Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fara verðurvarlega íað draga of víðtækar ályktanir af úrslitum kosn- inga í einstökum fylkjum (löndum) Þýskalands. Töluverður mun- ur er á milli þeirra og allmikið getur oltið á hvorum megin járntjalds þeim var skipað fyrir sameiningu landsins á ný. En þær kosningar sem þeg- ar hafa farið fram draga þó þegar upp nokkra mynd og hún verður ljósari eftir því sem slíkum úrslitum fjölgar. Í fyrradag var kosið í Thür- ingen í Mið-Þýskalandi, sem áður var í Alþýðulýðveldinu. Úrslitin þar eru mjög sláandi og gerðist margt í senn. Frá því að Þýskaland var sameinað hafa Kristilegir Demókratar, flokkur Merkel kanslara, verið stærsti flokk- ur fylkisins. Hann hafði 33,5% atkvæða í fylkinu í síðustu kosningum, en hrapaðu nú niður í 21,8% fylgi, sem er mikið fall, og tapaði þar með forystusæti sínu í Thüringen. En ekki nóg með það. Hann féll niður í þriðja sætið í styrk- leika flokkanna, á eftir þeim tveimur flokkum sem Merkel kanslari hefur hvað mesta andúð á og jafnvel fyrir- litningu. Vinstrið (Die Linke) varð stærstur flokka í Thüringen með 31% fylgi og Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) varð næst stærsti flokkur þar með 23,4 prósent atkvæða. Þessir tveir flokkar voru ótvíræðir sigurvegarar kosninganna. Vinstrið með því að verða stærsti flokkur fylkisins og AfD með því að verða næst- stærsti flokkur þar og með því að vinna langmest á allra flokka í kosningunum. Vinstrið, undir forystu Bodo Ramelow, bætti aðeins við sig 2,8 prósentustigum og einum þingmanni, en Valkost- urinn bætti við sig 12,8 pró- sentustigum og 11 þingmönn- um. Nafnið Valkostur fyrir Þýskaland er þannig til komið að þegar þessi flokkur var í burðarliðnum sagði Merkel kanslari að annar eins flokkur og hann gæti aldrei orðið val- kostur fyrir Þýskaland. Nýi flokkurinn gerði orð Merkel hins vegar að sínum og að heiti flokksins sjálfs. Erlend blöð, þar með talin þekkt bresk blöð, hafa vakið athygli á því að fyrir kosning- arnar hafi þýsk sjónvarpsstöð á landsvísu kallað foringja AfD í Thüringen, Björn Höcke, „nýjan Hitler“ þar. Þar er vissulega mjög langt gengið. En hvað sem því líður þá hefur sá verið mjög óvarkár í ýmsum yfirlýsingum sínum í aðdrag- anda kosninganna. Þannig að þótt talið væri að langt væri seilst af nefndum fjölmiðli gagnvart þessum tiltekna flokksleiðtoga og kannski heimskulega langt, þá verður hinu ekki neitað að sá hefur að minnsta kosti gefið til þess ærin tilefni. Af öðrum fréttapunktum í þessum fréttavænu kosn- ingum má nefna að hrun þýskra krata heldur áfram. Flokkurinn fékk aðeins 8,2% atkvæðanna og hefur ekki mælst lægri, en í síðustu kosn- ingum fór hann einnig illa en var þó með 12,4% at- kvæðanna. Í fréttum er mjög bent á að þátttaka í þessum kosningum hafi verið góð og miklu betri en endranær. Þannig hafi 52,7% kosið í fylkiskosning- unum fyrir 5 árum en 66% kosið nú. Þótt það sé ekki mjög mikið á íslenskan mæli- kvarða þá er stökkið stórt. Þeir sem rýna í þessar tölur hafa einnig til hliðsjónar upp- lýsingar úr könnunum. Þeir benda á að AfD hafi fengið mest fylgi ungra kjósenda en hinn sigurvegarinn Die Linke hafi sótt sitt fylgi til eldri kjósenda. Þá varð það frétt að Frjáls- lyndi flokkurinn komst yfir 5% lágmarkið og því inn á fylkisþingið á ný með 5 þing- menn. Fréttaskýrendur telja að ekki verði hlaupið að því að koma á meirihlutastjórn í fylkinu eftir þessi úrslit. En hver verða áhrifin á landsvísu? Sé horft á umræð- ur í þýskum fjölmiðlum er rætt um að staða eftirmanns Merkel á formannsstóli, Annegret Kramp-Karren- bauer, muni veikjast enn við þessar kosningar og þær sem hafa farið á undan í hennar tíð. Jafnframt kunni þungi krafna um að Merkel sjálf víki burt sem kanslari sjálfsagt aukast. Og loks er því bætt við að eftir þessi hraklegu úrslit sósíaldemókrata muni flokkur þeirra verða enn órólegri í stjórnarsamvinnu „stóru flokkanna“ og gæti því hæg- lega styst í því. Áhrif kosninganna í Thüringen gætu orðið meiri en fyrir fram var ætlað} Eitt fylki af mörgum með fullt af fréttum T íunda hvern dag fellur Íslend- ingur fyrir eigin hendi, oft má tengja það fíkn. Tíunda hvern dag deyr Íslendingur af völdum lyfjaeitrunar af ýmsum toga. Flest þó af völdum hinna svo kölluðu ópíóða. Einstaklingarnir blanda saman alls konar efnum sem að lokum leiða þá til dauða. Nýjustu upplýsingar frá landlæknisemb- ættinu undirstrika alvöru málsins. Í ágúst var embættið þegar með til rannsóknar tæplega 40 dauðsföll vegna mögulegrar lyfjaeitrunar. Tíu þeirra voru á aldrinum 20- 30 ára. Stöðugar fregnir af því þegar fólk er tekið með risasendingar af stórhættulegum eitur- lyfjum sem það er að smygla til landsins, ættu að skelfa fleiri en mig. Það sem af er árinu hafa tugir kílóa af amfetamíni og kókaíni verið gerð upptæk, auk mikils af ólöglegum lyfseðilsskyldum ópíóðum. For- eldrar margir eru skelfingu lostnir og vita ekki hvern- ig þeir eiga að vernda börnin sín. Ástvinir þeirra sem hafa ánetjast þessum efnum, lifa hvern dag í stöðugri sektarkennd og angist. Foreldrar þeirra sem fallnir eru fyrir fíknsjúkdómnum spyrja stöðugt: Er þetta mér að kenna, hvað gerði ég rangt? Er furða þótt ég sem fulltrúi í fjárlaganefnd geti engan vegið áttað mig á því hvers vegna ríkisstjórnin vill skera niður fjármagn til lögreglunnar um tæpan hálfan milljarð króna í fjárlögum fyrir 2020? Hér er verið að höggva þar sem hlífa skyldi. Þessa dagana verðu mér oft hugsað til ráðherra ríkisstjórnarinnar. Þau bera ábyrgð á ástandinu. Þróun fíkniefnafaraldursins er öll á þeirra vakt. Hvar eru forvarnirnar, hæstvirtur heil- brigðisráðherra? Hvar er löggæslan, hæstvirtur dómsmálaráðherra? Hvar er félagslegi stuðningurinn, hæstvirtur fé- lags- og barnamálaráðherra? Hvernig for- gangsraðar þú fjármunum í þágu þjóðar þinnar, hæstvirtur fjármálaráðherra? Hversu lengi á fólkið að bíða eftir því að ríkisstjórnin skeri upp herör gegn fíkni- efnafaraldrinum, hæstvirtur forsætisráð- herra? Hvar eru menntunartækifæri unga fólksins okkar þegar þau koma út í sam- félagið eftir að hafa leitað sér hjálpar vegna fíknar, hæstvirtur menntamálaráðherra? Mér líður virkilega illa að vera einn af þjóðkjörnum fulltrúum og þurfa að horfa upp á þessa vá án þess að geta virkilega barið í borðið og tekið á málunum eins og skot. Það er ekki eftir neinu að bíða. Ég lýsi eftir þjóðarátaki í baráttunni gegn fíkni- efnafaraldrinum. Þar þarf samræmt átak margra ráðuneyta, ríkisstjórnar, alþingis, sveitarstjórna og allrar þjóðarinnar. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn að viðurkenna staðreyndir, tölurnar ljúga ekki. Við vitum um dauðsföllin, við vitum um flóð fíkniefna til landsins. Við vitum að sem sameinuð þjóð þá getum við brotið þessa óheillaþróun á bak aftur. Vakning og vilji er það sem þarf. Inga Sæland Pistill Fíknin –Vakning og vilji er það sem þarf Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Þriggja daga þing Norður-landaráðs hefst í Stokk-hólmi í Svíþjóð í dag.Fulltrúar á þinginu verða forsætisráðherrar, aðrir ráðherrar og þingmenn frá öllum norrænu ríkjunum. Þó að formleg dagskrá hefjist í dag var í gær rætt um lýð- ræði á undirbúningsfundum, en þetta er í 71. skipti sem Norður- landaráðsþing er haldið. Á dagskrá verða meðal annars loftslagsmál, sjálfbærni og málefni ungs fólks. Þingið er leiðtogafundur Norður- landa og um leið stærsti norræni stjórnmálaviðburður ársins. Einn þeirra sem sækja þingið í ár er Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins. Morgun- blaðið náði stuttlega tali af henni í gær, en þá var hún ásamt öðrum fulltrúum í undirbúningsvinnu. „Ég er í svokallaðri þekkingar- og menningarnefnd sem tekur með- al annars fyrir falsfréttir og á ég von á því að það verði eitt af þeim viðfangsefnum sem við tökum áfram þegar Ísland fer með forsæti Norðurlandaráðs á næsta ári,“ seg- ir Anna Kolbrún og bætir við að dagskrá þingsins sé bæði fjölbreytt og áhugaverð. „Þessi vinna er mjög spennandi og skiptir um leið Ísland miklu máli.“ Þétt dagskrá framundan Að lokinni þingsetningu hefjast þemaumræður með norrænu for- sætisráðherrunum um málefnið „Hvernig getur norræna sam- félagslíkanið þróað og stuðlað að sjálfbærum umskiptum?“ Verður því þá velt upp hvort núverandi fjöldahreyfingar og stjórn- málaflokkar geti brugðist við vax- andi kröfum um umskipti eða hvort þörf sé á nýrri nálgun í því sam- hengi. Á morgun, miðvikudag, verður undir liðnum velferð tekið fyrir nefndarálit um að stöðva ættleið- ingar frá einræðisríkjum og ótrygg- um löndum, en á lokadegi þingsins verður umræða tekin um loftslags- mál. Mun þá Michael Tjernström, prófessor við veðurfræðistofnun Stokkhólmsháskóla, flytja erindi. Þá mun einnig nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs frá Íslandi kynna formennskuáætlun fyrir árið 2020 skömmu fyrir þingslit. Nánar má lesa um dagskrá Norðurlandaráðs- þings 2019 á heimasíðu Norræns samstarfs, norden.org. Góður samráðsvettvangur Norðurlandaráðsþing er vett- vangur fyrir svæðasamstarf þar sem saman koma þingmenn sem þjóðþingin tilnefna til setu í ráðinu og ráðherrar úr ríkisstjórn Norður- landa. Allir fulltrúar taka þátt í um- ræðum um mikilvæg málefni í nor- rænu samstarfi en einungis þingmenn hafa atkvæðisrétt. „Gest- ir og þingmenn frá öðrum alþjóð- legum og norrænum stofnunum hafa nú í tvö ár getað tekið þátt í umræðum á þingi. Einkum eru það gestir frá Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur-Rússlandi sem nýta sér þann rétt. Á þemaþing er boðið gestum sem tengjast því þema sem er á dagskrá hverju sinni,“ segir á heimasíðu Norræns samstarfs. Það land sem gegnir for- mennsku í ráðinu er jafnframt gest- gjafi þingsins og fer það fram í húsakynnum viðkomandi þjóðþings. Ísland er þó undantekning þar sem Alþingishúsið er ekki nógu stórt. Fjallað verður nánar um Norðurlandaráðsþingið og um- ræður þar í Morgunblaðinu og mbl.is í vikunni. Þing Norðurlanda- ráðs hefst í Svíþjóð Hægt er að fylgjast með þingi Norðurlandaráðs á netinu og í símanum, en búið er að hanna sérstakt app sem veitir yfirsýn yfir alla dagskrána og upplýs- ingar um einstaka dagskrárliði. Appið má finna undir heitinu „Norðurlandaráðsþing“. Sam- kvæmt upplýsingum frá Nor- rænu samstarfi veitir appið upplýsingar á sex tungumálum og hentar það öllum símum og spjaldtölvum. „Appið inniheldur alla fund- ardagskrá og dagskrá Norður- landaráðsþingsins. Auk þess eru þingmenn í Norðurlandaráði kynntir og birtar fréttir af þinginu sem stend- ur yfir. Appið inniheldur enn- fremur hag- nýtar upplýs- ingar um þingið,“ segir þar. Með þingið í símanum SÉRSTAKT APP FÁANLEGT Anna Kolbrún Árnadóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Norðurlönd Þing Norðurlandaráðs verður undir forystu Íslands á næsta ári. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar fundurinn var haldinn hér 2015.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.