Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur samið við auglýsingastofuna Brandenburg um stuðning við mót- un, uppbyggingu og þróun á vöru- merkjum sambandsins með það að markmiði að efla ásýnd sambands- ins, auka erlenda tekjumöguleika þess og færa aukinn kraft í markaðs- starf. Þröngum skilyrðum í lögum KSÍ um útlit merkis KSÍ var breytt fyrr á þessu ári og þarf merkið ekki lengur að sýna fánaveifu og knött, né þarf grunnurinn að vera hvítur eða bókstafir bláir. Sú krafa er eingöngu gerð að merkið sé í íslensku fánalit- unum. Núverandi merki var tekið í notkun árið 1997 í tilefni af 50 ára af- mæli sambandsins. Forveri þess var tekinn í notkun á síðari hluta 8. ára- tugarins en þar áður var það íslenski fáninn, nú eða ekki neitt utan núm- ersins, sem prýddi landsliðstreyj- una. Þörfin aldrei verið meiri Að sögn Stefáns Sveins Gunnars- sonar, sviðsstjóra markaðssviðs KSÍ, hefur þörfin fyrir að efla vöru- merki KSÍ, sér í lagi á erlendri grundu, aldrei verið meiri. „Íslensk knattspyrna er orðin heimsþekkt í kjölfar undangenginn- ar velgengni og við vildum skerpa á þeim tengingum sem landsliðin okk- ar hafa. Við sjáum aukna tekjumögu- leika á heimsvísu og erum sífellt að leita leiða að fá erlend fyrirtæki að borðinu sem sjá hag sinn í því að tengja sig við þau gildi sem við höf- um yfir að búa,“ segir Stefán í sam- tali við Morgunblaðið. Hann segir að knattspyrnusam- bandið hafi fundið fyrir miklum áhuga erlendis frá í kjölfar þátttöku landsliða Íslands, í karla- og kvenna- flokki á stórmótum á síðustu árum. „Vörumerki KSÍ var hinsvegar hvorki skráð á erlendum mörkuðum, né markaðslega í stakk búið til að fullnýta þessa möguleika. Rann- sóknir sýndu ennfremur að umheim- urinn hafi hrifist af íslensku landslið- unum, krafti þeirra og samheldni,“ segir Stefán og bætir því við að það sem KSÍ stóð fyrir hafi verið tiltölu- lega afskipt. Lifir í minningunni „Núverandi myndmerki KSÍ hef- ur verið samofið þremur nýafstöðn- um stórmótum hjá A-landsliðum karla og kvenna. Það mun því lifa í minningunni um ókomna tíð. En það er alþekkt í umhverfinu að fyrirtæki endurskoða og endurmeta sín mynd- merki og hvort þau séu að kalla fram þá aðgreiningu og þær hugarfars- tengingar sem ætlast er til. Niður- staðan var sú að breyta enda núver- andi merki orðið yfir 20 ára gamalt, og þykir það hár aldur hjá auðkenn- um vörumerkja. Eins er vörumerkið „KSÍ“ ólíkt því að mörgu leyti sem landsliðin okkar standa fyrir og því tækifæri til að jafnvel skipta þeim upp eins og víða er þekkt erlendis,“ segir Stefán og á við að hugsanlega komi til greina að knattspyrnusambandið sjálft verði með sér vörumerki og landsliðin einnig – sem er leið sem bæði Spánverjar og Englendingar hafa farið. Kallað eftir breytingum En fann hann fyrir því að kallað væri eftir breytingum? „Já. Bæði innan knattspyrnu- hreyfingarinnar og ekki síst á mark- aðnum voru okkur bakhjarlar, sam- starfsmenn og stuðningsmenn, farnir að kalla eftir endurnýjun. Margt í núverandi merki er fremur erfitt til notkunar og kallaði á upp- færslu, ekki síst ef tekið er tillit til allra þeirra nýju miðla sem við þurf- um að vera sýnileg á,“ segir Stefán. Breyta „háöldruðu“ merki knattspyrnusambandsins Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Fáni Ríkharður Jónsson, borinn á gullstól, með þjóðfánann á brjósti, 1951.  Knattspyrnusamband Íslands sér aukna tekjumöguleika á heimsvísu KSÍ Merkið til vinstri var í notkun frá síðari hluta 8. áratugarins til ársins 1996. Frá þeim tíma hefur merkið til hægri verið merki KSÍ, í 23 ár. 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 29. október 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.13 124.73 124.43 Sterlingspund 159.33 160.11 159.72 Kanadadalur 95.0 95.56 95.28 Dönsk króna 18.459 18.567 18.513 Norsk króna 13.548 13.628 13.588 Sænsk króna 12.844 12.92 12.882 Svissn. franki 125.17 125.87 125.52 Japanskt jen 1.1421 1.1487 1.1454 SDR 170.72 171.74 171.23 Evra 137.91 138.69 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.0007 Hrávöruverð Gull 1504.65 ($/únsa) Ál 1710.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.5 ($/fatið) Brent Nafni fyrirtækisins Oddi Prentun og Umbúðir hefur verið breytt í Kassa- gerð Reykjavíkur. Í tilkynningu frá félaginu segir að það muni halda áfram sölu á fyrsta flokks umbúðum með áherslu á gæði og þjónustu við viðskiptavini sem byggist á áratuga þekkingu og reynslu á þeim vett- vangi. „Breytingin er hluti af stefnu- miðuðum ákvörðunum til að styrkja stöðu Kassagerðar Reykjavíkur á umbúðamarkaði og tryggja að við- skiptavinir geti áfram sótt fyrsta flokks umbúðir og þjónustu til fyrir- tækisins til framtíðar,“ segir í til- kynningunni. Straumlínulagað fyrirtæki Samkvæmt tilkynningunni verður með breytingunum til straumlínu- lagað fyrirtæki sem standi við allar skuldbindingar sínar og byggir á sterku sambandi við viðskiptavini og birgja, stöðugu umbótastarfi og virð- ingu fyrir umhverfinu, eins og það er orðað í tilkynningunni. Elsta umbúðafyrirtækið Kassagerð Reykjavíkur er elsta umbúðafyrirtæki á Íslandi, stofnað árið 1932. Félagið var ásamt Guten- berg sameinað undir nafni Odda árið 2008. „Hjá fyrirtækinu starfar öfl- ugur hópur starfsmanna með mikla og langa reynslu og þekkingu á þörf- um viðskiptavina. Kassagerðin legg- ur áherslu á umhverfisvernd og hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar sem veitt geta ráðleggingar varðandi ábyrga nálgun gagnvart umhverfinu þegar kemur að vali og nýtingu um- búða,“ segir að lokum í tilkynning- unni frá félaginu. tobj@mbl.is Morgunblaðið/RAX Umbúðir Kristján Geir Gunnarsson, forstjóri Kassagerðar Reykjavíkur. Oddi verður Kassa- gerð Reykjavíkur  Vilja styrkja stöðu sína á markaði Peysur Str. M-XXXL Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Verð 7.900.- Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.