Fréttablaðið - 18.02.2020, Blaðsíða 25
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
18. FEBRÚAR 2020
Hvað? Lífsins listamaður
Hvenær? 17.00-17.40
Hvar? Listasafninu á Akureyri
Snorri Ásmundsson fjallar um feril
sinn í listinni og lífsreynslu.
Hvað? Wuwei í Ferlinu og dygðinni
(Daodejing) – Bókinni um veginn
Hvenær? 16.00-17.10
Hvar? Lögberg, 2. hæð, stofa L-204
Konfúsíusarstofnun og Heim-
spekistofnun standa að heimsókn
Douglas Berger, samanburðar-
heimspekings og prófessors við
Leiden-háskóla, sem fjallar um
áskoranir þvermenningarlegrar
heimspeki.
Hvað? Versti staður á jörðinni?
Hvenær? 12.05
Hvar? Þjóðminjasafn Íslands – fyrir-
lestrasalur
Illugi Jökulsson flytur fyrsta
fyrirlestur vorsins hjá Sagnfræð-
ingafélagi Íslands: Versti staður
á jörðinni? Viðhorf hermanna
og sjómanna Bandamanna til
Íslands og Íslendinga. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Hvað? Skýjum ofar – á hæsta tindi
jarðar
Hvenær? 20.00
Hvar? Brúarás, Hálsasveit, Borgar-
firði
Fyrirlestur um himneskan stað
eða martröð, nema hvort tveggja
sé. Skagamaðurinn Ingólfur Geir
Gissurarson segir frá viðureign
sinni við fjallið Mount Everest árið
2013.
Hvað? Byrjendanámskeiði í kín-
versku
Hvenær? 17.00.-19.00
Hvar? Veröld – hús Vigdísar
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
efnir til námskeiðs á þriðjudögum
til 24. mars. Kennari er Liu Kaili-
ang sem býr að mikilli reynslu í
kínverskukennslu bæði í Háskóla
Íslands og hjá Endurmenntun HÍ.
Kennt verður á ensku. Verð, 30.000
krónur. Öll námsgögn innifalin.
Hvað? Listhugleiðsla í hádeginu
Hvenær? 12.10-12.50
Hvar? Listasafn Einars Jónssonar,
Skólavörðuholti
Safngestum er boðið að skynja,
njóta og uppgötva á einstakan
hátt með því hugleiða við
verkið Dögun eftir Einar og þiggja
fræðslu um það í kjölfarið. Umsjón
hefur Halla Margrét Jóhannes-
dóttir. Aðgangseyrir er 1.000
krónur en 500 krónur fyrir eldri
borgara og öryrkja.
Hvað? Velgengni norskra bók-
mennta
Hvenær? 17.00
Hvar? Norræna húsið
Halldór Guðmundsson fjallar um
norskar samtímabókmenntir og
viðtökur þeirra á alþjóðavettvangi
og segir frá starfi sínu fyrir granna
okkar í austri – á vegum Norræna
félagsins í Reykjavík.
Ingólfur Geir Gissurarson glímdi við Everest árið 2013, og hafði sigur.
Rína r g u l l ið í d agbók u m Cosimu nefnist fyrirlestur Árna Blandon hjá Richard
Wagner félaginu á laugardaginn 22.
febrúar klukkan 13 í Hannesarholti.
Eiginkona Wagners, Cosima, sem
var dóttir Franz Liszt, hélt dagbæk-
ur um líf þeirra hjóna og samtöl og
hafa dagbækurnar því mikið heim-
ildargildi.
Í tengslum við myndbandssýn-
ingu á Rínargullinu, fyrstu óperu
Niflungahringsins, fjallar Árni um
það sem fram kemur um óperuna í
dagbókunum og hefst sýningin að
loknum fyrirlestrinum. Sýnt verður
úr hundrað ára Hringnum, upp-
færslu Frakkanna Patrice Chereau
og Pierre Boulez I Bayreuth 1976.
Wagner félagið á Íslandi fagnar 25
ára afmæli á þessu ári, það var stofn-
að í kjölfar sýningu á styttri útgáfu
á Niflungahringnum í Þjóðleikhús-
inu á Listahátíð 1994. Í félaginu eru
nú 230 manns. Það stendur fyrir
viðamikilli dagskrá á hverju ári
með fyrirlestrum, tónlist og óperu-
ferðum. Sextán manna hópur sá
Niflungahringinn á Metropolitan-
óperunni í New York síðasta vor og
fyrirhuguð er ferð 40 manns á Nifl-
ungahringinn í París í lok nóvem-
ber. Formaður félagsins frá upphafi,
Selma Guðmundsdóttir, hefur setið
í stjórn Alþjóðasamtakanna sem í
eru 125 Wagner félög víða um heim,
frá árinu 2014 og var nýverið endur-
kjörin til næstu fimm ára.
Dagskráin á laugardag er í sam-
starfi við Rabb um klassíska tón-
list, hún er opin og öllum heimill
aðgangur. – gun
Gluggað í dagbækur Cosimu Wagner
Wagnerhjónin Cosima og Richard á góðri stund.
Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti,
þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með
hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður,
skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum.
Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum.
Nýr Dacia Duster
Gerðu virkilega
góð kaup! Verð frá:
3.690.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
0
9
D
a
c
ia
D
u
s
te
r
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bílasala Reykjaness
Reykjanesbæ
www.bilasalareykjaness.is
419 1881
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
0
9
D
a
c
ia
D
u
s
te
r
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0