Morgunblaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 32
Jazzklúbburinn Múlinn heldur
áfram með haustdagskrá sína í
kvöld á Björtuloftum í Hörpu kl. 21.
Þá munu trompetleikararnir Ari
Bragi Kárason og Kjartan Hákonar-
son heiðra minningu trompetleik-
arans Roys Hargroves sem lést í
fyrra en Hargrove hefði orðið fimm-
tugur í dag. Auk Ara og Kjartans
koma fram Óskar Guðjónsson, El-
ísabet Eyþórsdóttir, Davíð Sigur-
geirsson, Eyþór Gunnarsson, Tóm-
as Jónsson, Jóhann Ásmundsson
og Magnús Trygvason Eliassen.
Roy Hargrove minnst
á tónleikum Múlans
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 289. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Strákarnir í U21 árs landsliði karla
í knattspyrnu stóðu við stóru orðin.
Þeir lofuðu að bæta fyrir skellinn
sem þeir fengu gegn Svíum um síð-
ustu helgi í undankeppni EM og
þeim tókst það því þeir lögðu Íra að
velli 1:0 í hryssingslegu veðri í Vík-
inni í gær,“ segir meðal annars í
umfjöllun um leik liðanna á íþrótta-
síðum blaðsins í dag. »25
Stóðu við stóru orðin
gegn Írlandi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Gott gengi Mosfellinga í Olís-deild
karla í handknattleik hélt áfram í
gær þegar liðið fór til Vestmanna-
eyja og náði í tvö stig gegn sterku
liði ÍBV. Afturelding hefur þar með
unnið fimm af fyrstu sex leikjum
sínum í deildinni. Aðeins var um
annað tap ÍBV að ræða í deildinni í
vetur. Aftureld-
ing hélt ÍBV í
sjö skoruðum
mörkum í
síðari hálf-
leik. »24
Gott gengi Mosfellinga
hélt áfram í Eyjum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Krakkarnir eru fljótir að ná þeim
takti og tilfinningu sem þarf við
hjartahnoð og endurlífgun. Mér
finnst frábært að sjá þetta mikil-
væga fræðslustarf verða að veru-
leika,“ segir Ilmur Dögg Níelsdóttir,
skólahjúkrunarfræðingur í Hafnar-
firði. Um þessar mundir er verið að
taka fyrstu skrefin í verkefninu
Börnin bjarga sem Þróunarmiðstöð
íslenskrar heilsugæslu stendur fyr-
ir. Með þessu er verið að svara kalli
Endurlífgunarráðs Evrópu (ERC)
og Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar (WHO).
Mikilvæg bjargráð
Inntak verkefnisins er að kenna
árlega öllum nemendum í 6.-10.
bekk, en kennslan sjálf verður í
höndum skólahjúkrunarfræðinga.
Í sérnámi í heilsugæsluhjúkrun
við Háskólann á Akureyri tók Ilmur
Dögg endurlífgunarkennslu sér-
staklega fyrir. Talaði hún fyrir því
að þessi mikilvægu bjargráð yrðu
kennd í grunnskólunum, samanber
tilmæli erlendis frá. Fyrir slíku var
líka hljómgrunnur hjá Þróunar-
miðstöð íslenskrar heilsugæslu þar
sem línur voru lagðar. Ilmur Dögg
staðfærði fræðsluefni og útbjó
kennslugögn fyrir skólahjúkrunar-
fræðinga í samráði við Endurlífg-
unarráð Íslands að tilmælum ERC.
Þá hafa fengist styrkir til kaupa á
alls 400 endurlífgunardúkkum sem
fara til heilsugæslustöðva um allt
land.
Mikilvægt að ná til barnanna
Á dögunum var efnt til námskeiðs
meðal skólahjúkrunarfræðinga um
hvernig kenna skuli endurlífgun
með hjartahnoði. Kennslan mun
fyrsta kastið beinast að nemendum í
6. og 10. bekk en bekkjum þar á milli
verður bætt við að meiri reynslu
fenginni.
„Hér á landi lifir um fjórðungur
þeirra sem fara í hjartastopp utan
sjúkrahúsa en vonandi verður hlut-
fallið hærra með betri kunnáttu al-
mennings í endurlífgun,“ segir Ilm-
ur Dögg. „Rannsóknir sýna að hér á
landi er tæplega helmingur í færum
til að veita þessar bjargir. Því erum
við ágætlega sett sé horft til þess að
þetta hlutfall er 13% í Þýskalandi og
22% í Bandaríkjunum. Lífslíkur
aukast með því að fjölga þeim sem
treysta sér í endurlífgun og því mik-
ilvægt að ná til barnanna.“
Til mikils að vinna
Verkefnið Börnin bjarga fer form-
lega af stað í dag, 16. október, á Al-
þjóðlega endurlífgunardaginn, með
athöfn í Víðistaðaskóla, þar sem Ilm-
ur Dögg er skólahjúkrunar-
fræðingur. Hún var einmitt í gær
með fyrsta hópinn í æfingum, þar
sem hver nemandi var með æfinga-
dúkku við höndina og viðbrögð við
hjartastoppi voru æfð. Hún hefði
sjálfsagt sýnt lífsmörk ef mennsk
hefði verið, því miðað við taktana hjá
börnunum kom í ljós að þau geta
bjargað.
„Mér fannst gaman að sjá hér í
morgun hvað krakkarnir eru áhuga-
samir og þykist vita að þau tali fyrir
þessu verkefni út í frá,“ segir Ilmur.
Hún minnir á að á Vesturlöndum er
hjartastopp utan spítala þriðja al-
gengasta dánarorsökin. Í dreifbýli á
Íslandi séu lífslíkur þeirra sem fá
hjartastopp aðeins um 7% en á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem aðgengi
að neyðarhjálp er betra er hlutfallið
um 25%. Því sé til mikils að vinna;
kunnátta í hjartahnoði sé í raun og
veru skil milli lífs og dauða.
Morgunblaðið/Eggert
Hjartahnoð Ilmur Dögg Níelsdóttir hjúkrunarfræðingur kenndi nemendum Víðistaðaskóla í Hafnarfirði handtökin.
400 dúkkur hnoðaðar
Börnin bjarga Hjartahnoð og endurlífgun ný náms-
grein í grunnskólum Kunnáttan skil milli lífs og dauða
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt
og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
sími 561 9200 | eddaehf@eddaehf.is
www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið • Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina • Þvottahúsið
Sérverslunina