Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Tillaga Boris Johnsons, forsætisráð- herra Bretlands, um að efnt yrði til þingkosninga 12. desember var felld í atkvæðagreiðslu í neðri deild þings- ins í gærkvöldi. Tillagan þurfti að fá stuðning tveggja þriðju allra þing- manna deildarinnar, eða 434 þing- manna, en svo fór að hún fékk 299 at- kvæði og 70 þingmenn greiddu atkvæði á móti henni. Verkamanna- flokkurinn er með 245 þingmenn í deildinni og flestir þeirra sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Jeremy Corbyn, leiðtogi flokksins, hafði sagt að hann myndi ekki samþykkja kosningar fyrr en ljóst væri að Bretlandi gengi ekki úr ESB án samnings. Þingmenn Skoska þjóðarflokksins og Frjáls- lyndra demókrata sögðust vilja að kosningarnar færu fram 9. desem- ber. Forsætisráðherrann lagði tillög- una fram samkvæmt lögum sem sett voru árið 2011 og kveða á um að tveir þriðju allra þingmanna neðri deildar- innar þurfi að samþykkja að flýta þingkosningum. Eftir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar lá fyrir í gær- kvöldi kvaðst Johnson ætla að leggja fram sérstakt frumvarp um að efnt yrði til kosninga 12. desember og það þarf aðeins meirihluta atkvæðanna, eða 320, en stjórnarandstaðan getur þá lagt fram breytingartillögur, t.a.m. um að lágmarkskosningaald- urinn verði lækkaður í sextán ár. Gert er ráð fyrir að neðri deildin greiði atkvæði um frumvarpið í dag. Leiðtogi Skoska þjóðarflokksins á breska þinginu sagði að þingmenn hans myndu ekki greiða atkvæði með frumvarpi forsætisráðherrans nema hann héti því að reyna ekki að fá þingið til að samþykkja brexit-samn- inginn sem hann náði við ESB fyrr í mánuðinum. Johnson samþykkti frestun Fyrr um daginn hafði Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, skýrt frá því að það myndi sam- þykkja beiðni Bretlands um að út- göngu landsins úr ESB yrði frestað í allt að þrjá mánuði. Útgangan átti að taka gildi á fimmtudagskvöldið kem- ur en breska þingið samþykkti lög sem skylduðu Boris Johnson til að óska eftir því að brexit yrði frestað til 31. janúar. ESB-ríkin samþykktu þá beiðni en sögðu að útgangan gæti tekið gildi 30. nóvember eða 31. des- ember ef breska þingið samþykkir brexit-samninginn. Samkvæmt samkomulagi ESB- ríkjanna þurfti breska stjórnin að samþykkja frestunina formlega áður en Tusk leggur hana fyrir leiðtoga ESB-ríkjanna til endanlegrar stað- festingar. Boris Johnson sendi Tusk bréf í gær þar sem hann samþykkti frestunina en kvaðst ætla að óska eft- ir því að ESB útilokaði að brexit yrði frestað lengur en til 31. janúar. John- son hafði áður lagt áherslu á að hann væri andvígur frestuninni og sagt að hann myndi frekar „liggja dauður í skurði“ en að óska eftir henni. Tillaga Johnsons um þing- kosningar 12. desember felld  Boðar frumvarp um kosningar  Frestun á brexit í allt að þrjá mánuði samþykkt Hindúar punta kú á trúarhátíðinni Tihar í Kat- mandú, höfuðborg Nepals, í gær. Tihar er ljósahátíð sem haldin er í fimm daga ár hvert á þessum árstíma í Nepal og nokkrum svæðum Indlands. Hátíðin er ekki aðeins helguð guðum hindúa heldur einnig dýrum sem eru mikilvæg í goðafræði þeirra, m.a. hundum, kúm og krákum. Þriðji dagur hátíðarinnar er helgaður kúnni sem hindúar líta á sem tákn um velsæld og auð. Hindúar halda fimm daga trúarhátíð í Nepal AFP Votta guðum, kúm og hundum virðingu sína Ólíklegt er að dauði hugmyndafræði- legs leiðtoga Ríkis íslams verði til þess að baráttu samtakanna fyrir stofnun íslamsks ríkis ljúki, að sögn sérfræðinga í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi. Skýrt var frá því um helgina að Abu Bakr al-Bagdadi, hugmynda- fræðilegur leiðtogi Ríkis íslams, hefði fallið í árás bandarískra hermanna í Sýrlandi. Sérfræðingarnir telja ólík- legt að dauði Bagdadis hafi mikil áhrif á starfsemi Ríkis íslams, þar sem hann hafi dreift valdinu og valdakerf- ið hafi verið sveigjanlegt. „Bagdadi var aðeins forystumaður að nafninu til. Hann tók ekki þátt í starfsemi samtakanna frá degi til dags,“ hefur Newsweek eftir leyniþjónustumanni sem hefur starfað í Mið-Austur- löndum. „Það eina sem hann sagði var já eða nei – hann skipulagði ekkert.“ Talið er að samtökin reyni að auka samstarf sitt við al-Qaeda, að sögn fréttaskýranda The Wall Street Journal. „Baráttan heldur áfram,“ hefur blaðið eftir Bruce Hoffman, prófessor við Georgetown-háskóla, sem hefur rannsakað starfsemi hryðjuverkahópa í rúm 40 ár. Dauði Bagdadis gæti einnig þjappað liðs- mönnum samtakanna saman og blás- ið nýju lífi í starfsemi þeirra. Hver tekur við? Fréttaveitan AFP hefur eftir sér- fræðingum í baráttunni gegn Ríki ísl- ams að óvissa sé um hver verði eftir- maður Bagdadis. Þeir telja tvo menn koma helst til greina, Túnisann Abu Othman al-Tunsi og Sádann Abu Sa- leh al-Juzrawi. Fullyrt var í yfirlýs- ingu sem birt var í ágúst að Bagdadi hefði valið Írakann Abdullah Qardash sem eftirmann sinn en hún hefur ver- ið dregin í efa. Yfirlýsingin var sögð hafa komið frá áróðursdeild Ríkis ísl- ams en AFP hefur eftir sérfræðing- um að samtökin hafi ekki staðfest hana og hún sé líklega fölsuð. bogi@mbl.is AFP Íslamistar Liðsmenn Ríkis íslams í fangelsi Kúrda í Norður-Sýrlandi. Baráttan heldur áfram  Óvissa um eftir- mann Bagdadis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.