Fréttablaðið - 18.02.2020, Blaðsíða 9
Þriðju k y nslóðar farsíma-kerfin, 3G, voru fyrst opnuð í nokkrum löndum upp úr
síðustu aldamótum. Símtækin sem
í upphafi gátu nýtt þessa nýju tækni
voru fá og óþjál. Viðskiptavinirnir
létu sér fátt um finnast og jafnvel
þeir nýjungagjörnustu fundu rýra
nýtingarmöguleika.
Þegar fyrsta 3G þjónustan á
Íslandi fór í loftið í september 2007
voru nýkomnir á markað farsímar
sem byrjuðu að bjóða upp á þægi-
legt viðmót til að nýta gagnagetuna.
Einn sá framsýnasti var Steve Jobs
sem kynnti fyrsta iPhone símann á
sýningu í janúar 2007. Þar reyndist
kominn fyrsti snjallsími heims sem
almenningur tengdi vel við.
Vítamín félagslega hagkerfisins
Nú er svo komið að við getum fæst
hugsað okkur hefðbundinn dag án
þessa sítengda galdratækis. Tón-
list, landakort, ljósmyndir, sjón-
varp, staðsetningar, myndskeið,
hlaðvörp, skilaboð, nám, heilsa,
hreyfing, vinna, grín, eftirlit, sím-
töl, viðskipti, fréttir, leitarvélar,
fjármál, póstur, veður, orðabækur,
leikir, félagsmiðlar. Eitt tæki tekur
alla þessa þætti og fleiri með okkur
í gegnum ferðalag dagsins. Hver
snjallsími hefur langtum meiri
reiknigetu en þær tölvur sem komu
fólki á tunglið og lifandi til baka á
síðustu öld. Við bætist að símtækin
geta á örskotsstund virkjað nær
óendanlega reikni- og leitarvirkni
í gagnaverum einhvers staðar úti
í heimi, jafnvel til að hlýða talaðri
spurningu okkar um matarupp-
skrift á meðan við rýnum í ísskáp-
inn. Öf lugri alþjónustu hefur
mannkyn ekki kynnst.
Yngra fólk þekkir ekki tilveruna
án þess að geta tengst netinu nánast
hvar sem er, hvenær sem er. Það var
3G sem breytti nettengdum heimi
okkar og setti hann í lófann á okkur.
4G, WiFi, Bluetooth og f leiri þráð-
lausar lausnir opnuðu þennan
heima á enn víðari og fjölbreyttari
vegu. Á grunni tækni sem nú þykir
sjálfsögð risu á örfáum árum iðn-
greinar, viðskiptamódel og alþjóð-
leg viðskiptaveldi sem áður voru
óhugsandi.
Hvað næst?
Þá er spurningin: Hvernig munu
næst útgáfur fjarskiptatækni, svo
sem 5G og hlutanetið (IoT), hjálpa
okkur í leik og starfi? Óræður sjón-
deildarhringur blasir við okkur sem
fyrr. Við getum ekki séð fyrir nema
lítinn hluta þeirra möguleika sem
snjallir frumkvöðlar munu nýta sér
með nýju og endurbættu grunnlagi.
Víst er að ekki verður aðeins
hugað að þáttum sem gera líf okkar
auðveldara, skemmtilegra og inni-
haldsríkara, heldur einnig að draga
úr sóun og tryggja sem besta nýt-
ingu verðmæta. Við vitum nógu
mikið til þess að átta okkur á því að
nýr tæknigrunnur skapar ný tæki-
færi fyrir þjóðarhag, viðskipti og
lífsgæði.
Fjarstýrðir aðgerðarþjarkar
Nýjungar eru ekki án áhættu. Huga
þarf að persónuvernd, heilsu fólks
vegna nýrrar tíðninotkunar og
félagslegum og sálrænum ógnum,
sem svo öflug tækni getur skapað
ef hún er ofnotuð eða misnotuð. En
möguleikarnir á að bæta líf fólks
eru líka endalausir.
Umferðaröryggi má bæta og það
löngu áður en sjálf keyrandi bílar
koma til sögunnar. Einn möguleik-
inn er til dæmis sá að bílar munu
geta „talað“ saman í rauntíma og
látið bílstjóra sína vita af hálku
sem er fram undan á veginum.
Heilbrigðisþjónusta mun breytast
með langtum skemmri svörunar-
tíma. Nettengdir læknar munu geta
fjarstýrt þjörkum við fjölmargar
algengar aðgerðir. Þannig má auka
til muna aðgengi að hátækni heil-
brigðisþjónustu í dreifðum byggð-
um eða úti á sjó, auk þess að spara fé
og sjúklingum og læknum ferðalög,
tafir og óþægindi.
Staðbundin 5G net á iðnaðar-
svæðum ásamt tengdum skynj-
urum munu auka öryggi starfsfólks,
minnka afföll við framleiðslu og
þannig gera reksturinn arðbærari
svo að meira verði til skiptanna.
Snjöll mælitækni í húsum mun
geta bætt nýtingu á heitu vatni og
rafmagni. Þetta eru bara örfá dæmi
um það sem talið er að ný tækni
muni leiða af sér.
Samstillt átak
Ef vel tekst til mun ný tækni brúa
fjarskiptagjána sem í dag skilur að
þéttbýlisstaði í dreif býli og suð-
vesturhornið. Uppbygging alls
landsins er risavaxið verkefni sem
ekkert eitt fjarskiptafyrirtæki mun
ráða við. Leiðin að þessu marki er
samnýting grunninnviða, reglu-
verk sem horfir fram á við en ekki
í baksýnisspegilinn og umhverfi
sem tryggir sem skynsamlegasta
nýtingu þeirra f jármuna sem
fyrirtækin hafa yfir að ráða til fjár-
festinga. Mikið liggur við að ríki,
sveitarfélög og fjarskiptafyrirtæki
vinni saman að þessu mikilvæga
verkefni.
Viðskiptarisar á grunni nýrrar tækni
Orri Hauksson
forstjóri Símans
QASHQAI 4X4
SJÁLFSKIPTUR
NISSAN
Gríptu einn nýjan Nissan Qashqai með sjálfskiptingu og hinu fullkomna Nissan
Intelligent fjórhjóladrifi. Nissan Qashqai er einn best útbúni sportjeppinn á markaðnum.
Honum fylgir fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti, 7" upplýsingaskjár með
samþættingu við snjallsíma, bakkmyndavél, 17" álfelgur og margt fleira.
NÝR QASHQAI ACENTA
VERÐ: 5.340.000 KR.
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
Don't enlarge the this template.
The size of this template can be reduced.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bílasala Reykjaness
Reykjanesbæ
www.bilasalareykjaness.is
419 1881
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
0
5
N
is
s
a
n
Q
a
s
h
q
a
i
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
f
e
b
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0