Morgunblaðið - 25.10.2019, Page 8

Morgunblaðið - 25.10.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019 Eins og endranær voru frétt-irnar sem berast hratt og fara fljótt hjá augum nútíma- fólks mjög misjafnlega til þess fallnar að hugga geð og styrkja vonir. Ein í hópi þeirra ömur- legustu var úr okkar heims- hluta en fólk af mun fjarlægari slóðum mætti þar illum örlögum sínum.    Fólkinu hafðiverið komið fyrir í lokuðum innsigluðum kæli- gámi flutningabifreiðar sem ók á milli landa í Evrópu. Helkuld- inn í gámnum myrti fólkið, 39 manneskjur, sem gat enga björg sér veitt. Í fréttum af þessu ódæði sagði að meira væri nú upp úr smygli á fólki að hafa en að flytja dóp til endastöðva, þar sem kaupgeta fíkla er þrátt fyr- ir allt mun meiri en í „vanþró- aðri“ löndum.    Gunnar Rögnvaldsson telurað hugsanlega væri þessi 39 manna hópur enn á lífi væri landamæraeftirlit í löndum ESB og nefnir að Danir hafi neyðst til að taka upp slíkt eftirlit gagnvart Svíþjóð:    Bíllinn hefði kannski veriðstöðvaður og fólkið fundist á lífi áður en það króknaði í hel í Bretlandi.Vöruflutningabíllinn (þ.e. þræla- eða mansalsbíllinn) fór ekki hina venjulegu leið með ferjunni frá Calais í Frakk- landi yfir til Dover á Englandi, því þar er aukin landamæra- gæsla. Farið var því frá Cher- burg í Frakklandi yfir til hafn- arinnar Rosslare á Írlandi og þaðan ekið upp til Dublin og ferja tekin yfir til Holyhead í Wales, þaðan sem ekið var nið- ur England til Essex, þar sem fólkið fannst króknað í hel.“ Gunnar Rögnvaldsson Ömurleg frétt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Langvíur og stuttnefjur við Norður- Atlantshaf koma nú fyrr á varpstöðv- arnar en þær gerðu. Flýting komu- tímans er rakin til hlýnunar loftslags. Þrátt fyrir að koma fyrr hafa svart- fuglarnir ekki flýtt varptímanum, samkvæmt rannsókn sem tímaritið Biology Letters greindi frá í fyrra- dag. Einn höfunda greinarinnar er Þorkell Lindberg Þórarinsson, líf- fræðingur og forstöðumaður Nátt- úrustofu Norðausturlands. Hann sagði að hluti rannsóknar- innar hefði farið fram á Íslandi, aðal- lega á Langanesi en einnig í Gríms- ey. Hún var gerð á árunum 2009-2018 í 14 fuglabyggðum allt frá Færeyjum í suðri og norður á Sval- barða, en þar eru stórar stuttnefju- byggðir. Ísland kom inn nokkru eftir að rannsóknin hófst, eða árið 2014. Reiknað er með hún haldi áfram a.m.k. næstu þrjú árin. Þorkell sagði að rannsóknin á sjó- fuglum á norðurslóðum væri stór. „Gögnin eru mjög umfangsmikil og ná til allra þessara fuglabyggða yfir langt tímabil. Niðurstöðurnar sýna að fuglarnir koma fyrr á varpstöðv- arnar en verpa ekki fyrr á vorin en þeir gerðu,“ sagði Þorkell. Fuglarnir yfirgefa ekki byggðina fyrr en ung- arnir stökkva úr bjarginu um 20 daga gamlir. Fuglarnir dvelja því lengur við bjargið en áður. Talið er að sjófuglar séu almennt viðkvæmari en aðrar fuglategundir fyrir loftslagsbreytingum. Í grein- inni kemur m.a. fram að hliðrunin á komutíma svartfuglanna geti valdið því að æti, t.d. fiskar og annað, sé ekki komið á svæðið þegar þeir koma. „Það er ekki þekkt hvort fæðuframboðið hefur breyst. En greinilega hefur eitthvað gerst hjá stuttnefjunni, sem fækkar hér jafnt og þétt samfara þessari hlýnun. Hún virðist eiga erfitt uppdráttar alla vega við austanvert Norður- Atlantshaf,“ sagði Þorkell. Stutt- nefju hefur fækkað stöðugt við Ís- land síðustu 30 árin. Þær eru nú flestar á Vestfjörðum en finnast einnig fyrir norðan og austan. Stuttnefjur eru að hverfa af jaðar- svæðum útbreiðslu sinnar eins og af Reykjanesi, Snæfellsnesi og Aust- fjörðum. Við rannsóknina voru notaðir dægurritar auk þess sem fylgst var með fuglabyggðunum. Björgin eru vöktuð með myndavélum og eru myndirnar notaðar til að staðfesta gögn úr dægurritunum. Náttúru- stofa Norðausturlands er með myndavélar í fuglabjörgum m.a. á Langanesi og í Grímsey sem taka myndir á klukkustundar fresti árið um kring. Svartfuglar koma fyrr að vori en verpa á sama tíma  Langvíur og stuttnefjur við N-Atlantshaf rannsakaðar Morgunblaðið/RAX Svartfuglabæli Langvíur eru suð- lægari tegund en stuttnefjan. Brunakerfi fór óvænt í gang á ann- arri hæði Kringlunnar síðdegis í gær. Var um að ræða þann búnað sem staðsettur er nærri rúllustigum skammt frá veitingastað Joe & The Juice, en úðakerfið er við eldsvoða notað til að kæla eldvarnarhurð sem m.a. getur lokað af gönguleiðum. Talsvert magn af vatni tók að flæða um nærliggjandi ganga og fór það inn í nokkrar verslanir. Ekki er þó talið að skemmdir hafi orði miklar vegna þessa, en sumir verslunareig- endur brugðu á það ráð að láta hand- klæði við inngang verslana sinna til að stöðva vatnsflæðið. Slökkviliðs- menn mættu svo skömmu síðar og hófu að dæla burtu vatni. Ekki var í gær nákvæmlega vitað hvað olli því að kerfið fór í gang. Brunakerfi fór skyndilega í gang Morgunblaðið/Eggert Kringlan Talsvert magn af vatni flæddi um ganga á 2. hæð verslunarmið- stöðvarinnar vegna úðakerfisins en skemmdir eru taldar óverulegar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.