Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 11
„Rjúpnaveiðitímabilið byrjar 1. nóvember og þá fer fjöldi fólks á fjöll. Við höfum orðið vör við það á þessum árstíma að menn eru að spyrja hver eigi land sem þeir vilja veiða á og hvort þar séu bönn eða takmarkanir í gildi. Menn þurfa allt- af að leita leyfis landeiganda þar sem þeir hyggjast veiða,“ sagði Karl Arnar Arnarson, framkvæmdastjóri Loftmynda. Nú má sjá eignamörk jarða á vef Loftmynda, map.is. Þegar vefurinn er opnaður birtist valgluggi. Þar er smellt á „+“-merkið fyrir aftan Sér- kort. Svo þarf að haka við „Eigna- mörk LM“ og „Friðuð svæði“ til að sjá landamerkin. Karl sagði að áreiðanlegar upplýsingar um eigna- mörk allra jarða lægju ekki á lausu. „Við hjá Loftmyndum höfum lengi safnað þessum upplýsingum og ætlum að opna á þetta á map.is meðan veiðitímabilið stendur yfir. Það hefur ekki verið ákveðið með framhaldið. Öll gögnin eru aðlöguð, samsett og leiðrétt af Loftmyndum svo þau mynda heildræna þekju yfir landið,“ sagði Karl. Jarðamörkin voru sótt víða að, meðal annars í úrskurði óbyggða- nefndar um þjóðlendur. Þær eru grænar á kortinu og þar má al- menningur veiða nema það sé bann- að sérstaklega. Einnig eru upplýs- ingar um þjóðgarða og friðlýst náttúruverndarsvæði þar sem skot- veiði er bönnuð. Jarðir sem vantar upplýsingar um eru rauðar. „Það geta alltaf leynst villur í kortum. Þess vegna setjum við þann fyrirvara að gögnin gefi gott yfirlit en þau eru birt án ábyrgðar um áreiðanleika,“ sagði Karl. Á vef Um- hverfisstofnunar segir að reglur um friðlýst svæði séu mismunandi og fari eftir markmiðum friðlýsingar, eðli svæðisins og samkomulagi við hagsmunaaðila. gudni@mbl.is Kort/map.is Jarðamörk sýnd á korti Loftmynda  Verður opið yfir rjúpnaveiðitímann FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta SÍÐAN 1969 FLOTTUSTU BÚNINGARNIR ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS TIL MERKINGA EÐA EKKI SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ! Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mikilvægi kennarastarfsins verð- ur sífellt meira,“ segir Anna María Gunnarsdóttir, varafor- maður Kennarasambands Íslands. „Hvar eiga börnin sem verða í fullu fjöri árið 2100 að læra allt sem þau þurfa á að halda í fram- tíðinni? Hver á að kenna þeim fordómaleysi, skapandi og jafn- framt gagnrýna hugsun, að tak- ast á við sérhvert verkefni með fjölbreyttar aðferðir að leið- arljósi? Hvar eiga þau að temja sér þrautseigju og þjálfa sam- vinnu ef ekki í skólum undir leið- sögn kennara?“ Fjölgun í kennaranámi Á Skólamálaþingi 2019 sem Kennarasamband Íslands stóð fyrir á dögunum báru áherslur og þema umræðna yfirskriftina Framtíð kennarastarfsins og ung- ir kennarar. Þingið er haldið ár- lega og þá jafnan í tengslum við alþjóðadag kennara sem er 5. október ár hvert. Sá dagur er notaður til að vekja athygli á störfum kennara á heimsvísu. Á síðasta ári helguðu íslenskir kennarar málþingið íslenskri tungu og fjölluðu um móðurmálið undir yfirskriftinni Íslenska er stórmál. „Því miður hefur kennsla ekki þótt sérlega aðlaðandi ævi- starf undanfarin ár og nú er svo komið að aðeins 6,5% af félags- mönnum í KÍ eru undir þrítugu. En nú vinnum við saman að því að snúa vörn í sókn. Sameiginlegt verkefni skóla og stjórnvalda er að búa svo um hnútana að kenn- arastarfið sé aðlaðandi og nú virðist okkur sem þetta mikil- væga ætlunarverk sé að takast,“ segir Anna María. Nemendum í kennarafræðum er að fjölga. Nýnemar í grunn- skólakennarafræðum við mennta- vísindasvið Háskóla Íslands voru í haust 172 borið saman við 91 í fyrra. Þá eru í meistaranámi í þessari grein nú 146 nemendur en voru 107 í fyrra. Þar þykjast kunnugir greina áhrif kynningarstarfs og hvetj- andi aðgerða sem gripið var til. Eins hefur nemendum í kenn- aranámi við Listaháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri fjölgað. Færni í flóknum verkefnum Umræða um fjórðu iðnbylt- inguna er áberandi nú og málið var í deiglunni á Skólamálaþingi á dögunum. „Talað er um að stór hluti af þeim störfum sem við þekkjum nú muni hverfa og vinnuum- hverfi framtíðarinnar byggjast upp á verkefnabundnum ráðn- ingum að miklu leyti. Samkvæmt skýrslu um fjórðu iðnbyltinguna sem forsætisráðuneytið gaf út á þessu ári munu samfélagsbreyt- ingar af völdum tækni kalla á breyttar áherslur þegar kemur að færni,“ segir Anna María. Bætir hún við að árið 2020 skipti fólk mestu máli að hafa færni í að leysa flókin verkefni, auk gagnrýnnar og skapandi hugs- unar. „Ef við viljum sjá samfélag sem einkennist af mannrétt- indum, félagslegu réttlæti og áherslu á umhverfismál er nauð- synlegt að styðja unga kennara og veita þeim svigrúm,“ segir hún. Þurfum að fá fleiri karla til kennslustarfa „Það er ágætt að hugsa um öll þau störf sem nú þykja sjálf- sögð en enginn þekkti fyrir svo sem þrjátíu árum. Sem dæmi um slík störf má nefna netstjóra, áhrifavalda, stílista, vefhönnuði og fleiri. Þeir sem stunduðu nám í íslensku skólakerfi á síðustu öld voru fæstir búnir undir það að vinna við tölvur alla daga en sá er veruleikinn nú. Tæknibreyt- ingar undanfarinna ára hafa ver- ið miklar og hraðar, meiri en nokkru sinni fyrr. Það hefur að einhverju leyti áhrif á skólana eins og aðra vinnustaði. Mennt- unarstig og gæði menntunar skipta því afar miklu máli og að hvert og eitt barn fái menntun við sitt hæfi,“ segir Anna María. „Framtíðin er alltaf óvissu- för og því munu kennurunum framtíðarinnar mæta óþekktar áskoranir. Það er því nauðsyn- legt að styðja unga kennara vel og veita þeim góða leiðsögn þeg- ar þeir feta sín fyrstu spor. Eins skiptir miklu máli að fá fleiri karla til að kennslustarfa á öllum skólastigum – og aðgerðir í því efni virðast vera að bera árang- ur.“ Sköpun, gagnrýni og þrautseigja sé kennd börnunum í grunnskólunum Morgunblaðið/Hari Kennari Ef við viljum samfélag sem einkennist af mannréttindum og rétt- læti er nauðsynlegt að styðja unga kennara, segir Anna María í viðtalinu. Óþekktar áskoranir  Anna María Gunnarsdóttir fæddist 1967. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Laugar- vatni og nam þar á eftir ís- lensku og uppeldis- og kennslufræði við Háskóla Ís- lands. Nú í október lýkur hún einnig meistaraprófi frá menntavísindasviði HÍ.  Starfaði um árabil sem framhaldsskólakennari en var kosin varaformaður Kennara- sambands Íslands vorið 2017 og starfar nú að málefnum kennara í fullu starfi. Hver er hún?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.