Morgunblaðið - 13.09.2019, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019
Opið virka daga kl. 11-18, laugard. kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551
Fallegt
úrval af
lömpum
LISTHÚSINU
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Tónlistar- og menningarverkefnið Caravan
lýkur tónleikaferð sinni um Evrópu í Frí-
kirkjunni á morgun. Verkefninu er ætlað að
færa saman tónlistarfólk frá mismunandi
menningarheimum með tónleikahaldi vítt og
breitt um Evrópu. Áhersla er lögð á mið-
austurlenska tónlist sem og tónlist frá
Norður-Afríku.
„Hugmyndin á bak við Caravan er að
breiða út menningu Mið-Austurlanda og
Norður-Afríku til Evrópu. Við erum líka að
tengja saman tónlistarfólk frá Evrópu ann-
ars vegar og Mið-Austurlöndum og Norður-
Afríku hins vegar,“ segir Tabit Lakhdar
sem er oud-leikari frá Marokkó og einn af
þeim sem að Caravan standa. Tabit hefur
búið á Íslandi í tíu ár.
„Margir miðausturlensku listamannanna
eru að koma í fyrsta sinn til Evrópu og við
viljum hjálpa þeim að kynnast Evrópu og
vinna með evrópsku tónlistarfólki. Það sem
tónleikarnir okkar hafa sýnt fram á er að
þessir menningarheimar geta unnið saman
og skapað eitthvað fallegt. Við þurfum bara
að gefa því tækifæri,“ segir Tabit.
Ferðast Balkanskagaleiðina
Verkefnið er leitt af þekktum sýrlenskum
tónlistarmanni, Rebal Alkhoudari, en hug-
myndin að tónleikaferðalaginu er tilkomin
vegna erfiðra ferðalaga sýrlenskra flótta-
manna frá Grikklandi til Þýskalands, um
hina svokölluðu Balkanskagaleið.
„Allar þær þjáningar sem flóttamenn
hafa orðið fyrir á þessari leið hafa snert við
okkur. Með tónleikum Caravan viljum við
sýna Evrópu að það er fleira en stríð,
hræðsla og þjáningar í farangri þessa
fólks,“ segir Tabit.
Caravan-hópurinn hefur ferðast áður-
nefnda Balkanskagaleið.
„Við byrjuðum á því að spila í Grikklandi
og svo enduðum við í Þýskalandi því Þýska-
land er það land sem tók á móti flestum
flóttamönnum. Ferðalagið var magnað og
við hittum margt flóttafólk sem var ánægt
með framtakið svo við ákváðum að halda
áfram og ferðast frá Þýskalandi til Íslands.
Það gerum við fyrir flóttafólkið sem
annaðhvort komst ekki til Þýskalands eða
leið ekki eins og það væri nægilega öruggt
þar til að það gæti byggt upp framtíð fyrir
sig og börnin sín og hélt því áfram norður.
Ferðin í ár er því framhald af ferð síðasta
árs og er þessi ferð tileinkuð þeim sem fóru
til Svíþjóðar og Íslands.“
Þekkir til þjáninganna
Leiðin snertir Tabit sérstaklega. „Ég
vann mikið með flóttamönnum sem komu til
Íslands. Ég hjálpaði til með þýðingar svo ég
þekki til þjáninganna og ég vil gjarnan gera
það sem ég get til að hleypa þeim aftur inn
í tónlistina sína og lífið sem þau áttu.“
Mikill fjöldi tónlistarfólks og annarra
kemur að verkefninu; helmingur fólksins
kemur frá Mið-Austurlöndum og hinn helm-
ingurinn frá öðrum löndum. Hingað til
lands koma 40 tónlistarmenn og aðrir lista-
menn vegna tónleikanna.
„Á tónleikunum á Íslandi munu íslenskir
tónlistarmenn slást í hópinn og einnig kór-
inn í Fríkirkjunni,“ segir Tabit. Ásgeir Ás-
geirsson, Sigrún Jónsdóttir, Bragi Braga-
son og Sigtryggur Baldursson eru á meðal
þeirra íslensku tónlistarmanna sem taka
þátt í verkefninu. Ýmis hljóðfæri verða
brúkuð, þar á meðal flauta, fiðla, klarínett,
gítar og áðurnefnt oud; sérstök gerð lútu
upprunnin í Mið-Austurlöndum sem kann
að virðast Íslendingum framandi.
Falleg menning
Tabit var sá sem stakk upp á því að Car-
avan-hópurinn kæmi til Íslands en hann
segir skilaboð tónleikaferðalagsins eiga vel
við hér á landi.
„Margir þekkja til dæmis ekki hljóðfærin
sem eru kjarni miðausturlenskrar menn-
ingar. Menning Mið-Austurlanda og
Norður-Afríku er nokkuð falin á Íslandi.
Þessi menning er falleg svo ég spyr hvers
vegna við ættum að fela hana, hvers vegna
ekki að vekja athygli á henni og sýna heim-
inum hana?“
Tónleikarnir verða í Fríkirkjunni annað
kvöld kl. 20 og bera titilinn „Leo Afric-
anus“, í höfuðið á andalúsíska diplómat-
anum Leo Africanus sem er þekktur fyrir
bók sína Descrittione dell’Africa.
Aðgangseyrir er 2.500 krónur og er bæði
hægt að kaupa miða við innganginn og á
vefnum tix.is. Hálftíma fyrir tónleikana,
klukkan 19.30, verður basar þar sem nokkr-
ir listamenn selja handverk og miðaustur-
lenskar kökur.
Ljósmynd/Jihad Nijem
Stuð Mynd frá tónleikum sem hópurinn hélt í Þýskalandi nýverið. Hverjir einustu tónleikar eru mikið sjónarspil og hljómsveitin mannmörg.
Heimar sem geta unnið saman
Tónleikaferðalagi sem miðar að því að tengja Mið-Austurlönd, Norður-Afríku og Evrópu saman
lýkur með tónleikum í Fríkirkjunni Ferðalagið er innblásið af erfiðleikum flóttafólks
Fimm myndlistarmenn á vegum
Listasafns Reykjavíkur setja fram
ný verk utan veggja safnhúsanna í
september. Viðfangsefni listamann-
anna eru fjölbreytt og tengjast mál-
efnum líðandi stundar, sítengingu,
núvitund, umhverfismálum, valdi,
eignarhaldi eða mörkum einka- og
almannarýmis. Sýningarnar bera
saman yfirtitilinn Haustlaukar.
Listamennirnir eru Ásgerður
Birna Björnsdóttir, Berglind Jóna
Hlynsdóttir, Curver Thoroddsen,
Snorri Ásmundsson og Þóranna
Björnsdóttir. Sýningin stendur yfir
7.-29. september.
Curver hefur skapað nýtt verk
þar sem hann beinir sjónum sínum
að hversdagshetjum og umhverf-
inu. „Ég er með raunveruleika-
gjörning eins og oft áður en er að
taka þá pælingu á næsta stig. Ég er
sem sagt að vera ég sjálfur,“ segir
Curver. Sýning hans er hafin og
stendur yfir til 29. september.
Á þaki Tollhússins við Tryggva-
götu verður að finna verk Berg-
lindar Jónu Hlynsdóttur. Það tekur
mið af sögu Tollhússins og mann-
gerðu svæðinu í kring sem tekið
hefur stöðugum breytingum. Berg-
lind veltir m.a. fyrir sér þeirri
framtíð sem ekki varð. Sýningin
verður opnuð á sunnudaginn.
Ásgerður Birna Björnsdóttir
grípur inn í hversdagslíf fólks með
hljóðverki sem verður flutt á
handahófskenndum tímum á stöð-
um þar sem uppspretta hljóðsins er
illgreinanleg. Í verkinu veltir Birna
fyrir sér sítengingu og þeim ósýni-
legu en áþreifanlegu kerfum sem
verða til við aukna tæknivæðingu.
Þjóð- og goðsögur sem fjalla um
örlög á krossgötum veita Þórönnu
Björnsdóttur innblástur en hún
safnar frásögnum þar sem heimur
manna og hulinsheimur mætast.
„Verkið byggist á gjörningi sem á
sér stað á gatnamótum í miðborg-
inni og þar býðst vegfarendum að
staldra við og íhuga aðstæður þar
sem við stöndum frammi fyrir vali
eða þáttaskilum,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Sýning Snorra Ásmundssonar er
yfirstaðin en hann bauð til hug-
leiðslustundar í Egilshöll þar sem
dýrlingur, meistari Hilarion, lík-
amnaðist í Snorra sjálfum.
Sum verka Haustlauka eru að-
eins flutt einu sinni en önnur eiga
sér lengri eða tíðari tilvist. Dagskrá
sýningarinnar má kynna sér á sam-
félagsmiðlum Listasafns Reykja-
víkur eða á vefsíðu safnsins.
Fimm haustlaukar víða um Reykjavík
Farsímar Verk Ásgerðar er samið fyrir
síma. Það verður í tveimur sundlaugum.