Morgunblaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Tollgæslan í Reykjavík er þessa
dagana að fá til afnota labrador-
hund sem hefur verið þjálfaður til
leitar að peningaseðlum. Áður
hafði hundurinn fengið þjálfun til
að finna fíkniefni og hafði reynst
vel sem slíkur. Er Tollgæslan að
efla eftirlit með peningaþvætti og
notkun hunda er liður í því starfi.
Steinar Gunnarsson, lögreglu-
fulltrúi á Sauðárkróki, hafði yfir-
umsjón með þjálfuninni en starfs-
stöð hvar sinnt er þjálfun hunda í
þjónustu lög- og tollgæslu svo og
fangelsa er starfrækt þar nyrðra.
„Lyktin af peningaseðlum fer
ekkert á milli mála. Við vinnum
með hundunum í nokkur misseri og
við skipulagða þjálfun læra þeir
fljótt hvar seðla er að finna, en þeir
þurfa þá að vera í búntum og þar
með allvænar upphæðir. Í brota-
starfsemi er reiðufé oft haft um
hönd og þá fjármunir, sem gjarnan
eru faldir vandlega, þarf að finna
vegna rannsóknar mála og til að
stöðva skipulagða glæpastarfsemi.
Í þeim efnum munu hundarnir
koma í góðar þarfir,“ segir Steinar
sem hefur þjálfað hunda fyrir lög-
regluna og fleiri um árabil.
Steinar segir þjálfun hunda í leit
að peningum í sjálfu sér ekki
flókna. Þegar hundur hafi fengið
undirstöðu, til dæmis í leit að fíkni-
efnum, sé lítið mál að bæta við
nýrri lykt. Þegar sé einn hundur
tilbúinn í þessi verkefni og tveir ef
ekki þrír nýir verði teknir til þjálf-
unar innan skamms.
„Menn hafa talað um að þjálfa
hunda í leit að skotvopnum og líf-
sýnum. Það eru endalausir mögu-
leikar til notkunar á þessum
skepnum,“ segir Steinar.
sbs@mbl.is
Hundur leitar peninga
Hundaþjálfari Steinar Gunnarsson
lögreglumaður með hund í þjálfun.
Tollgæslan fær
seðlahund Þjálf-
un á Sauðárkróki
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikilvægt er að stjórnendur Akur-
eyrarbæjar velti því fyrir sér hver
framtíðarsýn bæjarins er varðandi
rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli
og hvað bærinn er tilbúinn að leggja
fram sem árlegt rekstrarfé og fjár-
muni til mögulegrar frekari upp-
byggingar, segir í minnisblaði sem
lagt var fyrir bæjarráð Akureyrar-
bæjar á síðasta fundi. Yfirskrift
minnisblaðsins er „Hlíðarfjall –
dagsskíðasvæði eða heilsárs útivist-
ar- og afþreyingarsvæði.“
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, formaður bæjarráðs Akureyr-
arbæjar, sagði að bæjarstjóra og
sviðsstjóra hefði verið falið að vinna
málið áfram, en það væri á byrj-
unarstigi.
Skíðasvæðið rekið með tapi
Í minnisblaðinu kemur m.a. fram
að það sem af er þessu ári sé rekstr-
artap upp á tæplega 117 milljónir
króna sem er aðeins minna en tapið í
fyrra. Tekjur hafa aukist undanfarin
ár og voru rúmlega 213 milljónir í
fyrra og eru orðnar rúmlega 172
milljónir það sem af er þessu ári.
Laun vega þyngst í rekstri skíða-
svæðisins og voru þau 76% af
tekjum í fyrra. Launakostnaður hef-
ur aukist mikið á undanförnum ár-
um og eins fjöldi yfirvinnustunda.
Eins kemur fram í minnisblaðinu
að skíðaleiga skili sama og engri
framlegð til sameiginlegs rekstrar.
Þá hafa tekjur af skíðakennslu ekki
aukist undanfarin ár en launakostn-
aður hækkað mikið.
Fjöldi gesta í Hlíðarfjalli á vetri
undanfarin ár hefur verið á bilinu
50-70 þúsund. Veturinn 2009-2010
var sett met þegar gestir voru 102
þúsund.
Guðmundur sagði að Akureyrar-
bær stæði einn undir rekstri Hlíðar-
fjalls. „Við erum alltaf að greiða með
þessu,“ sagði Guðmundur. „Ef við
tökum Bláfjöll til samanburðar þá
stendur byggðasamlag sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu að rekstri
þeirra.“
Ekki hafa farið fram formlegar
viðræður við önnur sveitarfélög um
aðkomu að rekstri Hlíðarfjalls. Oft
hafi þó verið minnst á að Akureyrar-
bær standi einn að rekstri Hlíðar-
fjalls þótt íbúar fleiri sveitarfélaga
nýti sér skíðasvæðið. Þetta sé þjón-
usta sem Akureyri, sem er stærsta
sveitarfélagið á svæðinu, hafi veitt
til þessa.
Hefur mikil áhrif á samfélagið
„Við megum ekki gleyma því að
rekstur Hlíðarfjalls hefur mikil og
jákvæð áhrif á samfélagið. Við fáum
hingað fjölda fólks og þess vegna er-
um við tilbúin að fórna fjármunum í
þetta. Við teljum að við höfum sam-
félagslegan ávinning af því að halda
úti þessum rekstri,“ sagði Guð-
mundur.
Eðli málsins samkvæmt er rekst-
ur skíðasvæðisins mjög háður því
hvernig veðrið er á hverjum tíma.
Stundum koma erfið ár og sagði
Guðmundur að skoða þyrfti hvernig
ætti að mæta sveiflum, bæði í að-
sókn og veðurfari.
Í minnisblaðinu kemur m.a. fram
að leita þurfi leiða að hafa fjallið opið
þegar veður er með lakara móti. Í
því sambandi hefur verið nefndur sá
möguleiki að reisa skíðalyftu frá Há-
löndum upp að Skíðastöðum. Mögu-
lega yrði hægt að nota hana þótt
ekki væri veður til að hafa efri lyft-
urnar opnar.
„Við erum líka að velta því fyrir
okkur hvaða ný tækifæri og mögu-
leikar felast í því að nýta fjallið allt
árið. Lyfturnar hafa verið opnar á
sumrin og það eru kannski frekari
tækifæri í því,“ sagði Guðmundur.
Skoða nýja
möguleika í
Hlíðarfjalli
Akureyrarbær stendur einn að
rekstri skíðasvæðisins vinsæla
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Akureyrarbær stendur
undir rekstri skíðasvæðisins.
Helgi Bjarnason
Þórunn Kristjánsdóttir
„Rúmlega 100 starfsmenn hafa lýst
vantrausti á stjórn SÍBS og þar með
formanninn. Það er mikil sorg og
þungi á staðnum yfir því að þetta fólk
skuli enn vera í sínum stöðum og
stjórna á bak við tjöldin,“ segir Hall-
dór Halldórsson, ritari á hjarta- og
lungnarannsóknarstofu Reykjalund-
ar, um stöðuna á Reykjalundi eftir að
tilkynnt var um ráðningu tveggja
nýrra stjórnenda.
Boðað var til starfsmannafundar í
hádeginu í gær til þess að segja frá
ráðningu Ólafs Þórs Ævarssonar
sem framkvæmdastjóra lækninga og
setningu Herdísar Gunnarsdóttur
sem forstjóra til bráðabirgða. Þau
koma í stað Birgis Gunnarssonar
sem gerður var starfslokasamningur
við og Magnúsar Ólasonar sem sagt
var upp störfum á dögunum.
Örfáir starfsmenn mættu til fund-
ar og var það að sögn Halldórs gert í
mótmælaskyni við framgöngu stjórn-
ar SÍBS gagnvart fyrrverandi stjórn-
endum „Við afhentum Sveini [Guð-
mundssyni starfandi forstjóra]
vantraust á síðasta fundi og gengum
að svo búnu af fundi. Við höfum ekk-
ert meira við hann að tala. Við vorum
líka búin að lesa í það hverjir tækju
við þessum stöðum,“ segir Halldór.
Spurður hvort hann treysti nýjum
stjórnendum segir Halldór að hann
þekki þá ekki. „En með fullri virð-
ingu fyrir þessu fólki er ég hræddur
um að það verði mikill efi um vegferð
og sjálfstæðar ákvarðanir undir aga
stjórnar SÍBS.“
Biðjast velvirðingar
Í tilkynningu sem stjórn SÍBS
sendi frá sér í gær kemur fram að
betur hefði mátt takast til við um-
ræddar mannabreytingar og þar með
koma í veg fyrir þann óróa sem þær
sköpuðu. Eru hlutaðeigendur beðnir
velvirðingar á því hvernig málin þró-
uðust. Tekið er fram að stjórnin muni
leitast við að draga lærdóm af
málinu og taka tillit til
þeirra ábendinga sem
komið hafi fram í
tengslum við það.
Halldór segir að tveir
læknar hafi þegar
sagt upp störfum og
þrír til viðbótar hygg-
ist gera það um
næstu mánaða-
mót ef stjórn
SÍBS situr þá
enn.
Morgunblaðið/Eggert
Mótmæli Fátt var á starfsmannafundi á Reykjalundi í gær. Flestir starfsmenn ákváðu að hunsa fundinn.
Sorg að stjórn SÍBS
stjórni á bak við tjöldin
Mættu ekki fundi með stjórnarformanni í mótmælaskyni
„Það er áfall hvað varðar fag-
mennskuna á staðnum en ekki
síður fyrir sjúklinga og al-
menning í landinu að þessi
mikilvægi hluti heilbrigðis-
þjónustunnar byggi ekki á
traustari grunni en þarna kem-
ur fram,“ sagði Svandís Svav-
arsdóttir heilbrigðisráðherra á
Alþingi í vikunni þegar Bryndís
Haraldsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, spurði
hana um málefni Reykjalundar.
Svandís sagðist hafa kynnt
sér málið og hvatt til þess að
málið yrði leyst og ró kæm-
ist á starfsemina. Uppsagn-
irnar og ólgan hafi komið
henni á óvart í ljósi ára-
langs stöðugleika og
faglegs trausts sem
hafi umlukið starf-
semina.
Áfall fyrir
fagmennsku
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Svandís
Svavarsdóttir