Morgunblaðið - 25.10.2019, Page 25

Morgunblaðið - 25.10.2019, Page 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019 Það er ekki laust við að mað- ur bíði spenntur eftir Evrópu- mótinu í handbolta þó að enn séu tveir og hálfur mánuður í mótið. „Nýtt“ og áhugavert ís- lenskt lið er í mótun og mikið undir á EM, meðal annars vegna þess að góður árangur gæti komið Íslandi í undankeppni Ól- ympíuleikanna í Tókýó. Ekki veitir nú af að fjölga Íslendingum þar. Þess vegna er leitt að sjá hversu mikil forföll eru í íslenska hópnum sem mættur er til Sví- þjóðar, landsins þar sem Ísland mun spila leiki sína á EM. Fyrir höndum eru tveir leikir við Svía sem maður hefði haldið að væru afar mikilvægir sem einu leikirnir fram að því að EM-hópurinn kemur saman um jólin. Vissulega er gaman og gagn- legt að óreyndari leikmenn fái tækifæri til að sýna sig, en betra væri að þeir sem munu spila megnið af leikjunum á EM gætu nýtt þessa leiki til undirbúnings. Sumir eru einfaldlega meiddir og ekkert við því að gera, og aðrir þurfa á því að halda að gefa líkamanum smáhvíld frá oft og tíðum ómannlegu álagi sem handboltamenn eru settir undir. Ef það þýðir að sömu menn geti mætt öflugri til leiks þegar það skiptir mestu máli, í janúar, þá er auðvitað rétt ákvörðun hjá Guð- mundi Guðmundssyni að veita þeim hvíld, en það má ekki vera svo að menn velji sér landsliðs- verkefni eftir hentugleika til að skella sér í borgarfrí með frúnni eða eitthvað þvíumlíkt. „Menn eru undir miklu álagi hjá félags- liðum sínum og þegar lands- leikjahlé kemur vilja þeir taka pásu. Við getum lítið við þessu gert,“ sagði Guðmundur í blað- inu í gær, en vonandi er ekki ástæða til þess að fara að efast um mikla fórnfýsi okkar góðu landsliðsmanna fyrir þjóðina. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is EVRÓPUDEILD Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Arnór Ingvi Traustason er með liði Malmö í ótrúlega jafnri baráttu fjög- urra liða um sænska meistaratitilinn í fótbolta. Arnór og félagar eiga fyrir höndum afar mikilvægan leik við AIK, lið Kolbeins Sigþórssonar, á mánudagskvöld í næstsíðustu umferð deildarinnar. Af þessum sökum, og vegna meiðsla, var Malmö án lykil- manna í Evrópudeildinni í gær en það kom ekki að sök því liðið vann Lug- ano frá Sviss 2:1 og er vel á lífi í bar- áttunni um að komast upp úr B-riðli keppninnar. Arnór lék allan leikinn gegn Lug- ano í gær en með sigrinum er Malmö nú með 4 stig þegar riðlakeppnin er hálfnuð, stigi á eftir FC København og Dynamo Kiev sem gerðu 1:1 - jafn- tefli í Úkraínu í gær. Malmö á eftir útileiki við Lugano og FCK en heima- leik við Dynamo Kiev, en hver sigur er liðinu auk þess dýrmætur því fyrir að vinna leik í riðlakeppninni fæst jafnvirði 80 milljóna íslenskra króna. CSKA Moskva, lið Harðar Björg- vins Magnússonar og Arnórs Sigurðs- sonar, á hins vegar afar veika von um að komast upp úr H-riðli eftir þriðja tapið í keppninni í gær, 1:0 á heima- velli gegn Ferencváros frá Ungverja- landi. Eftir eftirtektarverð úrslit í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð hefur ekkert gengið upp hjá CSKA í Evrópudeildinni. Hörður lék allan leikinn í gær en Arnór fór af velli á 80. mínútu. Jón Guðni Fjóluson lék síðasta korterið í góðum 2:0-útisigri Krasnod- ar á Trabzonspor í Tyrklandi í gær. Sigurinn heldur Krasnodar með í bar- áttunni við Basel og Getafe um að komast upp úr C-riðli, en um var að ræða fyrstu þrjú stig Krasnodar í keppninni. Liðið á eftir heimaleiki við Trabzonspor og Basel en sækir svo Getafe heim í lokaumferðinni 12. des- ember. Albert Guðmundsson og Rúnar Már Sigurjónsson misstu af 6:0- stórsigri AZ á Astana í L-riðli. Með sigrinum komst AZ upp í 2. sæti og er tveimur stigum á eftir Manchester United sem vann Partizan Belgrad 1:0. Astana er enn án stiga.  Öll úrslit og stöður í riðlum má sjá á síðu 26. Unnu í hléi frá titilbaráttunni  CSKA Mosvka í tómum vandræðum AFP Fögnuður Arnór Ingvi Traustason faðmar liðsfélaga í sigrinum á Lugano. Erik Thorstvedt, sparkspekingur á norsku sjónvarpsstöðinni TV2, reiknar með því að Salzburg selji norska framherjann Erling Braut Haaland í janúar. Haaland hefur farið á kostum á leiktíðinni og er fyrsti leikmaðurinn í sögunni sem skorar í fyrstu þremur leikjum sín- um í Meistaradeildinni en þessi 19 ára gamli hávaxni framherji hefur skorað 6 mörk í Meistaradeildinni og 20 mörk í 13 leikjum Salzburg í öllum keppnum. Manchester Unit- ed, Liverpool og Juventus eru með- al þeirra liða sem vilja fá Haaland. Telur að Haaland verði seldur AFP Eftirsóttur Erling Braut Haaland er í sigtinu hjá nokkrum stórliðum. Gianni Infantino, forseti Alþjóða- knattspyrnusambandsins, tilkynnti í gær að heimsmeistaramót fé- lagaliða í knattspyrnu árið 2021 færi fram í Kína og með breyttu sniði. 24 lið mun taka þátt í mótinu, þar af átta lið frá Evrópu en hingað til hafa aðeins sjö lið spilað á HM fé- lagsliða. „Þetta er söguleg ákvörð- un fyrir fótboltann. Þetta verður keppni sem allir einstaklingar, hvert barn og allir sem elska fót- bolta hlakka til,“ sagði Infantino. HM félagsliða í ár og á næsta ári fer fram í Katar. 24 lið á HM félagsliða í Kína AFP Forsetinn Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Samkvæmt ítölskum miðlum gæti farið svo að ítalska stórliðið Roma geri samning við landsliðsmanninn Emil Hallfreðsson vegna mikils krísuástands í herbúðum félagsins. Í augnablikinu er Jordan Veretout eini miðjumaður Roma sem er heill heilsu. Emil hefur verið án samnings síð- an skammtímasamningur hans við Udinese rann út í sumar. Þessi 35 ára miðjumaður hefur mikla reynslu af því að spila á Ítalíu og samkvæmt frétt Sky Sport á Ítalíu heillar það forráðamenn Roma. Umboðsmaður Emils, Alessandro Beltrami, fór til Rómar í gær til þess að hitta Gian- luca Petrachi, yfirmann íþróttamála hjá Roma, á Ólympíuleikvanginum eftir leik Roma og Borussia Mönc- hengladbach í Evrópudeildinni. Hins vegar kom í ljós seint í gær- kvöld að Jack Rodwell, fyrrverandi miðjumaður Everton sem síðast lék með Blackburn í ensku 1. deildinni á síðustu leiktíð, væri einnig kominn til Rómar. Standist hann læknis- skoðun mun hann ganga í raðir Roma, eftir að hafa verið án félags. Í hlaðvarpsþættinum Fantasy- Gandalf, sem fór í loftið í gær, sagði Emil að „eitthvað“ væri í vinnslu og að hann kæmi til greina hjá Roma. „Miði er möguleiki,“ sagði Emil. Roma er án miðjumannanna Bryan Cristante, Amadou Diawara og Lorenzo Pellegrini sem eru allir meiddir. Ekki er von á Cristante fyrr en á nýju ári, Pellegrini gæti snúið aftur í desember og búist er við Diawara um miðjan nóvember. Roma er í 6. sæti ítölsku deildar- innar á sinni fyrstu leiktíð undir stjórn Portúgalans Paulo Fonseca. sindris@mbl.is Rodwell fram yfir Emil hjá Roma?  Mikil meiðslakrísa opnar möguleika Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Án félags Emil Hallfreðsson í landsleik gegn Andorra á dögunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.