Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnaðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Ýmislegt
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Tahoo Maxi - Stærðir S-3XL
Svart, hvítt og húðlitt.
Verð 1.790 kr.
Gabe - Stærðir M-XXL
Svart og hvítt.
Verð 2.650 kr.
Rona - Stærðir M-3XL.
Verð 2.990kr
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Eiðsvallagata 20, Akureyri, fnr. 214-5764, þingl. eig. Hjörtur Hvann-
berg Jóhannsson og Gauja Björg Aradóttir, gerðarbeiðandi Akureyr-
arkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk. kl. 10:00.
Miðhúsavegur 2, Akureyri, fnr. 214-9114, þingl. eig. HGT ehf., gerðar-
beiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk. kl.
11:00.
Glerárgata 28, Akureyri, fnr. 214-6538, þingl. eig. Glerárgata 28 ehf.,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk.
kl. 09:45.
Glerárgata 28, Akureyri, fnr. 214-6537, þingl. eig. Glerárgata 28 ehf.,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk.
kl. 09:40.
Glerárgata 28, Akureyri, fnr. 214-6539, þingl. eig. Glerárgata 28 ehf.,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk.
kl. 09:50.
Glerárgata 28, Akureyri, fnr. 214-6534, þingl. eig. Glerárgata 28 ehf.,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk.
kl. 09:35.
Sunnuhlíð 12, Akureyri, fnr. 215-1109, þingl. eig. Fannarfell ehf.,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk.
kl. 10:20.
Njarðarnes 2, Akureyri, fnr. 225-6078, þingl. eig. Skúrinn ehf.,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk.
kl. 10:30.
Glerárgata 28, Akureyri, fnr. 214-6533, þingl. eig. Glerárgata 28 ehf.,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 17. september nk.
kl. 09:30.
Jódísarstaðir, Eyjafjarðarsveit, fnr. 215-9011, þingl. eig. Hlynur Kris-
tinsson og Snæbjörn Sigurðsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf.,
þriðjudaginn 17. september nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
12. september 2019
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Gunnarsbraut 49, Reykjavík, fnr. 201-2263, þingl. eig. Halldór Sig-
urður Kjartansson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf., Reykjavíkur-
borg og Framtíðin lánasjóður hf., þriðjudaginn 17. september nk. kl.
10:00.
Flókagata 43, Reykjavík, fnr. 201-1643, þingl. eig. Ragnar Þórisson
og Hjördís Árnadóttir, gerðarbeiðandi Ríkisskattstjóri, þriðjudaginn
17. september nk. kl. 10:30.
Flugvöllur -spilda, Reykjavík, fnr. 202-9306, þingl. eig. Hverfiseignir
ehf., gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 17. september
nk. kl. 14:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
12. september 2019
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hvammur III, Rangárþing ytra, fnr. 219-7171, þingl. eig. Laugavegur
ehf., gerðarbeiðandi Forni sf., fimmtudaginn 19. september nk.
kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
12. september 2019
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Leikfimi með Hönnu kl. 9-9.45. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur
við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könn-
unni. Allir velkomnir. S. 535 2700.
Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15.
Bústaðakirkja Karlakaffi hefst í dag, 13. september, kl. 10-11.30. Allir
heldri karlmenn eru hjartanlega velkomnir í morgunkaffi og spjall.
Hólmfríður djákni kynnir vetrarstarfið og sér um stundina. Hlökkum
til að sjá ykkur.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin kl. 8.50.
Thai chi kl. 9. Botsía kl. 10.15. Þátttökulistar liggja á borði í holinu og
tilbúnir til skráningar. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið
Margrétar kl. 12.30. Kynning á vetrarstarfinu kl. 13.30. Síðdegiskaffi kl.
14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar síma 411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi í setustofu kl. 9.45.
Botsía í setustofu kl. 10. Föstudagshópurinn hittist í handverkstofunni
kl. 10. Tálgað í tré í smiðjunni kl. 13. Frjáls spilamennska í setustofu kl.
13-16.30. Handaband í handverkstofu kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hádegis-
matur frá kl. 11.30-12.30 og vöfflukaffi kl. 14.30. Heitt á könnunni.
Nánari upplýsingar í síma 411 9450.
Garðabær Dansleikfélag Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30, og frá Garðatorgi 7. kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Smiðjan, Kirkjuhvoli opin kl. 14-17. Velkomin.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjóna-
kaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um
hverfið kl. 10.30. Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15. Bókband með leiðbein-
anda kl. 13-16. Kóræfing kl.13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía-æfing, kl. 9.30 postulíns-
málun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist.
Grensáskirkja Miðvikudaginn 18. september kl. 12.30 verður farið í
sameiginlega ferð eldri borgara starfs Bústaða- og Grensáskirkju. För
er heitið að Flúðasveppum og snætt á Farmers Bistró. Heimferð um
Þingvöll. Skráning í síma 528 4410 í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Botsía kl. 10 -
11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45.
Hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúflar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum.
Sundleikfimi með Brynjólfi kl. 9 í Grafarvogssundlaug. Gönguhópar
leggja af stað frá Borgum kl. 10 og brids hefst kl. 12.30 í Borgum í
dag. Hannyrðahópur í Borgum kl. 12.30 en tréútskurður á Korpúlfs-
stöðum hefst á ný í næstu viku.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bingo kl. 13.30. Uppl í
s. 411 2760.
Samfélagshúsið Aflagranda 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg
pláss og allir velkomnir. Zumba Gold, 60+ kl. 10.30, frábær hreyfing,
laus pláss. Kaffi kl. 14.30-15.20. Bingóið byrjar 20. september nk. kl.
13.30, spjaldið á sama góða verðinu 250 krónur.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13.
Spilað í króknum kl. 13.30 og brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Skráning
hafin á haustfagnaðinn sem verður í salnum á Skólabraut fimmtu-
daginn 26. september kl. 18. Gaman saman, léttar veitingar og
skemmtun.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansleikur í Stangarhyl 4 sunnu-
dagskvöld 8. september kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og
njótum.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni kl. 13-14.
Kaffi kl. 14-14.30. Allir velkomnir.
Nauðungarsala
mbl.is
alltaf - allstaðar
200 mílur
Úti á bökkunum
fyrir ofan fjöru-
kambinn á Borgar-
firði eystra þar sem
úthafsaldan gælir við fjörusteina
og klappir, kúrir lítið hús. Í bak-
sýn standa Dyrfjöll vörð um
fjörðinn okkar fagra. Í þessu húsi
bjó bróðir minn, Hjálmar Björn
Geirsson sem lést svo sviplega
21. ágúst. Þegar svona hörmuleg-
ar fréttir berast fer allt úr skorð-
um, allt sem vakti gleði breytist á
einu augnabliki í sorg. Lífið fór
ekki mildum höndum um Hjálm-
ar. Nýorðinn 15 ára er hann kom-
inn til Eyja á vertíð. Bróðir okk-
ar, Karl Brynjar, þá látinn fyrir
fáum mánuðum, þrjú ár skildi þá
að í aldri. Þeir voru samrýndir
bræður og mjög kært á milli
þeirra. Síðan vann Hjálmar bæði
til sjós og lands en sjómennskan
varð hans ævistarf. Hann var
hörkuduglegur og eftirsóttur í
vinnu hvar sem var, bæði fyrir
dugnað og snyrtimennsku.
Hann varð fyrir miklu áfalli
þegar hann missti sambýliskonu
sína sem var stóra ástin í lífi
hans, ásamt dóttur hennar, í
hörmulegu bílslysi. Nokkru síðar
lést Grímur æskuvinur hans. Ég
held að hann hafi aldrei komist
frá þessum áföllum sem mörkuðu
djúp spor í allt hans líf.
Hjálmar var einstaklega
hjartahlýr og mátti ekkert aumt
sjá. Hann var ekki allra en trygg-
ur vinur vina sinna. Hjálmar var
mér og strákunum mínum of-
boðslega góður enda elskuðu þeir
allir Hjalla frænka. Mér þótti
undurvænt um þennan bróður
minn, þó að við værum ekki alin
upp saman var sterk taugin á
milli okkar.
Þegar ég var að koma austur
beið hann með opinn faðm og
húsið sitt fyrir mig og maður fann
hvað maður var hjartanlega vel-
kominn.
Hjálmar stundaði sjóinn heima
á meðan heilsan leyfði. Stoltur
Hjálmar Björn
Geirsson
✝ Hjálmar BjörnGeirsson fædd-
ist 4. janúar 1950.
Hann lést 21. ágúst
2019.
Hjálmar var
jarðsunginn 31.
ágúst 2019.
sigldi hann út fjörð-
inn til fiskveiða á
bátnum sínum,
Sunnutindi. Þegar
aflaðist vel fengu
aðrir að njóta þess
með honum. Hann
var óskaplega gjaf-
mildur, mörg kílóin
var hann búinn að
senda okkur systk-
inunum fyrir sunn-
an. Það átti vel við
hann máltækið „betra er að gefa
en þiggja“. Borgfirðingar reynd-
ust Hjálmari einstaklega vel og
fyrir það verð ég endalaust þakk-
lát. Ég á eftir að sakna símtal-
anna okkar, við vorum dugleg að
hringja hvort í annað. Ég sagði
stundum þegar ég sá að það var
hann sem var að hringja, „hver er
á línunni?“ þá var svarið „þetta er
hann Bjössi litli í Bakkakoti“.
Nú skilur leiðir í bili, minn
kæri. Ég þakka ljúfu stundirnar,
alla hjartahlýjuna og fallegu
minningarnar sem þú skildir eftir
og fyrir að vera yndislegur
bróðir.
Megi ljóssins englar lýsa veg-
inn þinn til nýrra heimkynna þar
sem Móri þinn bíður eftir þér,
ásamt ástvinunum sem farnir
voru á undan.
Ég tileinka bróður mínum
þetta litla ljóð sem heitir Vor við
sæinn:
Lífið á sér leyndardóm;
ljúfan dreng á votum skóm.
Lítill bátur landi frá,
leggur fram á opinn sjá.
Út frá ströndu báran ber
bátinn litla í fangi sér,
sem í fjarlægð siglir nú
sólarlagsins gullnu brú.
Seiðir vorsins sólarlag;
saman tengir nótt og dag,
dulúð sjávar, loft og land
og lítinn dreng við fjörusand.
Er í hverju andartaki
eilíf dulin þrá,
gyllir hafið heimsins ljós,
hnígur aldan blá.
(Hákon Aðalsteinsson)
Elsku Hjálmar minn, hvíldu
sæll í faðmi friðar.
Þín systir
Margrét.
Hálfa ævina átti
ég ekki föður, því
blóðfaðir minn
ákvað að finna sér
aðra fjölskyldu. Svo kynntist ég
Ævari og trúið mér; hann varð
mér sem faðir. Ég hef ekki
þekkt annan mann sem var jafn
góður, vingjarnlegur og hlýr
sem hann. Augu hans voru
ávallt full af samúð og brosinu
hans mun ég aldrei gleyma.
Hann olli því að ég fór að hafa
trú á öðru fólki og ég veit að
hann bar velferð mína fyrir
brjósti. Ég get ekki verið hjá
honum núna en frá hjartans rót-
um vil ég þakka fyrir allt. Fyrir
það að í hjarta þínu varstu alltaf
tilbúinn að taka á móti öðrum og
fyrir að kenna mér hvernig á að
elska aðra manneskju sem mitt
sanna foreldri. Allt þér að
þakka, Ævar. En ég hef ekki af
þér áhyggjur því ég er þess full-
viss að þú sért nú á góðum stað
Ævar Ármannsson
✝ Ævar Ár-mannsson
fæddist 2. október
1958. Hann lést 31.
júlí 2019.
Útför Ævars fór
fram 17. ágúst
2019.
þar sem allar ær-
legar manneskjur
enda. Viltu vera svo
góður að hafa auga
með þínum nánustu
frá himnum. Þau
þurfa enn á nær-
veru þinni og kær-
leik að halda.
Karolina
frá Póllandi.
Ævar er ástríkasti maður í
veröldinni. Ævar er fyndnasta
mannvera í heimi. Ævar er góð-
hjartaður. Ævar er mildur en
um leið harður. Ævar er hug-
rakkur. Ævar er víðsýnn. Ævar
er skapandi. Ævar er óstöðv-
andi.
Af öllu fólki í heiminum er
hann sá sem mér þykir bestur.
Hann sýndi mér hvernig á að
vera róleg þótt allt gangi á aft-
urfótunum. Hvernig á að hlæja
að mótlæti en ekki síst hvernig
á að elska af öllu hjarta jafnvel
þótt þú þekkir viðkomandi bara
um skamma hríð.
Hann er íslenski faðir minn.
Hann er og mun alltaf lifa í
minningum okkar og hjörtum.
Bestu kveðjur,
Dagmara frá Póllandi.