Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
hér heima hjá mér í Urriðaholtinu
í Garðabæ. Þetta var mjög
skemmtilegt og eins hvað almenn-
ingur sýnir þessum undrum nátt-
úrunnar mikinn áhuga,“ segir
Sævar Helgi Bragason, stjörnu-
fræðingur og einn aðstandenda au-
roraforecast.is upplýsingaveitu,
um norðurljós.
Sævar segir að á miðvikudag og
fimmtudag í þessari viku megi bú-
ast við talsverðri virkni á norður-
ljósunum og svo aftur dagana 22.-
25. nóvember. Miðað við að virkni
sólarinnar miðist við ellefu ára
hringferð séu norðurljósin í lá-
deyðu nú stundir, en verði öflugri
á alla lund eftir tvö til þrjú ár.
tíma til annars, en þegar virknin
er mikil eru norðurljósin neðst í
100-200 kílómetra hæð og þá staf-
ar frá þeim bleikri og rauðri birtu.
Grænu og hvítu norðurljósin eru
ofar í lofthjúpnum, eða í allt að 400
kílómetra hæð frá jörðu.
Veðurstofan gerir ráð fyrir
ágætum aðstæðum til norðurljósa-
skoðunar í kvöld og léttskýjað
verður víðast hvar. Á morgun,
þriðjudag, verður hins vegar
skýjahula yfir stærstum hluta
landsins og ævintýrið því úti.
Mikill áhugi almennings
„Ég hafði á laugardagskvöldinu
fallega sýningu úr stofuglugganum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Virkni norðurljósa yfir landinu er
með mesta móti þessa dagana og
um helgina mátti víða sjá fólk á
opnum svæðum, utan mesta þétt-
býlisins, að fylgjast með villtum
dansi þeirra á næturhimni. Á laug-
ardagskvöldið var til dæmis fjöldi
fólks við Kald-
ársel ofan við
Hafnarfjörð, en
þar eru áhrif
borgarbirtu far-
in að dvína og
góðar aðstæður
til þess að sjá
norðurljósin í
ham.
Einu má þó
gilda hvert er
farið þegar norðurljósin eru í
stuði; á samfélagsmiðlum hefur
fólk víða af landinu birt fallegar
norðurljósamyndir.
Ljósop og þrífótur
„Kúnstin við slíkar myndatökur
er að hafa vítt ljósop, taka mynd-
irnar á löngum tíma og hafa þrífót
undir myndavélinni,“ segir Haf-
steinn Róbertsson áhugaljósmynd-
ari sem var á Vatnsleysuströnd á
laugardagskvöld.
Norðurljósin eru rafagnir sem
dragast inn í gufuhvolfið og fara
þar á hringbrautir umhverfis seg-
ulpól jarðar. Hinar rafhlöðnu agnir
eru á mismiklu flugi frá einum
Ljósmynd/Hafsteinn Róbertsson
Grænt Horft til höfuðborgarsvæðisins af Vatnsleysuströnd á laugardagskvöld. Friðarsúlan í Viðey er til hægri.
Norðurljósaveislan
er með víðu ljósopi
Sýningu á himni lýkur í kvöld Rauð birta í 200 km hæð
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Norðurland Horft af Húsavíkurhöfða á norðurljósin yfir Skjálfandaflóa.
Sjóböðin vinsælu eru til vinstri og ekki amalegt að fylgjast með þaðan. Sævar Helgi
Bragason
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Þó að við værum alveg til í að hafa
20, 40 eða 60 farþega í farþega-
rýminu þá byrjar þetta með mikilli
áherslu á fraktina vegna þess að það
hefur margoft komið fram að eig-
endurnir á bak við nýja WOW eru
mjög mikið í fraktflutningum, meðal
annars fyrir bandarísk stjórnvöld,“
sagði Gunnar Steinn Pálsson al-
mannatengill við mbl.is í gærkvöld.
Gunnar starfar fyrir Michelle
Ballarin, konuna sem hyggst end-
urreisa WOW Air, en í gær var frá
því sagt að hið nýja WOW myndi í
fyrstu leggja áherslu á fraktflutn-
inga milli Keflavíkur og Wash-
ington.
Gunnar sagði að alltaf hefði staðið
til að fraktflutningar yrðu fyrirferð-
armikill hluti af starfsemi hins nýja
flugfélags, og hún yrði það sér-
staklega til að byrja með.
Sagði hann að það væri ekki aðal-
atriðið hvort sætanýting í fyrstu
flugferðunum yrði 40% eða 80%.
„Það er slatti af flutningum til
Keflavíkur í tengslum við aukin um-
svif Bandaríkjanna. Þá eru þorsk-
hausarnir í raun og veru fundið fé
sem fara svo með tóma leggnum út,“
sagði Gunnar.
Upphaflega stóð til að flugvélar
hins endurreista WOW Air myndu
hefja sig til lofts nú í október. Það
mun ekki ganga eftir en Gunnar
ítrekaði að flugferðir á vegum WOW
Air myndu fara í sölu á næstu vik-
um.
„Þetta gengur vel en þó hægar en
við vonuðumst til,“ sagði Gunnar.
Einbeitir sér að
fraktflutningum
fyrst um sinn
Sætanýting er ekki aðalatriðið hjá
stjórnendum hins nýja WOW Air
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kaupsýslukonan Michele Ballarin
ætlar að leggja áherslu á frakt.
Þór Steinarsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefur vísað máli vegna meints
upplýsingaleka frá Seðlabanka Ís-
lands til RÚV til embættis lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Meintur leki, sem átti sér stað árið
2012, varðar húsleit sem fór fram í
húsakynnum Samherja og kann lek-
inn að fela í sér refsivert brot.
Rannsókn innri endurskoðanda
Seðlabankans leiddi í ljós að fyrr-
verandi framkvæmdastjóri gjald-
eyriseftirlits Seðlabankans, Ingi-
björg Guðbjartsdóttir, átti í
tölvupóstsamskiptum við frétta-
mann RÚV í rúman mánuð áður en
ráðist var í húsleitina hjá Samherja
27. mars 2012.
Þetta kemur fram í bréfi Seðla-
banka Íslands til forsætisráðherra,
dagsett 18. ágúst á þessu ári, svar-
bréfi forsætisráðherra til Seðla-
bankans sem og bréfi forsætisráð-
herra til embættis lögreglustjórans
á höfuðborgarsvæðinu, bæði dagsett
11. september 2019. Morgunblaðið
hefur umrædd bréf undir höndum.
Í bréfunum er tekið fram að í
tölvupóstsamskiptum framkvæmda-
stjórans við fréttamann RÚV hafi
ekki fundist neinar trúnaðarupplýs-
ingar en að fréttamaðurinn virtist
þó hafa vitað af fyrirhugaðri húsleit
áður en hún fór fram. Starfsmenn
RÚV voru mættir fyrir utan skrif-
stofur Samherja, bæði á Akureyri
og í Reykjavík, áður en húsleitin
hófst. Fyrr á þessu ári var gerð
rannsókn á tölvupósthólfum Más
Guðmundssonar, þáverandi banka-
stjóra, og Arnórs Sighvatssonar, þá-
verandi aðstoðarbankastjóra. Í
þeirri rannsókn fundust engin sam-
skipti við fréttamenn RÚV.
„Þessi aðgerð var mjög ruddalega
framkvæmd og var í beinni útsend-
ingu. Því til viðbótar var send út til-
kynning um allan heim frá Seðla-
bankanum fljótlega eftir að húsleit
hófst þannig að það var ljóst að það
var búið að undirbúa það líka,“
sagði Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, í samtali við
mbl.is og bætti við: „Þetta gekk út á
það að hluta til að valda tjóni og
meiða fólk og þetta hitti mjög
marga starfsmenn Samherja illa.
Það var verið að ráðast á fyrirtæki
og starfsfólk þess. Það er ekki ann-
að hægt en að kalla þetta árás og
RÚV var gerandi með Seðlabank-
anum í þessu máli.“
Sigríður Björk Guðjónsdóttir,
lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð-
inu, baðst undan viðtali í gærkvöld.
Vísar meintum leka til lögreglu
Framkvæmdastjóri SÍ var í tölvupóstsamskiptum við fréttamann RÚV fyrir húsleit hjá Samherja
Forstjóri Samherja segir RÚV geranda í aðgerð sem gekk út á að „valda tjóni og meiða fólk“
Katrín
Jakobsdóttir
Þorsteinn Már
Baldvinsson