Morgunblaðið - 28.10.2019, Page 15

Morgunblaðið - 28.10.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 Mjá Eins og sannkallaður hefðarköttur var þessi krúttlegi kisi um helgina borinn um bæinn af bláklæddri stúlku. Eggert Á nýafstöðnum fundi borgarstjórnar Reykja- víkur, sem settur var kl. 14 hinn 15. október sl., var samþykkt, með 12 atkvæðum gegn 11, samkomulag sem rík- isstjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins gerði við bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgarsvæðinu og borgarstjóra Samfylkingarinnar og varðar samgöngumál. Þáttaskil í loftslagsmálum? Í bókunum fundar borgarstjórnar er ítrekað minnst á hve mikil þátta- skil hafa orðið með því að samþykkja þennan sáttmála. Þessi sáttmáli á víst að leysa loftslagsmál fyrir Ísland allt. Það mætti halda að verið væri að framkvæma e.k. kraftaverk. Þar ger- ast guðlausir fyrst trúaðir. Það er gott ef satt er en eftir stendur að framkvæmdir eru ekki hafnar og nið- urstaða varðandi kostnað, áhættu og árangur liggur ekki fyrir. Mosfellsbær skilinn útundan – brotin loforð Lykilatriði fyrir Mosfellinga er að Sundabraut komist í gagnið og losi bæjarfélagið sem fyrst undan umferðarþunga sem eykst ár frá ári. Þó svo að bæjarbúum í Mosfellsbæ hafi verið lofað að losna við flöskuháls á Vestur- landsvegi verður eng- inn stokkur gerður í gegnum bæinn sem margoft hefur verið lof- að svo sameina megi hverfi hans og auka lífsgæði bæjarbúa. Bæjarstjórinn í Mos- fellsbæ, ásamt fáeinum sjálfstæðismönnum og borgarstjóra Samfylkingarinnar, ritaði engu að síður undir viljayfirlýsingu árið 2018 þess efnis að Sundabraut yrði sleppt. Allir í skipulagsnefnd bæjarins, frá nýlega afstöðnum fundi þeirrar nefndar, fjölluðu um mikilvægi lagn- ingu Sundabrautar. Þegar litið er til borgarlínu, eins ágæt og hún kann að vera, mætir þar Mosfellsbær einnig afgangi. Kemur þessi lína seint og um síðir í bæinn. Þetta er miður og lýsir máttleysinu. Bæjarstjórinn hefur því miður sýnt linkind. Sundabraut mætir afgangi Þeir vita það sem neyðast til að sitja í umferðarteppu að þar eru al- menningsvagnar einnig fastir og brenna flestir olíu á meðan vinstri- menn og fáeinir villuráfandi sjálf- stæðismenn, ásamt sýnishorni af Framsókn reyndar, leitast við að flækja málin. Á meðan bíðum við öll enn í um- ferðarteppu næstu árin, undir álagi og getum ekki sótt börnin á réttum tíma til að dvelja lengur með þeim heima við. Allt í boði framangreindra snill- inga. Nú segir meirihlutinn í Mos- fellsbæ, sem og fáeinir aðrir í póli- tískri tilvistarkreppu, að allt þetta sé gert fyrir „komandi kynslóðir“. Sundabraut frá 1984 Árið 1984 komst Sundabraut á að- alskipulag Reykjavíkur. Það var árið þegar lagið „When Doves Cry“ með Prince var á toppnum á Billboard- listanum og Tina Turner vermdi ann- að sætið með laginu „What’s Love Got To Do With It“. Það var árið 1984 sem Salóme Þor- kelsdóttir, fv. þingmaður Mosfell- inga, sagði eftirfarandi í ræðustól á Alþingi 11. desember: „Nú er unnið að svæðaskipulagi fyrir höfuðborgar- svæðið á vegum Samtaka sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu sem tek- ur til þróunar þessa svæðis á mörgum sviðum næstu 20 ár. Mik- ilvægt er að samræmd áætlun um al- menningssamgöngur verði hluti af þessari stefnumótun.“ Það var þá sem Sundabraut var hluti af þessari sniðmynd. Árið 1994 var hafist handa við að koma lagningu Sundabrautar í far- veg og þá á vakt Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þessum áformum hafa vinstrimenn raskað með því að skipu- leggja hverfið Vogabyggð með þeim hætti að útiloka besta kostinn við lagningu þessa mikilvæga sam- göngumannvirkis. Nú kórónar for- ysta Sjálfstæðisflokksins þetta með því að sneiða algjörlega hjá skynsem- inni. Áhættumat ekkert í nýjum áformum Á bæjarstjórnarfundi í Mosfellsbæ 16. október sl. fór fram fyrri umræða um þetta verkefni er varðar sam- göngubætur á höfuðborgarsvæðinu. Í meðfylgjandi gögnum er engin skýrsla um áhættumat á fram- kvæmdum draumsýnarinnar. Líkur eru á að svo hafi einnig verið þegar málið var tekið fyrir í borgarstjórn Reykjavíkur. Hvað um fjárhagslega áhættu verkefnisins? Hvar er greiningin á því? Þessi stærðargráða, sem hér um ræðir, skiptir milljarðatugum. Í raun ætti að geta um þessa áhættu í riti Seðlabanka Íslands varðandi fjár- málastöðugleika enda gætu skulda- bréf bæði ríkis og sveitarfélaga farið á alla vegu lendi verkefnið fjárhags- lega undir vatni. Hvað um framkvæmdaáhættu? Hún er hvergi tilgreind þrátt fyrir ábendingar um slíka áhættu og aðra áhættuþætti í greinum fagfólks sem tekur þátt í opinberri umræðu um borgarlínur og samgöngur almennt. Vanbúið áhættusamt verkefni Mál þetta allt er vanbúið, bæði í hendur kjörinna fulltrúa og til al- mennings. Því er spurning hvort ekki sé verið að brjóta 10. grein Stjórn- sýslulaga nr. 37/1993 varðandi það sem segir í greinargerð með frum- varpinu sem síðar varð að fram- angreindum lögum. Þar segir m.a. um 10. grein: „Í rannsóknarreglunni felst m.a. sú skylda stjórnvalds að sjá til þess, að eigin frumkvæði, að málsatvik stjórn- sýslumáls séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.“ Því bókaði greinarhöfundur ósk sína um að slík áhættugreining á verkefninu yrði unnin áður en farið yrði í síðari umræðu. Þetta mál allt er óvandað og í ógöngum. Eftir Svein Óskar Sigurðsson » Þetta segir nú meiri- hlutinn í Mosfellsbæ, sem og fáeinir aðrir í pólitískri tilvistarkreppu, að sé allt gert fyrir „komandi kynslóðir“. Sveinn Óskar Sigurðsson Höfundur er bæjarfulltrúi Miðflokks- ins í Mosfellsbæ og 1. varaforseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Samgöngur í ógöngum og Mosfellsbær útundan Tæknibreytingar skapa okk- ur ný tækifæri en skapa á sama tíma nýjar ógnir. Allir kannast við hin svokölluðu Níg- eríubréf, en þau eru hreinn barnaleikur í samanburði við þær háþróuðu aðferðir sem netþrjótar nota nú til að reyna að hafa fé af fólki og fyrir- tækjum í gegnum netið. Þetta á ekki bara við um tilraunir til fjársvika heldur eru óprúttnir aðilar að reyna að stela gögn- um og jafnvel taka niður fyrir- tæki og vefi. Það eru fjölmörg dæmi um að vefir fyrirtækja hafi legið niðri tímabundið. Fyrir sum fyrirtæki fer stærsti hlutinn af viðskiptunum nú fram í gegnum vefi þeirra þannig að það getur verið dýrt spaug. Sumir telja að stríð framtíð- arinnar verði ekki rekin með vopnum, heldur í gegnum vefinn. Slíkar árásir muni ekki bara beinast gegn hinu opinbera heldur eru fyrirtæki sem eru hluti af mikilvægum innviðum landa, eins og fjár- mála-, fjarskipta-, samgöngu- og orkufyrirtæki, einnig í hættu. Öll stærstu fyrirtæki landsins eru á tánum í þess- um efnum en við þurfum með fræðslu að styðja betur við minni fyrirtæki sem hafa ekki sama bolmagn og þekkingu til að takast á við þessa hluti. Það er enginn óhultur. Það er engin skömm að því að verða fyrir barðinu á há- þróuðum fjársvikamönnum á netinu, ekki frekar en að menn þurfi að skammast sín fyrir að það sé brotist inn heima hjá þeim. En, rétt eins og við getum gert ýmislegt til að minnka líkur á því að það verði brotist inn heima hjá okkur, þá geta fyrirtæki gert ýmislegt til að koma í veg fyrir að þau verði fyrir barðinu á netárásum. Í þeirri viðleitni að stuðla að aukinni fræðslu um þetta efni hafa Samtök atvinnulífsins og samgöngu- og sveitarstjórn- arráðuneytið ákveðið að loka evrópska netöryggis- mánuðinum með fundi um netógnir sem steðja að íslensk- um fyrirtækjum á Grand hótel klukkan 8.30 á fimmtudagsmorgun. Þar mun háttsettur stjórnandi hjá Norsk Hydro segja frá alvarlegri árás sem þau urðu fyrir, sagt verður frá því hvernig fræðasamfélagið getur hjálpað fyrirtækjum og hvernig íslenskir bankar standa að þess- um málum. Það geta verið erfiðir tímar á öld sem var gerð fyrir tæki, ekki fyrir hjörtu, eins og skáldið sagði. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að gera okkur þá ögn bærilegri. Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson » Sumir telja að stríð framtíðarinnar verði ekki rekin með vopnum, heldur í gegnum vefinn. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Geta netárásir fellt fyrirtæki?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.