Fréttablaðið - 18.02.2020, Page 28

Fréttablaðið - 18.02.2020, Page 28
EN FRAM HJÁ ÞVÍ VERÐUR EKKI LITIÐ AÐ ÞETTA ERU EINHVERJAR ÁHRIFAMESTU BÆKUR ALLRA TÍMA OG BJUGGU AÐ MIKLU LEYTI TIL ÞESSA BÓKMENNTA- GREIN. Stefán Pálsson Jean Posocco er allt í öllu hjá Froski útgáfu sem hefur um árabil verið leiðandi í útgáfu myndasagna á Íslandi. Hann hefur verið iðinn við að dusta rykið af gömlum kunn- ingjum á borð við Viggó viðutan, Sval og Val, Ást- rík og Steinrík, Lukku-Láka og nú síðast sjálfan Tinna sem var heldur betur tekið fagnandi þegar fyrstu eintökum nýrra þýðinga bókanna Ferðin til tunglsins og Í myrkum mánafjöllum var útdeilt. „Myndasögunirðir eru auðvitað mjög spenntir fyrir þessu framtaki og dást að því,“ segir sagnfræðing- urinn Stefán Pálsson sem er flestum fróðari um þann menningarkima sem evrópska myndasagan er. Nördar slíta fjötra nostalgíunnar „Sem betur fer er enn þá til fólk sem vill lesa nýjar mynda­ sögur og vill líka sjá þessar klassísku aftur og áfram. Þann­ ig að það er markaður fyrir þetta listform,“ segir Jean Pos­ occo, stofnandi Frosks. Myndasögumennirnir Tumi Kolbeinsson, sjálfur Stefán Pálsson, Rúnar Ingi Hannah, Magnús Kristinsson og Gunnar Þór Sigurðsson létu sig málið eðlilega varða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Herra Nexus, Gísli Einarsson, eigandi mikilvægustu verslunar nörda allra landshluta, skýtur að sjálfsögðu skjólshúsi yfir Tinna og fer hér yfir málin. Gömlu Tinna­ bækurnar eru eftirsóttir safngripir fyrst og fremst fyrir þýðingarnar og ljóst að þær nýju voru lagðar fyrir kröfuharða dómara á föstu­ daginn. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR Þótt myglaðar marglyttur, skemmdir skyrhákarlar og trítil óð trampólín hefðu tekist á loft í roki síðasta föstudags hefði það varla dugað til þess að halda áköfum myndasögu- söfnurum frá Nexus, varnar- þingi þeirra í Glæsibæ, þar sem endurútgáfu fyrstu bókanna í nýjum þýðingum var fagnað. „Hergé og Tinni hafa dálítið sömu stöðu innan fransk/belgísku myndasögunnar og Halldór Lax- ness í íslenskum bókmenntum. Sumum finnst kannski nóg um allt blætið í kringum hann og þennan endalausa iðnað, með minjagripum, fatnaði og glingri,“ heldur Stefán, sem var í essinu sínu á föstudaginn, áfram. „En fram hjá því verður ekki litið að þetta eru einhverjar áhrifa- mestu bækur allra tíma og bjuggu að miklu leyti til þessa bókmennta- grein.“ Eins og Jean hefur þegar upplýst í samtali við Fréttablaðið var ákveðið að láta nánast helgan texta gömlu þýðinganna víkja fyrir nýjum sem eru í senn nær frumtexta Hergé og íslensku nútímamáli. „Það eru skiptar skoðanir í hjörð- inni um þessa ákvörðun að þýða bækurnar upp á nýtt, en ég er sam- mála því að það má ekki festast í nostalgíu varðandi gömlu þýðing- arnar. Textinn verður að geta talað til yngri kynslóða,“ segir Stefán. toti@frettabladid.is Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is Dagskrá fundarins er svohljóðandi, sbr. 15. gr. samþykkta félagsins: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endur- skoðanda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á næstliðnu reikningsári. 4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar. 5. Ákvörðun um heimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum. Stjórn félagsins mun óska eftir heimild fundarins til að kaupa eigin bréf svo sem lög leyfa í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. 6. Tillögur til breytinga á samþykktum, ef einhverjar hafa borist. a) Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins, lögð til lækkun hlutafjár til ógildingar á eigin hlutum. b) Tillaga um breytingu á 23. gr. samþykkta félagsins, lagt er til að ekki verði kjörnir varastjórnarmenn. 7. Kosning félagsstjórnar. 8. Kosning endurskoðanda. 9. Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd. 10. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og nefndar- manna undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir næsta kjörtímabil. 11. Önnur mál. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Óskað er eftir að umboð berist tímanlega fyrir dagsetningu aðalfundar á reginn@reginn.is og skal það vera undirritað af hluthafa eða prókúruhafa. Einnig er fundarmanni heimilt að framvísa umboði við mætingu á aðalfund en þá skal þess gætt að mæta tímanlega til að hægt sé að yfirfara umboð m.t.t. gildis þess. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er. Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en tvær vikur eru til aðalfundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á fundinum vísast til 18. gr. samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess, www.reginn.is/fjarfestavefur Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Varðandi heimild til að krefjast hlutfalls- eða margfeldiskosningar við kjör stjórnarmanna vísast til 24. gr. samþykkta félagsins, en krafa um það skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm dögum fyrir hluthafafund. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins. Tillögu tilnefningarnefndar um samsetningu stjórnar, og önnur framkomin framboð, má finna á heimasíðu félagsins. Sérstök athygli er vakin á því að samkvæmt samþykktum félagsins ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst sjö sólarhringum fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 4. mars 2020. Framboðum skal skila á skrifstofu Regins hf., Hagasmára 1, Kópavogi eða á netfangið tilnefningarnefnd@reginn.is Tilnefningarnefnd getur breytt tillögu sinni þar til fimm dagar eru til aðalfundar. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Þar sem kjör tilnefningarnefndar er á dagskrá fundarins er óskað eftir framboðum í tilnefningarnefnd sem skal skipuð að minnsta kosti þremur nefndarmönnum sem skulu hafa nauðsynlega þekkingu og reynslu miðað við störf nefndarinnar. Meirihluti nefndarmanna skal vera óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess samkvæmt sömu reglum og gilda um óhæði stjórnarmanna, sbr. lið 2.3 í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Þá skal að minnsta kosti einn nefndarmaður vera óháður stórum hluthöfum félagsins, þ.e. þeim sem ráða 10% eða meira af heildarhlutafé eða atkvæðamagni í félaginu, einir eða í samstarfi við aðra sbr. lið 2.3 í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Við framangreint mat er litið heildstætt til beinna og óbeinna tengsla nefndarmanna. Framboðseyðublað og nánari upplýsingar um starfssemi tilnefningarnefndar er að finna á heimasíðu félagsins www. reginn.is/fjarfestavefur Sérstök athygli er vakin á að óskað er eftir tillögum um fram- boð í tilnefningarnefnd skriflega með minnst sjö sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 4. mars 2020. Skulu tilkynningar um framboð berast á netfangið stjorn@reginn.is Upplýsingar um frambjóðendur til tilnefningarnefndar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til þess hversu margir sækja hann, sbr. 14. gr. samþykkta félagsins. Gögn vegna fundarins verða aðgengileg á skrifstofu félagsins, Hagasmára 1, 201 Kópavogi og á vefsvæði tengdu aðalfundi á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestavefur, en endan- leg dagskrá og tillögur verða aðgengilegar a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, sbr. 18. gr. samþykkta félagsins. Aðalfundur félagsins verður án pappírsgagna. Kópavogur, 17. febrúar 2020. Stjórn Regins hf. Stjórn Regins hf. boðar til aðalfundar félagsins í Hörpu, Björtuloftum, miðvikudaginn 11. mars 2020 kl. 16:00. AÐALFUNDUR 11. MARS 2020 Í HÖRPU 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.