Morgunblaðið - 25.10.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.10.2019, Qupperneq 24
SNÆFELL Kristján Jónsson kris@mbl.is Gunnhildur Gunnarsdóttir, landsliðs- kona í Snæfelli, segir leikstíl Snæfells hafa tekið breytingum á milli tíma- bila. „Á heildina litið er ég spennt fyrir vetrinum. Við erum með marga unga leikmenn úr Hólminum sem munu taka nánast fyrstu skref sín í meist- araflokknum í vetur. Ég held að þetta verði skemmtilegt en erfitt því deildin er sterk og maður má ekki misstíga sig mikið. Við höfum komist að því,“ sagði Gunnhildur, en Snæfell teflir í vetur fram þremur erlendum leik- mönnum sem styrkja liðið töluvert. „Við þurfum í rauninni að hafa þrjá erlenda leikmenn til að eiga æf- ingahóp heima (í Stykkishólmi). Þær eru flottar. Þær eru ekki bestu er- lendu leikmennirnir sem ég hef spilað með en þær gera mikið fyrir liðið. Kaninn býr til færi og gerir aðra leik- menn betri. Við þurfum aðeins að venjast því að vera ekki með yfir- burðaleikmann eins og Kristen (McCarthy) hefur verið síðustu árin. Aðrir leikmenn þurfa að venjast því að axla meiri ábyrgð, sem er að sjálf- sögðu ekki slæmt. Þessar erlendu virka einnig vel á mig sem persónur. Þær eru ungar segir gamla konan í liðinu. Þegar útlendingarnir eru sjö árum yngri en þú ertu orðin gömul í þessu,“ sagði Gunnhildur og hlær en er þó sjálf ekki nema 29 ára. Tveir sigrar og tvö töp Í upphafi tímabilsins hefur Snæfell unnið tvo leiki í deildinni en tapað tveimur. Vann leiki gegn Breiðablik og Grindavík en tapaði gegn Val og Skallagrími. „Þetta var ekki eins og við ætluðum okkur og við höfðum hugsað okkur að ná þremur sigrum út úr þessum fjórum leikjum. Kannski var leikurinn gegn Skalla- grími erfiðari en við héldum, án þess að ég ætli okkur að vera eitthvað merkilegar með okkur. Þann leik vildum við vinna en að öðru leyti er- um við á áætlun. Það ætlaðist enginn til þess að við myndum vinna Val,“ sagði Gunnhildur, en Íslands- og bikarmeistararnir í Val hafa nú þeg- ar unnið bæði Snæfell og Keflavík með miklum mun. „Vafalaust geta lið gert betur en það gegn Val en það kæmi mér á óvart ef Valur myndi ekki renna smurt í gegnum deildakeppnina. Ég er viss um að einhver lið geta stolið af þeim sigrum en er hrædd um að þeir leikir verði ekki margir. Þær eru með yfirburðalið. Eru með besta leikmann Íslands fyrr og síðar í Hel- enu, tvo útlendinga og hálft lands- liðið. Ef pressan má ekki vera aðeins á þeim er það eitthvað skrítið,“ sagði Gunnhildur enn fremur við Morgun- blaðið í gær. McCarthy sem Gunnhildur minntist á er í þjálfarateymi liðsins eins og er en hún hefur ekki jafnað sig á höfuðáverkum sem hún varð fyrir seint á síðasta tímabili. Ekki er reiknað með því að hún geti spil- að í vetur. Þá er landsliðskonan og systir Gunnhildar, Berglind Gunnarsdóttir, frá keppni, en hún fór í aðgerð í sumar vegna þrálátra axlarmeiðsla. Ekki er reiknað með því að hún geti leikið fyrr en eftir áramót. Þetta verður skemmtilegt en erfitt Morgunblaðið/Hari Landsliðskona Gunnhildur sækir að körfu Breiðabliks í Smáranum.  Snæfell er án bæði McCarthy og Berglindar eins og sakir standa 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2012 -2017 Kerruöxlar og íhlutir ALLT TIL KERRUSMÍÐA MIÐHERJAR: Emese Vida Helga Hjördís Björgvinsdóttir Þjálfari: Gunnlaugur Smárason Árangur 2018-19: 5. sæti. Íslandsmeistari: 2014, 2015 og 2016. Bikarmeistari: 2016.  Snæfell hefur unnið Breiðablik og Grindavík en tapað fyrir Val og Skallagrími í fyrstu umferðunum. BAKVERÐIR: Björg Einarsdóttir Chandler Smith Dagný Inga Magnúsdóttir Hrafnhildur Magnúsdóttir Rebekka Rán Karlsdóttir Tinna G. Alexandersdóttir Vaka Þorsteinsdóttir Veera Annika Pirttinen FRAMHERJAR: Anna Soffía Lárusdóttir Berglind Gunnarsdóttir Gunnhildur Gunnarsdóttir Kristen Denise McCarthy Rósa Kristín Indriðadóttir Lið Snæfells 2019-20 KOMNAR: Chandler Smith frá Gonzaga (Bandaríkjunum) Emese Vida frá ZKK Bor (Serbíu) Rósa Kristín Indriðadóttir byrjuð aftur Veera Annika Pirttinen frá Chem- nitz (Þýskalandi) FARNAR: Andrea Björt Ólafsdóttir í Fjölni Angelika Kowalska, óvíst Heiður Hlín Björnsdóttir, óvíst Katarina Matjevic í Phoenix Con- stanta (Rúmeníu) Thelma Lind Hinriksdóttir, óvíst Breytingar á liði Snæfells  Verður erfitt tímabil en væntanlega markmiðið að ná í úrslitakeppni sem er alveg geranlegt. Keppnin um 4. sætið verður á milli Hauka og Snæfells og hver leikur þar 6 stiga leikir.  Mun mæða mikið á öllum 3 Gunnarsdætrum og þá sérstaklega Kristen en bæði Berglind og Gunnhildur þurfa að vera heilar og spila.  Björg Guðrún Einarsdóttir kemur sterk inn enda orkubolti og passar vel í leik með systrunum og hjálpar Rebekku Rán sem er orðin hokin af reynslu þó að ung sé.  Þurfa að treysta á útlendingalottóið en hæðin verður ekki vanda- mál þar sem allar 4 eru yfir 1,80 cm. Margrét Sturlaugsdóttir um Snæfell  Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu fer upp um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA sem birtur var í gær. Ísland fer úr 41. sæti í 40. sæti en liðið hefur leikið tvo leiki síðan síðasti listi var birtur, gegn Frakklandi og Andorra í undankeppni EM. Leiknum gegn heimsmeisturum Frakka lauk með 1:0- sigri Frakka á Laugardalsvelli en Ísland lagði Andorra að velli í Laugardalnum, 2:0. Næstu leikir liðsins verða gegn Tyrklandi 14. nóvember og Moldóvu, 17. nóvember, en báðir leikirnir fara fram ytra. Belgar sitja sem fyrr í efsta sæti listans en Frakkar koma þar á eft- ir. Brasilía er í þriðja sæti og England í fjórða en þar á eftir koma Úrúgvæ, Portúgal, Króatía og Spánn.  Ítalska knattspyrnuliðið Inter hefur áhuga á fá þýska framherjann Thomas Müller til liðs við sig frá þýska meist- araliðinu Bayern München þegar opn- að verður fyrir félagaskipti í janúar. Þýska fótboltablaðið Kicker greinir frá þessu. Müller hefur mátt sætta sig við að verma varamannabekkinn mikið hjá Bæjurum á leiktíðinni en hann er 30 ára gamall og hefur leikið allan feril sinn með liðinu. Eitt ogannað KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Mustad-höllin: Grindavík – Njarðvík ..18.30 Höllin Ak.: Þór Ak. – ÍR .......................18.30 MG-höllin: Stjarnan – Keflavík............20.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Austurberg: ÍR – Grótta.......................19.15 Víkin: Víkingur – Fram U ....................19.30 Enski boltinn á Síminn Sport Southampton – Leicester ..........................19 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.