Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 1
ÖGNERFIÐARA ÞEGARVELVIÐRAR
Heilklæðnaður hannaður fyrir geimferðalanga Bransons. 4
Íslenska forritið Drivers gerir notend-
um þess kleift að panta leigubíl frá
hvaða leigubílastöð sem er. 14
VIÐSKIPTA
Langur vetur og rysjótt veður er kostur í augum þeirra
sem selja sólarlandaferðir til Íslendinga allt árið um
kring að sögn framkvæmdastjóra VITA.
EKKIÓSVIPAÐUBER
4
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Nokkurra mánaða lokun hjá Brimi
Fiskvinnslu sjávarútvegsfyrirtækisins Brims
hf. við Norðurgarð á Granda í Reykjavík
verður lokað í nokkra mánuði á næsta ári á
meðan unnið verður að sjálfvirknivæðingu.
Um er að ræða stórfellda uppbyggingu sem
kallar á fjárfestingu sem nema mun allt að
þremur milljörðum króna, en í því felst full-
kominn hátækni tækjabúnaður og end-
urbætur á húsakosti, að sögn Guðmundar
Kristjánssonar, forstjóra Brims. Hluti af því
er samningur við Marel sem kynntur var í
gær um gerð þriggja vinnslulína.
Á meðan vinnslan á Norðurgarði er lokuð
mun félagið nýta fiskvinnslu Kambs í Hafn-
arfirði, en samningar um kaup Brims á fé-
laginu auk útgerðarinnar Grábrókar voru til-
kynntir síðastliðinn mánudag. Kaupverðið
var sagt rétt rúmir þrír milljarðar króna.
Forstjórinn segir ástæður kaupanna
margþættar og bendir meðal annars á kvóta
og bátakost félaganna. „Það er mikill þorsk-
kvóti í Kambi og Brim hefur verið að styrkja
sig í þorski. Þarna er einn nýr bátur í króka-
aflamarki og svo er mikil þekking í þessu
fyrirtæki bæði í útgerð smábáta og svo er
vinnslan mjög góð í Hafnarfirði. Hún er al-
gjörlega tæknivædd. Kambur er nýbúinn að
kaupa glænýja tæknivædda vinnslulínu frá
Völku sem er með nýjustu vatnsskurðarvél-
inni og er að ná mjög góðum árangri,“ segir
hann og bætir við að til lengri tíma sé stefna
Brims að nýta vinnsluna í Hafnarfirði sem
ákveðna sérvinnslu sem viðbót við rekstur
Brims. „Við erum með margar fisktegundir
sem við veiðum og við sjáum tækifæri í því
að hafa fiskvinnsluna í Hafnarfirði áfram.“
En fiskvinnsla Kambs þjónar einnig til að
leysa ákveðið vandamál félagsins til skamms
tíma. „Við erum búnir að gera stóran samn-
ing við Marel um að tæknivæða vinnsluna í
Reykjavík. Við munum þurfa að loka henni í
nokkra mánuði á næsta ári og þá munum við
vinna mikinn þorsk í vinnslunni í Hafnar-
firði. Með þessum kaupum leysum við ákveð-
ið vandamál. Það er svo mikilvægt að við
séum alltaf með framboð af ferskum afurð-
um allt árið um kring til viðskiptavina okkar
um allan heim,“ segir Guð-
mundur.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Umfangsmiklar breytingar í rekstri
Brims fela í sér sex milljarða króna
fjárfestingar.
Morgunblaðið/Hari
Umtalsverðar breytingar verða í rekstri Brims og verður vinnslunni á Granda lokað tímabundið.
10
EUR/ISK
23.4.‘19 22.10.‘19
145
140
135
130
125
135,65
138,75
Úrvalsvísitalan
2.200
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
23.4.‘19 22.10.‘19
1.920,94 1.978,68
Búið er að setja upp nýjan vef
Kringlunnar og geta neytendur nú
flett upp yfir 100 þúsund vörum frá
um 70 verslunum í nýrri vöruleit
verslunarmiðstöðvarinnar. Stjórn
Kringlunnar setti sér það markmið í
upphafi árs 2018 að gera Kringluna
að stafrænni verslunarmiðstöð, sem
var liður í því að koma til móts við
breytta hegðun, breyttar væntingar
og breyttar kröfur viðskiptavina, að
sögn Sigurjóns Arnar Þórssonar,
framkvæmdastjóra Kringlunnar.
„Við erum verslunarmiðstöð og
erum nokkurs konar hattur yfir
fjölda þjónustu- og rekstraraðila
sem allir stýra sínum þáttum ein-
angrað. Verkefni okkar er að draga
þessa aðila alla saman undir einn
hatt þannig að fólk geti nálgast allar
vörur í viðkomandi verslunum á ein-
um stað,“ segir Sigurjón. Auk vöru-
leitarinnar hefur Kringlan tekið í
notkun fleiri stafrænar þjónustu-
leiðir til þess að auka sveigjanleika í
rekstri og auka þjónustustigið Hluti
þess er „smella og sækja“-þjónustan
sem gerir fólki kleift að nálgast
vörur sínar á sínum forsendum, utan
afgreiðslutíma Kringlunnar, í sér-
stökum afgreiðsluskápum og nýtt
Kringluapp þar sem sjá má yfirlit yf-
ir þau tilboð sem eru í boði í Kringl-
unni frá degi til dags. Hinni staf-
rænu Kringlu er einnig ætlað að ná
til yngri markhópa og þeirra sem
hafa þróað með sér nýjar verslunar-
venjur sem fara í auknum mæli fram
á netinu. Gera áætlanir Kringlunnar
meðal annars ráð fyrir að breyta
verslunarmiðstöðinni í meiri
upplifunarstað.
100 þúsund vörur í leitarvél Kringlunnar
Morgunblaðið/Hari
Sigurjón Örn Þórsson er fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar.
Kringlan eflir stafrænar
þjónustuleiðir og tekst á við
breyttar kröfur neytenda.
8