Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 15. UMFERÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Elín Metta Jensen landsliðsfram- herji úr Val var besti leikmaðurinn í 15. umferð úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu að mati Morgun- blaðsins. Umferðinni lauk í fyrradag þegar ÍBV sendi HK/Víking niður í 1. deild með 3:1-sigri í leik liðanna í Vest- mannaeyjum. Aðrir leikir fimmtándu umferðar voru leiknir sunnudaginn 25. ágúst en þá þurfti að fresta ofangreindum leik vegna veðurs. Elín Metta skoraði tvö marka Vals í 5:1-útisigri gegn Fylki og var eini leikmaðurinn í umferðinni sem fékk 2 M fyrir frammistöðu sína hjá Morgunblaðinu. Þetta er í annað sinn í sumar sem Elín er valin best en hún varð líka fyrir valinu í 6. um- ferð deildarinnar. Hún er marka- hæsti leikmaður deildarinnar ásamt samherja sínum Hlín Eiríksdóttur en þær hafa skorað 16 mörk hvor fyrir Val. Clara Sigurðardóttir, miðvallar- spilarinn kornungi hjá ÍBV, var besti ungi leikmaðurinn í umferðinni að mati Morgunblaðsins. Hún var í aðalhlutverki í sigrinum á HK/ Víkingi í fyrradag og lagði upp tvö markanna fyrir Brennu Lovera, sem er einnig í liði umferðarinnar. Clara er aðeins 17 ára gömul en hefur þeg- ar leikið 45 úrvalsdeildarleiki með ÍBV og 31 leik með yngri landsliðum Íslands. Í hinum leikjum 15. umferðar vann Breiðablik sigur á Stjörnunni, 2:0, KR lagði Keflavík 2:1 á útivelli og Selfoss vann Þór/KA á Akureyri, 2:1. Úrvalslið 15. umferðar má sjá hér að ofan og þar eru Valskonurnar Elín Metta og Fanndís Friðriks- dóttir báðar valdar í sjöunda sinn. Fjórir nýliðar eru í liðinu. Sautjánda og næstsíðasta umferð deildarinnar er leikin á sunnudaginn en þá mætast m.a. toppliðin Breiða- blik og Valur í nánast hreinum úr- slitaleik á Kópavogsvelli klukkan 19.15 um kvöldið. Elín Metta best í umferðinni í annað sinn  Clara besti ungi leikmaðurinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Marksækin Elín Metta Jensen skoraði tvö mörk gegn Fylki. 15. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-3-3 Aytac Sharifova Keflavík Fanndís Friðriksdóttir Val Elín Metta Jensen Val Brenna Lovera ÍBV Dóra María Lárusdóttir Val Tijana Krstic KR Karólína Lea Vilhjálmsdóttir Breiðabliki Clara Sigurðardóttir ÍBV Heiðdís Lillýjardóttir Breiðabliki Barbára Sól Gísladóttir Selfossi Halla Helgadóttir Selfossi 7 2 3 2 4 7 3 Guðjón Valur Sigurðsson landsliðs- fyrirliði í handknattleik fór vel af stað í fyrsta heimaleiknum með franska meistaraliðinu París SG í fyrrakvöld. PSG vann þá Nantes, 32:29. Eins og fram kom í blaðinu í gær skoraði Guðjón sex mörk gegn Nantes og hann var síðan valinn maður leiksins á heimasíðu Par- ísarliðsins. Væntanlega er það eins- dæmi fyrir fertugan mann í fyrsta heimaleik með nýju liði. Stjörnum prýtt lið PSG er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina í deildinni. vs@mbl.is Bestur í fyrsta heimaleiknum Ljósmynd/PSG Sex Guðjón Valur Sigurðsson skor- ar eitt markanna gegn Nantes. Helgi Sigurðsson hættir störfum sem þjálfari karlaliðs Fylkis í knatt- spyrnu að þessu keppnistímabili loknu, en Fylkismenn tilkynntu þetta formlega í gær. Helgi er að ljúka sínu þriðja tímabili með Ár- bæjarliðið sem vann 1. deildina undir hans stjórn 2017, hafnaði í áttunda sæti úrvalsdeildar í fyrra og er núna í níunda sæti þegar þremur umferðum er ólokið. Starfið hjá Fylki var hans fyrsta sem aðalþjálfari en Helgi á að baki langan feril sem leikmaður og spil- aði 62 landsleiki. vs@mbl.is Helgi hættir með Fylkismenn Morgunblaðið/Eggert Hættir Helgi Sigurðsson hefur stýrt Fylkisliðinu í þrjú ár. 3. deild karla Skallagrímur – Vængir Júpíters............. 1:3 Staðan: Kórdrengir 20 16 3 1 54:20 51 KF 20 14 3 3 52:24 45 KV 20 13 2 5 52:25 41 Vængir Júpiters 21 13 2 6 40:28 41 Reynir S. 20 10 5 5 38:35 35 Höttur/Huginn 20 6 6 8 37:33 24 Einherji 20 6 6 8 26:27 24 Álftanes 20 6 4 10 37:38 22 Sindri 20 6 3 11 39:55 21 KH 20 5 2 13 27:50 17 Augnablik 20 4 4 12 26:42 16 Skallagrímur 21 2 0 19 23:74 6  Kórdrengir hafa tryggt sér sæti í 2. deild og Skallagrímur er fallinn í 4. deild. Ægir og Elliði hafa tryggt sér sæti í 3. deild. Bandaríkin Portland – North Carolina ..................... 0:6 Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með Portland Thorns.  North Carolina Courage 37, Portland Thorns 36, Chicago Red Stars 35, Utah Royals 31, Reign 30, Washington Spirit 25, Houston Dash 22, Sky Blue 16, Orlando Pride 14. Meistaradeild kvenna 32ja liða úrslit, fyrri leikir: Fiorentina – Arsenal ................................ 0:4 Spartak Subotica – Atlético Madrid....... 2:3 Anderlecht – BIIK Kazygurt.................. 1:1 Sporting Braga – París SG...................... 0:7 Lugano – Manchester City...................... 1:7  Seinni leikir liðanna fara fram dagana 25. og 26. september. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Norðurálsvöllur: ÍA – Afturelding...... 17.15 Kaplakriki: FH – Augnablik................ 17.15 Extra-völlur: Fjölnir – Þróttur R ....... 17.15 Mustad-völlur: Grindavík – Haukar ... 17.15 Hertz-völlur: ÍR – Tindastóll .............. 17.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Kaplakriki: FH – Fram U ................... 19.30 Dalhús: Fjölnir – Fylkir............................ 20 Hertz-höllin: Grótta – Stjarnan U ........... 20 Í KVÖLD! Már Gunnarsson setti sitt fjórða Ís- landsmet á HM fatlaðra í sundi í London í gær. Már synti 50 metra flugsund í flokki S11 á 34,42 sek- úndum þegar hann keppti í 200 metra fjórsundi. Allar fjórar greinarnar í fjórsund- inu synti hann á samanlagt 2:41,94 mínútum og hafnaði í tíunda sæti en komst ekki í úrslit. Már bætti Íslandsmetið í 100 metra baksundi tvívegis á mótinu og hafnaði að lokum í þriðja sæti og hreppti bronsverðlaun í þeirri grein. Á mánudag setti Már Íslandsmet í 50 metra skriðsundi á mótinu. Már, sem er aðeins tvítugur, er greinilega í hörkuformi um þessar mundir. Sonja Sigurðardóttir hafnaði í tí- unda sæti í 50 metra baksundi í flokki S4 í gær er hún synti á 1:05,88 mínútum. Ljósmynd/ÍF London Már Gunnarsson hefur staðið sig vel á heimsmeistaramótinu. Fjórða Íslandsmetið hjá Má í London HM karla í Kína Keppni um 5.-8. sæti: Serbía – Bandaríkin ............................. 94:89 Pólland – Tékkland .............................. 84:94  Serbía og Tékkland leika um 5. sætið en Bandaríkin og Pólland um 7. sætið. KÖRFUBOLTI ÚTILJÓSADAGAR afsláttur af völdum útiljósum 50% Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888 OPIÐ ALLA DAGA Mán. til fös. kl. 9–18 Laugard. kl. 10–16 Sunnud. kl. 12–16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.