Morgunblaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Benedikt Hermann Hermannsson, betur
þekktur undir listamannsnafni sínu Benni
Hemm Hemm, heldur tónleika á Hressing-
arskálanum í kvöld kl. 21 með nýrri hljóm-
sveit sem skipuð er þekktum hljóðfæraleik-
urum.
„Miklabraut“, lag af næstu plötu Benna
sem kemur út upp úr áramótum, hefur verið
býsna mikið leikin í útvarpi upp á síðkastið,
enda bæði grípandi og hressandi. Myndband
við lagið hefur líka verið gefið út og sést Benni
þar á gangi um bílakirkjugarð og ruslahaug.
Benni er sérkennilega til fara í myndbandinu,
klæddur hvítum fötum með hálsklút og hatt
og í hvítum og svörtum skíðaskóm. Hvað á
það eiginlega að fyrirstilla?
„Ég bað hann Guðmund Jörundsson, mág
minn og fatahönnuð, um að finna út úr því
með mér hvernig ég ætti að vera klæddur. Ég
spurði hann hvað ég gæti farið í þannig að ég
væri sambland af útigangsmanni og engli og
þá sagði hann að ég þyrfti að vera í skíða-
skóm,“ svarar Benni.
– Já, það liggur í augum uppi! En ertu að
fara aftur í eldri tónlistina þína núna hvað stíl
varðar?
„Ég upplifi þetta þannig að ég sé að fara inn
í einhvern heim sem ég var inni í. Ég var að
grúska í gömlu plötunum til að spila eitthvað
gamalt á þessum tónleikum á föstudaginn [í
kvöld, innsk.blm.] og ég meika bara eiginlega
ekki að spila neitt af því,“ segir Benni og hlær.
– Hver er ástæðan fyrir því?
„Ég þarf eiginlega að finna eitthvert svar
við því, ég veit það ekki en ég get ómögulega
gert mig spenntan fyrir því að spila eitthvert
gamalt dót,“ svarar Benni að bragði.
– Er ekki líka bara hollt fyrir listamann að
vilja gera eitthvað nýtt?
„Jú, ég upplifi það alla vega sem eitthvað
mjög eðlilegt og hitt sem furðulega iðju, að
grafa upp eitthvert gamalt dót.“
Aftenging
– Arnar Eggert poppdoktor skrifaði um þig
pistil í fyrra þar sem hann segir að þú hafir
tekið u-beygju árið 2016 með plötunni Skor-
dýrum. Veistu hvað hann á við með því? Er
það tónlistarleg u-beygja eða eitthvað annað?
„Ég tók rosalega mikla beygju yfir í að vera
að vinna í þessu persónulega og hafði lítinn
áhuga á tengingu við aðra, einhvern veginn.
Svo gaf ég út aðra plötu síðasta haust, Fall,
sem gekk enn lengra í þessu og er bara svona
noise ambient plata. Ég lenti grínlaust nokkr-
um sinnum í því að hitta fólk sem hafði hlustað
á hana og þá rann upp fyrir mér að hún væri
ekki bara í tölvunni hjá mér, að ég hefði gefið
hana út. Þetta var það persónulegt og gekk
lítið út á að tala við einhverja aðra.“
– Platan sem er væntanleg, er hún kannski
alveg á hinum endanum?
„Já, eiginlega. Síðasta vetur fékk ég svona
eldingu í höfuðið og byrjaði að gera rosalega
mikið af tónlist, fáránlega mikið og var svo
kominn með alveg haug af dóti, kannski 80 lög
og var að spá í hvað ég ætti eiginlega að gera
við þau. Ég var í smávandræðum með það og
var að spyrja fólk að því hvað ég ætti að gera
og fékk einhvern smávinkil frá fólki sem sá
þetta skýrar en ég, að það væri einhver Benna
Hemm Hemm-plata í þessu, sem mér fannst
fjarstæðukennt. Ég áttaði mig svo á því að
þessi týpa í skíðaskónum væri að banka upp
á,“ svarar Benni.
Hefur áhrif að hjálpa öðrum
Benni hefur verið tónlistarkennari í grunn-
skóla til fjölda ára og er spurður að því hvort
starfið hafi haft áhrif á hann sem tónlistar-
mann, að kenna börnum og umgangast alla
daga. „Það hefur alveg áhrif á mann að hjálpa
öðrum við að skapa tónlist. Þegar maður er
alltaf að telja öðrum trú um að þeir geti fengið
hugmyndir, þurfi bara að nota þessa og hina
aðferðina til þess að sækja þær, þá er frekar
ólíklegt að maður lendi í vandræðum með það
sjálfur. Það er líka bara mjög fínt, hristir upp
í öllu kerfinu. Ég sæki alveg í að vera bara
einn inni í herbergi að semja lög og pæla ekki
í neinu öðru en það er ekki mjög hollt. Kennsl-
an heldur lífi í kerfinu,“ segir hann.
Benni segist hafa tekið sér hlé frá tónleika-
haldi í nokkur ár og er spurður hvernig standi
á því. „Ég hef bara ekki verið í stuði fyrir það,
hef almennt verið að forðast það sem tónlist-
armaður að tala við fólk, bara eins og ég væri
með unglingaveiki einn inni í herbergi í jóla-
boði,“ svarar hann sposkur.
– Kannski er nauðsynlegt að taka sér gott
frí frá tónleikahaldi stundum?
„Já, ég fékk alveg nóg af þessum bransa en
það er fínt að koma aftur inn í hann á eigin
forsendum en ekki gera bara það sem maður
heldur að maður eigi að gera.“
Benni segir að hann og hljómsveitin muni
spila haug af nýjum lögum í kvöld. Hann hafi
reynt að troða gömlum lögum í efnisskrána en
þau hafi viljað fá að vera í friði.
En ætlar hann að vera í skíðaskónum?
„Nei, ég held ekki … en það er dálítið freist-
andi.“
Týpa sem vill tala við fólk
Glæsilegur Benni í myndbandinu við „Miklubraut“, hvítklæddur og í skíðaskóm.
Benni Hemm Hemm
snýr aftur í skíðaskóm
Hljómsveitin Seabear er aftur
komin á kreik eftir heldur langt
hlé, átta ár, og er þessa dagana að
vinna í nýrri plötu, þeirri þriðju í
röðinni sem kemur út á næsta ári
á vegum þýsku útgáfunnar Morr
Music.
Fyrsta smáskífan af þeirri plötu
kemur út í dag, föstudag, lagið
„Waterphone“ og má nálgast það
á helstu streymisveitum auk þess
sem frumsýnt verður myndband
við lagið, leikstýrt af Mána M. Sig-
fússyni. Máni hefur m.a. unnið
með Jóhanni Jóhannssyni, Ásgeiri
Trausta, Ólafi Arnalds og hinni
heimskunnu rokksveit Rolling
Stones.
Seabear snýr aftur á tónleika-
svið á Iceland Airwaves tónlist-
arhátíðinni sem hefst 6. nóvember.
Verður það aðdáendum sveit-
arinnar að vonum fagnaðarefni,
löng bið þar með á enda.
Ljósmynd/Inga og Lilja Birgisdætur
Seabear Hljómsveitin er risin úr dvala og treður upp á Iceland Airwaves.
Seabear snýr aftur
Ingvar E. Sigurðsson hlaut
í gær sín þriðju verðlaun
fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni Hvítur, hvítur dagur, á
elstu kvikmyndahátíð Kan-
ada, FNC í Montreal. Fyrri
verðlaun hlaut Ingvar á
kvikmyndahátíðinni í
Cannes í Frakklandi og á
kvikmyndahátíðinni í
Transylvaníu í Rúmeníu.
Mótleikkona Ingvars í myndinni, Ída Mekkín
Hlynsdóttir, hlaut einnig verðlaun nýverið, á
Hamptons-kvikmyndahátíðinni í Bandaríkj-
unum.
Hvítur, hvítur dagur hefur nú alls hlotið sjö
verðlaun frá því hún var frumsýnd á Critic’s
Week í Cannes í maí síðastliðnum og hlaut
þar ein af aðalverðlaunum dómefndar.
Hlaut verðlaun í Kanada
Ingvar Sigurðsson
15.15 tónleikasyrpan held-
ur áfram göngu sinni kl.
15.15 á morgun í Breið-
holtskirkju, með tónleik-
unum „Fágæti fyrir fa-
gott“. Leikin verða verk
fyrir fagott í ýmsum sam-
setningum með áherslu á
að kynna tónverk sem
sjaldan heyrast flutt á
tónleikum, segir í tilkynn-
ingu, og eru flest verkanna frönsk. Að-
algestur tónleikanna verður franski fagott-
leikarinn Franck Leblois sem heldur
masterklass í Menntaskóla í Tónlist, MÍT, í
dag. Einnig leika á tónleikunum Jón Sig-
urðsson píanóleikari og Kristín Mjöll Jak-
obsdóttir fagottleikari. Sérstakir gestir á
tónleikunum verða fjórir fagottnemendur
frá MÍT.
Fágæti fyrir fagott
Franck Leblois
Tónlistarkonan Marína
Ósk heldur útgáfutónleika
vegna nýútgefinnar plötu
sinnar, Athvarf, í kvöld kl.
20 í salnum Hömrum í Hofi
á Akureyri og á miðviku-
daginn, 30. október, í
Sunnusal Iðnó í Reykjavík
kl. 20. Rafgítarleikarinn
Mikael Máni Ásmundsson
kemur fram með Marínu
auk fleiri hljóðfæraleikara, heimamanna á
hvorum stað. Hljóðheimur plötunnar á rætur
í myndrænum söngvaskáldastíl og voru flest
lögin samin á gítar í opinni stillingu að því er
kemur m.a. fram í tilkynningu.
Marína fagnar Athvarfi
Marína Ósk