Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vinnutímamálin að leysast
Skriður er í viðræðum BSRB við ríkið og fleiri Mörg
mál á borði ríkissáttasemjara Flugstéttir eru í kjaradeilum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Kominn er skriður á viðræður full-
trúa BSRB og ríkisins um gerð nýs
kjarasamnings. Fyrir liggja drög að
samkomulagi um styttingu vinnu-
viku dagvinnufólks, en þá er eftir að
ná niðurstöðu um sama efni fyrir
vaktavinnufólk. Sömu tillögur eru
einnig til viðræðu við Reykjavíkur-
borg og Samband íslenskra sveitar-
félaga. Viðræður þessar fara fram
hjá Ríkissáttasemjara og hafa staðið
í hálft ár.
Margir í aðildarfélögum BSRB
eru vaktavinnufólk og því þykir mik-
ilvægt að ná samkomulagi um vinnu-
tímamál, skv. því sem Árni Stefán
Jóhannsson, for-
maður Sameykis,
greinir frá á vef
félagsins. Enn er
eftir að ræða jöfn-
un launa á vinnu-
markaði, sem
einnig er sam-
eiginlegt baráttu-
mál aðildarfélaga
BSRB og hluti af
eldra og víðtæk-
ara samkomulagi á vinnumarkaði.
„Stytting vinnutíma hefur verið
stór breyta í viðræðum BSRB-félag-
anna við ríkið. Nú er þar kominn
grunnur að samkomulagi, en auðvit-
að hangir þetta saman við mörg fleiri
atriði í samningagerðinni. Það er
heilmikið eftir enn,“ segir Bryndís
Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari í
samtali við Morgunblaðið.
Efling, flug og blaðamenn
Mörg fleiri mál eru á borð Ríkis-
áttasemjara þessa dagana. Þar má
nefna deilu Eflingar – stéttarfélags
við Reykjavíkurborg og ýmissa flug-
stétta við Samtök atvinnulífsins. Þar
með er talið mál flugmanna Air Ice-
land Connect sem eru farnir í yfir-
vinnubann. Sömuleiðis fara félagar í
Blaðamannafélagi Íslands sem
starfa á netmiðlum í fjögurra stunda
verkfall næstkomandi föstudag hafi
kjarasamningar ekki náðst fyrir
þann tíma en sú kjaradeila er til með-
ferðar hjá Ríkissáttasemjara.
Bryndís
Hlöðversdóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sala á aðgöngumiðum á uppfærslu
Þjóðleikhússins á barnaleikritinu
Kardimommubænum, sem frum-
sýnd verður í apríl næstkomandi,
slær öll met. Sala á netinu hófst á
miðnætti í fyrrinótt og um klukkan
17 í gær voru um 12 þúsund miðar
seldir. „Viðtökurnar eru einstakar,
meiri og betri en við höfum áður séð
í nokkru leikriti sem hér hefur verð
fært upp,“ segir Ari Matthíasson
þjóðleikhússtjóri í samtali við
Morgunblaðið. Kardimommubærinn
eftir hinn norska Thorbjörn Egner
hefur oft áður
verið sýndur í
Þjóðleikhúsinu og
aðsókn hefur
jafnan verið góð.
„Egner stendur
alltaf fyrir sínu
og leikritin hans
og boðskapur
þeirra eru nærri
hjarta margra
kynslóða,“ segir Ari.
Ásdís Skúladóttir verður leik-
stjóri uppfærslunnar á Kardi-
mommubænum. Með hlutverk ræn-
ingjanna fara Sverrir Þór Sverris-
son, Hallgrímur Ólafsson og Oddur
Júlíusson, Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir leikur Soffíu frænku, Örn
Árnason Bastían bæjarfógeta og
Þórhallur Sigurðsson verður Tóbías
í Turninum. Þá taka 24 börn þátt í
verkinu; tveir tólf manna hópar.
Þykir nauðsynlegt að vera með stór-
an hóp enda gangi verk eins og
Kardimommubærinn oft á annan
vetur. Því á að fjölga sýningum mið-
að við fyrstu áform.
12 þúsund aðgöngumiðar á Kardi-
mommubæinn seldir á einum degi
Frumsýningin er í apríl Leikrit Thorbjörns Egners eru alltaf vinsæl
Morgunblaðið/Árni Sæberg
List Þjóðleikhúsið við Hverfisgötu.
Ari
Matthíasson
Enginn kúabóndi
vildi selja mjólk-
urkvóta á þriðja
og síðasta inn-
lausnardegi árs-
ins, 1. nóvember,
og því varð engin
innlausn. Ástæð-
an er væntanlega
sú að nýtt kerfi
tekur við um ára-
mót og búast má
við að verðið hækki.
Núverandi innlausnarkerfi grund-
vallast á því að leggja átti kvótakerfi
í mjólkurframleiðslu niður. Eftir að
þau áform breyttust hefur sáralítið
framboð verið af mjólkurkvóta á
fyrirframákveðnum innlausnar-
dögum og nú alls ekki neitt. Ríkið
greiðir 100 krónur fyrir lítrann í ár
og úthlutar kvótanum síðan til þeirra
sem óska nema hvað nýliðar og fleiri
hópar njóta ákveðins forgangs.
Tilboðsmarkaður um áramót
Samkvæmt endurskoðun búvöru-
samnings sem gengið var frá fyrir
skömmu tekur nýtt kerfi, tilboðs-
markaður, við um áramót. Það er
nær því að vera markaðskerfi þótt
með takmörkunum sé. Þannig kerfi
var notað á árunum 2011 til 2016.
Vitað er að margir bændur vilja
minnka við sig eða hætta en hafa
ekki viljað selja á því verði sem ríkið
hefur boðið. Þá er eftirspurn eftir
kvóta alltaf mikil því margir bændur
vilja stækka búin. Má því búast við
að flóðgáttir opnist á nýju ári og
verðið hækki. helgi@mbl.is
Enginn vill
selja kvóta
Kýr Margir vilja
stækka kúabúin.
Nýtt fyrirkomulag
tekið upp á nýju ári
Búast má við fljúgandi hálku á Suður-
og Vesturlandi nú í morgunsárið og
er því ástæða fyrir fólk að fara var-
lega.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur reiknar með glærahálku á flest-
um vegum og gangstéttum fram eftir
degi. Frostið leggst á blauta vegi svo
úr verður skæni sem ganga þarf var-
lega um. Vegagerðin og aðrir salt-
bera stofnleiðir en ætla má þó að víða
verði vetrarþjónustu ekki komið við.
Á mánudag í sl. viku þurfti að kalla
út aukamannskap á slysadeild en þá
leituðu þangað tugir manna eftir
byltur, það er í aðstæðum líkum þeim
sem gætu myndast í dag. Einar ítrek-
ar því tilmæli um að fólk fari að öllu
með ítrustu gát.
Varað við mik-
illi hálku í dag
Í Borgarleikhúsinu er mikið að gerast þessa vik-
una á undanúrslitakvöldum Skrekks, sem er
hæfileikahátíð skóla- og frístundasviðs Reykja-
víkur. Fulltrúar alls 24 grunnskóla taka þátt og
átta þeirra keppa til úrslita á lokahátíð Skrekks
sem verður 11. nóvember og þá sýnd á RÚV. Um
230 unglingar mættu í Borgarleikhúsið í gær-
kvöld og tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá fyrsta
undanúrslitakvöldsins. Alls munu um 600 ung-
lingar blanda sér í leikinn í Skrekk á næstu
dögum með ýmsum frumsömdum atriðum sinna
skóla og spreyta sig í leiklist, söng, dansi, hljóð-
færaleik, búningahönnun, förðun, lýsingu, hljóð-
blöndun og annarri þroskandi og lærdómsríkri
leikhúsvinnu. sbs@mbl.is
Upphitun í undanúrslitum Skrekksins
Morgunblaðið/Eggert
Fjöldi krakka blandaði sér í leikinn í Borgarleikhúsinu