Morgunblaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 27
HANDBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik þurfti að sætta sig við fjögurra marka tap, 35:31, þegar liðið mætti Svíþjóð í vin- áttulandsleik í Brinova Arena í Karlskrona í Svíþjóð í gær. Þetta var annar vináttu- landsleikur þjóðanna á þremur dögum en liðin mættust einnig í Kristianstad á föstudaginn síðasta þar sem Ísland fagnaði eins marks sigri, 27:26, en þetta voru lokaleikir íslenska liðsins áður en EM 2020 hefst í janúar í Austurríki, Noregi og Svíþjóð. Svíarnir byrjuðu leikinn bet- ur en íslenska liðið vann sig vel inn í hann og náði mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik, 9:6. Svíar komu til baka og var staðan jöfn í hálf- leik, 18:18. Sænska liðið seig svo hægt og rólega fram úr í síðari hálfleik og fagnaði sann- færandi sigri í leikslok. Sóknarleikur Íslands var til fyrirmyndar í gær allan leik- inn. Liðið skapaði sér frábær marktækifæri og skoraði auð- veld mörk. Varnarleikurinn var hins vegar slakur en íslenska liðið skipti á tveimur mönnum í sókn og vörn og Svíarnir nýttu sér það vel. Þá fengu allir sautján leikmenn liðsins tæki- færi í landsleikjunum gegn Svíum og þeir stóðu sig allir vel. „Ég fékk mjög mikið af svörum en það gerir starfið mitt ekkert einfaldara,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins, í sam- tali við Morgunblaðið þegar hann var inntur eftir því hvort hann hefði fengið þau svör sem hann kallaði eftir þegar hann valdi minni spámenn í hópinn. „Mér fannst menn standa sig mjög vel, heilt yfir, og sókn- arleikurinn var al- gjörlega frábær. Ég á von á því að kalla lands- liðshópinn saman um miðjan desember en ég mun að sjálfsögðu halda áfram að fylgjast með leik- mönnum liðsins og því sem þeir eru að gera í sínum fé- lagsliðum.“ Landsliðsþjálfarinn er mjög ánægður með þá vegferð sem liðið er á en Ísland hefur leik á EM 2020 gegn Dönum í Malmö 11. janúar næstkom- andi. „Það var margt mjög já- kvætt við þessa tvo leiki og við þurfum að halda áfram á þessari braut. Heilt yfir þá voru þetta mjög góð úrslit fyr- ir okkur og ég er mjög sáttur með allt liðið eftir þessa tvo leiki,“ bætti Guðmundur við. Hans bíður erfitt verkefni að velja lokahópinn sem fer á EM í janúar enda margir leik- menn sem gera tilkall til þess fara með eftir landsleikina tvo gegn Svíum. Erfitt verk- efni fyrir þjálfarann  Frábær sóknarleikur íslenska liðsins en vörnin oft verið betri Ljósmynd/@handbollslandslaget Tekist á Sveinn Jóhannsson fékk tækifæri gegn Svíum og lætur hér finna fyrir sér í vörninni. Miklir nákvæmnismenn myndu ef til vill kalla þetta peysutog hjá Sveini. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Smárinn: Breiðablik – Sindri .............. 19.15 Ísafjörður: Vestri – Hamar ................. 19.15 Vallaskóli: Selfoss – Skallagrímur ...... 19.15 VHE-höllin: Höttur – Snæfell ............. 19.15 Í KVÖLD! 1. deild kvenna Keflavík b – Njarðvík........................... 62:57 Tindastóll – Hamar .............................. 78:72 Fjölnir – Grindavík b ........................... 90:51 Tindastóll – Hamar .............................. 78:58 Staðan: Tindastóll 5 4 1 356:327 8 ÍR 4 3 1 256:192 6 Njarðvík 5 3 2 303:290 6 Keflavík b 4 3 1 297:285 6 Fjölnir 4 1 3 301:285 2 Grindavík b 3 1 2 139:207 2 Hamar 5 0 5 256:322 0 Rússland Tsmoki Minsk – Unics Kazan............. 80:84  Haukur Helgi Pálsson skoraði 3 stig og tók 2 fráköst á 7 mínútum hjá Kazan. Spánn Zaragoza – Barcelona......................... 89:83  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 5 stig og tók 1 frákast á 11 mín fyrir Zaragoza. B-deild: Oviedo – Almansa................................ 70:72  Gunnar Ólafsson komst ekki á blað hjá Oviedo. NBA-deildin Milwaukee – Miami .................. (frl.)126:131 Detroit – Philadelphia...................... 111:117 Atlanta – Orlando ............................... 103:99 New York – Boston ............................ 95:118 Houston – New Orleans................... 126:123 Chicago – Toronto .............................. 84:108 Cleveland – Indiana ........................... 110:99 San Antonio – Washington .............. 124:122 Utah – Sacramento ............................ 113:81 Phoenix – LA Clippers..................... 130:122 KÖRFUBOLTI Brinova Arena, vináttulandsleikur karla, sunnudag 27. október 2019. Gangur leiksins: 4:4, 5:8, 9:10, 12:13, 16:15, 18:18, 20:19, 23:21, 26:23, 30:26, 34:29, 35:31. Mörk Svíþjóðar: Albin Lagergren 7, Kim Ekdahl Du Rietz 7, Fredric Petters- son 5, Jim Gottfridsson 5, Valter Chrintz 4, Linus Arnesson 3, Lucas Pel- las 2, Simon Jeppsson 1, Linus Persson 1. Varin skot: Andreas Palicka 10/1, Tobi- as Thulin 3. SVÍÞJÓÐ – ÍSLAND 35:31 Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Íslands: Aron Pálmarsson 6, Ólaf- ur Guðmundsson 4, Elvar Örn Jónsson 3, Bjarki Már Elísson 3, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Haukur Þrastarson 3, Kári Kristján Kristjánsson 3, Viggó Krist- jánsson 2, Kristján Örn Kristjánsson 2, Sigvaldi Björn Guðjónsson 1, Elliði Snær Viðarsson 1. Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 5, Viktor Gísli Hallgrímsson 4. Utan vallar: 4 mínútur. Áhorfendur: 2.650. Stefanía Ragnarsdóttir er gengin í raðir Fylkis og mun leika með lið- inu í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu næsta sumar. Stefanía kemur til Fylkis frá Val þar sem hún hefur verið samningsbundin síðan 2017. Hún var hins vegar lán- uð til Fylkis á fyrri hluta síðasta tímabils. Stefanía var áður í Þrótti. Stefanía í raðir Fylkis Guðlaug Edda Hannesdóttir, úr Breiðabliki, náði sínum langbesta árangri í ólympískri þríþraut þegar heimsbik- arkeppnin í Miyazaki (Japan) fór fram um helgina. Guð- laug Edda endaði í 15. sæti af 49 keppendum og fyr- irfram var henni raðað númer 34 eftir styrkleika keppenda. Í ólympískri þríþraut er synt 1.500 metra, hjólaðir 40 kílómetrar og hlaupin 10 km vegalengd. Guðlaug átti frábært sund og kom sjötta upp úr sjónum. Eftir skipt- ingu úr sundi yfir í hjól náðu þrjár konur smá forskoti og Guðlaug var í næsta hópi fyrir aftan ásamt 11 öðrum konum. 21 keppandi hjólaði á svipuðum tíma inn á skiptisvæði fyrir hlaupið. Guðlaug frábært hlaup (37:46 mín.) og endaði í 15. sæti á tímanum 2:02,41 klukkustund. Árangurinn mun fleyta hanni vel upp úrtökulistann fyrir Ól- ympíuleikana í Tókýó 2020. Sigurvegari varð heimakonan Ai Ueda á tím- anum 1 klst. 59 mínútur og 32 sekúndur. Besti árangur Guðlaugar Guðlaug Edda Hannesdóttir Óvænt úrslit urðu í spænsku úrvals- deildinni í körfuknattleik þegar Zaragoza lagði stórlið Barcelona að velli 89:83 í Zaragoza. Landsliðs- miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason kom nokkuð við sögu hjá Zaragoza. Skoraði hann 5 stig og tók eitt frá- kast. Var hann með 100% skotnýt- ingu. Nýtti bæði skot sín í teignum og eina vítaskotið en Tryggvi lék í rúmar ellefu mínútur. Zaragoza hefur komið mjög á óvart með frá- bærri byrjun og hefur unnið fimm af fyrstu sex leikjunum. Sigur gegn stórliðinu FIBA Miðherji Tryggvi Snær skoraði 5 stig í sigri gegn Barcelona.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.