Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 13SJÓNARHÓLL Árið 1896 flutti Björn Þorláksson bóndi áVarmá inn vélar til að vinna ull og notaði til þess vatnsorku úrÁlafossi. Verksmiðjan átti stóran þátt í stofnun og vexti byggðar íMosfellsbæ Álafoss , Álafossvegi 23 Mosfellsbæ, Laugavegi 4-6, alafoss.is BÓKIN Sú var tíð að stjórnendur fyrirtækja áttu að hafa aðeins eitt að leiðarljósi: skila sem mestum hagnaði svo að hagur eigenda fyrirtækisins yrði sem bestur. Vægðarlaus og ískaldur kapítal- ismi þótti það eina sem vit væri í, og í raun öllum fyrir bestu enda helst það í hendur að skila góð- um arði og að bjóða viðskiptavinum sem besta vöru eða þjón- ustu á sem hagstæð- ustu verði. En smám saman hefur þetta viðhorf breyst, og ríkari kröfur verið gerðar til fyrirtækja að hugsa vel um allt og alla. Það þykir smánarlegt að valda tjóni á umhverfinu, og verður að stórum bletti á orðspori fyrirtækja ef þau bjóða starfsfólki í verksmiðjum sínum upp á bág kjör og slæmar vinnuaðstæður. Sarah Kaplan, sem kennir við Rot- man-viðskiptaháskólann í Toronto, fjallar um þetta fyrirbæri í nýrri bók: The 360° Corporation – From Stake- holder Trade-Offs to Transformation. Titill bókarinnar vísar til þess að fyrirtæki þurfi í dag að huga að því hvernig rekstur þeirra hefur áhrif á allt þeirra umhverfi. Miklu fleiri eiga hagsmuna að gæta en bara þeir sem eiga reksturinn og þeir sem kaupa vörurnar. Vand- inn er að frá sjónarhóli stjórnandans getur það oft virst bæði dýr og erfið ákvörðun að taka samfélags- og um- hverfisáhrif með í reikninginn. Þegar töl- urnar eru settar upp í excel-skjali kemur vægðarlausa og ískalda rekstrarmód- elið betur út. Kaplan vill meina að það þurfi að skoða hlutina enn dýpra, og ráðast í grundvallarbreytingar frekar en að laga bara það sem blasir við á yfir- borðinu. Allt önnur vinnubrögð, allt aðrar áherslur, ferlar og vinnubrögð. Þeir sem þora að taka stökkið, og hafa það úthald sem þarf, standa oft- ar en ekki uppi sem sigurvegarar, að mati höfundar. ai@mbl.is Fyrirtæki hugsi vel um allt og alla Hinn 25. júní sl. voru lög um Höfðaborgarsamning-inn um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyf-anlegum búnaði og bókun um búnað loftfara samþykkt á Alþingi. Með lögunum tók téður Höfðaborg- arsamningur þó ekki samstundis gildi hér á landi heldur var ráðherra veitt heimild til þess að fullgilda samninginn fyrir Íslands hönd. Tilgangur samningsins er að efla rétt- arvernd kröfuhafa sem eiga hagsmuna að gæta í loftför- um á grundvelli fjármögnunar- eða leigusamninga ásamt því að gera skrásetningu réttindanna einfaldari og gagn- særri. Þannig færist skráning alþjóðlegra réttinda í loft- förum til dæmis frá hinni fýsísku loftfaraskrá Sýslu- mannsins á höfuðborgarsvæðinu yfir í hina alþjóðlegu réttindaskrá sem er að öllu leyti rafræn. Er sú réttindaskráning mun nútímalegri en sú sem við- höfð er hér á landi, en núgildandi lög um skrásetningu réttinda í loftförum voru sett árið 1966. Höfðaborgarsamningurinn var upphaflega gerður árið 2001 í því skyni að móta heildstætt lagaum- hverfi um tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði þar sem tekið yrði tillit til sérstöðu rétt- indanna yfir hverjum búnaði fyrir sig í bókunum. Aðildarríkjum er þó léð ákveðið svigrúm við innleiðingu samningsins í landsrétt þar sem sum ákvæði hans verða einungis virk ef gerð er sérstök yfirlýsing þess efnis og önnur er hægt að undanskilja frá innleiðingu samningsins með yfirlýs- ingu þess efnis. Það er almennur samhljómur um að fjármagnskostnaður í tengslum við kaup eða leigu á flugvélum hafi farið lækkandi í þeim ríkjum sem innleitt hafa samninginn með fullnægjandi hætti. Stafar það af því að áhætta kröfuhafa í tengslum við réttarvernd og fullnustuúrræði þeirra hefur verið takmörkuð með ákvæðum samningsins. Það gefur enda auga leið að eig- endur loftfara, sem hafa leigt þau út, geta orðið fyrir miklu tjóni ef þeir þurfa að bíða lengi eftir því að ná aft- ur yfirráðum yfir eign sinni í kjölfar vanefnda leigutaka. Loftför eru líklega eitt dýrasta lausafé samtímans og því felst mikil sóun í því ef þau eru látin standa aðgerð- arlaus að tilefnislausu. Þrátt fyrir að Höfðaborgarsamningurinn hafi ekki enn verið fullgiltur af hálfu Íslands hafa nú þegar tekið gildi ákveðin lagaákvæði sem ætlað er að laga íslenskan rétt að ákvæðum sáttmálans, sbr. 12. gr. laga nr, 74/2019. Þar kemur til að mynda fram í c-lið að Samgöngustofu sé heim- ilt að verða við beiðni um afskráningu loftfars og útflutning, enda sé það í samræmi við gildandi löggjöf á sviði flug- öryggis, ef beiðni er framvísað af þar til bærum aðila á grundvelli óafturkræfrar heimildar til að biðja um afskrán- ingu og útflutning sem skráð er af Samgöngustofu og þar til bær aðili vottar að fyrir liggi skriflegt samþykki hand- hafa skráðra tryggingarréttinda sem ganga framar trygging- arréttindum kröfuhafans til af- skráningar loftfarsins eða að slík tryggingarréttindi séu niður fallin. Er hér um nokkurs konar utanréttarúrræði að ræða sem eru fremur fátíð í íslenskum rétti enda þurfa kröfuhafar almennt að höfða aðfararmál til þess að réttindi þeirra verða fullnustuð. Í framkvæmd mun þetta ákvæði væntanlega gera það að verkum að flugrekendum verður gert að skrifa undir slíka heimild við upphaflega samningsgerð sem kröfuhafi getur þá lagt fram ef vanefndir eiga sér stað. Það er jákvætt að nú hafi verið samþykkt lög hér á landi sem greiða fyrir innleiðingu Höfðaborgarsamningsins í ís- lenskan rétt. Það er bæði fjármögnunaraðilum og flugrek- endum til góðs að aðilar hafi vissu fyrir því að hægt sé að skrásetja réttindi yfir loftförum með einföldum og skjót- virkum hætti og að fullnustuúrræði gangi hratt fyrir sig. Sennilega eru fá dæmi um að löggjöf geti með þessum hætti lækkað fjármagnskostnað þannig með beinum hætti. Það ætti því að vera forgangsmál að tryggja aðild Íslands að Höfðaborgarsamningnum sem allra fyrst svo innleið- ingu sáttmálans í íslenskan rétt verði að fullu lokið, en það yrði öllum aðilum sem koma að flugvélaviðskiptum til góðs. Höfðaborgar- samningurinn LÖGFRÆÐI Ari Guðjónsson yfirlögfræðingur Icelandair Group ” Þrátt fyrir að Höfðaborg- arsamningurinn hafi ekki enn verið fullgiltur af hálfu Íslands hafa nú þegar tekið gildi ákveðin lagaákvæði sem ætlað er að laga íslenskan rétt að ákvæðum sáttmálans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.