Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019FRÉTTIR Meryl Streep skrúfar frá öllum sín- um hæfileikum í mögnuðu lokatriði The Laundromat, og hrífur áhorf- andann með sér í þessari glænýju netflixkvikmynd um Mossack Fon- seca og Panamaskjölin. Þar les hún upp úr stefnuyfirlýs- ingu manneskjunnar á bak við gagnalekann sem skók heimsbyggð- ina árið 2016 og svipti hulunni af alls kyns glæpum og undanskotum. „Bankar, eftirlitsstofnanir fjár- málageirans og skattayfirvöld hafa brugðist skyldum sínum. Ákvarð- anir hafa verið teknar sem hafa hlíft þeim ríku en fært byrðarnar á herðar meðal- og lágtekjufólks,“ segir í yfirlýsingunni sem uppljóstr- arinn sendi frá sér nokkru eftir að hafa hleypt öllu í háaloft. Hann, eða hún, kemur víða við; fjallar um mis- skiptingu auðs, valdakerfi gegnsósa af spillingu, vanhæfa fjölmiðla, sið- ferðisbrest og ósanngirni. „Í þessu kerfi – því kerfi sem við búum við – hafa þrælarnir enga hugmynd um hlutskipti sitt, né hverjir það eru sem stjórna þeim [enda eru þeir] vandlega faldir á bak við flókna lagabálka, langt utan seilingar.“ Allt sem Mosscak Fonseca snerti er í dag geislavirkt, og ríki heims hafa einsett sér að þrengja enn meira að skattaparadísum, setja aflandsfélög undir smásjá og passa að enginn geti spilað eftir öðrum reglum en allir hinir. Svo lenti Ísland, sísvona, á gráum lista hjá samtökum sem leiða her- ferðina gegn peningaþvætti og fjár- mögnun hryðjuverka. Allt fór á ann- an endann og úr öllum áttum var skotið fast á bæði stjórnsýslu og stjórnmálamenn. „Þvílíkt fúsk! Hvernig gat þetta gerst? Ísland komið niður á jafn lágt plan og Pak- istan, Gana og Sýrland! Við sem ætluðum aldeilis að taka okkur á eftir sársaukafullar lexíur banka- hrunsins. Hverjir fleiri eru þetta á gráa listanum, Panama og Bahama- eyjar? Náið í ilmsöltin!“ Stöldrum samt aðeins við. Kannski er það hreinlega í fínasta lagi að vera á gráa listanum. Eða hvað ef baráttan gegn peninga- þvætti er á rangri braut? Það sakar ekki að spyrja. Þeir sem gefa engan afslátt af frjálshyggjunni myndu jafnvel segja að það geti verið já- kvætt að vera kominn í félagsskap Panama og Bahamaeyja, þar sem fólk fær að eiga sitt í friði. Mikill kostnaður en sáralítill ávinningur Alls kyns rumpulýður kemur við sögu í The Laundromat; fjár- svikafólk, harðstjórar, morðingjar og grútspilltir embættismenn. Það er eðlilegt að vilja gera þannig fólki erfitt fyrir að stunda illvirki sín og hagnast á þeim. En þau kerfi og að- ferðir sem stofnanir á borð við FATF vilja að allar þjóðir heims innleiði íþyngja öllum banka- og fjármálafyrirtækjum. Hvert og eitt okkar þarf að yfirstíga ögn fleiri og hærri hindranir, greiða ögn meira fyrir hverja færslu og þola ögn lengri bið vegna þess að hver pen- ingasending er undir smásjá yfir- valda. Á einum stað var áætlað að það kostaði alla banka heims um 70 milljarða dala árlega að fullnægja skilyrðum laga um eftirlit með pen- ingaþvætti en varnirnar dugi samt ekki til að stoppa nema 25 milljarða dala virði af illa fengnu fé. Fagsam- tökunum BAFT reiknast til að af öllu þvættu fé renni um 99% í gegn- um fjármálakerfið án þess að vekja nokkrar grunsemdir, en að af hverj- um tíu færslum sem eftirlitsbúnaður bankanna flaggar séu níu fullkom- lega löglegar. Er ekki hægt að klekkja á misind- ismönnum þess heims og kippa fót- unum undan hryðjuverkastarfsemi án þess að flækja bankaviðskipti okkar hinna? Hvað ef þeir 70 millj- arðar sem bankarnir, og þar með viðskiptavinir þeirra, þurfa að sjá á eftir í þessa hít ár hvert færu frekar í beinharðar rannsóknir og löggæslu – væri það ekki gáfulegra? Gleymum heldur ekki að spyrja hvernig stjórnmálamenn og stofn- anir ákveða hver fær að vera inni í hlýjunni og hver úti í kuldanum. Þannig hafa t.d. íslensk félög sem sýsla með rafmynt átt erfitt með að fá að nota greiðslumiðlunarkerfi bankanna. Þeir bera það fyrir sig að samstarfsbankar þeirra erlendis gú- teri ekki rafmyntarstarfsemi. Þá er skemmst að minnast þess að fjár- málaráðherrar og seðlabankastjórar Evrópu virðast hafa sammælst um að kæfa facebook-rafmyntina líbru í fæðingu. Þeir vísa í hættuna á pen- ingaþvætti og óstöðugleika í pen- ingakerfinu, en mörgum þykir skína í gegn að það sem ráðamenn óttast mest af öllu sé að seðlaprentunar- vald þeirra verði að engu. Einn við- mælandi minn líkti þessu, nokkuð réttilega, við eins konar samtrygg- ingarkerfi þeirra sem sitja við stjórnvölinn og vilja ekki fyrir nokkra muni hleypa öðrum að. Í Bandaríkjunum ráku frum- kvöðlar sig á, þegar stjórnvöld tóku að slaka ögn á vímuefnalögum og leyfa neyslu, ræktun og sölu á kannabis. Þá þorðu bankarnir ekki að leyfa nýopnuðum hassplöntu- fyrirtækjum að opna hjá sér reikn- ing og það þrátt fyrir að stjórnvöld hefðu tekið það skýrt fram að bank- arnir hefðu ekkert að óttast. Þessu tengt væri fullkomlega eðlilegt að spyrja hversu mikið af því fé sem er verið að reyna að stoppa með pen- ingaþvættisvörnum er ágóði af starfsemi sem ætti hvort eð er ekki að vera ólögleg s.s. sala á vímuefn- um og vændi. Aðrar leiðir að sama marki Sérfræðingum FATF gengur ef- laust gott eitt til (þótt það sé óheppilegt hve mikil leynd virðist hvíla yfir ferlum og vinnubrögðum stofnunarinnar) og sama gildir örugglega um þá íslensku stjórn- málamenn sem er um og ó yfir því að landið hafi slysast inn á gráa listann. En hvað með að við notum tækifærið og skoðum vel og vand- lega hvar við viljum standa, og hvort það samræmist mögulega gildum okkar og metnaði að gera eitthvað allt annað en FATF mælist til – og segjum svo frá því í heims- pressunni, svo vinaþjóðir okkar haldi ekki að við viljum leggja út rauða dregilinn fyrir alla heimsins skúrka og skítseiði. Minnum á að allt þetta umstang skilar aðeins því að 1% af pen- ingaþvætti er stöðvað, og að það hljóti að vera vísbending um að beita þurfi allt annarri nálgun á vandann. Að kannski, eins og með svo mörg af þeim verkefnum sem hið opinbera efnir til af góðum ásetningi, sé lækningin verri en sjúkdómurinn. Þá ætti FATF-klúðrið líka að minna okkur á að skúrkarnir eru líklega langtum snjallari og slótt- ugri en blessaðir stjórnmálamenn- irnir sem höfðu nærri fimmtán ára tilhlaup til að koma í veg fyrir að lenda á gráa listanum. Meira að segja á 3. áratug síðustu aldar, löngu fyrir tíma aflandsreikn- inga, IBAN-númera og bitcoin, gætti sprúttsalinn Al Capone þess að skrá ekki eina einustu eign á sjálfan sig og ef hann þurfti að senda pening sendi hann lágar fjár- hæðir í einu til að vekja ekki grun- semdir. Er gaman að minnast þess að Capone, sem á okkar tímum hefði fengið að starfa sem ósköp heiðar- legur vínsali, klikkaði á því sama og viðskiptavinir Mossac Fonseca: lög- fræðingurinn kjaftaði af sér. Yfir- völd höfðu nappað bróður hans fyrir skattaundanskot og Capone vildi ekki lenda í sömu gildru svo hann bað lögfræðing sinn að fara í málið. Lögfræðingurinn hafði samband við yfirvöld og sagði skjólstæðing sinn tilbúinn að borga skatta af svo og svo háum tekjum fyrir tiltekin ár og þar með hafði saksóknari loksins einhver gögn í höndunum til að sækja Capone til saka. Capone var ekki einu sinni með bankareikning. Er svo slæmt að vera grár? Ásgeir Ingvarsson skrifar frá Istanbúl ai@mbl.is Þegar litið er á kostnaðinn og ávinninginn af aðgerð- um gegn peningaþvætti verður ekki hjá því komist að spyrja hvort betra væri að finna aðrar lausnir á vandanum. Í kvikmyndinni The Laundromat sýnir Meryl Streep stjörnuleik. Boðskapur hennar er m.a. að betur má ef duga skal. En ef til vill er verið að nálgast vandann frá röngum enda með vörnum gegn peningaþvætti sem íþyngja okkur öllum. BÍLAMERKINGAR Vel merktur bíll er ódýrasta auglýsingin Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.