Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Gríðarlegur áhugi var á Íslandi og ís-
lenskum vörum á alþjóðlegu menning-
arhátíðinni „Heimur án landamæra,
framtíðin er núna“ sem haldin var í
Peking-háskóla um helgina. Þetta var
í 16. skipti sem hátíðin er haldin í höf-
uðborg Kína en ólíkt fyrri skiptum var
Ísland nú meðal þátttökuþjóða. Tvö
íslensk fyrirtæki, Brim og Bioeffect,
sem verið hafa að hasla sér völl á kín-
verskri grundu, komu að hátíðinni.
Meðal vara sem dreift var til gesta og
gangandi voru íslenskar húðvörur og
fiskur, sem hvorutveggja vakti mikla
lukku. Fyrirtækin hafa bæði verið í
mikilli sókn á Asíumarkaði, en til
marks um það má benda á að Bio-
effect fékk til liðs við sig fimm nýja
starfsmenn í fyrra til að styðja við
vöxt fyrirtækisins erlendis. Ef
marka má viðbrögð kínverskra gesta
er ljóst að vaxtarmöguleikar fyr-
irtækjanna í Kína eru gríðarlegir.
Það má því með sanni segja að hátíð-
in hafi heppnast með eindæmum vel
og forvitnilegt verður að fylgjast
með því hvort sókn fyrirtækjanna á
Kínamarkaði heldur áfram af sama
krafti næstu misseri.
Alls voru námsmenn frá 58 mis-
munandi löndum og landshlutum í
Kína meðal þátttakenda á hátíðinni.
Tilgangur hennar er að veita alþjóð-
legum nemendum í Peking tækifæri
til að kynna eigin menningu fyrir
Kínverjum jafnt sem öðrum alþjóð-
legum nemendum.
Við kynningarbás Íslands stóðu
vaktina alls fimm íslenskir nem-
endur úr háskólum í Peking og
kynntu viðstöddum íslenska menn-
ingu.
Íslenskar húðvörur og fiskur vöktu mikla lukku meðal þeirra sem kíktu á ís-
lenska básinn á alþjóðlegri menningarhátið Peking-háskóla í Kína.
Vöktu mikla
athygli í Peking
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Íslenskar vörur frá Brim og
Bioeffect vöktu mikla at-
hygli á alþjóðlegri menn-
ingarhátíð sem haldin var í
Peking háskóla.
Stærstu þoturnar í íslenska flug-flotanum eru af gerðinni Boeing
767-300. Fullhlaðnar vega þær tæp
160 tonn. Það þarf mikið afl til að
koma slíkum farmi í loftið en alltaf
verður Innherji jafn hissa þegar
flugmönnum félagsins tekst að lenda
þessum risum jafn mjúklega og raun
ber vitni. Það er ekki gert á neinni
smáferð, heldur á ríflega 200 kíló-
metra hraða.
Í líkingamáli er gjarnan talað umhvernig samfélögum tekst að
lenda heilu hagkerfunum. Teljast
lendingar þar oftast nær mjúkar eða
harðar – sjaldnast er þar nokkuð á
milli. Um nokkurra mánaða skeið
hafa fyrirtækjastjórnendur og for-
svarsmenn ríkissjóðs, ásamt flug-
umferðarstjórunum í Seðlabank-
anum, unnið að því að stilla íslensku
breiðþotuna af í von um að tryggja
megi henni sem mýksta lendingu
eftir lengsta flug sögunnar, þ.e. í
hagsögulegu tilliti.
Margt bendir til þess að þaðmuni takast. Ræður þar
miklu sú staðreynd að enn hefur ís-
lenski seðlabankinn stjórntæki sem
duga – stýrivexti sem hægt er að
lækka, auk annarra stjórntækja sem
grípa má til eftir því sem þurfa þyk-
ir. Þykir það mikið öfundarefni víða
um lönd þar sem víða er búið fyrir
löngu að leggja þann búnað af með
vaxtastigi við frostmark.
Vandasamasta verkefnið í þessumikla aðflugi, sem skiptir alla
Íslendinga máli, hefur tengst sjálfri
ferðaþjónustunni og hvernig henni
muni reiða af eftir hið dramatíska
fall WOW air fyrr á þessu ári.
Hliðarvindurinn hefur reynst erf-
iður, einkum sá sem birst hefur í
fækkun ferðamanna. Þar glittir þó í
jákvæð tíðindi. Tölur Hagstofunnar
sem sýna tekjur þjóðarbúsins af er-
lendum ferðamönnum fylla þann
flokk. Á öðrum ársfjórðungi þessa
árs drógust þessar tekjur saman um
7%. Lækkunina má hins vegar að
öllu leyti rekja til flugreksturs. Aðr-
ar tekjur, þ.e. þær sem lúta að
neyslu erlendra ferðamanna hér á
landi, hafa staðið í stað. Það gera
þær þrátt fyrir að talsvert færri
leggi leið sína hingað en áður. Hver
og einn leggur meira til og það eru í
raun alveg hreint frábært tíðindi.
Eyðsluglaðir gestir
Morgunblaðið/Ómar
Lendingar eru mjúkar eða harðar.
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Fékk 7,5 milljónir fyrir rannsóknina
Aðeins 70 á lista Creditinfo frá upp …
Taka ekki afstöðu til frétta af Boeing
Helgi eignast Fréttablaðið
„Ekki bestu eigendur alþjóðlegra …
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Eins og þeir vita sem þekkja migvel fellur mér sjaldan verk úr
hendi. Um daginn gerðist það hins
vegar að ég hafði nákvæmlega ekk-
ert að gera. Þá varð mér litið á far-
símann minn og á þann aragrúa
smáforrita sem þar voru. Hér er
verk að vinna, hugsaði ég, þarna má
taka hressilega til.
Eftir að ég hafði skrunað yfirlistann af öppunum velti ég fyr-
ir mér hvort forritin endurspegluðu
margþætt og spennandi áhuga-
málasvið mitt eða hvort ég væri ein-
faldlega þræll neyslusamfélagsins.
Við skoðunina komst ég að því aðrétt eins og maður þarf að taka
reglulega til í bílskúrnum heima hjá
sér er nauðsynlegt að taka reglulega
til í símanum sínum.
Sem betur fer er frekar auðvelt aðtaka til í símanum; maður styð-
ur bara fingri á hann og dregur
draslið í rafrænu ruslakörfuna. Það
eina sem er erfitt er þegar maður fer
að finna til með framleiðendum for-
ritanna.
Meðal forrita sem fengu að fjúkaí þessari tiltekt voru t.d.
nokkur sem nýttust mér í sumarfríi
á Ítalíu síðasta sumar en höfðu eng-
an tilgang lengur í fimbulkuldanum
hér heima.
Þegar tiltektinni lauk var ég meðeinungis 67 bráðnauðsynleg
forrit í símanum mínum.
Tiltekt í
símanum
Frumvarpsdrög um
breytingar á sam-
keppnislögum valda
Samkeppniseftirlitinu
miklum vonbrigðum.
SKE varar við
frumvarpi
1
2
3
4
5