Morgunblaðið - 23.10.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019FRÉTTIR
the show
2O
2O
LOO
KS
GOO
D
7. — 1
1.2.
Maðurinn skapar framtíðina. Ambiente mótar
neytendavörumarkaðinn. Sköpunargáfa,
nýsköpun, alþjóðleg þekking og væntingar
renna saman. Greinin öðlast nýja orku á þessari
mikilvægustu alþjóðlegu vörusýningu.
#ambiente20
Upplifðu það núna: www.thespirit.video
VERÐLAUN
Fyrirtækið Curio hlaut nýsköp-
unarverðlaun Íslands árið 2019 og
voru verðlaunin afhent í gær af ný-
sköpunarráðherra, Þórdísi Kol-
brúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
Starfsemi Curio felst í þróun
fiskvinnsluvéla sem auka nýtingu
og skila betri afurð í vinnslu á bol-
fiski þegar kemur að afhausun,
flökun og roðflettingu en fyrirtækið
hefur einnig öryggismál og þrif að
að leiðarljósi. 85% véla fyrir-
tækisins selur Curio á erlendan
markað, einna helst í Noregi, Bret-
landi, Bandaríkjunum, Frakklandi
og Póllandi. Undanfarin ár hefur
félagið lagt meiri áherslu á þróun-
arstarf og eru starfsmenn félagsins
nú að vinna að þróun nýrrar véla-
línu fyrir lax og bleikju. Í tilkynn-
ingu segir að umrætt þróunarstarf
félagsins hafi skilað sér í nýjum og
áhugaverðum vinnsluvélum sem
hafi skilað félaginu mikilli veltu-
aukningu á undanförnum árum.
Fyrstu vélar undir vörumerkinu
Curio voru framleiddar af fyrir-
tækinu Gullmolum ehf. árið 2007 en
Curio ehf. var stofnað árið 2013 og
tók yfir þróun og framleiðslu vél-
anna.
Verðlaunin eru veitt af Rannís,
Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð
Íslands og Nýsköpunarsjóði at-
vinnulífsins til fyrirtækja sem
þykja hafa skarað fram úr í þróun
nýrrar vöru eða þjónustu sem er
byggð á rannsóknar- og nýsköp-
unarstarfi og hefur náð árangri á
markaði.
Starfsfólk nýsköpunarfyrirtækisins Curio tók við viðurkenningunni í gær.
Curio hlaut íslensku
nýsköpunarverðlaunin
Loksins kom að því að Íslendingar
eignuðust sitt eigið forrit í anda
Uber. Þeir lesendur sem reynt hafa á
ferðalögum sínum erlendis vita
hversu gagnlegt það er að geta notað
snjallsímann til að panta far með
leigubíl, en Ísland hefur rekið lestina
í þessum efnum og stóru alþjóðlegu
skutlfyrirtækin látið íslenska mark-
aðinn í friði.
Ívar Freyr Sturluson fer fyrir hópi
fjögurra ungra frumkvöðla sem smíð-
að hafa forritið Drivers Iceland
(www.drivers.is), sem gerir not-
endum kleift að panta bíl frá hvaða
leigubílastöð sem er. Þá er von á að
regluverk leigubílamarkaðarins taki
miklum breytingum á komandi miss-
erum, með þeim afleiðingum að fram-
boð leigubifreiða ætti að stóraukast
og munu sjálfstæðir leigubílstjórar
geta boðið þjónustu sína í gegnum
Drivers.
Að sögn Ívars hafa leigubílastöðv-
arnar gert tilraunir með forrit í anda
Uber en ekki átt erindi sem erfiði.
Ýmist hafi virkni forritanna ekki ver-
ið nógu góð eða svo vandasamt að
gera forritin vel að svaraði ekki
kostnaði fyrir staka leigubílastöð.
Drivers fer þá leið að vera opið bíl-
stjórum hjá öllum leigubílastöðv-
unum átta, ásamt þeim sem keyra
bíla úti á landi þar sem engar fastar
stöðvar eru. „Með þessu er verið að
bæta þjónustuna við viðskiptavini,
enda auðvelt að panta far í gegnum
forritið og hægt að sjá fyrir fram
áætlaðan kostnað fyrir hverja ferð.
Þá mun Drivers vonandi auðvelda er-
lendum ferðamönnum að panta leigu-
bíl og bæta þannig nýtingu leigubíla-
flotans.“
Lægra verð með betri nýtingu
Ívar bendir réttilega á að fyrir
marga ferðamenn sé það mjög fram-
andi að panta leigubíl með gamla lag-
inu, og langtum hentugra að nota for-
rit þar sem hægt er að sjá skýrt og
vel hvert leiðin liggur. „Með því að
fjölga viðskiptavinum og bæta nýt-
ingu leigubíla vonumst við líka til að
með tímanum verði hægt að lækka
Stefna öllum
leigubílum
á einn stað
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Forritið Drivers Iceland
virkar ekki ósvipað og forrit
Uber og gæti leikið lykil-
hlutverk í að greiða fyrir
þeim miklu breytingum
sem eru í vændum á ís-
lenskum leigubílamarkaði.
Drivers forritið gerir notendum
kleift að panta bíl frá hvaða
leigubílastöð sem er að sögn
Ívars Freys Sturlusonar.
HLUTAFJÁRÚTBOÐ
Hlutafjárútboði Iceland Seafood
International lauk hinn 18. október
síðastliðinn og bárust áskriftir fyrir
þrjá milljarða króna. Stjórn félags-
ins ákvað að taka 144 tilboðum í þá
225 milljón hluti sem boðnir voru til
sölu að andvirði 2,1 milljarður króna.
Gert er ráð fyrir að viðskipti með
hlutabréf félagsins hefjist þriðju-
daginn 29. október.
„Hluthöfum fjölgar um um það bil
100. Að stofninum til eru þetta ís-
lenskir fagfjárfestar sem eru að
kaupa þessi bréf,“ segir Bjarni Ár-
mannsson, forstjóri Iceland Seafood,
í samtali við ViðskiptaMoggann.
„Við teljum að við séum góð viðbót
inn á íslenskan hlutabréfamarkað.
Okkar áhætta liggur fyrst og fremst
utan Íslands og vaxtartækifærin
líka. Við eigum að hafa úr stærra
mengi tækifæra að spila og að geta
boðið upp á ákveðna áhættudreif-
ingu fyrir innlenda fjárfesta,“ segir
Bjarni.
Kvika banki var umsjónaraðili út-
boðsins og á vef bankans var haft
eftir Bjarna að ánægjulegt hefði ver-
ið að sjá þann mikla stuðning sem
fjárfestar hefðu sýnt félaginu.
„Sá áhugi sem félaginu var sýndur
í hlutafjárútboðinu er gott veganesti
fyrir skráningu á aðalmarkað Nas-
daq,“ segir Bjarni.
Bjarni Ármannsson er forstjóri Icelandic Seafood sem stefnir á markað.
Skráning ISI auki
áhættudreifingu