Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 8

Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 8
Fyrst og fremst leitarsíða Vöruleitin er í sífelldri þróun og uppfærist á 15 mínútna fresti en hugbúnaðurinn á bak við hana endurspeglar ávallt nýjustu upplýsingar á vefsíð- um þeirra verslana sem eru í Kringlunni. Að sögn Sigurjóns fylgir vöruleitinni því á engan hátt við- bótarvinna af hálfu rekstraraðila í Kringlunni sem á annað borð eru með virka vöruleit eða net- verslun. Sigurjón leggur aftur á móti áherslu á að við- skiptavinir klári ekki kaupin í vöruleit Kringl- unnar. „Þetta er fyrst og fremst leitarsíða. Þú ert að skoða búðargluggana í Kringlunni uppi í sófa heima og getur í raun vafrað um húsið og skoðað vöruúrvalið hvenær sem er. Hins vegar er það þannig að þú getur klárað kaupin hjá þeim versl- unum sem þegar eru með netverslun. Þá ferðu af okkar síðu inn á vef viðkomandi verslunar og klár- ar kaupin hnökralaust,“ segir Sigurjón og nefnir að Stafræna Kringlan sé í anda þess sem útleggst á ensku sem omnichannel, sem segja má að sé samruni stafrænnar tækni og hefðbundinnar verslunnar, en fyrrnefnd Edda Blumenstein legg- ur einmitt stund á doktorsverkefni sitt í þeim fræðum í Bretlandi. Ekki eru mörg ár síðan öryggisverðir þurftu reglulega að hafa afskipti af hópum ungmenna sem voru til vandræða innan veggja versl- unarmiðstöðva, og óskuðu starfsmennirnir þess eflaust heitast að þau myndu halda sig sem mest utan þeirra. Eftir þeim tíma man Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, sem stendur í dag ásamt öðrum forsvarsmönnum Kringlunnar á miklum tímamótum þar sem áherslan er allt önnur: að ná til yngri kynslóðar og þeirra sem hafa þróað með sér nýjar verslunar- venjur sem fara í auknum mæli fram á internet- inu. Undirbúningur fyrir hina svokölluðu Staf- rænu Kringlu, sem nú er komin í loftið, hefur staðið frá ársbyrjun 2018. Á nýrri heimasíðu Kringlunnar er búið að tengja heila verslunar- miðstöð undir einn hatt þar sem aðgengilegar eru yfir 100 þúsund vörur frá 70 verslunum. Stjórn Kringlunnar setti sér það markmið í upphafi árs 2018 að gera Kringluna að stafrænni versl- unarmiðstöð. Var það liður í því að koma til móts við breytta hegðun, væntingar og kröfur við- skiptavina. Að sögn Sigurjóns fóru forkólfar Kringlunnar í umfangsmikla stefnumótun um stafræna stefnu Kringlunnar og var það verkefni leitt af Eddu Blumenstein markaðssérfræðingi. Verkefnið var risavaxið „Við fórum í mikla greiningarvinnu. Hér inn- an húss fórum við svo í kjölfarið í mikla vinnu sem stjórn, starfsmenn og hagaðilar í rekstri hér í húsinu komu að. Úr varð svokölluð staf- ræn stefna Kringlunnar, sem var tilbúin í júlí 2018. Þá hófst sú vinna að velja sér ráðgjafa til þess að innleiða stefnuna. Við tókum stórt upp í okkur. Verkefnið var risavaxið og á sér ekki mörg fordæmi,“ segir Sigurjón í samtali við ViðskiptaMoggann. „Við erum verslunarmiðstöð og erum nokk- urs konar hattur yfir fjölda þjónustu- og rekstraraðila sem allir stýra sínum þáttum ein- angrað. Verkefni okkar er að draga þessa aðila alla saman undir einn hatt þannig að fólk geti nálgast allar vörur í viðkomandi verslunum á einum stað,“ segir Sigurjón. Að sögn hans var verkefnið metnaðarfullt og kostnaðarsamt fyrir Kringluna, en meðal sam- starfsaðila hennar sem stóðu að þessu verkefni voru Tactica, Parallell, Kosmos og Kaos. „Það voru efasemdaraddir sem heyrðust strax í upp- hafi. Þetta var mikil áskorun en núna ári síðar getum kynnt til sögunnar nýja leitarvél á heimasíðu Kringlunnar. En svona aðgerð er alltaf dýr og er kostuð að stórum hluta til af eigendum Kringlunnar, Reitum, sem lögðu mikla áherslu á að þetta verkefni tækist sem best,“ segir Sigurjón. „Við settum okkur það markmið að þegar við færum í loftið værum við búin að ná 60 versl- unum af 115 inn í leitina. Nú þegar erum við með rúmlega 70 verslanir og svo munu þær bætast við ein af annarri. Verslanir eru mis- jafnlega langt á veg komnar með tæknilegar útfærslur hjá sér en við erum að aðstoða aðila í ferlinu til þess að geta orðið hluti af vöruleit Kringlunnar,“ segir Sigurjón. „Fyrsta skrefið hjá okkur í þessu er að þú getir skoðað vöruúrval Kringlunnar á netinu. Það sem rannsóknir okkar sýndu var að yfir 50% þeirra sem eru í kauphugleiðingum hefja leitina á netinu. Og þar til nú var Kringlan sem heild ekki hluti af vöruleit fólks á netinu. Núna erum við komin á þann stað og erum á þessum stóra markaði sem internetið er og erum þar af leiðandi valkostur þegar kemur að vöruleit og vörukaupum. Lang- stærstur hluti neytenda vill hefja leit að vörunni á netinu en fara svo í búðina og kaupa vöruna. Sam- kvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar eru ein- ungis um 3% af vörukaupum Íslendinga í flokki smásölu gerð í gegnum netið. Þar erum við dálitlir eftirbátar annarra þjóða, sem ná margar hverjar upp í 10% hlutdeild hvað þetta varðar. En vöxt- urinn hefur verið í kringum 15% á ári,“ segir Sig- urjón. Fleiri stafrænar þjónustuleiðir Auk nýrrar leitarsíðu hefur Kringlan tekið fleiri stafrænar þjónustuleiðir í notkun til þess að auka sveigjanleika í rekstri og hækka þjónustustigið. „Kringlan hefur frá upphafi verið leiðandi í verslunarháttum og þótt leitarsíðan sé stærsti hlutinn af þessari stafrænu innleiðingarstefnu hjá okkur erum við einnig að koma til móts við ólíka þjónustuþætti. Þar mætti nefna „smella og sækja“ (e. click and collect) þjónustuna þar sem fólk getur sótt vörur og nálgast þær á sínum for- sendum og þar sem það vill. Við erum komin með þjónustuver hér þar sem bæði Pósturinn og DHL hafa sett upp afgreiðsluskápa. Svo er Kringlan sjálf með afgreiðsluskápa þar sem utanaðkomandi netverslanir og verslanir hér geta afhent sínar vörur. Þetta er hagræði fyrir fólk til þess að nálg- ast vöruna en einnig fyrir verslanir okkar sem geta afhent vörur sínar utan afgreiðslutíma Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Verslunarmiðstöðvar þurfa að laga sig að breyttum neysluvenjum og breyttum kröfum neytenda að sögn Sigurjóns Arnar Þórssonar, fram- kvæmdastjóra rekstrarfélags Kringl- unnar, sem hefur nú sett í loftið nýja og glæsilega vöruleit á heimasíðu sinni með yfir 100 þúsund vörum frá 70 verslunum Kringlunnar. Auk nýrr- ar leitarsíðu hefur Kringlan tekið fleiri stafrænar þjónustuleiðir í gagnið til þess að auka sveigjanleika í rekstri og hækka þjónustustigið. ” Margir segja að á næstu 10 árum verði meiri þróun og breyting í verslun en á síðustu 50 árum. Þar spilar þessi stafræna umbreyting og mikil tækniþróun auð- vitað stórt hlutverk. Takast á við stórstígar 8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019VIÐTAL Vöruleitin á vefsíðu Kringlunnar var að sögn Sigurjóns risavaxið verkefni sem á sér ekki mörg fordæmi en Kringlan dregur með framtakinu rekstraraðila sína saman á einn stað þar sem aðgengilegar eru yfir 100 þúsund vörur frá 70 verslunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.