Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019
LÍFSSTÍLL
Stálhjartað í Kolkata
Hvernig sem heimurinn veltirsér og snýst, hvað semgengur á nær eða fjær og
hvernig sem viðrar, þá heldur fjöld-
inn áfram að streyma yfir hina hálf-
áttræðu Howrah-brú í Kolkata.
Brúna sem heimamenn segja margir
hjartað í borginni, og víst er hún
þekktasta kennileitið og þrátt fyrir
að nú orðið teygi fjórar brýr sig yfir
Hooghly-fljótið, og tengi Kolkata og
systurborgina Howrah á vest-
urbakkanum, þá er Howrah-brúin
enn sú langfjölfarnasta af þeim en yf-
ir hana fara um 100 þúsund bílar dag
hvern og um 150 þúsund gangandi
vegfarendur. Á árum áður fóru líka
nokkur þúsund kýr yfir brúna dag
hvern en það er ekki leyft lengur.
Þetta er sjötta lengsta hengibrú
jarðar en engin önnur er jafn mikið
notuð, og er talið að notkunin hafi
áratugum saman verið langt yfir þol-
mörkum brúarinnar.
Kolkata-borg hefur gengið gegn-
um margskonar breytingar. Ekki
eru til að mynda nema 18 ár síðan
breytt var um nafn á borginni sem
hét áður Kalkútta. Hún var byggð
upp á bökkum Hooghly-fljóts af hinu
breska Austur-Indíafélagi sem náði á
átjándu öld völdum í þessu víðfeðma
landi, og þegar bresk stjórnvöld tóku
við stjórninni á nítjándu öld varð
Kalkútta höfuðborgin en hún var
einnig orðin miðstöð viðskipta í hinu
víðfeðma Bengal-ríki. Á síðustu öld
var svo smám saman dregið úr mætti
Kalkútta, Nýja-Delí varð höfuð-
borgin og við sjálfstæði og uppskipt-
ingu Indlands árið 1947 varð stór
hluti Bengal að Austur-Pakistan,
sem nú er Bangladess, og þar með
missti borgin stóran og mikilvægan
hluta baklands síns.
En Kolkata skrapp þó ekki saman,
þótt hún missti fyrri efnahagslegan
styrk. Fólkinu hefur sífellt fjölgað og
er hún í dag næstfjölmennasta borg
Indlands – í henni búa yfir 14 millj-
ónir manna – og er ein sú þéttbýlasta
á jörðinni. Og hún er höfuðstaður
ríkisins sem nefnist í dag Vestur-
Bengal. Borgin hefur löngum verið
rómuð miðstöð menningar, mennt-
unar og lista á Indlandi en um og upp
úr aldamótunum 1900 var skáldið
Rabindranath Tagore (1861-1941)
fyrir miðju menningarlífsins en þessi
fjölhæfi listamaður, sem var einnig
tónlistar- myndlistar- og kennimað-
ur, varð fyrstur Indverja, og í raun
Asíubúa, til að hreppa Nóbels-
verðlaunin, árið 1913. Og brúin var
reyndar árið 1965 nefnd eftir Tagore,
Rabindra Setu, en það nafn hefur
aldrei fest við hana.
Engin fegurðarverðlaun
Howrah-brúin er eins og segull í
miðri Kolkata, segull sem dregur að
sér fólk og vörur. Hún fengi seint
fegurðarverðlaun, og er þvert á móti
allklunnaleg með neti breiðra stálbit-
anna sem halda henni saman. En hún
þykir vel og traustlega hönnuð en
hafið milli turnanna sem bera brúna
uppi er um 460 metrar. Þrátt fyrir að
ferjur gengju strax á 18. öld milli
bakka fljótsins, og geri enn, þá töldu
stjórnvöld í Kalkútta afar mikilvægt
að það yrði brúað og lausnin var gríð-
armikil flotbrú sem fyrst komst í
gagnið árið 1871 en oft gekk brösug-
lega að halda henni opinni. Verk-
fræðingar þess tíma sáu þó ekki aðra
lausn, brúarhafið væri of breitt og
leðjan of mikil í farveginum til að
reisa stöpla. En síðar komu nýjar
lausnir til sögunnar og ýmsar voru
skoðaðar. Að lokum var fýsileg lausn
fundin – að reisa gríðarmikla hengi-
brú – og bygging brúarinnar nýju
hófst um miðjan fjórða áratug síð-
ustu aldar. Og eftir allrahanda erf-
iðleika og uppákomur, þar sem
heimsstyrjöld setti strik í reikning-
inn, var umferð hleypt á hana 1943.
Fjölskrúðugt mannlífið
Ein knýjandi ástæða fyrir byggingu
brúarinnar var sú að á vesturbakk-
anum, gegnt Kolkata og alveg við
brúna, er Howrah-lestarstöðin, sem
er ekki bara sú fyrsta sem reist var
Fyrir neðan lestarstöðina baðar fólk sig í Hoogly-fljóti og yfir því teygir mikilfengleg brúin sig bakka á milli.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ótölulegur fjöldi verkamanna rogast með eða dregur vörur að og frá brúnni.
Í dimmum göngum undir brúarendanum bíða blómasalar og viðskiptavinir markaðarins af sér þrumuskúr. Guðamyndir prýða þar stein-
veggina. Þarna starfa blómasalar í óreiðukenndu sambýli við flutningafyrirtæki og alls kyns vörur eru sífellt fluttar til og frá.
Allrahanda farartæki bruna eftir brúnni allan sólarhringinn
og er hinn klassíski Ambassador enn áberandi í umferðinni.
Howrah-brúin er oft kölluð hjarta mannlífsins í Kolkata. Yfir hana fara fleiri en yfir aðrar hengibrýr, við annan brúarendann er
fjölsóttasta lestarstöð Indlands og víðfrægur blómamarkaður við hinn. Einar Falur Ingólfsson fylgdist með lífinu við brúna.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is