Morgunblaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
Verks ehf. að upphæð krónur
3.446.361.006. Var tilboðið 86,7% af
kostnaðaráætlun, sem var krónur
3.973.387.821. Gert er ráð fyrir að
heildarkostnaður við verkefnið verði
4.630 milljónir.
Markmið með samningnum milli
Fram og Reykjavíkurborgar frá
2017 var að fullnægja þeim kröfum
er íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals
gera til öflugs íþrótta- og æskulýðs-
starfs í hverfinu til framtíðar.
Fram stefnir að því að verða fyr-
irmyndar og alhliða íþróttafélag í
hverfinu og skuldbindur félagið sig
til þess að annast íþrótta- og æsku-
lýðsstarf fyrir félagsmenn sína, íbúa
í Grafarholti og Úlfarsárdal og á
starfssvæði Fram og þjónusta skóla
og aðra aðila verði eftir því leitað.
íþróttahús verður: Félagsheimili,
samkomusalur, íþróttasalur með
áhorfendapöllum, minni fjölnota
íþróttasalir, búningsklefar, áhalda-
geymslur, fundarsalir og aðstaða
fyrir starfsfólk og gesti. Íþróttasalur
verður einnig nýttur undir íþrótta-
kennslu fyrir nemendur Dalskóla.
Á útisvæði verða: Aðalleikvangur
knattspyrnufélagsins Fram og
áhorfendastúka.
Hönnuðir eru VA vinnustofa arki-
tekta, Landmótun og VSO ráðgjöf.
Bygging íþróttamiðstöðvarinnar
var boðin út á Evrópska efnahags-
svæðinu. Sex tilboð bárust í verkið,
öll frá íslenskum fyrirtækjum.
Innkauparáð Reykjavíkurborgar
samþykkti 24. september sl. að
ganga að tilboði lægstbjóðanda GG
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Mikil tímamót verða hjá Frömurum
og íbúum í Úlfarsárdal á næstu dög-
um, þegar framkvæmdir hefjast við
nýja íþróttamiðstöð Fram. Stefnt er
að því að byggingaframkvæmdum
ljúki sumarið 2022. Þá flytur Fram,
þetta 111 ára gamla félag, alla sína
starfsemi í Úlfarsárdal og Víkingur
tekur við mannvirkjunum í Safa-
mýri.
Um er að ræða fullnaðarbyggingu
íþróttamannvirkis og knattspyrnu-
leikvangs ásamt stúku við íþrótta-
velli. Einnig tengibyggingu við nú-
verandi mannvirki, útitorg og lóð.
Heildarstærð íþróttamiðstöðv-
arinnar er 7.351 fermetri. Byggingin
verður þrjár hæðir, þar af verða
5.672 fermetrar á 1. hæð.
Flutningur staðið til lengi
Framkvæmdir þessar eru sam-
kvæmt samningi Reykjavíkurborgar
við íþróttafélagið Fram frá haustinu
2017. Flutningur Fram í nýtt hverfi
hefur dregist úr hófi. Það var fyrir
rúmum 15 árum, eða í mars 2004, að
Reykjavíkurborg og Knattspyrnu-
félagið Fram undirrituðu vilja-
yfirlýsingu um að félagið tæki að sér
að sjá um íþróttastarf í nýju hverfi
borgarinnar í landi Úlfarsfells, norð-
an Grafarholts og austan Vestur-
landsvegar, en þar var gert ráð fyrir
að risi 20-25 þúsund manna íbúðar-
byggð á næstu árum.
Í nýja húsinu, sem er fjölnota
Tölvumyndir/VA vinnustofa arkitekta
Svæði Fram Þarna verða knattspyrnuleikvangar og fjölnota íþróttahús. Á sama svæði verður skóli og sundlaug.
Íþróttamiðstöð Fram
verður tilbúin 2020
Fjölnotahús og leikvangur Kostnaður 3,5 milljarðar
Leikvangur Knattspyrnuvöllurinn verður með stórri yfirbyggðri stúku.
Um fimmtungur af útlánum Íbúða-
lánasjóðs er með uppgreiðsluákvæði.
Það þýðir að lántakar þurfa að
greiða gjald ef þeir endurfjármagna
lánin, að því gefnu að þau hafi borið
hærri vexti en nú.
Verðtryggð íbúðalán sjóðsins bera
nú 4,2% vexti. Ef lán lántaka ber
hærri vexti en 4,2% virkjast áður-
nefnt uppgreiðsluákvæði.
Ólafur Þór Þorláksson, sérfræð-
ingur hjá ÍLS, segir að þrátt fyrir
gjaldið geti borgað sig að endur-
fjármagna lánin en það sé misjafnt
eftir forsendum hverju sinni og ráð-
ist af þeim kjörum sem lántakanum
bjóðast hjá sínum viðskiptabanka
eða lífeyrissjóði. Lægstu breytilegir
vextir af verðtryggðum íbúðalánum
séu nú 1,63% hjá ákveðnum lífeyr-
issjóðum en til samanburðar bjóði
sjóðurinn nú 4,2% fasta vexti til allt
að 35 ára.
Samkvæmt ársreikningum sjóðs-
ins hafa útlánin minnkað að nafnvirði
samfellt frá 2012. Þau voru rúmir
782 milljarðar í árslok 2011 en eru nú
395 milljarðar. Hafa þau því lækkað
um 387 milljarða.
Minnkandi hlutdeild sjóðsins
Vægi ÍLS á íbúðalánamarkaði hef-
ur því minnkað, en lífeyrissjóðir
styrkt stöðu sína á þessum markaði.
Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans
verður miðvikudaginn 6. desember
og eru jafnvel væntingar um frekari
lækkanir. baldura@mbl.is
Fimmtungur lán-
anna er með upp-
greiðsluákvæði
Samtals um 80 milljarðar af útlánum
Íbúðalánasjóðs eru með slíku ákvæði
Útlán Íbúðalánasjóðs 2007 til 30. júní 2019
Heildarútlán í lok árs 2007-2018 og 30. júní 2019, milljarðar króna
900
750
600
450
300
150
0
467
680
757 751 782 779 768 728
648
578
500
427 395
Lækkun
frá 2011
387
ma.kr.
Heimild: Árs-
reikningar ÍLS
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Landsréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur um að eig-
andi bifreiðar sem ekið var inn í
hrossahóp á hringveginum og trygg-
ingafélag hans beri ábyrgð á tjóni
eigenda hrossanna. Hrossaræktand-
inn var talinn hafa uppfyllt skilyrði
laga og reglna um vörslu búfjár og
girðingar þótt stóðið hafi fælst og
hlaupið yfir hlið og inn á þjóðveginn.
Bifreiðinni var ekið inn í hrossa-
hóp á hringvegi í Skagafirði, skammt
ofan Varmahlíðar, laugardagskvöld-
ið 26. ágúst 2017. Svartamyrkur var
og vegur blautur. Ökumaður taldi
sig hafa ekið á um 90 km hraða þegar
hann hefði skyndilega séð hross á
veginum, séð „hrædd hestaaugu“
koma æðandi á móti þeim. Hann
hefði ekki náð að hemla í tæka tíð en
náð að hægja eitthvað á ferðinni áður
en hann skall á hrossunum. Bifreiðin
var mikið skemmd að framan og vél-
arhlífin lagðist yfir framrúðuna.
Ökumaður og farþegi sluppu án
meiðsla.
Á veginum var eitt dautt hross og
annað skammt frá með áverka.
Eigandi þriggja hrossa sem voru í
hópnum og umráðamaður alls stóðs-
ins fór fram á bætur fyrir tjón sitt
hjá eiganda bílsins og trygginga-
félagi hans. Aflífa þurfti hryssu frá
honum á staðnum og gera að áverk-
um tveggja annarra hrossa hans.
Stefndu höfnuðu bótaskyldu.
Fældust í beitarhólfi
Talið var að hrossin hefðu fælst af
ástæðum sem ekki eru þekktar og
hlaupið yfir hlið beitarhólfsins og inn
á hringveginn. Lausaganga búfjár er
bönnuð á þjóðvegum en lausaganga
búfjár er ekki bönnuð í dreifbýli
Skagafjarðar.
Ágreiningur málsins snerist um
það hvort hrossaræktandinn hefði
fullnægt reglum um vörslu búfjár og
girðingar.
Sýndi ekki af sér gáleysi
Í niðurstöðu dóms Héraðsdóms
Reykjavíkur sem Landsréttur hefur
nú staðfest kemur fram að ekki hafi
annað komið fram í málinu en að
varsla hrossanna hafi verið í sam-
ræmi við lög um búfjárhald og hlið-
girðing í samræmi við lög og reglur.
Ekki hafi verið sýnt fram á eða gert
sennilegt að umbúnaði beitarhólfsins
hafi verið ábótavant eða að hrossin
hafi sloppið úr því vegna slælegs um-
búnaðar eða frágangs á hliðinu.
Taldi dómarinn nægilega sýnt fram
á að eigandi hrossanna hefði ekki
sýnt af sér gáleysi eða ásetning sem
leiddi til þess að fella bæri niður eða
takmarka bótaskyldu eiganda bílsins
og tryggingafélagsins á tjóninu á
hrossunum, samkvæmt ákvæðum
umferðarlaga, vegna eigin sakar eig-
anda hrossanna. Var því fallist á
viðurkenningarkröfu hans og eig-
anda bílsins gert að greiða máls-
kostnað.
Bera ábyrgð á tjóni hrossabónda
Hross hlupu yfir hlið og urðu fyrir bíl á hringvegi „Hrædd hestaaugu“ komu æðandi á móti bílnum
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir