Morgunblaðið - 28.10.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.10.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Knattspyrnan og stjórnmálin ganga auðvitað fyrst og síðast út á samskipti við fólk þótt með ólíkum hætti sé,“ segir Willum Þór Þórsson þingmaður Fram- sóknarflokks og formaður fjár- laganefndar Alþingis. „Í fótbolt- anum er þjálfarans að skapa liðsheildina og taka ákvarðanir. Í stjórnmálum þarf að skapa góðan hóp og skilvirka heild til að ná árangri, en á endanum eru það alltaf kjósendur sem eiga síðasta orðið. Svona er þetta á blaði og eftir nokkur ár á Alþingi finn ég sífellt betur að þetta er veruleikinn.“ Tekjur og útgjöld á pari Willum hefur setið á Alþingi síðustu árin og hefur nú með höndum formennsku í þeirri nefnd sem margir segja að mestu ráði. „Í raun og veru fara allir þættir ríkisrekstrarins í gegnum fjárlaganefnd. Því er starfið þar lærdómsríkt en að sama skapi krefjandi,“ segir Willum um fjárlagavinnuna sem nú stendur sem hæst. Sam- kvæmt því frumvarpi sem nú liggur fyrir eru tekjur ríkissjóðs á næsta ári áætlaðar 919 millj- arðar króna sem stendur á pari við útgjöldin. Í fyrstu, það er ríkisfjármálaáætlun, var gert ráð fyrir 30 milljarða króna af- gangi, en ákveðið var að jafna muninn út og sleppa sársuka- fullum niðurskurði á þjónustu sem annars hefði komið til. „Við getum illa skorið niður aðkallandi framkvæmdir og mik- ilvæga samfélagslega þjónustu, nú þegar hagkerfið er að kólna í niðursveiflu sem virðist þó, sam- kvæmt hagspám, verða skamm- vinn,“ segir Willum. „Vegna skynsamlegrar stjórnunar rík- isfjármála, erum við nú í færum til að draga úr afgangi og jafn- vel fara í örlítinn halla á fjár- lögum og milda þannig sam- dráttinn. Ný hagvaxtarspá verður birt 2. nóvember og vera kann að hún kalli á einhverjar breytingar. Ég tel þó mikilvæg- ast að við höldum okkur við gef- in áform, verðum ekki heilög í afkomumarkmiðum og gefum frekar í við innviðauppbygg- ingu.“ Stöðug útgjaldaaukning í heilbrigðismálum Nýta þarf sameiginlega sjóði þjóðarinnar sem best, segir Willlum, og því hefur fjár- laganefnd kallað eftir því að inn- byggðir verði í fjárlög mæli- kvarðar þannig að hægt sé að greina þróun útgjalda og sýna ráðdeild. Nú þurfi til dæmis að líta til þess hvort áherslur í heil- brigðismálum séu réttar. Út- gjaldaaukningin þar sé stöðug og hugsanlega þurfi að breyta þjónustu sem er veitt, til að mynda halda áfram á þeirri veg- ferð að beina þjónustunni í auknum mæli til heilsugæsl- unnar og draga úr álagi á Land- spítalann. Þar þurfi nú að fara margþættar sparnaðaraðgerðir þegar við blasir að hallarekstur þessa árs verður fimm millj- arðar króna. Þó verði að halda því til haga að núverandi rík- isstjórn hafi, í samræmi við stjórnarsáttmála, stóraukið framlög til Landspítalans. Á næsta ári verði framlög til sjúkrahússins tæpir 69 millj- arðar króna og 8,5 milljarðar króna fari í byggingu nýja með- ferðarkjarnans. „Vandinn á Landspítala nú helgast m.a. af því að launa- kostnaðurinn hækkar stöðugt,“ segir Willum. „Um árabil hefur reynst erfitt að manna spítalann með sem hagkvæmustum hætti. Þannig hafa laun hjúkr- unarfræðinga og ljósmæðra ver- ið hækkuð gegn því að þeir taki á sig aukið starfshlutfall í vakta- vinnu. Bara það verkefni, sem nú verður slegið af, kostar 620 milljónir króna á ári. Að auki fjölgar starfsfólki ár frá ári og oftast umfram forsendur fjár- laga. Allt skýrist þetta af því að þjóðin er að eldast, ferðamönn- um að fjölga, erfiðlega gengur að útskrifa sjúklinga vegna skorts á hjúkrunarrýmum og fleira.“ Sterk staða Áformað er að 2. umræða um fjárlagafrumvarpið hefjist 12. nóvember og um það verði greidd atkvæði í kjölfar 3. um- ræðu síðustu dagana í nóv- ember. „Almennt tel ég frum- varpið sýna sterka stöðu ríkissjóðs og eins að ríkis- stjórnin er á réttri leið, en yf- irlýst markmið hennar frá fyrsta degi var markviss uppbygging innviða sem nú er komin á skrið. Í því sambandi skipti máli að nú- verandi ríkisstjórn hefur náð pólitískum stöðugleika og góðu samstarfi til dæmis við verkalýð- hreyfinguna. Að farsæl lausn fékkst á gerð kjarasamninga, sem ræður miklu um góða stöðu ríkissjóðs í dag,“ segir Willum Þór Þórsson að síðustu. Hagkerfið að kólna í niðursveiflu sem virðist þó verða skammvinn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjárlög Við getum illa skorið niður aðkallandi framkvæmdir og sam- félagslega þjónustu, segir Willum Þór Þórsson hér í viðtalinu. Pólitískur stöðugleiki er mikilvægur ríkissjóði Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Traustur meirihluti er fyrir samein- ingu fjögurra sveitarfélaga á Austur- landi, skv. niðurstöðum atkvæða- greiðslu meðal íbúa sem efnt var til á laugardaginn. Borgarfjarðarhreppur, Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaup- staður og Djúpavogshreppur verða því sameinuð á fyrri hluta næsta árs. Á Borgarfirði eystra voru 64,7% íbúa fylgjandi sameiningu, 63,7% Djúpa- vogsbúa, 86,7% Seyðfirðinga og með- al Héraðsbúa var stuðningurinn 92,9%. Sameining tek- ur gildi á fyrri hluta næsta árs, en fram að þeim tíma verður starf- semi sveitarfélag- anna fjögurra óbreytt. 5.000 íbúar Undirbúningur sameiningar fer nú á fullt skrið. Sveitarfélagið nýja, sem íbúar munu væntanlega velja nafn á með almennri atkvæða- greiðslu, verður það víðfeðmasta á landinu; eða um 11 þúsund ferkíló- metrar. Íbúar verða um 5.000, flestir á Héraði. Á næstunni verður sett á laggirnar nefnd sem undirbýr stjórnskipulag, samþykktir og fleira slíkt í nýju sveit- arfélagi þar sem ný sveitarstjórn verður kjörin næsta vor. Einnig verð- ur stofnuð heimastjórn í hverjum bæ, en þær munu fjalla t.d. um deiliskipu- lagsmál, leyfisveitingar og fleira slíkt. Eflt stjórnsýslu og þjónustu „Eitt sameinað sveitarfélag hefur að öllu leyti meiri slagkraft en fjögur. Fjárhagurinn verður öflugur og við getum einnig eflt stjórnsýslu og þjón- ustu við íbúana,“ segir Björn Ingi- marsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshér- aði, í samtali við Morgunblaðið. Bættar samgöngur á Austurlandi hafa verið nefndar sem nauðsynleg forsenda sameiningar. Í því sambandi hefur verið hamrað á mikilvægi jarð- ganga undir Fjarðarheiði, milli Hér- aðs og Seyðisfjarðar, og heilsársveg- ar um Öxi, frá Skriðdal í Berufjarðarbotn. Hafist verður handa um bæði þessi verkefni á næstu árum og í þeirri forgangsröðun segir Björn sameiningarumræðuna hafa haft áhrif. Afdráttarlaus vilji til sameiningar  Fjögur sveitarfélög verða eitt  Axarvegur og Fjarðarheiðargöng mikilvæg eystra  Meiri slagkraftur Ljósmynd/Austurfrétt Gunnar Austurland Frá talningu atkvæða í atkvæðagreiðslunni á laugardag. Björn Ingimarsson Þyrla frá Landhelgisgæslunni var á ellefta tímanum í gærmorgun köll- uð út vegna bílveltu austan við Vík í Mýrdal. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi missti ökumaður bílsins stjórn á bifreið- inni eftir að hafa blindast af sólinni. Hafnaði bíllinn í kjölfarið utan veg- ar. Í bílnum voru tveir farþegar, er- lendir menn sem búsettir eru hér á landi. Annar farþeganna slasaðist töluvert og var því fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til að- hlynningar á Landspítalanum í Fossvogi. Hinn farþeginn var einnig fluttur með þyrlunni en meiðsl hans voru talin minni háttar. Lögregla og sjúkralið luku störf- um sínum á slysstað um hádeg- isbilið í gær. Blindaðist af sól og hafnaði utan vegar Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Slysstaður Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang við Vík í Mýrdal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.