Morgunblaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 24
ÓL 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Handknattleiksþjálfarinn Aron
Kristjánsson verður á meðal þeirra
Íslendinga sem taka þátt í Ólympíu-
leikunum í Japan næsta sumar. Aron
er landsliðsþjálfari karla hjá Barein
og kom liðinu inn á leikana með sigri
á Asíumótinu sem haldið var í Doha í
Katar.
Um stórfrétt er að ræða í Barein
því þetta er í fyrsta skipti sem Bar-
ein kemst inn á Ólympíuleika í liðs-
íþrótt eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst. „Það er mjög skemmti-
legt fyrir mig að vera þátttakandi í
þessu. Einn af prinsunum úr kon-
ungsfjölskyldunni, sem er yfir Ól-
ympíusambandinu í Barein, tók á
móti okkur á flugvellinum. Það var
risastórt fyrir handknattleiks-
sambandið og leikmennina að hann
skyldi taka á móti þeim. Þegar við
komum út af flugvellinum var hell-
ingur af fólki sem spilaði, dansaði og
söng. Rosa fjör,“ sagði Aron þegar
Morgunblaðið náði sambandi við
hann í gærkvöldi.
Sjálfur er Aron á leið á Ólympíu-
leikana í fyrsta skipti á sínum ferli.
Sem leikmaður tók hann þátt í því að
koma Íslandi á leikana í Aþenu 2004
með góðum árangri á HM 2003. Aron
meiddist hins vegar á hné áður en
kom að leikunum og missti af þeim.
Lagði raunar skóna á hilluna og sneri
sér að þjálfun. „Það var mjög svekkj-
andi að missa af leikunum árið 2004.“
Áfangi að vinna Katar
Undir handleiðslu Arons, og Guð-
mundar Þ. Guðmundssonar þar áður,
hefur landslið Barein tekið umtals-
verðum framförum á umliðnum ár-
um. Ekki var hins vegar búist við því
að liðið yrði sterkara en lið Katar auk
þess sem margir hafa brennt sig á
því í gegnum tíðina að vanmeta lið
Suður-Kóreu á handboltavellinum.
Japan, sem Dagur Sigurðsson stýrir,
var ekki með í undankeppninni að
þessu sinni þar sem liðið er komið
með keppnisrétt út á gestgjafa-
hlutverkið venju samkvæmt.
Barein lagði Katar að velli í undan-
úrslitum 28:26 og S-Kóreu í úrslita-
leiknum 34:29 en vinna þurfti As-
íuleikana til að komast inn. Fyrir lið
Barein var lið Katar sálrænn þrösk-
uldur sem Barein þurfti að komast
yfir.
„Katar setur mikinn pening í liðið
og Suður-Kórea gerir það einnig
þegar um Ólympíuleikana er að
ræða. Barein hafði tapað síðustu
fjórum úrslitaleikjum á Asíum-
ótunum gegn Katar en síðustu tveir
höfðu verið ansi jafnir. Síðast töp-
uðum við fyrir þeim í framlengingu
en núna tókst okkur loksins að yfir-
stíga það að vinna Katar. Okkur
gekk erfiðlega gegn S-Kóreu í riðl-
inum og töpuðum þá fyrir þeim. Að-
almarkvörður okkar er meiddur á
hné en honum var „fórnað“ í úrslita-
leikinn og var það eini leikurinn sem
hann spilaði. Hann er á leið í aðgerð á
liðþófa,“ sagði Aron ennfremur við
Morgunblaðið en hann kemst heim á
næstu dögum eftir tæplega þriggja
mánaða vinnutörn.
Tímamót í
sögu Barein
Aron fer á Ólympíuleika í fyrsta sinn
Ljósmynd/Handknattleikssamband Asíu
Á sigurstundu Aron leyfir leikmönnum að njóta augnabliksins.
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Danmörk
Bröndby – Randers ................................. 5:2
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
BSF – Odense ........................................... 3:2
Kristrún Rut Antonsdóttir lék allan leik-
inn með BSF og skoraði eitt mark.
Svíþjóð
Häcken – Norrköping ............................. 0:1
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn með Norrköping. Ísak Bergmann Jó-
hannesson var á bekknum.
Sundsvall – Helsingborg......................... 1:2
Daníel Hafsteinsson lék fyrstu 60 mín-
úturnar með Helsingborg.
A-deild kvenna, lokaumferð:
Kristianstad – Rosengård ...................... 0:1
Sif Atladóttir lék allan leikinn með
Kristianstad og Svava Rós Guðmundsdótt-
ir fyrstu 82 mínúturnar. Elísabet Gunnars-
dóttir þjálfar liðið sem endaði í 7. sæti.
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård sem er meistari.
Vittsjö – Djurgården............................... 2:0
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Djurgården, Guðrún Arnardóttir
var ónotaður varamaður. Lið þeirra slapp
við fall á markatölu.
Noregur
Kristiansund – Viking............................. 4:2
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn með Viking. Axel ÓskarAndrésson er
frá keppni vegna meiðsla.
Lilleström – Vålerenga........................... 0:0
Arnór Smárason kom inn á sem vara-
maður á 68. mínútu hjá Lilleström.
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
með Vålerenga.
B-deild:
Aalesund – Start ...................................... 2:1
Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn
með Aalesund, Aron Elís var tekinn af velli
á lokamínútunni, Davíð Kristján Ólafsson
var allan tímann á bekknum og Hólmbert
Aron Friðjónsson er frá vegna meiðsla.
Aron Sigurðarson lék allan leikinn með
Start. Jóhannes Harðarson þjálfar liðið.
Ull/Kisa – Sandefjord ............................. 0:2
Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með
Sandefjord og Emil Pálsson síðustu 19
mínúturnar.
Belgía
Zulte-Waregem – Oostende ................... 2:0
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Oostende.
Ítalía
Spezia – Juve Stabia................................ 2:0
Sveinn Aron Guðjohnsen lék fyrstu 57
mínúturnar með Spezia.
Frakkland
Brest – Dijon ............................................ 2:0
Rúnar Alex Rúnarsson var ónotaður
varamaður hjá Dijon.
Hvíta-Rússland
Shakhtyor Soligorsk – BATE Borisov.. 2:2
Willum Þór Willumsson lék síðustu 14
mínúturnar með BATE.
KNATTSPYRNA
Sara Björk Gunnarsdóttir, lands-
liðsfyrirliði Íslands í knattspyrnu
og leikmaður Þýskalandsmeistara
Wolfsburg, var á skotskónum fyrir
liðið í stórsigri á Essen í þýsku 1.
deildinni. Leiknum lauk með
öruggum 5:1-sigri Wolfsburg en
Sara Björk lék allan leikinn fyrir og
skoraði fjórða mark Wolfsburg á
85. mínútu úr vítaspyrnu.
Wolfsburg er með fullt hús stiga í
efsta sæti með 24 stig eftir fyrstu
átta leikina. Hoffenheim er í öðru
sætinu með 18 stig en á leik til góða
á Wolfsburg.
Sara skoraði
fyrir Wolfsburg
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Skoraði Sara Björk Gunnarsdóttir
var á sínum stað í liði Wolfsburg.
Sverrir Ingi Ingason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, virðist vera
að vinna sér sæti í byrjunarliði PA-
OK sem er á toppnum í Grikklandi.
Liðið hafði betur gegn Volos í
grísku úrvalsdeildinni á laugardag-
inn 2:0. Sverrir lék allan leikinn í
hjarta varnarinnar hjá PAOK og
hefur hann spilað síðustu tvo leiki
og hefur liðið haldið hreinu í þeim
báðum. Fram að því hafði Sverrir
fá tækifæri fengið hjá PAOK sem
er í toppæti deildarinnar eftir átta
leiki með 20 stig. Liðið varð grískur
meistari í vor.
Sverrir í vörninni
hjá toppliðinu
Morgunblaðið/Eggert
Grikkland Sverrir Ingi er kominn
í byrjunarliðið hjá meistaraliðinu.
Sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar hafnaði í 2.
sæti á EM golfklúbba en leikið var í Frakklandi. Aron
Snær Júlíusson og bræðurnir Ragnar Már og Sigurðar
Arnar Garðarssynir skipuðu sveitina og jöfnuðu besta
árangur sem íslensk sveit hefur náð í þessari keppni.
Á EM eru samankomnar sveitir þeirra klúbba sem
urðu landsmeistarar en GKG sigraði í efstu deild karla á
Íslandsmóti golfklúbba í sumar. Á Íslandsmótinu geta
atvinnumenn verið með og þá eru sveitirnar fjölmenn-
ari. Á EM eru hins vegar einungis áhugamenn.
Þeir léku 36 holur á samtals tveimur höggum undir
pari en bestu skor tveggja þeirra töldu í hvorri umferð.
Ein umferð var felld niður vegna mikillar úrkomu. Aron lék á 69 og 72
höggum, Ragnar á 75 og 67 og Sigurður á 74 og 79 höggum. Aron var með
fimmta besta skor einstaklinga og Ragnar með sjöunda besta.
Alls voru 25 klúbbar sem tóku þátt á EM golfklúbba í ár en enski klúbb-
urinn City of Newcastle fagnaði sigri á sex höggum undir pari.
Jöfnuðu besta árangurinn
Aron Snær
Júlíusson
Íslandsmeistarar SA unnu sinn ann-
an sigur á tímabilinu í Hertz-deild
karla í íshokkí er liðið lagði SR á
útivelli, 4:2. Staðan var 2:2 þegar
tíu mínútur voru til leiksloka en
meistararnir voru sterkari í lokin.
Björn Már Jakobsson, Jóhann
Már Leifsson, Hafþór Sigrúnar-
sonar og Heiðar Kristveigarson
skoruðu fyrir SA. Miloslav Rac-
ansky og Fantisek Matula fyrir SR.
Fjölnir er á toppi deildarinnar
með níu stig, SA er með sex og SR
er án stiga.
Annar sigur
meistaranna
Morgunblaðið/Golli
Reyndur Gamla brýnið Björn Már
Jakobsson skoraði fyrir SA.