Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is Blár vinur í stofunni, yndislegur litur sem nýtur sín vel í flestum rýmum. Skoðaðu litaúrvalið okkar á slippfelagid.is Notalegur 60 ára Guðfinna er fráVogum IV í Mývatns-sveit en býr á Akureyri. Hún er hjúkrunarfræð- ingur að mennt og vinnur á gjörgæslunni á Sjúkrahúsi Akureyrar. Maki: Friðjón Halldórs- son, f. 1962, sjálfstætt starfandi húsa- smiður. Dóttir: Lilja Huld Friðjónsdóttir, f. 1992, hjúkrunarfræðingur. Barnabörn eru Mikael Þór, f. 2013, og Gabríel Aron, f. 2015. Dóttir Friðjóns er Jenný, f. 1981. Foreldrar: Þorlákur Jónasson, f. 1922, d. 2009, bóndi í Vogum, og Lilja Guðbjörg Árelíusdóttir, f. 1937, fyrrverandi versl- unarmaður og húsfreyja í Vogum, búsett á Akureyri. Guðfinna Aðalheiður Þorláksdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að taka þig saman í and- litinu og einbeita þér að því sem fyrir liggur. Lítið á björtu hliðarnar og reynið að muna að allt reddast þetta. 20. apríl - 20. maí  Naut Sinntu þínum nánustu sérstaklega, því þú hefur satt að segja látið þá sitja á hakanum að undanförnu. Þér er létt því stóru verkefni er lokið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert ekki alveg með báða fætur á jörðinni þessa dagana. Ástin hef- ur tekið völdin. Þú færð skemmtilegar fréttir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft ekki að vera unglingur til að finnast allt frekar fáránlegt. Losaðu þig við kæki sem þú hefur tileinkað þér, þeir fara nefnilega í taugarnar á öðrum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér finnst ábyrgð þín svo yfirþyrm- andi að það dregur úr sjálfstrausti þínu og framkvæmdagleði. Gleymdu ekki að áhyggjur eru eins og ruggustóll sem hreyfist en fer hvergi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það eru mikil sannindi í því fólgin að illt sé að leggja ást við þann sem enga kann í móti. Áhyggjur leysa engan vanda. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hvernig þú bregst við streitu og álagi sýnir persónuleika þinn. Þú elskar að ferðast, af hverju ekki bara að flytja út og prófa það? 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einvera er stundum upp- spretta nýrra uppgötvana, það er eins og þær hafi marað í hálfu kafi. Þiggðu hjálp ef þú þarft hana. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú vilt gjarnan afla meiri tekna. Vertu maður til að biðjast afsök- unar þegar það á við. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að sinna persónu- legum málum í dag og gætir þurft að hagræða ýmsu til þess að geta það. Ná- grannar þínir eru ekki þeir skemmtileg- ustu þessa dagana. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Taktu til á heimilinu og drífðu síðan í þeim lagfæringum sem bíða. Þér eru allir vegir færir í lífinu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Leggðu hönd á plóg þar sem þess er þörf, hvort sem það er beinlínis í þín- um verkahring eða ekki. hefur því réttindi til að dæma í öllum deildum, en hann dæmir mest í efstu deild kvenna og 1. og 2. deild karla, en er einnig fjórði dómari í úrvals- deild karla. „Mig langaði alltaf til að vera góð- ur í fótbolta en verð ævinlega afleitur leikmaður, bæði stirður og hægfara. Þjálfari á Húsavík í barnæsku sagði við mig á fótboltaæfingu: „Þetta kemur eftir 25 ár.“ Ég held reyndar að hann hafi haft á röngu að standa. námskeiði til öflunar héraðsdóms- lögmannsréttinda. Helsta áhugamál Arnars eru ferðalög. „Við fjölskyldan reynum að ferðast með börnin um allt, sýna þeim heiminn og einnig innanlands eftir því sem hægt er. Við höfum far- ið til Taílands, Mexíkó og víðar og stefnum á fleiri landvinninga. Ég er mikill fjölskyldumaður og ver mest- um frítímanum með fjölskyldunni.“ Arnar er landsdómari í fótbolta og A rnar Þór Stefánsson fæddist 29. október 1979 Landspítalanum í Reykjavík og ólst upp á Húsavík til 11 ára ald- urs. „Það var frábært að alast upp þar upp sem barn, ég ber sterkar taugar þangað norður og á góðar minningar úr barnæsku.“ Arnar vann á bensínstöð ESSO í Mosfellsbæ á unglings- og mennta- skólaárum. „Mér skilst að handrits- höfundar Vaktanna (Næturvaktin o.fl.) hafi haft persónugalleríið þar í huga er þeir gerðu þau handrit.“ Arnar vann síðan á RÚV með há- skóla, einkum sem næturfrétta- maður, en það starf mun nú vera af- lagt. „Meðal þess sem næturfrétta- maður gerði á þessum árum upp úr aldamótum var að vera eins konar út- sendingarstjóri, sem meðal fólst í því að tengja Veðurstofuna inn í útsend- ingu kl. 4.30 en einnig að lesa fréttir kl. 2, 5 og 6. Ómissandi þáttur var að lesa flugáætlun farþegaflugs í lok frétta kl. 5 og sem barst fréttastof- unni með faxi. Nú er það allt á net- inu.“ Arnar gekk í Barnaskóla Húsavík- ur, Flataskóla í Garðabæ í eitt ár og svo Gagnfræðiskóla Mosfellsbæjar, var stúdent frá MR 1999 og var í sig- urliði MR í Gettu betur 1998 og 1999. „Ég keppti síðar í Útsvari fyrir Norðurþing með minni árangi, svo vitið virðist minnka með árunum.“ Hann varð Cand. jur. HÍ 2004, hér- aðsdómslögmaður í júní 2005 og hæstaréttarlögmaður í mars 2011, 31 árs að aldri. Arnar hefur starfað sem lögmaður á LEX lengst af frá útskrift með stuttu stoppi hjá umboðsmanni Al- þingis í hálft ár og í Hæstarétti sem aðstoðarmaður í eitt ár. Hann hefur verið eigandi á LEX frá 2008. „Verk- efnin í lögmennskunni eru fjölbreytt og ég vil hafa þau fjölbreytt. Ég vil ekki taka bara mál fyrir fyrirtæki og stofnanir heldur líka prinsippmál fyr- ir einstaklinga, mál sem eru áhuga- verð, t.d. mannanafnamál og nú bóta- mál vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála. Ég reyni að hafa víða skírskotun í lögmennskunni en ekki þrönga og vinna fyrir háa og lága.“ Arnar hefur kennt við háskólana og á Þetta er ekki komið enn. Þrátt fyrir að vera afleitur knattspyrnumaður fann ég leið til að vera með í bolt- anum á efri árum upp úr þrítugu með því að troða mér að sem fótbolta- dómari. Það var þó enginn sem hvatti mig sérstaklega til þess en ég fékk brennandi áhuga á þessu. Þetta er frábær leið til að vera með í leiknum og halda sér í þokkalegu standi í leið- inni. Það eru gerðar nokkuð stífar kröfur til dómara hjá KSÍ varðandi þrek o.fl. Það er þrekpróf tvisvar á ári, klippufundir, ráðstefnur og skrif- leg próf í knattspyrnulögunum. Í þeim eru sett upp absúrd tilvik sem geta komið upp í fótboltaleik og menn beðnir um að segja til um hvað eigi að dæma.“ Fjölskylda Eiginkona Arnars er Sunna Jóhannsdóttir, f. 15.2. 1974, við- skiptafræðingur. Foreldrar: Þóra Ragnheiður Björnsdóttir, f. 14.2. 1951, fv. sóknarprestur í Norður- Noregi, búsett í Reykjavík, og Jóhann Guðmundsson, f. 18.11. 1948, tannlæknir í Noregi. Þau skildu. Nú- verandi kona Jóhanns er Erla Vals- dóttir, f. 30.11. 1952. Börn Arnars og Sunnu eru Vala Arnarsdóttir, f. 31.7. 2012, og Auður Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmaður – 40 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Embla, Vala, Arnar, Sunna, Sól og Auður á heimili þeirra árið 2018. Afleitur leikmaður en skárri dómari Knattspyrnudómarinn Arnar að dæma í undanúrslitum bikarkeppni kvenna á KR-vellinum í sumar. Lögmaðurinn Arnar með Þorbirni Þórðarsyni sem var að taka prófmál til öflunar málflutningsréttinda. 50 ára Örn er Reyk- víkingur, ólst upp í Hvassaleiti og Hlíð- unum en býr í Árbæn- um. Hann er verk- fræðingur og hagfræðingur að mennt og er sérfræð- ingur á fjármálastöðugleiksviði hjá Seðlabanka Íslands. Maki: Margrét Sigurðardóttir, f. 1970, meinafræðingur á Landspítalanum. Synir: Tvíburarnir Haukur Jón og Helgi Þór, f. 2010. Foreldrar: Haukur Sigurðsson, f. 1938, d. 2016, sagnfræðingur og kennari við MR, og Þyri Jónsdóttir, f. 1943, d. 2000, hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum og Sunnuhlíð. Örn Hauksson Til hamingju með daginn Hella Annabelle Kruklina fæddist 14. febrúar 2019 kl. 17.19 á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Hún vó 3.726 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Veronika Kruklina og Maris Kruklins. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.