagði hönd að verki, vel jarðtengdur alla tíð, glaður og harðskeyttur talsmaður bænda og sínýrra leiða til hagræðingar, með nýjar tekju- og afkomuvið- bætur í huga. Það var gefandi að eiga sam- starf við hann og bæði gott og gaman að mega eiga vináttu þeirra hjóna beggja, Ásdísar, þeirrar ofurkonu afkastanna og gestrisnu húsmóður, og hans nafna míns. Mér var það á sínum tíma ómetanlegt að eiga samstarf við þá öflugu framkvæmda- og hug- sjónamenn, Einar á Syðra- Skörðugili, Magnús á Lágafelli og sr. Halldór í Holti, þegar efnt var til nýsköpunar í venjulegum hrossabúskap til matvælafram- leiðslu. Sú búgrein lifir enn og það ég best frétti góðu og vaxandi lífi. Einar var öllum hnútum kunn- ugur sem sneru að tilraunastarfi við búfénað og gekk ótrauður til verka og þannig byrjaði sam- starfið hjá honum í hrossarækt- arhéraðinu Skagafirði. Það var oft nokkuð erfitt og snúið fyrstu tvö árin fyrir norðan, en alltaf upplífgandi við forustu nafna míns í hópi glaðlyndra og framfarasinnaðra bænda þar í héraði. Hann Einar Gíslason var margra manna jafnoki í fjöl- breyttum störfum sínum fyrir ís- lenskan landbúnað og alltaf sjálf- um sér samkvæmur í orðum og athöfnum, þannig menn eru alls trausts verðir, enda naut hann víðtæks trausts. Kjark- og fjölskyldumaðurinn Einar Gíslason fór auðvitað til Svíþjóðar í brúðkaup yngsta son- ar þeirra Ásdísar hvað sem öllum heilsufarsaðvörunum leið, náði því og heim aftur. Horfði þá, eins og alltaf ella, fram, ekki aftur, það var honum líkt. Vinkonu okkar, Ásdísi Sigur- jónsdóttur, sonum þeirra Einars og fjölskyldum þeirra sendum við Jóhanna einlægar samúðarkveðj- ur og -óskir. Honum sjálfum góðrar ferðar á vit nýrra áskor- ana. Einar Birnir. Mig langar að minnast hans Einars sem bróður míns. Við eigum sömu móður og tutt- ugu ár eru á milli okkar. Hann var svo mikilvæg persóna í lífi okkar, elsta barnið hennar mömmu sem henni þótti svo einlæglega vænt um og sem hún fékk svo ríkulega endurgoldið. Hann var sá sem alltaf var hægt að treysta, ærleg- ur, hreinn og beinn. Einar mótaðist mjög af mömmu, enda tengsl hans við föð- ur sinn lítil eftir að þau skildu. Líkt og mamma las hann mikið og hafði mjög ákveðnar skoðanir og óhræddur við að láta þær ljós. Þeim sem lítið þekktu hann gat fundist hann harður, en í raun var hann svo hlýr og viðkvæmur. Ein lítil minning. Við mamma horfum út um gluggann, klukkan nálgast sex á aðfangadag, kol- svarta myrkur, snjókoma og stormur úti. „Ég vona að það sé í lagi með hann elsku Einsa minn,“ segir mamma áhyggjufull. „Það er svo vond færðin ofan úr Borg- arfirði.“ Þá er hurðinni hrundið upp, Einar stendur í dyragætt- inni með loðhúfuna á höfðinu, all- ur snjóugur og hressilegt útiloftið fylgir honum. Hann skellihlær, faðmar okkur báðar … hvað varstu orðin hrædd um mig, þú vissir að ég myndi koma fyrir sex … ég varð nú að klára verkin áður en ég lagði af stað! Allt í einu er allt svo auðvelt, það var eins og jólaljósin byrji að loga, jólin stíga inn og húsið hljómar af hlátri og kátínu. Enn í dag strýk ég borðstofu- húsgögnin mín, stolt heimilisins. Hvar fékkst þú eiginlega þessu húsgögn segir fólk. Hann Einar bróðir minn keypti þau handa mömmu þegar hann var að ljúka námi í Danmörku og lét flytja þau heim. Fátækur námsmaðurinn setti sinn síðasta aur í þau til að gleðja mömmu. Strax þarna stór- huga höfðingi. Það var upplifun fyrir mig borgarbarnið að koma að Hesti þegar hann var bústjóri þar. Allt- af 20 manns í mat, hann stýrði fjölda manns í vinnu, sá til að ekk- ert væri gert með hangandi hendi, maður passaði sig á að verða ekki fyrir. Alda sá til þess að heimilið var þrifið í hólf og gólf og myndarskapurinn einstakur. Þarna voru líka Sigrún, Steinþór og Eygló. Mamma skrifaði mér til Þýska- lands og sagði að hann Einar væri farinn að vera með stúlku, Ásdísi. Hvílíkur happafengur! Ekki mátti á milli sjá hvort var meiri dugnaðarforkur, en mildi og ró- legheit fylgdu Ásdísi og breyttu Einari um margt. Þau fluttu í Skagafjörð þar sem léttleiki og söngur réðu ríkjum á Syðra- Skörðugili og drengirnir þeirra fjórir uxu úr grasi og skara fram úr hver á sínu sviði. Einar var alltaf tákn hreysti, hann bar sig þannig. Það eru ekki margir sem hafa sigrast endur- tekið á krabbameini eða hlaupið upp heimreiðina í hörkufrosti og húkkað sér far á sjúkrahúsið eins og þegar hann fékk stórt hjarta- áfall. Fram á síðustu stundu var hugurinn skýr og fullur af áhuga, þó svo að líkamleg heilsa væri bágborinn. Hann leit aldrei á sig sem gamlan eða veikan. Viljinn var einstakur. Um miðjan ágúst var hann mættur í þjóðbúningnum í brúðkaup Sissós, skálaði, ræddi við viðstadda, sat við háborð og gladdist á þessari góðu stundu. Þar fór ekki dauðvona maður. Ég er svo þakklát og stolt fyrir að hafa átt þennan einstaka bróð- ur. Bryndís Benediktsdóttir. Einar Eylert Gíslason Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.