Morgunblaðið - 16.10.2019, Side 14

Morgunblaðið - 16.10.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íkalda stríðinuhéldu Íslend-ingar mörgum boltum á lofti í al- þjóðlegum sam- skiptum. Engin spurning var um það hvar Ís- land stóð í þeirri viðureign, en engu að síður áttu Íslendingar í miklum viðskiptum við ríki austan járntjalds og þá sér- staklega Sovétríkin. Þessi viðskipti Íslendinga voru reyndar ekki óumdeild. Árið 1954 lagði Dwight D. Ei- senhower, þáverandi Banda- ríkjaforseti, til á fundi þjóðar- öryggisráðsins að Bandaríkja- menn keyptu ársafla Íslendinga til að koma í veg fyr- ir að íslenskur fiskur yrði seld- ur til Sovétríkjanna. Spurði Ei- senhower hvort ekki mætti komast að því hvað „Sovétmenn greiða mikið fyrir aflann og gefa hann einhverju ríki sem hluta af aðstoð okkar“. Þar kæmu til greina Ísrael og Spánn, enda þjáðist fólk þar af próteinskorti. Var þessari tillögu forsetans hafnað í ráðinu á þeirri for- sendu að yrði þessi háttur hafð- ur á við Íslendinga myndi fjöldi annarra ríkja vilja vera með og hóta ella að selja Sovétmönnum framleiðslu sína. Og viðskipti Íslands við Sovétríkin héldu áfram. Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Marc Lanteigne, dós- ent í stjórnmála- fræði við Háskól- ann í Tromsö, sem fjallaði um deilur Bandaríkjanna og Kína í fyrirlestri í Háskóla Íslands. Hann er þeirrar hyggju að Íslendingar muni á næstu árum þurfa að gera upp við sig hvort þeir fylgja Kína eða Bandaríkjunum í viðskiptum og alþjóðamálum. Hann tekur sem dæmi áherslu Bandaríkjamanna á að önnur ríki, þar á meðal Ísland, noti ekki 5G-búnað frá kín- verska framleiðandanum Hua- wei. Í Peking sé hins vegar litið svo á að Huawei sé táknrænt fyrir kínverska hagkerfið og með því að velja það sé verið að velja Kína. Lanteigne bendir á að þrýst- ingur Kínverja leiði til þess að önnur ríki veigri sér við að gagnrýna kínversk stjórnvöld og vísar í þeim efnum til Nýja- Sjálands. Stjórnvöld á Nýja- Sjálandi tjái sig einfaldlega ekki um deilur í Suður-Kínahafi eða í Hong Kong. Þetta hafi skapað umræður í landinu um það hvort landið sé efnahags- lega sjálfstætt. Deilurnar í kalda stríðinu voru öllu hatrammari, þótt skiptust á þíður og frosthörkur, en nú. Það er merkilegt ef Ís- landi verður þrengri stakkur sniðinn á okkar tímum en þá var. Er svo komið að Ísland þurfi að velja milli stórveldanna?} Stillt upp við vegg? Bretadrottninghefur flutt stefnuræðu Bor- isar Johnsons for- sætiráðherra, samkvæmt ensk- um skikk og sið. Óvenjumargir reyndu að rýna í svipbrigði þjóðhöfðingja síns að þessu sinni, en Elísabet II. sem hefur setið lengur í há- sæti en nokkur fyrirrennari gaf ekkert upp með svip- brigðum sínum. Þegar hátign- in var horfin á ný úr þinghús- inu tókust stjórn og stjórnar- andstaða harkalega á. Jeremy Corbyn og leiðtogar annarra stjórnarandstöðu- flokka sögðu að stefnuræða ríkisstjórnarinnar væri óvenjulega hjárænuleg að þessu sinni, því að forsætis- ráðherrann léti eins og það hefði alveg farið fram hjá hon- um að hann vantaði nærri því 50 atkvæði upp á til að hafa meirihluta fyrir stefnu sinni á þingi. Einn af talsmönnum Frjálslyndra sagði að um þessa stefnuræðu mætti segja með sanni að þar væri farið með draumórahjal. Sá snjalli maður Tebbit lá- varður, sem forðum var hand- gengnari frú Thatcher en flestir aðrir og skrifar enn, 87 ára gamall, eftirtektarverða pistla í Telegraph, sagði þar að það væri rétt lýsing. En vandi stjórnarandstöðunnar væri að fólkið í landinu deildi þessum draumum með forsætisráð- herranum. Corbyn, sem hefði án hlés kallað eftir þingrofi og nýjum kosningum í næstum tvö ár, hefði óvænt fengið ósk- ir sínar og kröfur uppfylltar í síðasta mánuði með tillögu for- sætisráðherrans um það. En þá snarsnúið við blaðinu og séð til þess að sú tillaga var felld í þinginu. Forsætisráð- herra hamraði á þessu sama í svarræðu sinni við Corbyn. Hann hrópaði eftir kosningum í hundrað vikur en hafnaði svo tillögunni þegar hún birtist. Stundum væri sagt um menn sem flæktust í net eigin vænt- inga að þeir vildu bæði eiga kökuna og éta hana. En Cor- byn væri öfugt stefndur í því sem öðru því að þegar gómsæt kosningakaka hafnaði óvænt í kjöltu hans vildi hann hvorki eiga hana né éta. Það eru óvenjulegir tímar í Bretlandi og þingstörfin draga dám af því} Corbyn biður um og vill ekki Á undanförnum árum hafa komið fram alvarlegar ábendingar í skýrslum, rannsóknum, umfjöll- un fjölmiðla og ekki síst beint frá brotaþolum kynferðisafbrota, að þeir taki meðvitaða ákvörðun um að kæra ekki brotin. Ein af ástæðunum er sú að þeir treysta ekki réttarvörslukerfinu. Slíkt er óboðlegt í íslensku réttarríki. Hér er um al- varlega brotalöm að ræða sem brýnt er að takast á við með ákveðnum og skilvirkum hætti. Þeir sem kæra kynferðisafbrot þurfa að vera þess fullvissir að tekið verði á málum þeirra af fagmennsku. Eitt af helstu verkefnum ríkisstjórnarinnar er að vinna að umbótum í meðferð þessara brota. Það rímar vel við þá vinnu sem hrundið var af stað í tíð Ólafar Nordal innanríkis- ráðherra snemma árs árið 2016. Samráðs- hópur sem hún skipaði skilaði ítarlegum tillögum um að- gerðir í kynferðisbrotamálum með það að markmiði að tryggja vandaða, skilvirka og réttláta málsmeðferð við rannsókn mála á þessu sviði og auka traust á réttar- vörslukerfinu. Tillögur starfshópsins um aðgerðir voru kynntar af þáverandi dómsmálaráðherra, Sigríði And- ersen, í febrúar árið 2018. Sú vinna hefur þegar leitt til mikilla bóta. Farið var í átak við að efla rannsóknir kynferðisbrota og hraða af- greiðslu þeirra. Það hefur meðal annars skilað sér í styttri málsmeðferðartíma, sem var alltof langur. Ég mun beita mér fyrir því að áherslur á landsvísu verði samræmdar með þeim hætti þannig að lög- regluembættin í landinu séu í stakk búin til að sinna rannsókn og meðferð kynferðisbrota. Ýmislegt hefur verið gert á liðnum árum til að styrkja stöðu brotaþola. Þannig má nefna verkefni á borð við Bjarkarhlíð, löggjöfin hef- ur verið endurskoðuð, unnið er að því að ráða sálfræðing hjá lögreglunni, unnið hefur verið í endurmenntun hjá rannsakendum kynferð- isbrota, fjárframlög til málaflokksins aukin og þannig mætti áfram telja. Allir sem komið hafa með einum eða öðrum hætti að rannsóknum eða úrvinnslu kynferð- isbrota vita að þau eru flókin úrlausnar. Það verður aldrei undan því vikið. Sönnunar- byrðin er oft erfið og við þurfum ávallt að gæta að grundvallarreglum réttarríkisins. Á sama tíma vinnum við markvisst að því að tryggja að réttarvörslukerfið taki vel utan um þolendur kynferðisafbrota og veiti þeim skjól á þeim erfiða kafla sem fylgir slíkum brotum. Það þarf að gera af fagmennsku og um leið af hlýju og tillitssemi. Í flest- um tilvikum eru skjólstæðingar ríkisins tölur á blaði eða málsnúmer, en í þessum tilvikum er mikilvægt að líta á mannlega þáttinn og horfa til þess að annar aðili málsins er brotinn einstaklingur sem þarf á nauðsynlegri aðstoð að halda. Kerfið þarf að vera mannlegt og til þess fallið að veita brotaþolum skjól. Ég mun beita mér fyrir því að svo verði. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Ekki bara málsnúmer Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skráð atvinnuleysi hér álandi mældist 3,5% í sein-asta mánuði og varð enginbreyting á umfangi þess frá mánuðinum á undan. Atvinnu- leysistölurnar hafa stigmagnast á seinustu misserum en hlutfall at- vinnulausra var þó hærra í apríl og maí en nú. Atvinnuleysið mældist 2,3% í september í fyrra og samkvæmt yfirliti Vinnumálastofnunar um ástandið á vinnumarkaði, sem birt var í gær, voru 2.461 fleiri ein- staklingar á atvinnuleysisskrá í seinasta mánuði en í sama mánuði fyrir ári. Vinnumálastofnun gerir ráð fyr- ir að skráð atvinnuleysi aukist lít- ils háttar í október vegna árstíðar- sveiflu og verði á bilinu 3,6% til 3,8%. Fram kemur á yfirliti stofnunar- innar að atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í september eða 6,3% og jókst um 0,3 prósentustig milli mánaða. Á höfuðborgarsvæð- inu var atvinnuleysið 3,8% og breyttist ekki frá ágúst. Atvinnulausum ungmennum hefur fjölgað um 313 frá í fyrra Alls voru 787 einstaklingar á aldrinum 18-24 ára atvinnulausir í lok september í ár sem samsvarar um 2,7% skráðu atvinnuleysi. At- vinnulausum ungmennum hefur fjölgað um 313 frá september 2018 þegar fjöldi atvinnulausra á þessu aldursbili var 474. Þegar sjónum er beint að þeim sem hafa verið lengi án vinnu og á skrá hjá Vinnumálastofnun kemur í ljós að alls höfðu 1.389 verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok september en þeir voru 905 í septemberlok 2018. Hefur þeim því fjölgað um 484 milli ára. ,,Hlutfall langtímaatvinnulausra var 19,6% af öllum á atvinnuleys- isskrá í september 2019 en um 21% í september árið 2018,“ segir í greinargerð með atvinnuleys- istölunum. Þá kemur fram að atvinnulaus- um fjölgaði í öllum atvinnugrein- um í september ef miðað er við sama mánuð fyrir ári. Mesta fjölgun atvinnulausra var í flutn- ingastarfsemi, í ýmiss konar sér- hæfðri þjónustu og mann- virkjagerð. Minnsta fjölgun atvinnulausra var í fræðslu- starfsemi, heilbrigðisstarfsemi og fiskvinnslu. 7,5% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara Atvinnuleysið er sem fyrr mest meðal erlendra ríkisborgara. 2.633 erlendir ríkisborgarar voru án at- vinnu í lok september eða um 37% allra atvinnulausra. ,,Þessi fjöldi samsvarar um 7,5% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara. Þetta er talsverð aukning frá því í september 2018 þegar hlutfall atvinnulausra er- lendra ríkisborgara var um 33% allra atvinnulausra eða sem svar- ar um 4,8% atvinnuleysi. Flestir erlendir ríkisborgarar á atvinnu- leysisskrá komu frá Póllandi eða 1.473, sem er um 56% allra er- lendra ríkisborgara á atvinnuleys- isskrá,“ segir í greinargerð Vinnu- málastofnunar. 2.461 fleiri án vinnu en á sama tíma 2018 Skráð atvinnuleysi frá sept. 2017 til sept. 2019 3,5% 3,0% 2,5% 2,0% 1,5% 1,0% 0,5% 0% Heimild: Vinnumálastofnun 2017 2018 2019 sept okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. 3,5 3,53,43,4 3,63,7 3,23,13,0 2,7 2,5 2,3 2,4 2,32,22,12,2 2,32,42,42,42,22,1 1,91,8 Vinnusemi Íslendinga á sér enga hliðstæðu í löndum OECD ef litið er á tölur um atvinnuþátttöku fólks á aldrinum 15-64 ára á vinnumarkaði. OECD birti í gær nýtt yfirlit yfir atvinnuþátttöku í aðildarlöndunum og voru 85,6% hér á landi virk á vinnumarkaði á fyrstu mánuðum ársins en með- altal atvinnuþátttöku í OECD er 68,7%. Ísland hefur haldið topp- sætinu í þessum mælingum um árabil. Aðeins eitt annað land nær 80% markinu en það er Sviss þar sem atvinnuþátttakan mælist 80,5%. Minni munur á atvinnuþátt- töku kemur í ljós ef sjónum er eingöngu beint að 25 til 54 ára en þá ná margar þjóðir 80% markinu. En Ísland sker sig ræki- legast úr í atvinnuþátttöku elstu aldurshópanna, 55 til 64 ára. Hér er atvinnuþátttaka í þeim aldurs- hópi 81,4% en meðaltalið í OECD er 61,8%. Vinnusemin mest hér ATVINNUÞÁTTTAKA Í OECD Morgunblaðið/Hari Störf Íslendingar eru eina þjóðin þar sem atvinnuþátttakan mælist yfir 80%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.