Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 7FRÉTTIR
Það er vel við hæfi að Ólafur Lauf-
dal, eigandi Hótel Grímsborga, sé
fyrstur manna til þess að reka hótel
sem fær fimm stjörnu vottun hér á
landi. Hann hefur verið lengi í
bransanum og hóf störf sín sem pik-
kaló 12 ára gamall á Hótel Borg á
6. áratug síðustu aldar. Ólafur segir
að ferlið hafi tekið nokkra mánuði
og að uppfylla hafi þurft ýmis skil-
yrði. Það hafi þó ekki verið neitt til-
tökumál fyrir Hótel Grímsborgir
þar sem hótelið uppfyllti þau öll
fyrir að sögn Ólafs. „Það var nú
ekkert sérstaklega erfitt. Maður
var með þetta á hreinu nokkurn
veginn,“ segir Ólafur í samtali við
ViðskiptaMoggann aðspurður hvaða
skilyrði hafi verið erfiðast að upp-
fylla. Þó nefnir hann að hann þurfi
að vera með næturmat og herberg-
isþjónustu allan sólarhringinn.
Vottunarstofan Tún og Ferða-
málastofa veittu vottunina en ásamt
Hótel Grímsborgum hlaut The
Reatreat Bláa lónsins einnig fimm
stjörnu vottun.
En hvers vegna sóttist Ólafur eft-
ir stjörnunum fimm á þessum tíma-
punkti? „Það var ekki út af neinu
sérstöku. Það kom upp hugmynd
um að það væri gaman að reyna að
fá fimmtu stjörnuna,“ segir Ólafur.
Strangt próf
Aðspurður bindur Ólafur vonir
við það að fimm stjörnu vottunin
komi til með að hafa markaðslegt
gildi fyrir starfsemina. „Alveg
örugglega. Það hjálpar mjög mikið
upp á að vera fyrst til að fá þetta.
Þú færð ekki meira en fimm stjörn-
ur. Það eru ekkert margir á landinu
sem koma til með að fá þetta. En
þessu fylgja alls konar kröfur.
Þetta er strangt próf sem þarf að
fara í gegnum,“ segir Ólafur.
Ólafur hóf uppbyggingu á svæð-
inu fyrir 10 árum í þremur til fjór-
um húsum en í dag rekur hann hót-
elið í 15 húsum, er með gistipláss
fyrir 240 manns, íbúðir sem telja
200 fermetra, aðrar minni, svítur
sem fara upp í 50 fermetra, venju-
lega hótelganga og 29 heita potta.
Gistirýmin eru því mjög fjölbreytt.
Þá er lifandi tónlist á staðnum á
hverju kvöldi og alltaf nóg að gera
um helgar og tekur salurinn hjá
Ólafi 200 manns í sæti. „Við erum
með talsvert mikið af afmælum,
brúðkaupum, árshátíðum, og fund-
um. Það er alltaf eitthvað. Í dag
bjóðum við upp á villibráð og þá
styttist í jólahlaðborðið okkar.“
95% erlendir gestir á sumrin
„Nú erum við með Bee Gees-
sýningu undir stjórn Gunnars Þórð-
arsonar, sem er alveg frábær sýn-
ing og hún verður alveg til jóla.
Flesta laugardaga er eiginlega upp-
selt. Það er mjög mikið bókað
hérna á föstudögum og laug-
ardögum,“ segir Ólafur en í fyrra
var hann með sambærilega Abba-
sýningu, einnig undir stjórn Gunn-
ars, og þurfti Ólafur að vísa 1.500
manns frá, en þeir félagar, Ólafur
og Gunnar settu upp sömu sýningar
fyrir 25 árum á Hótel Íslandi. Að
sögn Ólafs eru 95% gesta á sumrin
útlendingar.
„En núna á þessum tíma eru
fleiri Íslendingar og hjá þeim njóta
sýningarnar mikilla vinsælda.“ Að
sögn Ólafs er mjög misjafnt hvernig
bókunarstaðan á hótelinu er yfir ár-
ið. „Stundum er alveg smekkfullt
hérna. Þannig var það um síðustu
helgi en svo ertu með daga þar sem
það er alls ekki mikið. Sumrin eru
mjög vel bókuð en þú nærð sjaldan
100% bókun,“ segir Ólafur sem seg-
ir reksturinn almennt ganga vel
þótt lítillegur samdráttur sé í starf-
seminni miðað við bestu árin, 2016-
17.
Færð ekki meira en fimm stjörnur
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Ólafur Laufdal, einn reynd-
asti hótel- og veitinga-
maður landsins, landaði
fimm stjörnu vottun fyrir
Hótel Grímsborgir.
Morgunblaðið/RAX
Það er oft smekkfullt á Hótel Grímsborgum sem fékk fyrst hótela hér á landi fimm stjörnu vottun fyrir starfsemina.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Einnig getum við úvegað
startara og alternatora
í allskonar smávélar
frá Ameríku
Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði
í alternator og startaraviðgerðum.
Við höfum áratuga reynslu í
viðgerðum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Verkstæðið er með öll nauðsynleg
tæki og tól til þessara verka.
Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í
prufubekk til að tryggja að allt sé
í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum.
Áratug
a
reynsla