Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftir frostakafla undanfarið er út- lit fyrir að hlýni í veðri og hláni næstu daga. Undanfarið hefur mátt lesa í norrænum fjölmiðlum spár um hlýjan og blautan vetur í Norður-Evrópu, en Einar Svein- björnsson veðurfræðingur segist taka slíkum langtímaspám með fyrirvara. Sérstaklega hvað varði Ísland því þar hafi aðrir þættir áhrif á veður heldur en aðeins sunnar í álfunni. Einar segir að talsverð óvissa sé um veðrið næstu viku til tíu daga. Hægviðri eins og um liðna helgi komi til greina og sömuleiðis sunn- anátt með hlýindum miðað við árs- tíma. Litlar líkur séu hins vegar á norðanátt með hörkum. Rætast stundum Norska loftslagsmiðstöðin Cicero greindi á föstudag frá því að samkvæmt veðurlíkönum væru líkur á að veturinn yrði vætu- samari og mildari í Norður-Evrópu en venjulega. Á facebook-síðunni fimbulvetur er greint frá þessum spám og þar segir Trausti Jónsson veðurfræðingur að þessum spám sé lítt treystandi, en þær rætist þó stundum. Einar Sveinbjörnsson tekur í sama streng og segir varasamt að taka slíkar spár marga mánuði fram í tímann alvarlega. Í þessum spám séu einkum sýnd hlýindi yfir meginlandi Evrópu, en ýmist sé gert ráð fyrir köldu eða hlýju veðri miðað við árstíma á Íslandi. Hann segir að það sem stýri haustveðr- inu á Íslandi að miklu leyti séu at- gangur veðurkerfa og brautir lægðanna. Það stjórnist aftur af þáttum eins og frávikum um sjávarhita í Atlantshafinu, myndun megin- kuldapolla á norðurhjaranum, ann- ars vegar polli sem sé í mótun um þetta leyti við Baffins-land í Norð- ur-Kanada og annars við Síberíu, og einnig hafi það áhrif hvort haf- straumurinn El Nino við strendur Ekvador og stundum Perú sé sterkur eða ekki. Ýmsir telji að hringrásin í heiðhvolfunum hafi áhrif og hvernig hún spinnist upp. Sumir tali um að henni sé spáð góðu gengi á næstu vikum og sterk vestanátt verði í háloftunum fram eftir hausti, sem aftur ýti undir djúpar lægðir og hlýindi í Evrópu. Breytileiki og óróleiki „Í raun er ekkert í þessu sem hönd er á festandi og jafnvel næstu 10-20 daga er verið að spá því að þessi hringrás í heiðhvolfinu magni hér upp lægðir,“ segir Ein- ar. ,,Svo skoðar maður lægðavísa fyrir okkar slóðir og þeir virðast frekar aðgerðalitlir, þannig að hér verði frekar háþrýstingur heldur en lægðagangur. Það hefur verið bent á að þessar langtímaspár geti gagnast í hita- beltinu og á svæðum þar beggja vegna við. Hér hins vegar þar sem vestanvindabelti er ríkjandi og fer umhverfis norðanhvel jarðar á 40.- 70. breiddargráðu sé of mikill breytileiki og óróleiki til að hægt sé að reikna tíðarfarið langt fram í tímann.“ Hlýnar á nýjan leik eftir kuldakafla Morgunblaðið/Árni Sæberg Árstíðir Fyrsti snjórinn féll í Skálafelli um miðjan september og enn var þá grænn litur á gróðri ofan við Fjárborg.  Tekur langtímaspám um mildan og vætusaman vetur með fyrirvara  Margir þættir hafa áhrif Kjaradeilum hefur fjölgað á borði rík- issáttasemjara. Í gær vísaði samn- inganefnd Sambands íslenskra sveit- arfélaga (SNS) kjaradeilum við Starfsgreinasambandið og Eflingu til ríkissáttasemjara. Í tilkynningu segir að tilefnið megi rekja „til þeirra ósönnu fullyrðinga sem fram koma í ályktun þings Starfsgreinasambands- ins, frá 25. október, um að illa sé kom- ið fram við kvennastéttir í umönnun- arstörfum og að þeim sé sýnd takmarkalaus lítilsvirðing í yfirstand- andi kjaraviðræðum. Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga mótmælir þessum fullyrðingum harð- lega og lítur svo á að upp sé kominn alger trúnaðarbrestur á milli aðila.“ SGS og Efling svöruðu þessu með tilkynningu í gær þar sem segir að fé- lögin muni ekki láta hræða sig frá því að álykta á sínum þingum ,,um það sem brennur á okkar fólki eða standa fast á okkar réttmætu og eðlilegu kröfum.“ Þessi málatilbúnaður sveit- arfélaganna stuðli ekki að lausn alvar- legrar deilu. Er ábyrgðinni á mögu- legum afleiðingum þessa vísað á sveitarfélögin. SA segir allt gert á forsendum Lífskjarasasamningsins Nýr kjarasamningur var undirrit- aður í gær milli Blaðamannafélags Ís- lands (BÍ) og útgáfufélagsins Birt- ings, sem gefur út tímaritin Gestgjafann, Vikuna, Hús og hýbýli og dagblaðið Mannlíf. Samningur BÍ og Birtings gildir til 1. nóvember 2022. Samkomulag er hins vegar ekki í sjónmáli milli BÍ og Samtaka at- vinnulífsins fyrir hönd þeirra miðla sem eru innan SA en sáttafundur í deilunni er boðaður í dag. Spurður um stöðuna í kjaradeil- unni við blaðamenn sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri SA, í gær: ,,Við nálg- umst alla okkar viðsemjendur af virð- ingu og yfirvegun og við höfum leitt til lykta um 96% af þeim samningum sem SA gerir og það hefur allt verið gert á sömu forsendum, á forsendum Lífskjarasamningsins.“ Boðað hefur verið til atkvæða- greiðslu á morgun um vinnustöðvanir blaðamanna á miðlum sem eru innan SA, þ.e. á Morgunblaðinu, Frétta- blaðinu, RÚV og Sýn. Hjálmar Jóns- son, formaður BÍ, hefur sagt að ekk- ert hafi hreyfst í samningamálum þeirra eftir sjö mánaða viðræður og skjalfest sé hjá ríkissáttasemjara með tilboði SA að blaðamönnum séu boðnar minni kjarabætur en samist hefur um við aðra á árinu. „Alger trúnaðarbrestur“  SNS vísar deilum við SGS/Eflingu  BÍ semur við Birting Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Talsvert færri útselskópar voru taldir í Surtsey í haust heldur en fyrir tveimur árum. Í ferð á vegum vísindamanna hjá Náttúru- fræðistofnun Íslands 18. október voru taldir 62 kópar en þeir voru 134 haustið 2017. Það er mesti fjöldi útselskópa sem taldir hafa verið í Surtsey. Tilgangur ferðarinnar yfir Surts- ey var að fá yfirlit um dreifingu og fjölda selkópa í látrinu, sem er á norðurtanga eyjarinnar. Meðal ann- ars til að kanna hvort selirnir hafi átt þátt í gróðurframvindu á tang- anum undanfarin ár, en þar hefur gróður aukist mjög á sama tíma og selum hefur fjölgað. Guðmundur A. Guðmundsson, dýravistfræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun , sem fór í talningar- flugið ásamt Borgþóri Magnússyni, plöntuvistfræðingi og verkefnis- stjóra, segir að talningin hafi verið gerð á þeim tíma sem vænta megi að flestar urtur hafi kæpt og taln- ingin eigi því að gefa nokkuð góða mynd, en yfirleitt er talið fjórum sinnum í svona selatalningu til þess að ná utan um breytileika í tíma. Kóparnir voru á aðeins mismun- andi aldri og hugsanlega hefur ekki verið fullkæpt í látrinu, að sögn Guðmundar. Eigi að síður sé ljóst að selirnir hafi verið mun færri en fyrir tveimur árum og fjöldinn verið í samræmi við það sem var í fyrri talningum. Hliðstætt mávabyggðinni Guðmundur segir að sums staðar á norðurtanganum hafi verið grænn gróður, sem væntanlega megi tengja úrgangi frá selunum. Það sé hliðstæða við mávabyggðina sem hafi gróið upp sunnar á eynni, sem hefur staðið yfir í mun lengri tíma. Surtsey varð til í neðansjávareld- gosi í nóvember 1963 og er friðlýst sem friðland. Til stóð að nota dróna við selatalninguna og hafði Um- hverfisstofnun veitt leyfi fyrir því verkefni. Frá því var horfið og í staðinn flogið yfir á tveggja hreyfla flugvél og norðureyjan mynduð í bak og fyrir í þokkalegu veðri. Útsel hefur fækkað í Surtsey  Metið hvort selir hafi átt þátt í framvindu gróðurs  Grænn gróður í látrinu Ljósmynd/Náttúrufræðistofnun Íslands Surtsey Nokkrir þeirra 62 útselskópa sem taldir voru af lóðréttum myndum sem teknar voru í 2.000 feta hæð. Seðlabanki Íslands sendi frá sér til- kynningu í gær þar sem sagt er að húsleit lögreglunnar í húsnæði Samherja árið 2012 hafi verið á vit- orði margra og ekkert liggi fyrir um að upplýsingum hafi verið lekið frá Seðlabankanum til RÚV. Þrátt fyrir það liggur fyrir að þá- verandi framkvæmdastjóri gjald- eyriseftirlits bankans hafi verið í samskiptum við fréttamann RÚV í rúman mánuð áður en húsleitin fór fram. Fréttamaðurinn sendi fram- kvæmdastjóranum uppkast að frétt með tölvupósti þar sem húsleit- arinnar var getið daginn áður en hún fór fram. Þeim tölvupósti var ekki svarað, samkvæmt tilkynningu bankans. Morgunblaðið/Ómar Banki Rannsókn á meintum leka Seðla- bankans hefur verið vísað til lögreglu. Húsleitin hafi verið á vitorði fjölda fólks Dolorin Hita- og verkjastillandi paracetamól Á HAGSTÆÐUVERÐI! Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari upplýsingumumáhættuogaukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Þú færð Dolorin í næsta apóteki Dolorin500mg paracetamól töflur - 20stkog30stk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.