Fréttablaðið - 18.02.2020, Side 8

Fréttablaðið - 18.02.2020, Side 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sighvatur Arnmundsson sighvatur@frettabladid.is Áhugavert væri hins vegar að heyra hvaða leiðir meiri- hlutinn vill fara til að ná fram mark- miðum eigin sáttmála. Enn á eftir að ná niður- stöðu í mörg risavaxin mál. Sparaðu allt að 50-70%! info@fedaszdental.huHafðu samband: + 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is Fyrir Eftir Tannlækningar í Ungverjalandi Nú þegar styttist í að kjaraviðræður BSRB við ríki og sveitarfélög hafi staðið í heilt ár greiða félagsmenn aðildarfélaga bandalagsins atkvæði um verkföll. Atkvæðagreiðslan stendur fram á miðvikudag og verði aðgerðirnar samþykktar munu verkföll hefjast 9. mars. Það er sannarlega ekki óskastaðan að við þurfum að beita verkfallsvopninu en þolinmæðin er löngu þrotin. Okkar félagsmenn bíða ekki lengur eftir sjálf- sögðum kjarabótum. Ef þetta er það sem við þurfum að gera til að knýja viðsemjendur okkar til þess að semja við sína félagsmenn verður svo að vera. Stytting vinnuvikunnar án launaskerðingar er ein stærsta krafa BSRB og þar þarf að vanda til verka. Okkar kröfur ættu að vera vel aðgengilegar fyrir okkar viðsemjendur og við höfum sýnt mikla þolin- mæði. Við höfum unnið mikla og góða heimavinnu með tilraunaverkefnum hjá ríki og Reykjavíkurborg sem sýnt hafa fram á kosti þess að stytta vinnu- vikuna. Þrátt fyrir þennan góða undirbúning hafa viðsemjendur okkar dregið viðræðurnar endalaust og má segja að umræðan hafi ekki ratað á rétta braut fyrr en í byrjun þessa árs. Enn á eftir að ná niðurstöðu í mörg risavaxin mál. Þar má nefna launahækkanir sem okkar félags- menn hafa beðið allt of lengi eftir, jöfnun launa milli markaða og launaþróunartryggingu. Við það bætist ávinnsla orlofs sem er til umræðu vegna laga- breytinga en ekki að kröfu launafólks. Þá bættist við sérmál í viðræðum við Samband íslenskra sveitar- félaga sem enginn átt von á þar sem sveitarfélögin virðast hafa einsett sér að mismuna starfsfólki sínu þegar kemur að launakjörum. Við látum ekki bjóða okkur upp á frekari drátt á kjarabótum félagsmanna aðildarfélaga BSRB. Þess vegna hvetjum við félagsmenn til að sýna sam- stöðu, greiða atkvæði um verkfallsaðgerðir og knýja þannig viðsemjendur okkar til samninga. Atkvæða- greiðslur eru á hendi hvers félags og við hvetjum félagsmenn til að kynna sér málið og kjósa. Kjara- samninga strax! Bíðum ekki lengur Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB Það eru blikur á lofti á íslenskum vinnumarkaði. Kjarasamningar lang-f lestra opinberra starfsmanna hafa nú verið lausir í tæpa ellefu mánuði. Ótímabundið verkfall félagsmanna Ef lingar hjá Reykjavíkurborg hófst í gær og aðildarfélög BSRB hafa boðað víðtækar verkfallsaðgerðir sem gætu hafist í næsta mánuði. Til samanburðar liðu rúmir þrír mánuðir frá því að samningar á almennum vinnumarkaði losnuðu og þar til skrifað var undir Lífskjara- samninginn. Þótti mörgum nóg um og kostaði niðurstaðan töluverð átök og verkföll. Þess vegna er í raun mesta furða hvað opinberu félögin hafa sýnt mikla biðlund. Formaður BSRB sagðist í viðtali í Fréttablaðinu í gær upplifa það þannig að viðsemjendur hefðu ekki tekið það alvarlega þegar bent hefði verið á hina miklu bið eftir samningum. Vissulega hafa átta aðildarfélög BHM samið við ríkið en öll eiga þau hins vegar ósamið við Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög. Í þeim samningum sem gerðir hafa verið við ríkið er að finna hækkanir umfram Lífskjarasamninginn fyrir hópa sem ekki eru á lægstu laununum. Það er því búið að setja for- dæmi fyrir hækkunum umfram Lífskjarasamn- inginn fyrir tiltekna hópa. Samninganefndir Ef lingar og Reykjavíkur- borgar munu loksins funda í dag en síðasti fundur var fyrir tæpum tveimur vikum. Vonandi munu viðræðurnar þokast áfram en af fenginni reynslu er lítil ástæða til bjartsýni. Það er áhugavert að rifja upp samstarfssátt- mála meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur. Í kaf la um skóla- og frístundamál segist meirihlut- inn meðal annars ætla að „bæta starfsumhverfi í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum með því að bæta kjör starfsfólks, stytta vinnu- vikuna“. Þá segir í kaf la um kynjajafnrétti og kjaramál að meirihlutinn ætli að leiðrétta laun kvennastétta. Það liggur fyrir að meirihlutinn er ekki hlynntur hugmyndum Ef lingar í þessum málum. Áhugavert væri hins vegar að heyra hvaða leiðir meirihlutinn vill fara til að ná fram markmiðum eigin sáttmála. Þær raddir heyrast að verði borgin við kröfum Ef lingar muni það leiða til óeðlilega lítils launa- munar milli faglærðra og ófaglærðra starfsmanna á leikskólum. Ekki skal gert lítið úr þeim mál- f lutningi en lausnin blasir auðvitað við. Það þarf líka að hækka laun menntaðra leikskólakennara. Samkvæmt lögum eiga tveir þriðju stöðugilda starfsmanna sem sinna kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla að hafa leikskólakennaramenntun eða aðra uppeldis- menntun. Þetta hlutfall er undir 40 prósentum hjá Reykjavíkurborg. Af hverju ætli það sé? Orð og efndir Erfiðar erfðir Tugþúsundir Íslendinga hafa rifið upp rafræn skilríki og tekið þátt í persónuleikaprófi Íslenskrar erfðagreiningar. Bol- urinn er því greinilega áfjáður í að kynnast sjálfum sér betur, í það minnsta spenntari en Kári Stefánsson sem segist horfa á heildarmyndina. Niðurstöðurnar eiga að gefa betri hugmynd um líffræðilegu ferlana að baki persónuleik- anum og hvort eða hvernig þeir tengist einhverjum sjúkdómum. Það er hægt að setja spurningar- merki við sjálfsgreiningarhæfni almúgans en vonandi fyrir- gefa af komendur okkar okkur þegar þeir sjá svart á hvítu að við séum uppsprettan að þeim fjölmörgu kvillum sem munu vafalaust plaga þá. Sjoppuleg líkkista Sporðdrekinn sem fannst á Akureyri rétt fyrir helgi drapst í haldi lögreglu. Ekki liggur fyrir hvort dánarorsök átt- fætta nýbúans hafi verið af náttúrulegum völdum eða hvort slæm fangavist hafi gert útslagið. Það er þó ljóst að hann var að lokum sendur til Reykja- víkur í gömlu hrásalatsboxi.  Vonandi munu hin stjörnu- merkin berjast fyrir betri útfararþjónustu ef ske kynni að þau tækju upp á að drepast fyrir norðan. arnartomas@frettabladid.is 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.