Morgunblaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019 Hljómsveitin Buff fagnar 20 ára af- mæli um þessar mundir, með þrenn- um tónleikum. Þeir fyrstu verða haldnir 25. október í Bæjarbíói í Hafnarfirði, 26. október í Alþýðu- húsinu í Vestmannaeyjum og 2. nóv- ember á Græna hattinum á Akur- eyri. Buff var stofnuð að hausti til árið 1999 að tilstuðlan sjónvarpsstjóra Skjás 1 á þeim tíma sem þá hafði ný- lega hafið göngu sína, að því er fram kemur í tilkynningu frá Buffi. Var hljómsveitin stofnuð fyrir spjallþátt- inn Axel og félagar og sá hún þar um allan tónlistarflutning. Fór Buff fljótlega að skemmta á börum Reykjavíkur og varð vinsæl dansleikjasveit, eins og liðsmenn lýsa því sjálfir. Hefur sveitin leikið í fleiri sjónvarpsþáttum við góðan orðstír, var m.a. með Hemma Gunn í tæp tvö ár og Singing Bee á Skjá 1. Buff hefur einnig gefið út fjórar breiðskífur og þá m.a. plötu með lög- um Magnúsar Eiríkssonar og sungið bakraddir og séð um hljóðfæraleik á ýmsum stórtónleikum. „Það er eig- inlega ekkert bæjarfélag sem Buffið hefur ekki heimsótt, nema Borðeyri. Stefnt er að heimsókn þangað strax á vormánuðum,“ segir í tilkynningu frá sveitinni. Á 20 árum hefur Buff aldrei haldið tónleika með eigin efni og við hæfi að gera það á afmælisári. Mun hún á af- mælistónleikunum fara yfir sögu sína í tónum og tali. Hafa spilað alls staðar nema á Borðeyri Buffið Félagarnir sem stofnuðu hljómsveit fyrir tuttugu árum.  Buff heldur upp á tvítugs- afmæli með tónleikaþrennu Lögmaðurinn StefánBjarnason snýr aftur íbókinni Dýrbítar þar semhann þarf að taka á hon- um stóra sínum við að verja kunn- ingjakonu sína sem er sökuð um morð. Mannslík og hundshræ finnast í Fljótshlíðinni og áður en Stefán veit af virðist hann standa einn í baráttu- við íslensk lögregluyfirvöld og út- sendara CIA, auk innlendra og er- lendra ráða- manna. Inn í söguna blandast einkamál Stefáns, sem virðist varla mega heyra kvenmannsnafn án þess að falla fyrir viðkomandi. Líkt og í fyrri bók Óskars Magnússonar, Verjandanum, eru persónur trúverðugar og margar hverjar líkar þjóðþekktum einstak- lingum. Óskar starfaði sjálfur við lögmennsku og eru lýsingar hans á því sem fer fram áður í starfi stjörnulögmanns, ef svo má segja, skemmtilegar. Sé eitthvað að marka bókina er ljóst að Óskar er ekkert sérstaklega hrifinn af ríkislögreglustjóra, sem er sagður hafa áhuga á öðrum hlutum en að sinna starfinu. Ríkislögreglu- stjórann dreymir um að verða ljóð- skáld en tekið er fram að þar sé hann ekki á heimavelli. Einhver gæti sopið hveljur vegna þess að aðalpersóna bókarinnar er lögmaður, hann þarf að leysa morð- mál og hluti bókarinnar fer fram í réttarsal. Það er óþarfi að hafa of miklar áhyggjur því bókin er ekki kennsluefni í lögfræði og því geta þeir sem engan áhuga hafa á því fagi notið lestursins. Lögfræðinördar geta það væntanlega líka. Við lesturinn verður fljótlega ljóst að sakamálið er ekki jafn einfalt og embættismenn sögunnar vilja meina. Þrátt fyrir að það að finna út hver ber ábyrgð á mannslíkinu sé helsta viðfangsefni Dýrbíta þykja mér hliðarsögurnar með blöndu af húmor og alvarleika stela senunni. Sagan rennur lipurlega áfram og aðdáendur fyrri bókar Óskars eiga von á góðu. Helst mætti finna að því að um miðbik bókarinnar er sagan full langdregin að mati dómara. Það er aðeins mitt mat og eflaust finnst einhverjum að lengja mætti miðhlut- ann eitthvað. Fyrir utan „langdreginn mið- hluta“ er óhætt að mæla með lestr- inum og vel er hægt að ímynda sér að stemningin við lesturinn verði meiri þegar fólk skreppur aðeins út fyrir bæjarmörkin. Það verður að teljast líklegt að Stefán Bjarnason lögmaður hafi ekki sagt sitt síðasta og muni snúa aftur áður en langt um líður. Eflaust mun hann glíma við flókið sakamál, sem hann leysir af sóma, en spennt- ari er ég þó að sjá hvernig einkalíf lögmannsins knáa þróast. Stjörnulögmaður stendur í stórræðum Glæpasaga Dýrbítar bbbmn Eftir Óskar Magnússon JPV gefur út. 404 bls. kilja. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR Morgunblaðið/Ófeigur Um Dýrbíta Sagan rennur lipurlega áfram og aðdáendur fyrri bóka Óskars eiga von á góðu, segir gagnrýnandi m.a. um bók Óskars Magnússonar. BORGARLEIKHÚSIÐ Sex í sveit (Stóra sviðið) Fös 25/10 kl. 20:00 9.sýn Fös 1/11 kl. 20:00 13.sýn Lau 9/11 kl. 20:00 17.sýn Lau 26/10 kl. 20:00 10.sýn Lau 2/11 kl. 20:00 14.sýn Sun 10/11 kl. 20:00 18.sýn Sun 27/10 kl. 20:00 11.sýn Sun 3/11 kl. 20:00 15.sýn Fös 15/11 kl. 20:00 19.sýn Fim 31/10 kl. 20:00 12.sýn Fös 8/11 kl. 20:00 16.sýn Sprenghlægilegur gamanleikur! Matthildur (Stóra sviðið) Lau 26/10 kl. 13:00 62.sýn Lau 2/11 kl. 13:00 64.sýn Sun 10/11 kl. 13:00 66.sýn Sun 27/10 kl. 13:00 63.sýn Sun 3/11 kl. 13:00 65.sýn Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk! Stórskáldið (Nýja sviðið) Fös 25/10 kl. 20:00 4.sýn Fim 31/10 kl. 20:00 5.sýn Sun 3/11 kl. 20:00 6.sýn ■Sönn saga? Hvað er það? Sannleikurinn er róf!■ Eitur (Litla sviðið) Lau 2/11 kl. 20:00 frumsýning Fim 14/11 kl. 20:00 7.sýn Sun 24/11 kl. 20:00 13.sýn Sun 3/11 kl. 20:00 2.sýn Fös 15/11 kl. 20:00 8.sýn Fim 28/11 kl. 20:00 14.sýn Fim 7/11 kl. 20:00 3.sýn Lau 16/11 kl. 20:00 9.sýn Fös 29/11 kl. 20:00 15.sýn Fös 8/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 17/11 kl. 20:00 10.sýn Sun 1/12 kl. 20:00 16.sýn Lau 9/11 kl. 20:00 5.sýn Fim 21/11 kl. 20:00 11.sýn Sun 10/11 kl. 20:00 6.sýn Fös 22/11 kl. 20:00 12.sýn Hvað áttu eftir stærsta missi lífs þíns? Kvenfólk (Nýja sviðið) Lau 26/10 kl. 20:00 48.sýn Fös 1/11 kl. 20:00 50.sýn Lau 9/11 kl. 20:00 52.sýn Sun 27/10 kl. 20:00 49.sýn Lau 2/11 kl. 20:00 51.sýn Aðeins örfáar sýningar í haust! Ríkharður III (Stóra sviðið) Mið 30/10 kl. 20:00 19.sýn Fim 7/11 kl. 20:00 20.sýn Mið 13/11 kl. 20:00 21.sýn Þá skal ég verða verstur allra þrjóta. Club Romantica (Nýja sviðið) Mið 20/11 kl. 20:00 13.sýn Sun 24/11 kl. 20:00 15.sýn Fim 28/11 kl. 20:00 17.sýn Fim 21/11 kl. 20:00 14.sýn Mið 27/11 kl. 20:00 16.sýn Allra síðustu sýningar. Um tímann og vatnið (Stóra sviðið) Þri 12/11 kl. 20:00 3.sýn Kvöldstund með listamanni. HÚH! (Nýja sviðið) Fös 25/10 kl. 20:00 8.sýn Mið 6/11 kl. 20:00 lokasýning Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 26/10 kl. 20:00 19.sýn Lau 23/11 kl. 20:00 20.sýn Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 27/10 kl. 13:00 LOKASÝNING Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Brúðkaup Fígarós (Stóra Sviðið) Fös 25/10 kl. 19:30 9.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið) Lau 26/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 10/11 kl. 19:30 8. sýn Lau 23/11 kl. 19:30 10. sýn Lau 2/11 kl. 19:30 auka Fös 15/11 kl. 19:30 auka Lau 30/11 kl. 19:30 11. sýn Mið 6/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 16/11 kl. 19:30 9. sýn Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri Stormfuglar (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 17/11 kl. 19:30 5. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn Fös 22/11 kl. 19:30 7. sýn Hinn rómaði sögumaður Einar Kárason stígur á svið Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn) Fös 25/10 kl. 19:30 11.sýn Lau 2/11 kl. 19:30 12.sýn Lau 23/11 kl. 19:30 auka Lau 26/10 kl. 19:30 auka Mið 6/11 kl. 19:30 auka Lau 30/11 kl. 19:30 17. sýn Sun 27/10 kl. 19:30 auka Sun 10/11 kl. 19:30 14. sýn Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga Gilitrutt (Brúðuloftið) Lau 2/11 kl. 15:00 10.sýn Lau 9/11 kl. 13:00 Lau 9/11 kl. 15:00 LOKASÝNING Brúðusýning fyrir alla fjölskylduna Atómstöðin (Stóra Sviðið) Fim 31/10 kl. 19:30 Aðalæfing Fös 8/11 kl. 19:30 3. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn Fös 1/11 kl. 19:30 Frums Mið 13/11 kl. 19:30 4. sýn Fim 28/11 kl. 19:30 7. sýn Fim 7/11 kl. 19:30 2. sýn Fim 14/11 kl. 19:30 5. sýn Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness Engillinn (Kassinn) Lau 21/12 kl. 19:30 Frums Lau 28/12 kl. 19:30 3. sýn Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Sun 12/1 kl. 19:30 4. sýn Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson Leitin að jólunum (Brúðuloftið) Lau 16/11 kl. 11:00 343. sýn Lau 23/11 kl. 11:00 347. sýn Lau 30/11 kl. 11:00 353. sýn Lau 16/11 kl. 13:00 344. sýn Lau 23/11 kl. 13:00 348. sýn Lau 30/11 kl. 13:00 354. sýn Sun 17/11 kl. 11:00 345. sýn Sun 24/11 kl. 11:00 350. sýn Sun 17/11 kl. 13:00 346. sýn Sun 24/11 kl. 13:00 351. sýn Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyr leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.