Fréttablaðið - 18.02.2020, Síða 4

Fréttablaðið - 18.02.2020, Síða 4
Áttatíu leikskóladeildir eru lokaðar þar sem deildar- stjóri er félagsmaður í Eflingu. 1 Sumarbústaður tókst á loft og splundraðist: „Við finnum ekki heita pottinn“. Björgunar­ sveitarmaðurinn Jón Valgeir upp­ lifði ótrúlegt fárviðri á Þóris­ stöðum í Svínadal. 2 Sam herji krefur RÚV um af­sökunar beiðni og í hugar mál­ sókn Sam herji sendi stjórn RÚV bréf þar sem farið var fram á af­ sökunar beiðni vegna full yrðinga um að fyrir tækið hefði mútað namibískum em bættis mönnum. 3 Inn kalla vegan vörur vegna mögu leika á mjólkur vörum í inni haldi Vörurnar „No Bull Bolognese 350g“ og „No Pork­ ies Sausa ges 8pk“ sem merktar eru vegan hafa verið inn kallaðar vegna mögu leika á snefil magni af mjólkur vörum. 4 Guðrún eignaðist dóttur sína á Valentínusar dag Guð rún Helga Sørt veit eignaðist dóttur sína á Valentínusar daginn en sama dag gekk stormur yfir landið. 5 Namibíska lög reglan hand tók fyrr verandi fram kvæmda­ stjóra Fishcor Mike Nghipunya, fyrrverandi framkvæmdastjóri Namibian Fis hing Cor poration, eða Fishcor, hefur verið handtekinn. Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is BANNER-UP STANDAR Ódýr og einföld leið l að kynna þína vöru. Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is UTANRÍKISMÁL Norðmenn taka við loftrýmisgæslu Íslands í mars með nýjum orrustuþotum. Hingað koma fjórar af fimmtán F-35 þotum norska flughersins en herinn er að skipta út eldri F-16 vélum, sem hafa verið not- aðar hér á landi. Er þetta fyrsta verkefni hersins á erlendri grundu þar sem F-35 eru notaðar og vegna þess er stærra lið sent en vanalega, 150 manns. Til samanburðar má nefna að 110 manns fylgdu sex F-16 þotum árið 2013 og 40 manns fylgdu þremur slíkum vélum árið 2009. Meira lið sent með orrustuþotum til Íslands af öryggisástæðum Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessar vélar koma til landsins, ítalski flugherinn notaði þær í haust. Sveinn Guðmarsson, upplýsingafull­ trúi utanríkisráðuneytisins F­35 orrustuþota ef þeirri gerð sem hingað kemur. MYND/GETTY KJARAMÁL Samninganefndir Ef l- ingar og Reykjavíkurborgar munu funda hjá ríkissáttasemjara í dag. Verður það fyrsti sáttafundur aðila í ellefu daga. Ótímabundið verkfall um 1.800 félagsmanna Eflingar hjá borginni hófst í gær. Fullt var út úr dyrum á samstöðu- og baráttufundi Ef lingar í Iðnó í gær. „Þetta var svakalegur fundur. Enn og aftur verður það svo aug- ljóst að við hefðum aldrei farið af stað í þessa baráttu og vegferð nema vegna þess að við vissum að það var það sem félagsmenn vildu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Samninganefnd Eflingar muni mæta vel undirbúin á fundinn í dag eins og ávallt. „Við byrjum annars alla daga núna á fundi með trúnaðar- mönnum okkar hjá borginni. Þar hittumst við og tökum stöðuna og berum saman bækur okkar.“ Verkfallsvarsla verður með svip- uðu sniði og áður en Sólveig Anna segir að undanþágunefnd hafi veitt ýmsar undanþágur fram á miðnætti á fimmtudag. Þær undanþágur sem hafi verið samþykktar séu aðeins víðtækari en í síðustu viku og snúi meðal annars að böðun og þannig þáttum. Verkfallið hefur mikil áhrif á starfsemi leikskóla borgarinnar. Í svari skóla- og frístundasviðs til Fréttablaðsins kemur fram að 80 deildir eru lokaðar þar sem deildar- stjóri er félagsmaður í Ef lingu. Þá kunni að vera að f leiri deildir séu lokaðar vegna þess að ekki takist að tryggja lágmarksmönnun. Tveir leikskólar, Funaborg í Graf- arvogi og Berg á Kjalarnesi, eru alveg lokaðir meðan á verkfallinu stendur. Þá er aðeins yngsta deild leikskólans Jörfa í Hæðargarði opin af fimm deildum skólans. Það gæti þurft að loka einhverjum leikskólum alveg ákveðna daga eða hluta úr degi. Félagsmenn í Ef lingu koma að þrifum á 11 af 36 grunnskólum borgarinnar en misjafnt er milli skóla hversu mörg stöðugildin eru. Í svari borgarinnar segir að það sé bundið aðstæðum og umgengni á hverjum stað hversu lengi er hægt að hafa skóla opna ef ekki er hægt að sinna þrifum. „Það er skólastjórnenda á hverj- um stað með aðstoð heilbrigðis- eftirlits að meta hve lengi er hægt að halda skóla eða einstökum deildum opnum við slíkar aðstæður sem verkfall er,“ segir í svarinu. Forysta skóla- og frístunda- sviðs muni einnig koma að slíkum ákvörðunum en ljóst sé að húsnæði sem ekki er þrifið um lengri tíma verði lokað. Foreldrar munu ekki greiða fyrir þá daga sem börn þeirra þurfa að vera heima vegna verkfalls á leik- skólum. Það sama gildir um þær máltíðir sem falla niður í grunn- skólum. Ekki hefur verið tekið saman hversu há fjárhæð verður endurgreidd vegna þeirra verk- fallsaðgerða sem þegar hafa farið fram. birnadrofn@frettabladid.is Fyrsti fundur samninganefnda í ellefu daga er á dagskrá í dag Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir samstöðu- og baráttufund í gær sýna þann mikla stuðning sem sé við verkfallsaðgerðir meðal félagsmanna. Boðað hefur verið til samningafundar í dag. Tveir leikskólar í borginni eru alveg lokaðir og minnst 80 deildir þar sem deildarstjórar eru í Eflingu. Það var fjölmennt á samstöðu­ og baráttufundi Eflingar í Iðnó í gær og baráttuhugur í fólki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK JAPAN Japanir hafa ákveðið að fresta eða af lýsa ýmsum mann- fögnuðum í landinu vegna COVID- 19 veirunnar. Afmælisfögnuði Naruhito Japanskeisara, sem átti að fara fram í næstu viku, hefur verið frestað ótímabundið ásamt því að almennum þátttakendum hefur verið meinaður aðgangur að Tókýó-maraþoninu sem fram fer 1. mars. Reuters greinir frá. COVID-19 veiran, sem á upphaf sitt í Kína og hefur valdið dauða um sautján hundruð manns, hefur breiðst hratt út í Japan og þar hefur einn látið lífið vegna hennar. Útbreiðsla veirunnar í landinu er sögð geta hafa veruleg neikvæð áhrif á ferðaþjónustu og framleiðni í Japan en Ólympíuleikar eru fyrir- hugaðir þar í sumar. Tugþúsundir manna mæta árlega í afmælisfögnuð Japanskeisara sem haldinn er í Keisarahöllinni í miðri Tókýó og er áhættan á smiti sögð of mikil við slíkar aðstæður. Afmælis- fögnuði keisarans hefur ekki verið frestað síðan árið 1996 en þá stóð yfir gíslataka í japanska sendiráð- inu í Perú. Tókýó-maraþonið er eitt f jöl- mennasta maraþonhlaup heims og hefur 38 þúsund almennum keppendum sem skráð hafa sig í hlaupið verið meinuð þátttaka en 176 atvinnuhlauparar fá að taka þátt í hlaupinu. – bdj Afmæli keisarans frestað vegna veiru Naruhito var krýndur keisari Japans í fyrra svo að í ár hefði á að halda afmælis fögnuð hans sem keisara í fyrsta sinn. MYND/GETTY Sveinn Guðmarsson, upplýsinga- fulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir um hefðbundið eftirlit að ræða og á ekki von á að Íslendingar þurfi að gera sérstakar ráðstafanir. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessar vélar koma til landsins, ítalski flugherinn notaði þær í haust,“ segir hann. Stale Nymoen, ofursti í f lug- hernum, sagði í samtali við NRK að aukalið væri sent með vélunum af öryggisástæðum, það er ef eitthvað óvænt kæmi upp. Þar að auki þyrfti fleiri tæknimenn til að sinna F-35 en F16. Stefnt er á að skiptunum yfir í F-35 verði lokið árið 2025 en F-16 flotinn er kominn mjög til ára sinna. Kostnaðurinn er áætlaður um 1.200 milljarðar íslenskra króna. – khg 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.