Morgunblaðið - 21.10.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.10.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2019 Þægileg leið fyrir viðskiptavininn. Kemur honum í beint samband við réttan starfsmann sem klárar málið. Góð yfirsýn og gegnsæi með verkefnunum. Kynntu þér málið á www.eignarekstur.is eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Þjónustugátt Eignareksturs Traust - Samstaða - Hagkvæmni Parasite er nýjasta myndhins annálaða kóreskaleikstjóra Bongs Joon-hos,sem hlaut í ár stærstu viðurkenningu kvikmyndaheimsins, Gullpálmann á Cannes. Bong Joon-ho er fyrsti kóreski leikstjórinn til að hreppa Gullpálm- ann. Þetta er áhugavert í ljósi þess hversu frábærar myndir hafa komið þaðan síðustu áratugi, kvikmynda- áhugafólk hefur árum saman bent í átt að Suður-Kóreu sem bestu kvik- myndaþjóð samtímans. Þekktasti kóreski leikstjórinn er líkast til Park Chan-wook, sem ber m.a. ábyrgð á hinum stórkostlega Hefndarþríleik, Oldboy, Sympathy for Mr. Vengence og Sympathy for Lady Vengence. Það sem er svo skemmtilegt við kór- eska kvikmyndagerð er að bæði listabíóið og afþreyingarbíóið er mjög gott og skilin þarna á milli ekki alltaf skýr. Ljóðrænar myndir eins og Spring, Summer, Fall, Winter … and Spring eru ekkert síðri en spennutryllar eins og I Saw the Devil og The Good the Bad and the Weird eftir Kim Jee-woon. Myndir Bongs Joon-hos endur- spegla þetta, þær eru listrænar, skemmtilegar og erfitt að setja und- ir einn hatt, þetta eru ekki hreinar spennu-, drama- eða gamanmyndir heldur bræðingur af öllu þessu. Þess má geta að nokkrar myndir hans eru inni á Netflix, þannig að áskrifendur streymisveitunnar geta kynnt sér brot af höfundarverkinu þar. Mynd- in sem kom honum á kortið var Memories of Murder sem kom út ár- ið 2003 og er ein af topp tíu bestu myndum áratugarins. Önnur frábær mynd eftir hann er skrímslamyndin The Host, sem var einmitt sýnd í sundbíói RIFF í ár, afar viðeigandi því hún fjallar um vatnaskrímsli. All- ar myndir Bongs Joon-hos eru pólit- ískar, Memories of Murder fjallar um spillingu og vanhæfni innan lög- reglunnar. The Host fjallar um spill- ingu og skeytingarleysi yfirvalda og vísar með þráðbeinum hætti til Gwangju-uppreisnarinnar, þar sem herinn réðst með ótrúlegu ofbeldi gegn ungum mótmælendum. Nýja myndin er sömuleiðis afar pólitísk. Myndin er nokkuð löng en hún er afar viðburðarík. Upplifunin er lík því að lesa langa skáldsögu með mörgum persónum og endalausum vendingum. Bong Joon-ho hefur opinberlega beðið blaðamenn og gagnrýnendur að spilla ekki sögu- þræðinum fyrir áhorfendum og ég mun því segja eins lítið frá sögu- þræðinum og mögulegt er. Myndin fjallar um fjögurra manna fjölskyldu, pabbann Ki-taek, mömm- una Chung-sook, dótturina Ki-jung og soninn Ki-woo. Þau búa í ömur- legum kjallara í fátæku hverfi, eru öll nokkurn veginn atvinnulaus og þurfa að beita ýmsum brögðum til að hafa í sig og á. Dag einn kemur vinur sonarins í heimsókn. Hann færir honum stóran stein sem hann segir að færi eiganda sínum fjárhagslega velsæld. Hann bætir svo um betur og biður Ki-woo að taka við starfi sínu sem einkakennari í ensku fyrir moldríka fjölskyldu. Ki-woo tekur starfinu og mætir heim til ríka fólks- ins sem býr í ótrúlega glæsilegu húsi. Það kemur í ljós að mamman í ríku fjölskyldunni er nokkuð auð- trúa og hægðarleikur fyrir Ki-woo að vefja henni um fingur sér. Hann og fjölskylda hans nýta sér þetta til hins ýtrasta og upphefst þá ótrúleg atburðarás. Parasite er ádeila á stéttaskipt- ingu og hvernig auður getur spillt fólki. Hún fjallar um örvæntingu fá- tæks fólk, sem holdgervist gjarnan í því að öreigar ráðast hver gegn öðr- um í stað þess að ráðast að rót vand- ans. Hún setur líka fram nokkuð rót- tæka vangaveltu: hefur fólk sem þarf aldrei að hafa áhyggjur af pen- ingum frekar kost á að vera kurteist og almennilegt? Eru mannasiðir for- réttindi hinna ríku? Eins og Chung- sook segir á einum stað: „Ef ég ætti þetta allt væri ég ljúfari.“ Stóra spurningin í þessu öllu er svo: hver eru hin raunverulegu sníkjudýr? Hverjar eru blóðsug- urnar sem nærast á öðrum? Kvikmyndataka, klipping og sviðsmynd eru algjörlega frábærar og styðja vel við handritið, sem segja má að sé stjarna myndarinnar. Leik- ararnir eru líka afskaplega fínir, sér- staklega hinn óviðjafnanlegi Song Kang-Ho sem leikur pabbann í myndinni. Song hefur leikið í nánast öllum myndum Bongs og leikur gjarnan svipaða týpu; kómískan, einfeldningslegan mann sem lendir í ómögulegum aðstæðum. Frammi- staða hans svíkur ekki frekar en fyrri daginn, hann er með svo skemmtilegt andlit og þarf ekki ann- að en stara opinmynntur í mynda- vélina til að uppskera hlátur. Parasite er stórskemmtileg og haganlega gerð mynd sem er vel að Gullpálmanum komin. Ég mæli ein- dregið með að fólk sjái hana í bíó og kynni sér höfundarverk Bongs Joon- hos. Hver eru sníkjudýrin? Ádeila Parasite, í leikstjórn Bong Joon-ho sem jafnframt skrifaði handritið, er ádeila á stéttaskiptingu og hvernig auður getur spillt fólki. Gagnrýnandi Morgunblaðsins er yfir sig hrifinn af kvikmyndinni og gefur fullt hús stjarna. Bíó Paradís Sníkjudýr/Parasite bbbbb Leikstjórn og handrit: Bong Joon-ho. Kvikmyndataka: Hong Kyung-pyo. Klipping: Yang Jin-mo. Aðalhlutverk: Song Kang-ho, Lee Sun-kyun, Cho Yeo- jeong, Choi Woo-shik, Park So-dam. 132 mín. Suður-Kórea, 2019. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Stelpur sem ljúga er önnurskáldsaga Evu BjargarÆgisdóttur, en fyrir þáfyrri, Marrið í stiganum, varð hún fyrst til þess að hljóta spennusagnaverðlaunin Svartfugl- inn, sem veitt eru höfundum sem ekki hafa áður sent frá sér glæpa- sögu. Því er ljóst að Eva Björg hlýtur Svartfuglinn ekki að nýju fyrir Stelp- ur sem ljúga, en hvort hún verður til- nefnd til annarra verðlauna verður spennandi að sjá. Stelpur sem ljúga fjallar um rannsókn lögregl- unnar á Vestur- landi á hvarfi ein- stæðu móðurinn- ar Maríönnu. Sagan hefst raun- ar á því að líkið af henni finnst rúm- lega hálfu ári eftir að hún hvarf og rannsóknarlögreglan, sem hafði áætlað að Maríanna hefði sjálf látið sig hverfa, þarf að fara yfir allt sam- an aftur, skref fyrir skref. Lögreglu- megin er það unga rannsóknarlög- reglukonan Elma sem er aðalper- sónan, en hún hefur verið hálfgerður einfari síðan unnusti hennar framdi sjálfsvíg, en lesendur fá þó að fylgj- ast með skemmtilegum dansi hennar og samstarfsfélagans, Sævars, og fljótt verður ljóst að þau eygja bæði möguleikann á að verða eitthvað ör- lítið meira en bara samstarfsfélagar og vinir. Hin aðalpersónan er svo Maríanna og dóttir hennar Hekla sem hún eignaðist aðeins 15 ára gömul. Þær mæðgur áttu stormasamt samband allt þar til Maríanna hvarf og Hekla komst loksins í varanlegt fóstur til fósturforeldra sinna til margra ára á Akranesi. Þar á hún vinkonur og lít- ur sérstaklega upp til sambands Tinnu við móður sína, Margréti, en þær spila mun stærra hlutverk í fléttunni en lesendur átta sig á í fyrstu. Fléttan er vel heppnuð og grunur lesenda beinist ekki að raunveruleg- um sökudólgum fyrr en seint og um síðir. Raunar fá lesendur að fylgjast með lífi gerendanna allt frá fyrstu blaðsíðum án þess að átta sig á því hverjir þeir eru, og halda framan af að þeir séu að lesa um allt aðrar per- sónur bókarinnar. Persónusköpun höfundar er vönduð og trúverðug og nánast laus við að lesendur skipi sér í fylkingar á milli persóna og hverjum á að trúa. Stelpur sem ljúga eru nefnilega til þó að þær séu undan- tekningin og höfundur dansar á lín- unni með því að láta bæði geranda og þolanda njóta vafans allt þar til í lok sögunnar. Eva Björg á vonandi eftir að gefa frá sér fleiri glæpasögur með jafn- góðum árangri, allavega bíða les- endur líklega spenntir eftir þeirri næstu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundur Eva Björg Ægisdóttir. Dansað á línunni Glæpasaga Stelpur sem ljúga bbbbn Eftir Evu Björgu Ægisdóttur. Veröld gefur út, 366 bls. innb. ÞORGERÐUR ANNA GUNNARSDÓTTIR BÆKUR Danska sendiráðið á Íslandi og Listaháskóli Íslands efna til mál- þings um varðveislu sögulegra bygginga og byggingarsögu Hverfisgötunnar í Safnahúsinu á morgun, þriðjudaginn 22. október, og ber það yfirskriftina Hverfis- gata: A Dialogue Between the Urban Past and Present og er hald- ið í tilefni af 100 ára afmæli danska sendiráðsins á Íslands. Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, og Eva Egesborg Hansen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, hefja málþingið kl. 14 og Sigrún Alba Sigurðardóttir, forseti hönn- unar- og arkitektúrdeildar LHÍ, verður fundarstjóri. Frekari upp- lýsingar má finna á lhi.is. Málþing haldið um byggingarlist Rektor Fríða Björk Ingvarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.